Fréttablaðið - 22.05.2005, Side 22
Kjarasamningar
Vert er að kynna sér kjarasamninga hjá því stéttarfélagi sem maður til-
heyrir og vera með réttindi sín á hreinu. Samningana er oft hægt að finna
á vefsíðum stéttarfélaganna eða hægt að fá eintak á skrifstofu þeirra.[ ]
Feðginin Eygló og Gunnlaugur, ásamt tíkunum Týru og Perlu.
Nú er sauðburður í hámarki í
sveitum landsins og vakað
allan sólarhringinn yfir vel-
ferð fjárins.
Feðginin í Áshildarholti í Skaga-
firði, Gunnlaugur Vilhjálmsson
og 17 ára dóttir hans, Eygló, eru
sammála um að vorið sé
skemmtilegasti tími ársins. „Það
er svo gaman í sauðburðinum,“
segja þau. „Sumarið er reyndar
frábært líka,“ bætir Gunnlaugur
við. Hann er nýbúinn að fara með
heyrúllu niður á tún til hross-
anna og Eygló er að snúast í
kringum féð ásamt tíkunum
Týru og Perlu. Aðspurð kveðst
Eygló kunna vel við sig í bú-
skapnum.
Í Áshildarholti er búið með
250 ær og tæp 60 hross. Tekjur af
búinu duga samt ekki fyrir því
sem þarf að borga. „Þetta gengi
ekki nema af því að konan
starfar á sjúkrahúsinu og ég fer í
togaralandanir á Króknum þegar
ég get,“ segir Gunnlaugur. ■
Árulestur í atvinnuviðtali
Vinnuveitendur í Bretlandi
leita óhefðbundinnar aðstoð-
ar við mannaráðningar.
Allir vita að það er ekkert mál
að ljúga í ferilskrá en mun erf-
iðara að hrekja slíkar lygar. Af
þessum sökum hafa vinnuveit-
endur í Bretlandi í æ ríkari
mæli leitað sér óhefðbundinnar
aðstoðar við mannaráðningar.
Um nokkra hríð hefur það
tíðkast að atvinnusálfræðingur
sitji atvinnuviðtöl og leggi mat
á umsækjandann eða að stjörnu-
kort viðkomandi sé lesið gaum-
gæfilega áður en ákvörðun er
tekin um ráðninguna. Nýjasta
nýtt er að fá miðil eða einhvern
með sterka skyggnigáfu til að
sitja úti í horni og skoða áru um-
sækjandans á meðan á viðtalinu
stendur.
Miðlarnir segjast sjá um-
svifalaust hvort viðkomandi sé
óheiðarlegur en líka hvað búi að
baki fáti því og fumi sem hæfur
einstaklingur getur lent í þegar
hann vill koma vel fyrir. Miðl-
arnir segjast geta sagt til um
stundvísi, stjórnunarhæfileika,
frumleika, fíkn og aðlögunar-
hæfni með því að einbeita sér að
árulestrinum á meðan vinnu-
veitandinn hlustar á það sem
viðkomandi hefur að segja.
Ferilskráin mun því brátt heyra
sögunni til – aðalmálið er að
áran sé í lagi. ■
Um tólf milljónir
misnotaðar í vinnu
ALÞJÓÐAVINNUMÁLASTOFNUNIN
BIRTIR SVARTA SKÝRSLU UM ÞRÆLK-
UNARVINNU.
Alþjóðavinnumálastofnunin áætlar að
í það minnsta 12,3 milljónir manna,
kvenna og barna séu föst í þrælkun-
arvinnu um allan heim. Í nýrri skýrslu
sem ber yfirskriftina „Alheimsátak
gegn þrælkun“ eru rök leidd að því
að af þessum fjölda séu að minnsta
kosti 2,4 milljónir seldar mansali. Í
skýrslunni eru kynntar niðurstöður
viðamestu könnunar sem alþjóðleg
stofnun hefur gert á staðreyndum og
mögulegum orsökum fyrir þrælkunar-
vinnu í samtímanum. Þar er líka í
fyrsta sinn lagt mat á mögulegan
gróða af þrælasölu og nemur hann
32 milljörðum Bandaríkjadala árlega.
Þrælkunarvinna á sér stað um allan
heim, í snauðum löndum og ríkum.
Níu og hálf milljón manna er neydd til
erfiðisvinnu í Asíu, en reiknað er með
að í iðnríkjunum telji fjöldinn um 360
þúsund manns. Þrælarnir vinna ýmis
störf, svo sem við landbúnað, í bygg-
ingarvinnu og ýmissi verksmiðjuvinnu,
og í þessum störfum er hlutfallið milli
karla og kvenna nokkuð jafnt. Flestir
kynlífsþrælar eru hins vegar stúlkur og
konur. Börn yngri en átján ára eru á
milli fjörutíu og fimmtíu prósent þræla
í heiminum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
U
N
Vorið er skemmtilegasti
tíminn í sveitinni
Milli fjörutíu og fimmtíu prósent
þeirra sem eru í þrælkunarvinnu eru
undir átján ára aldri.
Erfitt væri að láta þennan föngulega miðil
framhjá sér fara í atvinnuviðtalinu.
