Fréttablaðið - 22.05.2005, Qupperneq 16
16 22. maí 2005 SUNNUDAGUR
Dagana 13.-25. júní býðst þér að setjast á skólabekk í Háskóla Íslands og taka þátt í
umræðum, tilraunum, vettvangsferðum og heilabrotum um flest milli himins og jarðar.
Hvað vekur áhuga þinn? Viltu vita meira? Skráning í Háskóla unga fólksins er hafin.
Líttu inn á www.ung.is og skoðaðu þig um.
Ertu á aldrinum 12-16 ára?*
*Háskóli unga fólksins er opinn unglingum fæddum á árunum 1989 - 1993.
Yfirburðasigur Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur í formannskjöri
Samfylkingarinnar markar þátta-
skil í sögu flokksins. Tveir af
hverjum þremur hinna tólf þús-
und samfylkingarmanna sem
greiddu atkvæði í kjörinu veittu
henni umboð til þess að leiða
flokkinn inn í næstu þingkosning-
ar og sveitarstjórnarkosningar og
töldu hana þar með vænlegasta til
þess að leiða flokkinn til sigurs.
Fæstum þeim sem voru á
landsfundinum komu úrslitin á
óvart. Stuðningsmenn Ingibjargar
sögðust margir hverjir hafa
reiknað með því að hlutföllin yrðu
35 prósent á móti 65 prósentum,
Ingibjörgu Sólrúnu í vil, sem var
nokkuð nærri endanlegri niður-
stöðu, sem var 33 prósent á móti
66 prósentum. Enginn þeirra hafi
undir það síðasta efast um að hún
bæri sigur úr býtum og að munur-
inn yrði aldrei minni en 40 pró-
sent á móti 60 prósentum.
Stuðningsmenn Össurar segj-
ast hafa verið búnir að búa sig
undir ósigur. Hins vegar hafi
munurinn verið nokkur vonbrigði,
en jafnframt skýr skilaboð um
vilja flokksmanna.
Metþátttaka í formannskosningu
Nýir tímar eru fram undan hjá
Samfylkingunni og í íslensku
stjórnmálalandslagi. Aldrei fyrr
hafa jafnmargir tekið þátt í kjöri
formanns í einum stjórnmála-
flokki og að formannsslagnum
loknum hefur Samfylkingunni
tekist að koma sér upp öflugri
kosningamaskínu á borð við þá
sem Sjálfstæðisflokkurinn getur
státað af en Samfylkinguna hefur
hingað til skort.
Það má ef til vill halda því fram
að það besta sem komið hafi fyrir
Samfylkinguna sé það að Össur og
Ingibjörg tókust á um formanns-
sætið. Fyrir tilstuðlan tveggja
öflugra stuðningsmannahópa bætt-
ust sjö þúsund nýir félagar í Sam-
fylkinguna en eftir á að koma í ljós
hversu margir þeirra verða áfram í
flokknum og eins hverjir munu
starfa í þágu hans. Þó er það enn
mikilvægara fyrir flokkinn að nú
hefur verið komið upp þýðingar-
miklu stuðningsmannaneti Sam-
fylkingarinnar um allt land. Í
næstu kosningum þarf því einung-
is að byggja á þeirri vinnu sem
farið hefur fram undanfarna mán-
uði og tryggja að þeir sem störfuðu
í þágu annars hvors frambjóðand-
ans í formannskjörinu sýni sama
áhuga á að starfa í þágu Samfylk-
ingarinnar.
Grundvöllurinn fyrir því að
það takist er sá að fylkingarnar
tvær sem tókust á í formannskjör-
inu nái að slíðra sverðin og vinna
saman í þágu flokksins og mál-
staðarins.
Þótti sýna drengskap og reisn
Fulltrúar á landsfundi eru almennt
á þeirri skoðun að það hafi þegar
gerst – og ekki síst fyrir tilstuðlans
Össurar Skarphéðinssonar, sem
þótti sýna einstakan drengskap,
reisn og sáttfýsi þegar tilkynnt var
um úrslitin.
Jafnvel var um það talað á
landsfundinum að Össur hefði
strax í setningarræðu sinni á
föstudagskvöldið hafið að búa
stuðningsmenn sína opinberlega
undir ósigur og að hann hafi ekki
síst verið að beina orðum sínum
til þeirra þegar hann talaði um
mikilvægi þess að sýna samstöðu,
eindrægni og samheldni. Sam-
staðan væri það afl sem ekkert
gæti staðist.
