Fréttablaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 12
Fyrir fjörutíu árum gerðist Sigríður Sörensdóttir einn af stofnfélögum í nýju hestamannafélagi í Kópavogi. Enn þann dag í dag stundar hún hestamennsku af krafti orðin átt- ræð að aldri. „Það hefur aldrei hvarflað að mér,“ segir Sigríður um það hvort hún gæti hugsað sér að vera í öðru hestamannafélagi en Gusti, en svo var félagið nefnt eftir gæðingi Bjarna Bjarnasonar, skóla- stjóra frá Laugarvatni, sem var einn hvatamanna að stofnun þess. „Á þessum tíma var orðið svo mikið um hestafólk í Kópavogi sem hittist og reið út saman að það var tími til kominn að mynda félag,“ segir Sigríður sem var varamaður í fyrstu stjórninni. Uppbygging á svæðinu sem félagið fékk til afnota gekk hratt fyrir sig og hélt Sigríður hesta í öðru húsinu sem var byggt í hverf- inu og er þar enn þann dag í dag. Margt hefur breyst á fjórum ára- tugum, hestamönnum hefur fjölgað geysilega og ný og glæsileg hesthús hafa sprottið upp að undanförnu. „Áður þekktu allir alla,“ segir Sig- ríður og hlær þegar hún minnist gamla félagsheimilisins sem þau voru svo stolt af og rúmaði 30 manns. Nú á Gustur reiðhöll með 200 manna veitingastað á efri hæð. Þegar Gustur var stofnaður fyrir 40 árum var hann uppi í sveit. Í dag virðist eins og bærinn sé að gleypa hesthúsahverfið. „Ég finn ósköp lítið fyrir því,“ segir Sigríð- ur og það truflar hana ekki að hafa Smáralindina hinu megin við göt- una. Þó hafi verið mun frjálslegra þegar hægt var að ríða yfir Mjódd- ina og skreppa í kaffi til Fákverja í Víðidalnum. Sú breyting sem stendur upp úr í minni Sigríðar er hve sumarferð- irnar hafa byggst upp. „Það þótti mjög sérstakt ef stofn- að var til sumarferða á þessum tíma,“ segir Sigríður sem fer á hverjum morgni í hesthúsið til að moka og gefa. Dóttir hennar er með móður sinni í hestamennskunni og á tímabili riðu út fjórir ættliðir úr húsi Sigríð- ar. Það voru Sirrý sjálf, dóttir hennar og dótturdóttir ásamt langömmubarni sem nú er statt erlendis. ■ 12 22. maí 2005 SUNNUDAGUR RICHARD WAGNER (1813-1883) fæddist á þessum degi. „Ég sem tónlist með upphrópunarmerki!“ Þjóðverjinn Richard Wagner er eitt frægasta tónskáld allra tíma og hlaut meðal annars þann vafasama heiður að vera uppáhaldstónskáld Adolfs Hitler. timamot@frettabladid.is ÁTTRÆÐ Á HESTBAKI Sigríður Sörensdóttir er einn af stofnfélögum hestamannafélags- ins Gusts í Kópavogi. Hún ríður enn út af krafti og fer í hesthúsið á hverjum degi. Hér er hún á leið í afmælisreið Gusts sem farin var í gær. Þennan dag árið 1924 komst skelfilegt morð á hinum 14 ára gamla Bobbie Franks í fréttirnar. Tveir ungir háskólanemar í Chicago voru handteknir fyrir verknaðinn, þeir Nathan Leopold og Richard Loeb. Drengirnir tveir, sem voru 17 og 18 ára þegar þeir frömdu verknaðinn, voru skarpgreindir og útskrifuðust langt á undan jafnöldrum sínum úr grunnskóla. Leopold og Loeb töluðu níu tungumál reiprenn- andi og þóttu undrabörn í hinum ýmsu greinum bóknáms. Þeir höfðu báðir mikinn áhuga á af- brotasálfræði og eyddu miklum tíma í að lesa sig til um glæpi og hugsunarhátt glæpamanna. Þegar upp komst um þá sögðust þeir hafa verið að reyna að fremja hinn fullkomna glæp. Þeir skildu þó eftir sig slóð sem reyndist lögreglunni auðvelt að reka. Fórnarlambið, sem var frændi Leopolds, fannst fljótlega og fundust gleraugu Leopolds rétt við líkið. Hann svaraði því til að hann hlyti að hafa misst þau í gönguferð, en það þótti afar ótrúlegt. Leopold og Loeb áttu báðir vellauðuga foreldra sem fengu þekkta lögfræðinga til þess að verja þá. Clarence Darrow, sem varði drengina, tókst að knýja fram lífstíðarfangelsisdóm í stað dauðarefsingar með ræðu sem varð söguleg. Richard Loeb lést í fangelsi árið 1936 eftir átök við annan fanga en Nathan Leo- pold fékk reynslulausn árið 1958 og flutti í kjölfarið til Púertó Ríkó, þar sem hann lést úr veikindum árið 1971. NATHAN LEOPOLD OG RICHARD LOEB ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1921 Fyrstu hljómsveitartónleik- arnir eru haldnir hér á landi. Þá kom fram tuttugu manna sveit undir stjórn Þórarins Guðmundssonar. 