Fréttablaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 21
Garðyrkjufræðingar eru þörf stétt, ekki síst á þessum árstíma, og þeirri stétt tilheyrir Helena Sif Þorgeirsdótt- ir. Hún fæddist með græna fingur og við fundum hana við störf í Hallar- garðinum. Helena Sif er úr Borgarnesi og kveðst hafa haft gaman af garðyrkju frá því hún man eftir sér. „Mér finnst ég alltaf hafa verið eitthvað að róta í mold,“ segir hún. „Bæði vorum við með garð heima og svo er ég kannski ein af fáum sem höfðu verulega gaman af unglingavinnunni. Ég var þá að hirða Skallagrímsgarð í Borgarnesi og þykir voða vænt um hann.“ Nú er Helena Sif að vinna hjá borginni, er þar flokksstjóri og sér um miðborgina, eða Kvosina eins og hún kýs að kalla hana. Í hennar deild er ungt fólk úr Vinnu- miðlun ungs fólks í Hinu húsinu. Það er svona að tínast út á túndruna og Helena Sif kveðst þegar komin með fjóra liðsmenn. En hvað er helst verið að bjástra? „Við erum að búa skrúðgarðana hér í miðbæn- um undir sumarið. Stinga upp beðin fyrir sumarblómin á Austurvelli og víðar. Það er ekki þorandi að setja þau niður strax í svona kuldatíð en við erum að planta trjám og runnum. Það þarf allt endurnýjunar við. Sumt er orðið svo gamalt að nauðsyn- legt er að bæta inn í svo eitt taki við af öðru. Svo erum við náttúrlega að pjakka og reyta illgresi og allt þetta sem þarf að gera,“ svarar hún. Ekki neitar hún því að mikið sé af rusli og glerbrotum í runnun- um. „Líka mikið af því sem við viljum ekki sjá eins og sprautunálar og slíkt. Því mið- ur. Þannig var það ekki þannig í Skalla- grímsgarði.“ gun@frettabladid.is Hafði verulega gaman af unglingavinnunni atvinna@frettabladid.is Verðlagseftirlit ASÍ hefur frá áramótum gert þrjár verðkannanir í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu en verð- stríðið milli lágvöruverslana hefur nú staðið í á þriðja mánuð og enn er barist af hörku. Fyrsta könnun ársins var gerð í byrjun febrúar, önnur um miðjan mars og síðast var verð kannað þann 11. maí síðastliðinn. Þegar bornar eru saman niðurstöður frá fyrstu könnuninni í febrúar og þeirri nýj- ustu nú í maí má sjá að vöruverð hefur lækkað umtalsvert í versl- unum Bónuss og Krónunnar og einnig í Fjarðarkaupum í Hafnar- firði. Kjarabótin sem felst í þessari lækkun fyrir heimilin í landinu er því óumdeilanleg. Þetta kemur fram á heimasíðu ASÍ. Sjóðfélagar í BHM hafa nú tækifæri til að láta skoð- anir sínar í ljós vegna þess að nú stendur yfir könnun á viðhorfum sjóðfélaga í Styrktarsjóði BHM og Sjúkrasjóði BHM til starfsemi sjóðanna og Bandalags háskóla- manna. Glæsilegir ferðavinningar eru í boði og eru sjóðfélagar hvattir til þátttöku til þess að láta viðhorf sín vísa veginn í þjónustu sjóðanna. Þar sem bréf til hluta af sjóðfélögum fóruÝseint út verður könnun- in framlengd fram yfir mánu- daginn 23. maí. Helena Sif sér um að halda gróðrinum í miðborginni blómlegum í sumar. LIGGUR Í LOFTINU í atvinnu MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINSER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? Sumaruppbót kemur sér vel BLS. 2 Leiðin að bakarameistaraprófi BLS. 2 Árulestur í atvinnuviðtali BLS. 2 Píanóflutningar eru vandaverk BLS. 8 Góðan dag! Í dag er sunnudagur 22. maí, 142. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 3.50 13.24 23.01 AKUREYRI 3.11 13.09 23.10 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag STÖRF Í BOÐI Sérfr. á lyfjaefnadeild Ráðgjafar Rafvirkjar Meiraprófsbílstjórar Píparar Leikskólakennarar Hjúkrunarfræðingur Yfirmann í eldhús Afgreiðslustörf Grunnskólakennara Undirvertaka Vörubílstjóri Múrarar Sérfr. við hráefnam. Viðskiptafræðingar Sölumenn Hjúkrunarforstjóri Förðunarfræðingur Rafeindarvirki Vélamaður Bókari Forritarar Starfsmannastjóri Verkefnastjóri Sérfr. í geymsluþolsd. Þjónustustjóri Kerfisrekstraraðili Bílstjórar Fjölmiðla- og almannat. Kynningarfólk FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 20 Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.