Fréttablaðið - 22.05.2005, Side 59
SUNNUDAGUR 22. maí 2005 27
Okkur á norðurslóðum er gjarnt á að draga fót-
boltann í Suður-Evrópu saman í dilk og fjalla um
deildirnar á Spáni og Ítalíu undir sama hatti. Þetta
er algengt í fjölmiðlum í Norður-Evrópu og hér á
Íslandi má sjá þetta í þætti Guðna Bergs á Sýn og
hjá undirituðum í sunnudagspistlum þessum í
Fréttablaðinu. Enda margt skylt með þeim frænd-
um og hinn samlatneski andi svífur gjarnan yfir
vötnum; þjóðirnar standa iðulega saman á al-
þjóðavettvangi, sérstaklega á vígstöðvum Evrópu-
sambandsins. En frændseminni lýkur þegar kemur
að fótboltanum, þjóðarsporti beggja. Því þótt Ítöl-
um og Spánverjum líki allvel hvorum við aðra þá
bera þeir ekki mikla virðingu fyrir knattspyrnu
hvors annars. Þetta sést best í umfjöllun spænskra
blaða í aðdraganda úrslitaleiksins í Meistaradeild-
inni þar sem þeir þyrpast að baki hins hálf-
spænska El Liverpool á meðan þeir finna hinu
mekaníska Milan-liði allt til foráttu.
Tassotti tendraði eld
Spánverjum finnst ítalski boltinn kerfisbundinn og
leiðinlegur á meðan Ítölum finnst sá spænski aga-
laus, villtur og lengstum árangurslítill. Fótboltaríg-
ur spænskra og ítalskra er gamalgróinn en hófst í
nýjar hæðir og hærri fyrir röskum áratug. Spán-
verjar hafa ævinlega haft allnokkra minnimáttar-
kennd gagnvart Ítölum hvað varðar árangur á al-
þjóðavettvangi, einkum hvað varðar landsliðin.
Ítalar hafa þrisvar orðið heimsmeistarar, einu sinni
Evrópumeistarar og oft komist í úrslit á stórmót-
um á meðan spænska landsliðið er þekkt
fyrir að bregðast á ögurstundu og detta út
úr stórmótum með glæsibrag, helst gegn
minni spámönnum. Á öndverðum tíunda
áratugnum kom hinsvegar fram sterk kyn-
slóð spænskra leikmanna og fyrir HM
1994 í Bandaríkjunum ríkti allnokkur bjart-
sýni um gang liðsins. Liðið laut hins vegar í
gras gegn, jú auðvitað, Ítölum! Spænskir voru
betri í leiknum en Ítalir unnu á seiglunni, heppni
og hagstæðri dómgæslu. Roberto Baggio skor-
aði sigurmarkið á næstsíðustu mínútu og
Mauro Tassotti rændi svo Luis Enrique upp-
lögðu marktækifæri með olnbogaskoti sem
nefbraut Spánverjann. Tassotti slapp með
skrekkinn hjá dómaranum þótt hann fengi 9
leikja bann eftir að myndbandsupptökur
voru skoðaðar og endaði þar með
landsliðsferill hans. Þetta bræðavíg
tóku Spánverjar óstinnt upp og
hafa aldrei fyrirgefið Ítölum
framkomuna í leiknum.
Tveimur árum síðar tapaði
Real Madrid fyrir Juventus í
tveimur slagsmálaleikjum í
fjórðungsúrslitum Meist-
aradeildarinnar. Sá leikur
sýndi hversu kveikiþráðurinn var stuttur milli þjóð-
anna og þótt annað eins hafi ekki endurtekið sig
á síðari árum er oft grunnt á því góða. Ein
helsta kempa Real Madrid og spænska
landsliðsins á þessum árum var miðvallar-
leikmaðurinn baráttuglaði Michel sem nú
er einn þekktasti sjónvarpsmaður Spánar
og hann er duglegur að senda Ítölum eitr-
aðar pillur, lýsti því t.a.m. yfir að það ætti að
banna ítalskan fótbolta eftir litlausan úr-
slitaleik Milan og Juve fyrir tveimur
árum.
