Fréttablaðið - 22.05.2005, Page 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Kuldaskræfur klippi› hér
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
3
1
5
6
Barnaver›
Ver› frá
5.995 kr.
7.995 kr.
*A›ra lei› me› sköttum.
Börn flurfa a› vera í fylgd
me› fullor›num.
www.icelandexpress.is
Bú›u flig undir brottför á www.icelandexpress.is
Fer›afljónusta Iceland Express, Su›urlandsbraut 24, Sími 5 500 600
fiA‹ BORGAR SIG A‹ BÓKA SNEMMA
Nú er rétti tíminn til a› bóka lægstu fargjöldin í skemmtilegt vetrarfrí
me› Iceland Express. Smelltu flér inná icelandexpress.is, trygg›u flér
lægstu fargjöldin og byrja›u a› hlakka til vetrarins!
VETRARSALAN ER HAFIN
ÓD†RASTA FRAMHALDSFLUGI‹!
Fljúg›u me› Iceland Express til London e›a
Köben. fia›an eru endalausir möguleikar á
ótrúlega ód‡ru flugi til spennandi sta›a um
allan heim, spurningin er bara hvert flig langar
til a› fara.
We have gone away
on winter holiday.
Please help yourself
to some shark and
brennivin.
Greetings from
the Icelandic nation
Dear
foreign
guests
Þú mátt fá'ana, ég vil ekki sjá'ana,því hún er allt of feit,“ söng Laddi
einhvern tíma og einhvern veginn
hefur þessi fáránlegi texti leitað á
hugann síðustu daga.
ÁBYRG einhleyp kona tekur stóra
ákvörðun og leggur af stað í það
langa ferðalag sem ættleiðingarferli
er. Hún aflar allra gagna sem til þarf,
fer í læknisskoðun, útvegar stuðn-
ingsfjölskyldu og þar fram eftir göt-
unum. Hún sem sagt undirbýr málið
af kostgæfni og leggur fram umsókn
um forsamþykkt fyrir ættleiðingu og
barnaverndarnefnd í heimabyggð
hennar telur hana vel hæfa til að ætt-
leiða barn. Málið fer sem leið liggur í
dómsmálaráðuneytið og niðurstaðan
kemur: „Hún er allt of feit!“
„ÉG vil ekki sjá'ana,“ segir dóms-
málaráðuneytið og telur umrædda
konu of feita til að ættleiða barn.
Reyndar telja þeir hana líka of gamla
þótt ekki sé hún eldri en ýmsir aðrir
sem hafa fengið að ættleiða börn. Ef
að er gáð leynast jafnvel líka ein-
hverjir þyngri (miðað við hæð) sem
hafa fengið að ættleiða börn, en það
eru líkast til allt karlmenn og eins og
allir vita kemur þyngd (miðað við
hæð) ekki í veg fyrir að karlmenn
geti annast börn. Það á bara við um
konur. Eða ætli embættismennirnir í
dómsmálaráðuneytinu geri ekki ráð
fyrir að karlmenn annist börn þótt
þeir ættleiði þau?
KONAN sem langar að verða móðir
er vel menntuð, meira að segja á upp-
eldissviði, hún hefur heilmikla
reynslu af umönnun barna, bæði í
starfi sínu og einkalífi og hún er
hraust, ugglaust hraustari en margir
sem leysa þó foreldrahlutverk sitt vel
af hendi dag hvern. Hún er stolt og
hún er glæsileg. En embættismenn-
irnir hafa kveðið upp sinn dóm: „Hún
er allt of feit!“
ÆTLI til sé sú kona sem embættis-
mönnunum þætti vera of létt (miðað
við hæð) til að ættleiða barn? Eða
getur kannski enginn verið of mjór til
að annast barn? Skyldi vera til stuðull
í dómsmálaráðuneytinu þar sem vegin
er þyngd (miðað við hæð), aldur og já
auðvitað, kyn fólks sem hyggur á ætt-
leiðingu? Því yngri því þyngri (miðað
við hæð) og því meiri kona því léttari.
Eða er kannski bara um hreina for-
dóma að ræða: „Þú mátt fá'ana, ég vil
ekki sjá'ana, því hún er allt of feit.“
BAKÞANKAR
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR
Hún er
allt of feit