Fréttablaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 28
8 ATVINNA Steindór Guðmundsson hefur flutt píanó í þrjátíu ár. Það er kúnst að flytja píanó og þau er alla jafna ekki hægt að flytja eftir venjulegum leiðum. Þegar flett er upp á píanóflutn- ingum í símaskránni koma upp þó nokkrir sem hafa píanóflutn- inga að sérsviði. Það er því nokkuð ljóst að það er ekki hægt að flytja píanó eftir venjulegum leiðum heldur þarf að kalla fag- mann til. En af hverju þarf að flytja píanó sérstaklega? Steindór Guðmundsson, píanóflutninga- maður til þrjátíu ára og einn sá elsti í faginu, svarar því. „Píanó eru bæði þung og viðkvæm fyrir hita, raka og höggum og það þarf að fara varlega með þau. Það er betra að sá sem flytur þau hafi séð píanó áður,“ segir Steindór, sem byrjaði að flytja hljóðfæri fyrir Sinfóníuhljóm- sveitina árið 1975 og píanó í framhaldi af því. „Píanó eru mjög dýr og fólk tengist hljóðfærunum sínum til- finningaböndum. Og stundum líka flutningamönnunum því fólk vill fá sama manninn aftur ef það er ánægt með þjónustuna. Ef ég fer í frí bíða mín alltaf ein- hver hljóðfæri þegar ég kem til baka.“ Steindór segist stundum þurfa sérstök tæki til að flytja hljóðfærin. „Píanó eru flutt í sérstökum böndum og ólum og á sérstökum vögnum og stundum þarf jafnvel kranabíl. Í há- hýsum er mjög oft engin önnur leið en í gegnum svalir og jafn- vel hafa verið teknir úr gluggar til að koma píanói inn og út.“ Hann segir misjafnlega erfitt að flytja píanó og flygla. „Það er hægt að skrúfa lappirnar undan flyglunum, sem verða við það mjórri og meðfærilegri en píanó, en það er tímafrekara að flytja flygil,“ segir Steindór. Hann á ekki píanó sjálfur. „En á bílnum mínum er stef skrifað með nótum og ég kann að spila það á píanó. Ég þarf samt að æfa mig stundum svo ég gleymi því ekki.“ ■ Stundum þarf að taka úr glugga Steindór kann að spila lagið sem er á hliðinni á bílnum hans. Allt klárt til flutnings. Búið að pakka gripnum inn í teppi. Félagsleg heimaþjónusta Félags- og þjónustumiðstöðin Hvassaleiti 56-58 óskar eftir að ráða gott fólk af báðum kynjum og lipurt í mannlegum samskiptum til starfa við heimaþjónustu. Um er að ræða aðstoð við fólk í heimahúsum. Í boði eru bæði störf við sumarafleysingar og til frambúðar. Starfshlutfall og vinnutími eftir samkomulagi. Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar. Allar nánari upplýsingar veita Bryndís Torfadóttir og Margrét Andrésdóttir, deildarstjórar, í síma 535 2720 og 568 3110. Sjá einnig almennar upplýsingar um laus störf og starfs- mannastefnu Félagsþjónustunnar á vefsíðunni: www.felagsthjonustan.is Sölumaður óskast Óskum eftir sölumanneskju í hlutastarf í ljósaverslun sem fyrst. Starfssvið: - Sala og ráðgjöf á vörum fyrirtækis Hæfniskröfur: - Þjónustulund - Drífandi og áhugasamur einstaklingur - Næmt auga fyrir hönnun og útliti - Almenn tölvukunnátta - Reynsla við sölumennsku æskileg Vinnutími er frá kl. 10:00-14:00 aðra vikuna og 14:00- 18:00 hina vikuna, alla virka daga. Unnið er annan hvern laugardag yfir vetrartímann frá kl. 11:00-16:00. Æskilegt er að viðkomandi geti unnið allan daginn frá miðjum júlí til byrjun ágústmánaðar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnur Guðmunds- dóttir í síma 897-2245, virka daga frá kl. 13-17. Umsóknir sendist ásamt ferilskrá á rafvirkjameistarinn@rafvirkjameistarinn.is fyrir 29 maí. Grunnskóli Vesturbyggðar Kennara vantar við Grunnskóla Vesturbyggðar sem skiptist í þrjár deildir þ.e. Patreksskóla með 110 nemendur, Bíldudalsskóla með 30 nemendur og Birkimelsskóla með 20 nemendur. Kennara vantar í eftirtaldar námsgreinar: Patreksskóli: Hand- og myndmennt, upplýsinga- og tæknimennt, heimilisfræði og almenn bekkjarkennsla á yngra stigi. Bíldudalsskóli: hand- og myndmennt, heimilisfræði, íþróttir og almenn bekkjarkennsla á mið og elsta stigi. Birkimelsskóli: almenn bekkjarkennsla. Upplýsingar veitir Nanna Sjöfn Pétursdóttir skólastjóri í símum 4561590 og 8641424 og netfangi nanna@vesturbyggd.is Dvalar- og hjúkrunarheimilið Hornbrekka Ólafsfirði Hjúkrunarfræðingur Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Hornbrekku Ólafsfirði. Starfshlutfall 60 –100 %. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist til: Hornbrekku, b.t. hjúkrunarforstjóra, v/ Ólafsfjarðarveg, 625 Ólafsfjörður. Umsóknarfrestur er til 6. júní 2005. Nánari upplýsingar veitir Rut María Pálsdóttir, hjúkrunarforstjóri í síma 466-4060; netfang: rut@hgolafsfjardar.is Heilsugæslustöðin Ólafsfirði Hjúkrunarforstjóri Heilsugæslustöðin Ólafsfirði óskar að ráða hjúkrunarforstjóra frá og með 1. ágúst 2005. Starfshlutfall 80 %. Laun eru samkv. kjarasamningi Fél. ísl. hjúkrunarfræðinga og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf berist til: Heilsugæslunnar Ólafsfirði, b.t. framkvæmdastjóra, v/ Ólafs- fjarðarveg, 625 Ólafsfjörður. Umsóknarfrestur er til 6. júní 2005. Nánari upplýsingar veitir Rúnar Guðlaugsson, framkvæmdastjóri í síma 466-4050; netfang: runar@hgolafsfjardar.is Lífsaugað Þriðjudagskvöld 22-24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.