Fréttablaðið - 20.03.2005, Qupperneq 20
Sóley Kristjánsdóttir eða Dj Sóley eins og
flestir þekkja hana er núna á þriðja ári í sál-
fræði. Hún er einnig að undirbúa ferð til
Asíu og Ástralíu í sumar þar sem hún ætlar
að skoða heiminn aðeins betur. Hún er
einnig enn að þeyta skífum og er það helst
í fjörinu á Vegamótum.
Góður eldhúshnífur. Eftir að ég uppgötv-
aði hvernig það er að vinna með alvöru
hníf fær ekkert stöðvað mig í eldhúsinu. Ég
sker niður grænmeti á ljóshraða og töfra fram nýja rétti á
mettíma. Ég er alveg hætt að hjakkast á tómötunum. Ég
nota voðalega fína japanska Global-hnífa.
Heklunálin er vopn mitt við leiðind-
um. Ég tek hana alltaf með í flugið
eftir að hafa sannfært gaurana í tollinum um að hún sé
bitlaus. Svo sit ég og hekla alla leið til útlandanna.
Góðir hanskar. Þegar það er svona kalt úti
eins og hefur verið undanfarna daga eru
hanskarnir mér ómissandi. Þeir taka mesta
blámann af höndunum. Einnig virkar túba af
handáburði reyndar mjög vel á mig.
Sverrir Bergmann vinnur á Popptíví þar
sem hann er einn stjórnenda þáttarins Fríða
og dýrið. Auk þess er hann í hljómsveitinni
Daysleeper. „Dags daglega er ég að vinna á
Popptíví á milli þess sem ég sem tónlist og
leik mér í körfubolta,“ segir hann.
Nintendo-tölvan mín er ómissandi af því að
hún er traustasti vinur minn. Ég get alltaf farið
til hennar sama hvernig á stendur. Það er alveg
sama þótt ég svíki hana, hún tekur alltaf á móti
mér aftur.
Kassagítarinn er nauðsynlegur því hann hjálpar
mér við að semja lög og lætur mér líða vel. Ekki
bara það heldur er hann líka frábær ferðafélagi og
heldur alltaf uppi fínni stemmningu í góðra vina
hópi.
Lazy-boy stóllinn minn. Hann inniheldur ísskáp þar sem
ég kæli bjórinn minn og einnig er hann út-
búinn sem nuddtæki. Hann nuddar mig
því og kælir bjórinn minn á meðan ég
horfi á sjónvarpið. Hann passar líka stór-
kostlega vel með Nintendo-tölvunni minni.
„Ég hef aldrei komið hingað áður.
Við vöknuðum klukkan sex daginn
eftir að við komum til þess að
skoða Gullfoss, Geysi og Þingvelli.
Veðrið var svo fallegt og þetta var
fullkomið Ég hlakka svo til að
koma í október og sjá haustlitina,“
segir Sissel, sem myndi sóma sér
vel innan um haustlitina, hún er
með mosagrænan augnskugga og
rauðleitt hár. Hún er falleg kona og
hefur gífurlega útgeislun sem nýt-
ur sín best þegar hún brosir stóru
brosi og hlær dillandi hlátri.
Röddin alltaf verið til staðar
Sissel hefur haft sönginn að
atvinnu síðan hún var sextán ára
en hefur þó sungið alla sína ævi
að eigin sögn. „Ég byrjaði í barna-
kór þegar ég var níu ára. Söngur
fyrir mér er ekki eitthvað sem ég
lærði heldur er hann mér náttúru-
legur. Röddin og ánægjan af því
að syngja hefur alltaf verið til
staðar fyrir mig. Þetta hefur
verið hluti af lífi mínu alla mína
ævi og ég er þakklát fyrir að geta
haft þetta að starfi. Það að fá að
ferðast um allan heim er varla
slæmur kostur.“
Að sögn hlustar Sissel aðallega á
klassíska tónlist og djass. „Ég hef
líka verið að hlusta á Swan Lee og
norskan söngvara sem heitir Willi-
am Hutt. Ég fæ þó áhrif alls staðar
frá. Bæði frá fólki sem ég hitti og
vinn með og frá öllu sem ég upplifi,
les og sé. Ég hef unnið í mismun-
andi stílum og tel það mikilvægt að
festast ekki í sama stílnum. Ég hef
til dæmis bæði unnið með Warren
G og Placido Domingo, eins ólíkir
og þeir eru. Það er mikilvægt að
hafa mismunandi áherslur í vinn-
unni. Þegar tveir ólíkir heimar hitt-
ast eins og þegar ég vann með
Warren G held ég að töfrar geti
orðið til,“ segir hún dreymin á svip.