Í sigurræðu sinni í gær tók
Ingibjörg Sólrún undir orð Össur-
ar frá deginum áður um það hve
mikilvægt væri fyrir Samfylk-
inguna alla að fylkingarnar tvær
störfuðu saman sem órofa heild.
Á milli línanna í ræðu hennar
mátti lesa skilaboð til stuðnings-
manna Össurar um að á kröftum
þeirra væri þörf og að þeir ættu
sér áfram framtíð innan flokks-
ins.
Í ræðu sinni sem Össur hélt í
gær eftir að úrslitin voru tilkynnt
ítrekaði hann þessi skilaboð.
Hann sagði það hlutverk Sam-
fylkingarinnar að hjálpa Ingi-
björgu Sólrúnu að breyta Íslandi
og hét því jafnframt að halda
áfram starfi sínu í stjórnmálum.
Það á þó eftir að koma í ljós
hvort gróa muni um heilt fylking-
anna á milli eða hvort gjáin sem
myndast hafi sé of djúp til að
hana megi brúa auðveldlega.
Vinstra megin við miðju
Samfylkingarfólk segir að Ingi-
björg Sólrún stefni að því að leiða
flokkinn örugglega inn að miðju
íslenska stjórnmálalandslagsins,
þótt flokkurinn muni áfram hald-
ast vinstra megin. Þar sé örugg-
asta sóknin í þeirri breiðfylkingu
sem Samfylkingin sé nú orðin
með næstflesta flokksbundna
félaga í stjórnmálaflokki á Ísland,
rúmlega tuttugu þúsund.
Þá hafi Ingibjörg Sólrún sýnt
það í starfi sínu í Framtíðarhópi
Samfylkingarinnar að hún sé fær
um að stuðla að skýrri og
þroskaðri stefnumótun, sem nauð-
synleg sé til þess að leggja grunn
að velgengni Samfylkingarinnar í
næstu þingkosningum. Ingibjörg
Sólrún hefur sjálf gagnrýnt flokk-
inn fyrir hversu illa hann hafi
verið búinn undir síðustu þing-
kosningar. Þegar hún kynnti
skýrslu Framtíðarhópsins á lands-
fundinum á föstudaginn sagði hún
að stefnuvinnu í flokknum hefði
ekki verið gefinn nægur gaumur
og því hefði Samfylkingin ekki
verið nægilega skýr kostur fyrir
kjósendur. Flokkinn hefði því
skort ákveðinn trúverðugleika.
Skýra og skarpa stefnuskrá
Næsta verkefni Samfylkingarinn-
ar verður því að skerpa og skýra
stefnu flokksins í öllum helstu
lykilmálum hans en jafnframt að
reyna að marka flokknum sér-
stöðu á miðjunni. Stefnt er að því
að mynda samstöðu um að forðast
öfgar til hægri og vinstri og inn-
leiða nýja hugsun í íslenska pólit-
ík þar sem einkaframtakinu og
hinu opinbera verði í auknum
mæli gert að starfa saman í þágu
almennings. Markmið Samfylk-
ingarinnar í heilbrigðismálum er
angi af þeirri stefnu. Í niðurstöð-
um starfshóps Samfylkingarinnar
í heilbrigðismálum er lagt til að
auka vægi einkareksturs, útboða
og þjónustusamninga í heilbrigð-
isþjónustu og bent á kosti sjálfs-
eignarstofnana í heilbrigðisþjón-
ustu.
Klók að lesa í stöðuna
Meðal þeirra kosta sem Ingibjörg
Sólrún er talin búa yfir og gera
hana að öflugum leiðtoga eru þeir
að hún þykir búa yfir góðu innsæi
og vera mjög hæf í að lesa í hvaða
stöðu sem upp komi og draga af
henni ályktanir. Sem dæmi um
það hefur verið nefnt að hart var
sótt að henni í aðdraganda síðasta
landsfundar, 2003, þar sem hún
var hvött til að bjóða sig fram til
formanns þá. Hún hafi sjálf talið
það heillavænna að bíða í tvö ár.
