Fréttablaðið - 20.03.2005, Side 10
Í sömu viku og útvarpsráðsmenn B-
og D-lista sátu að samráði um að
mæla með þeim umsækjanda um
stöðu fréttastjóra Ríkisútvarpsins
sem síst þótti hæfur sat menningar-
málanefnd Reykjavíkur á fundi og
ræddi verklagsreglur við ráðningu
forstöðumanna menningarstofnana.
Ólíkt hafast menn að. Meirihluti
menningarmálanefndar vill setja
bæði sjálfum sér og sviðsstjóra
málaflokksins skorður sem eiga að
tryggja málefnalega niðurstöðu í
ráðningu forstöðumanna. Reyndar
tel ég að minnihluti D-lista sé svip-
aðs sinnis í borgarhluta stjórnmál-
anna þótt fulltrúar sama lista hegði
sér með allt öðrum hætti þegar þeir
eru í meirihluta. Í stuttu máli vill
menningarmálanefnd borgarinnar
setja sviðsstjóra sínum og sjálfu sér
reglur sem leiða til þess að ekki
verði ráðinn forstöðumaður menn-
ingarstofnunar nema að undan-
gengnu skilgreindu ferli, með rök-
stuðningi og pólitískri ábyrgð sem
á endanum er ráðsins. Frávik frá
meginreglunni um að hinn hæfasti
skuli ráðinn verða því aldrei nema
afleiðingar séu öllum ljósar.
Aldrei er hægt að fullkomna
slíkt ferli, einatt kunna að koma upp
deilur. En við viljum geta tekið
ákvörðun byggða á rökum.
Reglurnar eru m.a. þessar:
-Auglýsing um starf sé skýr, og
ekki sé hægt að finna upp réttlæt-
ingu fyrir ráðningu með
eftiráfundnum rökum. Þetta er
vandasamt verk og verður að ræð-
ast á vettvangi þess ráðs sem að lok-
um ræður forstöðumann í menning-
arstofnun. Eigi að leggja megin-
áherslu á rekstrarlega hæfni í stað
faglegrar getu verði það að koma
fram í auglýsingu.
-Að allar umsóknir fái hlutlægt
mat þar sem þær eru fyrst flokkað-
ar af fólki sem kann til verka. (Til
dæmis ekki eins og þegar Finnur
Ingólfsson var skipaður Seðla-
bankastjóri og Davíð Oddsson lýsti
yfir að ekki hefði þurft að opna um-
slög annarra umsækjenda.)
-Að þeir sem líklegir þykja eftir
fyrstu umferð fái viðtöl, og þau við-
töl séu tekin af teymi sem hefur
ólíkan bakgrunn og þekkingu, og
helst af fólki af báðum kynjum. Við
sjáum fyrir okkur 3-4 manna teymi,
bæði innan úr stjórnsýslu borgar-
innr og utan. Haldin sé kerfisbund-
in skráning um kosti og galla hvers
og eins.
-Að þetta teymi gefi rökstutt álit
um hæfni, lýsi hvern það telur hæf-
astan og geri sérstaklega grein fyrir
því til ráðsins ef ágreiningur er.
-Að sviðsstóri málaflokksins
geri tillögu um ráðningu með skír-
skotun til þessarar vinnu.
-Að ráðið taki ekki lokaákvörðun
nema allt þetta liggi fyrir og sé
knúið til að rökstyðja sérstaklega
niðurstöðu sem fer í bága við fag-
legt mat teymis og/eða sviðsstjóra.
Svipað verkferli gildir nú hjá
menntaráði borgarinnar við ráðn-
ingu skólastjóra og hefur reynst
farsælt.