Eflaust þætti mörgum vinnuveitendum
fengur í því að fá Þórhall miðil til að
hjálpa til við ráðningar.
Guðjón Jóhannsson bakarameistari í
Korninu sýnir réttu handbrögðin.
Bakaraiðn er löggilt iðngrein. Bakarar
starfa einkum í bakaríum, á hótelum,
í kexverksmiðjum og við sælgætisgerð.
Algengt er að bakarar starfi sjálfstætt
en til þess að geta rekið eigið fyrirtæki,
svo sem bakarí, þarf maður að vera
bakarameistari. Brauð, kökur og kex er
það helsta sem bakari býr til.
NÁMIÐ
Hægt er að læra til bakara í Mennta-
skólanum í Kópavogi / Hótel- og mat-
vælaskólanum. Námið er samnings-
bundið og tekur fjögur ár. Þar af eru
þrjár annir í skóla og 30 mánuðir í
starfsþjálfun undir leiðsögn meistara.
Námið er alls 60 einingar og lýkur með
sveinsprófi. Sá sem stenst sveinsprófið
ber eftir það starfsheitið bakarameistari.
HELSTU NÁMSGREINAR
Meðal námsgreina sem kenndar eru í
náminu eru fagfræði bakaraiðnar,
bakstur, hráefnisfræði, næringarfræði
og iðnreikningur bakara. Auk þess eru
kenndar almennar bóklegar greinar, svo
sem íslenska, enska, danska, stærð-
fræði, tölvufræði og efnafræði. Verkleg
þjálfun og tilsögn er í höndum bakara-
meistara. Umsækjendur þurfa að hafa
lokið grunnskólaprófi til að hefja nám í
bakaraiðn.
FRAMHALDSMENNTUN
Hafi nemandi lokið sveinsprófi í bak-
araiðn og unnið sem bakari í eitt ár
getur hann hafið meistaranám sem
veitir meistararéttindi – en það eru rétt-
indi til að reka eigið fyrirtæki. Auk þess
eru möguleikar á námi í tækniskóla,
námi á tæknibraut til stúdentsprófs og
svo námi erlendis. Hægt er að kynna
sér námið enn frekar á mk.is.
STARFIÐ
Flestir bakarar sem stunda sjálfstæðan
rekstur hafa vinnutíma sem felur í sér
að þeir hefja vinnudaginn um klukkan
4 að morgni og vinna síðan fram eftir
degi. Bakarar hjá stórfyrirtækjum vinna
hins vegar oftast vaktavinnu – þá til
skiptis á degi og nóttu.
Bakarameistari?
Ásgeir Sandholt bakarameistari hefur
unnið til fjölda verðlauna heima og
erlendis fyrir kökugerð.
Hvernig verður maður
Útgjöld heimilanna
aukast í sumarleyfinu
Í næsta mánuði munu flestir
frá greidda orlofsuppbót með
launum sínum, en upphæðin
er mishá eftir því hvað menn
hafa starfað lengi og hvaða
stéttarfélagi þeir tilheyra.
Í samningum stéttarfélaganna
er kveðið á um að atvinnurek-
endur greiði starfsfólki sínu or-
lofsuppbót, og yfirleitt er hún
greidd út í júnímánuði þó að
ekki sé kveðið á um að greiða
eigi hana í þeim mánuði. „At-
vinnurekendur eiga að greiða
starfsmanni orlofsuppbót áður
en hann fer í sumarfrí en aldrei
seinna en 15. ágúst,“ segir Elías
Guðmundur Magnússon, for-
stöðumaður kjarasviðs hjá VR.
„Hjá VR eru tveir kjarasamn-
ingar, annars vegar við Samtök
atvinnulífsins og hins vegar við
Félag íslenskra stórkaupmanna.
Í samningum við SA er orlofs-
uppbótin greidd út í júní en hjá
FÍS er orlofsuppbótin greidd
ásamt desemberuppbótinni.
Maður sem er í fullu starfi og
vann allt síðasta orlofsár á rétt á
fullri orlofsuppbót sem er 16.500
kr. fyrir árið 2005 hjá VR,“ segir
Elías. Orlofsárið er frá 1. maí til
30. apríl en uppbótin er greidd
hlutfallslega ef starfsmaður
hefur ekki unnið allan þann tíma.
„Starfsmaður þarf að hafa
unnið mánaðamótin apríl-maí til
að fá orlofsuppbót, en hafi
starfsmaður hætt starfi fyrir
þann tíma fær hann greitt hlut-
fallslega miðað við vinnu síðasta
árs,“ segir Elías. Hafi starfsmað-
ur hætt störfum á árinu þarf
hann að hafa unnið 12 vikur af
orlofsárinu til að öðlast réttindi
til uppbótar, sem hann á að fá
greidda út við starfslok.
Orlofsuppbótin kom fyrst inn
í kjarasamninga við lok áttunda
áratugarins og hefur fest sig í
sessi síðan. „Menn eru einfald-
lega að reyna að hækka launin
með þessu, þar sem útgjöld
heimilanna eru meiri þegar
menn fara í sumarfrí og svo
aftur í desember,“ segir Elías.
kristineva@frettabladid.is
Útgjöld fólks hækka þegar það er í orlofi og því er greidd orlofsuppbót með laununum við upphaf sumars.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R