Bæði hafi það verið vegna þess að
þá væri að hefjast nýtt sóknar-
færi fyrir Samfylkinguna er nær
dregi næstu kosningum, fyrst til
sveitarstjórna og síðan til Alþing-
is, og jafnframt hafi Ingibjörg
talið að Össur hefði ekki starfað
nægilega lengi sem formaður og
að hann þyrfti að fá tækifæri til
að spreyta sig í önnur tvö ár í for-
mannsembætti.
Óttast kvennavöld
Í átökunum í formannsslagnum
hefur Ingibjörg Sólrún meðal ann-
ars verið gagnrýnd fyrir að safna
í kringum sig hirð kvenna og var-
að hefur verið við hættunni á því
að ef Ingibjörg Sólrún verði for-
maður Samfylkingarinnar muni
flokkurinn breytast í nýjan
Kvennalista.
Ingibjörg Sólrún er sögð vera
meðvituð um það að hún verði að
að gæta þess að hennar nánustu
samstarfsmenn verði af báðum
kynjum, stjórnmál á Íslandi séu
hreinlega ekki lengra á veg komin
í jafnréttisátt en það. Kyn einstak-
linga skipti máli þegar konur eigi
í hlut, en ekki karlar. Minnst var á
það að enginn hefði bent á þá stað-
reynd að í innsta hring Össurar
hefðu um langa hríð einungis
verið karlmenn.
Kynjahlutföll í forgrunni
Kynjahlutföll höfðu veruleg áhrif
á kosningu í önnur embætti
flokksins. Rætt var um það að úti-
lokað hefði verið að Jóhanna Sig-
urðardóttir gæti náð kjöri til vara-
formanns flokksins í ljósi þess að
bæði formaður flokksins og for-
maður þingflokksins væru konur.
Samfylkinginn væri, ekki fremur
en aðrir flokkar, einfaldlega ekki
komin svo langt á veg til jafnrétt-
is að þrjár konur gætu raðast í
þrjú æðstu embætti flokksins.
Hins vegar þætti aldrei neitt til-
tökumál að þrír karlmenn gegndu
sambærilegum embættum.
Stuðningsmenn Gunnars Svav-
arssonar, sem kjörinn var nýr for-
maður framkvæmdastjórnar,
lögðu mikla áherslu á það að kona
næði kjöri sem ritari flokksins.
Öðruvísi ætti Gunnar ekki mögu-
leika því hann bauð sig fram gegn
konu, Sigrúnu Grendal.
Helstu baráttumenn flokksins
fyrir jafnrétti kynjanna höfðu það
á orði að staðan væri nú sú að ekki
veldust endilega hæfustu einstak-
lingarnir í hvert embætti heldur
væri kyn þeirra sá þáttur sem
hvað mestu réði. Þetta væri hins
vegar vonandi aðeins tímabundin
staða og undanfari allsherjarjafn-
réttis þegar kyn einstaklinga
skipti ekki lengur máli, heldur
hæfi þeirra. ■
Stefnir á stórsókn á miðjunni
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir hefur veri› valin til
fless hlutverks a› lei›a
Samfylkinguna til sigurs í
næstu flingkosningum.
Hún er sög› stefna á stór-
sókn á mi›junni og ætla
sér a› ver›a næsti forsæt-
isrá›herra fljó›arinnar.
NÚVERANDI OG FYRRVERANDI FORMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR, INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR OG ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON Það má ef til vill halda því fram að það besta sem komið hafi fyrir Samfylkinguna sé það að Össur og Ingibjörg
tókust á um formannssætið. Fyrir tilstuðlan tveggja öflugra stuðningsmannahópa bættust sjö þúsund nýir félagar í Samfylkinguna en eftir
á að koma í ljós hversu margir þeirra verða áfram í flokknum og eins hverjir munu starfa í þágu hans.
INGIBJÖRG SÓLRÚN FÉKK TVÖ AF HVERJUM ÞREMUR GREIDDUM ATKVÆÐUM
Meðal þeirra kosta sem Ingibjörg Sólrún er talin búa yfir og gera hana að öflugum leið-
toga eru að hún þykir búa yfir góðu innsæi og vera mjög hæf í að lesa í hvaða stöðu sem
upp komi og draga af henni ályktanir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR
BLAÐAMAÐUR
BAKSVIÐS
FORMANNSKJÖRIÐ
Í SAMFYLKINGUNNI