Sturtan eini áheyrandinn
Hún segist þó aðeins syngja lög
sem henti hennar eigin rödd og alls
ekki vilja syngja hvað sem er fyrir
almenning. „Ég syng mörg mis-
munandi lög en ég er mjög gagn-
rýnin á það sem ég geri. Ég er minn
harðasti gagnrýnandi. Ég veit hvað
ég get prófað marga ólíka stíla en
ég vil ekkert endilega gera það
fyrir framan áhorfendur.
Ég syng aðeins það besta fyrir
almenning og sumt syng ég bara í
sturtunni og það er nokkuð sem ég
myndi aldrei syngja fyrir neinn
annan en sjálfa mig, sturtan er þá
eini áheyrandinn minn,“ segir hún
og skellihlær.
Snið tónleikanna í september
verður á þann hátt að Sissel syngur
ásamt hljómsveit sinni og íslensk-
um stúlknakór. „Þetta verða popp-
lög og klassísk þjóðlög í bland en
gerð á minn eigin hátt. Ég verð
ekkert hoppandi skyndilega frá
einum stíl til annars.
Tónleikarnir verða í rauninni
byggðir á ferli mínum og hápunkt-
um hans. Það verður mikið af fólki
á sviðinu og voða gaman. Ég hlakka
til að vinna með íslensku stúlkun-
um. Þetta verður gott.....“æþþiss-
lega gott,“ segir hún ánægð með ís-
lenskukunnáttu sína.
Tekur börnin með á ferðalög
Sissel gaf út sína fyrstu plötu þegar
hún var aðeins sextán ára gömul.
Hún hefur gefið út fjölda platna síð-
an og aðspurð hversu margar þær
séu á hún í mestu vandræðum með
að rifja það upp. Hún setur upp
spurnarsvip og starir hugsi út í loft-
ið. „Ég veit ekki, kannski fimmtán,
nei ég veit það ekki, ég hef ekki
hugmynd,“ segir hún og hlær aftur.
Aðspurð hvort hún vinni svona
mikið svarar hún: „Já þetta er nátt-
úrlega vinnan mín! Annars væri
ekki matur á borðum,“ segir hún og
hlær enn. „Ég fæ ekki oft frítíma en
stundum get ég gefið mér smá tíma
til að gera það sem mig langar. Vera
með fjölskyldunni minni til dæmis.
Ég á tvö börn og þeim finnst stund-
um gaman að eiga fræga mömmu.
Þau fá líka stundum að koma með
mér í tónleikaferðalög. Þeim finnst
það rosalega gaman og njóta þess
að ferðast og hitta nýtt fólk. Mér
finnst líka mikilvægt að þau kynn-
ist því um hvað starfið mitt snýst.“
Sissel segir að lokum að hún geti
ekki beðið eftir að koma aftur í
haust og halda tónleika fyrir Ís-
lendinga og vinna með íslenskum
tónlistarmönnum. Hún tekur þétt í
höndina á blaðamanni, sem þakkar
fyrir spjallið. Það er ekki annað
hægt en að brosa eftir fund við
þessa hlýju söngkonu sem virðist
ekki hafa snefil af hroka þrátt fyrir
að njóta jafn mikillar frægðar og
frama og raunin er. Það er einnig
augljóst að margir hérlendis bíða
tónleika hennar með óþreyju því á
þá seldist upp samdægurs. ■
20. mars 2005 SUNNUDAGUR
Töfrar
verða til
Söngkonan Sissel
Kyrkjebø dvaldi hér-
lendis í vikunni til þess
að kynna tónleikana sína
sem verða í haust.
Einnig kíkti hún á tón-
leika góðvinar síns,
Placido Domingo. Borg-
hildur Gunnarsdóttir
hitti Sissel og spjallaði
við hana um ferilinn og
fleira.
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið
11. hver vinnur.
Eignastu hana á DVD
Taktu þátt þú gætir unnið:
Incredibles á DVD • Incredibles á VHS • Incredibles vasaútvarp • Incredibles Úr
Aðrar DVD og VHS myndir • Kippu af Coca Cola og margt fleira.
Sendu SMS skeytið BTL FBT á númerið 1900 og þú gætir unnið.
SISSEL KYRKJEBØ Hún getur varla beðið eftir að snúa aftur til landsins í haust og halda
tónleika fyrir Íslendinga en uppselt er á tónleikana, sem og aukatónleikana sem efnt var
til vegna gífurlegrar aðsóknar.
Ómissandi:
Heklunál og kassagítar
Sóley Kristjánsdóttir plötusnúður og Sverrir Bergmann tónlistarmaður
völdu þrjá ómissandi hluti.