1933 Fyrsta bindi af ritsafni Hins íslenska fornritafélags, Egilssaga, kom út. 1966 Bill Cosby vinnur Emmy- verðlaun fyrir leik sinn í þáttunum I Spy. 1971 Fyrstu orlofshús opinberra starfsmanna eru tekin í notkun í Munaðarnesi. 1972 Richard Nixon kemur í opinbera heimsókn til Moskvu. Undirritaður er samningur á sviði geim- rannsókna. 1982 Sjálfstæðisflokkurinn endurheimtir meirihluta sinn í borgarstjórn Reykja- víkur, eftir að hafa misst hann fjórum árum áður. Mor› gáfumanna vekur óhug Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURJÓN G. SIGURJÓNSSON Birkigrund 71,Kópavogi, andaðist á heimili sínu fös. 20. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Anna Ásgeirsdóttir Freyja Sigurjónsdóttir Þórir Sigurgeirsson Ásgeir Sigurjónsson Silja Sverrisdóttir Drífa Sigurjónsdóttir Ólafur Baldursson og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, sonur, bróðir og afi, Hjálmar Rúnar Hjálmarsson vélstjóri, Lóulandi 2, Garði, lést á heimili sínu 19. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún Eyvindsdóttir Helga Hjálmarsdóttir Óliver Keller Herborg Hjálmarsdóttir Sveinn Ólafur Jónasson Dóra Sigrún Hjálmarsdóttir Sigrún Oddsdóttir, systkini og barnabörn. „Ég var sendill á hjóli fyrir mjög skemmtilegan mann sem heitir Friðrik Brekkan en hann var að prenta á boli í bílskúr í Hlíðun- um,“ segir hinn silfraði Egill Helgason sjónvarpsmaður, sem telur að Friðrik þessi hafi verið frumkvöðull í bolaprentun á Ís- landi. Egill hjólaði með bolina niður í Hagkaup í Lækjargötunni þar sem þeir voru seldir en á bolina voru prentaðar myndir af brosköllum og öðrum myndum. „Síðan sendi hann mig stundum í pósthúsið á Langholtsveginum þannig að hann lét mig hafa fyrir hlutunum,“ segir Egill hlæjandi en hann hefur þó ekki lagt ást- fóstri við hjólamennsku þótt hon- um hafi þótt vinnan skemmtileg. Egill segist lítið hafa hugleitt launin, hann hafi bara verið ánægður með að hafa eitthvað að gera, en þetta var árið 1973 þegar hann var 13 ára. „Mig minnir að mamma hafi sett auglýsingu í Vísi og hann hafi svarað,“ segir Egill sem fór aldrei í unglingavinnu. Strax sumarið eftir vann hann á flökunarvél í Fiskiðjunni í Vest- mannaeyjum. Þetta var aðeins ári eftir gos og þykir Agli skemmti- legt að rifja það upp. Þetta sumar starfaði hann með ekki minni manni en Bubba Morthens þó að þeir hafi átt lítil samskipti enda Egill töluvert yngri. Egill segir að það hafi verið frjálslegt og skemmtilegt að hjóla um borgina sumarið 1973. Þá hafi bærinn verið fullur af litlum börnum sem voru að sendast með hinar ýmsu vörur og enginn með hjálm. Egill líkir þessum fjölda hjólasendla við litla maura og hlær þegar hann minnist þess að hann var einn af þeim. ■ AFMÆLI Arnar Björnsson íþrótta- fréttamaður er 47 ára. Eva Ásrún Albertsdóttir söngkona er 46 ára. Sigurður G. Valgeirsson sjónvarpsmaður er 51 árs. Stella Guðný Kristjánsdóttir leikkona er 31 árs. ANDLÁT Steinunn Margrét Norðfjörð, Ljósvalla- götu 20, Reykjavík, lést fimmtudaginn 12. maí. Hrönn Jónsdóttir, Krummahólum 29, Reykjavík, lést miðvikudaginn 18. maí. Hjálmar Rúnar Hjálmarsson, vélstjóri, Lóulandi 2, Garði, lést fimmtudaginn 19. maí. FYRSTA STJÓRNIN Fyrsta stjórn hins nýja félags árið 1965. Sigríður var eina konan og varamaður í stjórninni. Fremri röð: Ragnar Bjarnason, Jón Eldon, Sigurður Kjartansson og Bjarni Bjarnason. Aftari röð: Sigurgeir Eiríksson, Björn Sig- urðsson og Sigríður Sörensdóttir. FYRSTA STARFIÐ: EGILL HELGASON SJÓNVARPSMAÐUR Hjóla›i um me› brosboli TÍMAMÓT: HESTAMANNAFÉLAGIÐ GUSTUR 40 ÁRA Þá þekktu allir alla FÆDDUST fiENNAN DAG 1859 Arthur Conan Doyle rithöfundur. 1907 Laurence Oli- vier leikari. 1946 George Best knattspyrnumaður. 1959 Morrissey tónlistarmaður. 1970 Naomi Campbell fyrirsæta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.