Fréttablaðið - 09.04.2005, Síða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Besti
vinurinn
Léttur öllari
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is
Himnasæla
290,-
Barnamáltíð
Spaghettí með
kjötsósu og safi
TROMSNES rúm
100x209 sm
IK
E
27
88
9
0
4.
20
05
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
5
1.490,-
AFTONSTUND
borðlampi 39 sm
790,-
MYSA LÄTT
sæng 150x200 sm
1.890,-
MYSA VATTEN
sæng 150x200 sm
9.900,-
HENSVIK
kommóða 70x94 sm
195,-
GOSA MINI
50x60 sm
4.900,-
HENSVIK
bókaskápur 70x95 sm
13.900,-
HENSVIK
fataskápur 80x186 sm
13.900,-
ALVINE BUKETT
sængurföt
160x200/50x60sm
1.990,-
RIBBA
rammi 13x18 sm
490,-
POLARVIDE
værðarvoð 130x170 sm
890,-
FAGER vasi 30 sm
690,-
Nú dynur á manni auglýsingaher-ferð frá Umferðarstofu þar sem
fimm, sex ára patti er látinn gefa
manni fokkmerki á heilsíðum dag-
blaðanna og annar segir „hægðu á
þér keelling“ í sjónvarpinu. Ég verð
að játa að mér brá dálítið við að sjá
þennan unga dreng sýna mér löngu-
töng og eitthvað finnst mér stórund-
arlegt að sjá unga piltinn tala af svo
mikilli óvirðingu til kvenfólks.
EN þannig er það nú með auglýsingar,
að menn segja að ef þær veki athygli
að þá sé takmarkinu náð. Þessar vekja
athygli. En ég ætla nú samt að leyfa
mér að halda því fram að það hefði
verið betra að sleppa þessum auglýs-
ingum og að Umferðarstofa hefði bara
átt að halda þeim fyrir sjálfa sig, innan-
húss.
ÉG vil meina að ókurteisi í umferðinni
sé ekki það mikið vandamál að það sé
ástæða til þess að kenna börnum að
gefa fokkmerki með heilsíðuauglýsing-
um og að segja „hægðu á þér keelling“
með auglýsingum bæði í sjónvarpi og
útvarpi. Ég held að ókurteisi í umferð-
inni geti vissulega verið bagaleg en ég
tel að hún sé alls ekki svo mikið þjóðfé-
lagslegt mein að það sé nauðsynlegt að
láta börn sýna landsmönnum fingurinn.
OG ÞAR fyrir utan: Af hverju hafa
menn svona miklar áhyggjur af því að
fólk bölvi hvort öðru endrum og eins í
umferðinni? Hvers konar ládeiðu- og
tuskuþjóðfélag vilja menn búa til? Af
hverju skyldi maður ekki bölva öku-
manni í sand og ösku stundarkorn sem
kannski svínar fyrir mann? Ég held að
það sé líka allt í lagi fyrir börnin að sjá
það að pabbi og mamma verða stund-
um reið. Ég man eftir því að hafa orðið
vitni að fólki blóta þegar ég var krakki.
Fannst það oft fyndið, stundum skrýt-
ið. Ég man líka eftir því að fyrir gífur-
yrðunum voru yfirleitt einhverjar
ástæður sem jafnvel ég skildi.
ÞESSAR auglýsingar draga upp fá-
ránlega mynd af börnum. Eins og
börn gangi um og segi ìhægðu á þér
keellingî bara út því að pabbi sagði
það einhvern tímann í bílnum? Án
þess að ég ætli mér að verja pabbann,
sem lítur út fyrir að vera mjög athygl-
isverð týpa (eða fyndin týpa, ef út í
það er farið) að þá finnst mér Um-
ferðastofa hafa séð fyrir sér einum of
einfalt orsakasamhengi í samskiptum
barna og foreldra þegar sú mynd er
dregin upp af börnum að þau einfald-
lega bara lepji upp einhverja fýlulega,
andlausa frasa frá fullorðnum og segi
þá síðan á leikskólanum upp úr þurru
eins og forrituð vélmenni.
TÖLUM um fyrirmyndir. Gerum
frekar auglýsingaherferð þar sem við
reynum til dæmis að segja fullorðnum
að hætta að ota þeirri hugsun að börn-
um að tilgangur lífsins sé fyrst og
fremst fólginn í því að eignast sem
mesta peninga. Þar er miklu meiri
hætta á ferðinni heldur en sú sem felst
í því að mamma og pabbi blóti stund-
um í umferðinni. Ekki þar
fyrir: Hugsanlega blóta þau svona
mikið í umferðinni vegna þess að þeim
finnst þau ekki eiga nógu mikla pen-
inga. En það er bara tilgáta.
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
Fyrirmyndir