Fréttablaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Kuldaskræfur klippi› hér F í t o n / S Í A F I 0 1 3 1 5 6 Barnaver› Ver› frá 5.995 kr. 7.995 kr. *A›ra lei› me› sköttum. Börn flurfa a› vera í fylgd me› fullor›num. www.icelandexpress.is Bú›u flig undir brottför á www.icelandexpress.is Fer›afljónusta Iceland Express, Su›urlandsbraut 24, Sími 5 500 600 fiA‹ BORGAR SIG A‹ BÓKA SNEMMA Nú er rétti tíminn til a› bóka lægstu fargjöldin í skemmtilegt vetrarfrí me› Iceland Express. Smelltu flér inná icelandexpress.is, trygg›u flér lægstu fargjöldin og byrja›u a› hlakka til vetrarins! VETRARSALAN ER HAFIN ÓD†RASTA FRAMHALDSFLUGI‹! Fljúg›u me› Iceland Express til London e›a Köben. fia›an eru endalausir möguleikar á ótrúlega ód‡ru flugi til spennandi sta›a um allan heim, spurningin er bara hvert flig langar til a› fara. We have gone away on winter holiday. Please help yourself to some shark and brennivin. Greetings from the Icelandic nation Dear foreign guests Þú mátt fá'ana, ég vil ekki sjá'ana,því hún er allt of feit,“ söng Laddi einhvern tíma og einhvern veginn hefur þessi fáránlegi texti leitað á hugann síðustu daga. ÁBYRG einhleyp kona tekur stóra ákvörðun og leggur af stað í það langa ferðalag sem ættleiðingarferli er. Hún aflar allra gagna sem til þarf, fer í læknisskoðun, útvegar stuðn- ingsfjölskyldu og þar fram eftir göt- unum. Hún sem sagt undirbýr málið af kostgæfni og leggur fram umsókn um forsamþykkt fyrir ættleiðingu og barnaverndarnefnd í heimabyggð hennar telur hana vel hæfa til að ætt- leiða barn. Málið fer sem leið liggur í dómsmálaráðuneytið og niðurstaðan kemur: „Hún er allt of feit!“ „ÉG vil ekki sjá'ana,“ segir dóms- málaráðuneytið og telur umrædda konu of feita til að ættleiða barn. Reyndar telja þeir hana líka of gamla þótt ekki sé hún eldri en ýmsir aðrir sem hafa fengið að ættleiða börn. Ef að er gáð leynast jafnvel líka ein- hverjir þyngri (miðað við hæð) sem hafa fengið að ættleiða börn, en það eru líkast til allt karlmenn og eins og allir vita kemur þyngd (miðað við hæð) ekki í veg fyrir að karlmenn geti annast börn. Það á bara við um konur. Eða ætli embættismennirnir í dómsmálaráðuneytinu geri ekki ráð fyrir að karlmenn annist börn þótt þeir ættleiði þau? KONAN sem langar að verða móðir er vel menntuð, meira að segja á upp- eldissviði, hún hefur heilmikla reynslu af umönnun barna, bæði í starfi sínu og einkalífi og hún er hraust, ugglaust hraustari en margir sem leysa þó foreldrahlutverk sitt vel af hendi dag hvern. Hún er stolt og hún er glæsileg. En embættismenn- irnir hafa kveðið upp sinn dóm: „Hún er allt of feit!“ ÆTLI til sé sú kona sem embættis- mönnunum þætti vera of létt (miðað við hæð) til að ættleiða barn? Eða getur kannski enginn verið of mjór til að annast barn? Skyldi vera til stuðull í dómsmálaráðuneytinu þar sem vegin er þyngd (miðað við hæð), aldur og já auðvitað, kyn fólks sem hyggur á ætt- leiðingu? Því yngri því þyngri (miðað við hæð) og því meiri kona því léttari. Eða er kannski bara um hreina for- dóma að ræða: „Þú mátt fá'ana, ég vil ekki sjá'ana, því hún er allt of feit.“ BAKÞANKAR STEINUNNAR STEFÁNSDÓTTUR Hún er allt of feit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.