Ráðningar af þessu tagi eru
alltaf háðar mati. Það mat kann að
vera auðvelt og er það oft, öðrum
stundum á mörkum ef margir hæfir
umsækjendur sækja. En í slíkum
tilvikum er þá hægt að taka ákvörð-
un með góðri samvisku, gagnstætt
því sem hægt er að hugsa sér að
hafi verið tilfellið með útvarpsráðs-
meirihlutann á dögunum. ■
Núverandi forsætisráðherra, Hall-
dór Ásgrímsson, er sérkennilegur
stjórnmálamaður. Einn í hópi ör-
fárra Íslendinga lýsti hann því yfir
eftir forsetakosningarnar í Banda-
ríkjunum í nóvember að það væri
gott fyrir íslensku þjóðina að
George Bush skyldi vera endur-
kjörinn. Væntanlega gott fyrir
heimsbyggðina líka. Ekki rökstuddi
hann þetta frekar en helst mátti á
honum skilja að mótframbjóðandi
Bush, John Kerry, væri svo illa læs
að hann gæti tæpast sett sig inn í
varnarmálefni Íslands og Banda-
ríkjanna en sem kunnugt er hafa
þau mál verið í umræðunni að und-
anförnu. Svo auðséð var til hvers
refirnir voru skornir.
Á NATO-fundi í Brussel nú ný-
lega lét forsætisráðherrann hafa
eftir sér í Morgunblaðinu að hann
hefði á fundinum „aldrei orðið var
við neina persónulega andúð eða
pirring í máli manna í garð Banda-
ríkjaforseta“. Auðheyrt var að hon-
um létti mikið við það. Þar er hann
greinilega á annarri skoðun en tug-
þúsundir Evrópubúa sem flykktust
hvarvetna út á götur við heimsókn
Bush og mótmæltu kröftuglega,
sökuðu hann m.a. um að vera skað-
valdur mannréttinda í heiminum.
En líklega er þessi afstaða ráðherr-
ans í rökréttu framhaldi af ákvörð-
un hans og Davíðs Oddssonar að
tengja nafn Íslands við hina ólög-
mætu innrás Bandaríkjamanna og
Breta í Írak, sem ráðherranum
hefur gengið erfiðlega að útskýra
fyrir þjóðinni, svo ekki sé meira
sagt. Raunar virðist svo sem áfram
eigi að tengja Ísland við stríðsrekst-
urinn í Írak, sem ekkert lát virðist
vera á, þrátt fyrir nýafstaðnar kosn-
ingar þar í landi en á fyrrnefndum
NATO-fundi var ákveðið að Íslend-
ingar leggi fram fjármagn til þjálf-
unar á „öryggissveitum“ í Írak eins
og það er nefnt og taki þátt í vopna-
flutningum þangað. Skyldi það vera
gert með samþykki ísl. þjóðarinnar?
Hvaða breytingar hafa menn svo
helst séð á stjórnarstefnunni síðan
Halldór Ásgrímsson skipti sæti við
Davíð Oddsson um miðjan septem-
ber og situr þar nú að vísu í skjóli
hans. Kannski helst þær að enn á að
herða á einkavæðingunni og gefa
Höfum opið alla páskahelgina
Fjölbreyttur matseðill og
kaffihlaðborð á páskadag
Njóttu páskanna í friðsælu og fallegu
umhverfi aðeins klukkustundar akstri
frá Reykjavík
Messað verður á Stóranúpi og á
Ólafsvöllum um hátíðina
Pantarnir í síma:
486 6174 og 486 6074
Hótel Freyja
WWW.hotelfreyja.is
Verið velkomin
PÁSKAR
20. mars 2005 SUNNUDAGUR10
Pólitískar ráðningar og tilraunir til annars
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
BORGARFULTRÚI
UMRÆÐAN
STARFSRÁÐNINGAR
299*
399
*Algengt verð í matvöruverslunum
*
ar
gu
s
–
0
4-
05
60
Það er vitlaust gefið
Það er „vitlaust gef-
ið“ í ríkisstjórn Hall-
dórs og Davíðs. Menn hafa
rangt við í spilunum. Afleið-
ingin verður misskipting.
Það þarf að gefa upp á nýtt
með nýjum mönnum við
borðið. Því fyrr – þeim mun
betra fyrir þjóðina.
,,ÓLAFUR ÞÓR HALLGRÍMSSON SÓKNARPRESTUR
UMRÆÐAN
UM RÍKISSTJÓRNINA
RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS
Greinarhöfundur segir vitlaust gefið í ríkisstjórninni og afleiðingin sé misskipting.