Spænski sextettinn
Michel er eins og og langflestir
spænskir sparkblaðamenn
afar ánægður með fram-
gang Liverpool í Meistara-
deildinni í vetur enda
telja þeir liðið
hálfspænskt. Michel
og félagar hafa hing-
að til ekki borið
virðingu fyrir
leikskipu-
lagi enskra
en í vetur
hefur taktík
Mourinhos
vakið virðingu og svo er Rafa Benitez afar virtur
og vinsæll á Spáni fyrir störf sín hjá Valencia. Ekki
skemmir „spænski sextettinn“ fyrir, þeir Xabi
Alonso, Josemi, Fernando Morientes, Luis Garcia,
Antonio Nunez og Mauricio Pellegrino, sá síðast-
nefndi talinn með þótt ekki sé hann spænskur
enda lék hann í sex ár á Spáni. Liverpool á fjöl-
marga stuðningsmenn á Spáni frá gullaldarárum
félagsins á áttunda og níunda áratugnum sem
hélst í hendur við töluverða lægð í spænska bolt-
anum þar sem spænsk lið komust hvorki lönd né
strönd í Evrópumótum. Leikmaður Liverpool frá
þeim árum, John Toshack, varð síðar frægur þjálf-
ari á Spáni þar sem hann stýrði fjölmörgum fé-
lagsliðum um tveggja áratuga skeið þar til hann
tók við velska landsliðinu nýverið. El Tosh eða
John Benjamin eins og hann er kallaður á víxl á
Spáni varð tákngervingur Liverpool og þess sem
væri traust, heiðarlegt og gott við enskan fót-
bolta. Spánverjar studdu El Liverpool gegn Chel-
sea og eru nánast jafn einarðir stuðningsmenn
liðsins í leiknum gegn erkifjendunum AC Milan
og um spænskt lið væri að ræða. Milan er mikil
ógn við spænskan fótbolta enda eina liðið sem
kemst nærri titlafjölda Real Madrid í Evrópu-
keppninni. Ítölsku blöðin gera líka mikið með
spænsku áhrifin og þakka þeim árangurinn, bera
þrátt fyrir allt meiri virðingu fyrir spænska boltan-
um en þeim enska...
Spánverjar sty›ja El Liverpool
EINAR LOGI VIGNISSON: RÍGURINN MILLI SPÁNVERJA OG ÍTALA
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
19 20 21 22 23 24 25
Sunnudagur
MAÍ
■ ■ LEIKIR
14.00 Þróttur og Fylkir mætast í
Landsbankadeild karla á
Laugardalsvelli.
14.00 ÍBV og Keflavík mætast í
Landsbankadeild karla á
Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.
14.00 Grindavík og FH mætast í
Landsbankadeild karla á
Grindavíkurvelli.
16.00 Völsungur og Breiðablik
mætast í 1. deild karla á
Húsavíkurvelli.
16.00 Víkingur Ó. og KS mætast í
1. deild karla í Ólafsvík.
16.00 Fjölnir og KA mætast í 1.
deild karla á Fjölnisvellinum.
16.00 Þór og Víkingur R. mætast í
1. deild karla á Akureyrarvelli.
17.00 Ísland og Færeyjar mætast í
vináttuleik í handbolta kvenna á
Ásvöllum í Garðabæ.
19.00 Færeyjar og Ísland eigast
við í vináttuleik í handbolta karla á
Þórshöfn í Færeyjum.
19.15 Þór og Víkingur R. mætast í
Landsbankadeild karla í
Frostaskjólinu.
■ ■ SJÓNVARP
10.55 Bandaríska mótaröðin í
golfi á Sýn.
11.20 Formúla á Rúv. Bein
útsending frá kappakstrinum í
Mónakó.
10.55 Gillette sportpakkinn á Sýn.
12.20 Meistaradeildin á Sýn.
Fréttaþáttur um þessa sterkustu
deild heims.
12.50 Ítalski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Juventus og
Livorno
15.00 Enski bikarinn á Sýn.
Útsending frá úrslitaleik Arsenal og
Man.Utd.
16.50 Spænski boltinn á Sýn.
Útsending frá leik Real Madrid og
Atletico Madrid frá því í gær.
19.00 US PGA ColonialÝ á Sýn.
Bein útsending frá The Bank of
America Colonial mótinu.
19.00 Spænski boltinn á Sýn 2.
Bein útsending frá leik Barcelona og
Villareal
21.20 Helgarsportið á Rúv. Farið
yfir íþróttaviðburði vikunnar.
21.35 Fótboltakvöld á Rúv. Sýnt
verður frá leikjum dagsins.
22.30 NBA á Sýn. Útsending frá
leik Dallas og Pheonix frá því í
fyrrinótt.
FÓTBOLTI Jörundur Áki Sveinsson
býst við hörkuleik í Grindavík þar
sem Íslandsmeistarar FH koma í
heimsókn. ,,Fyrir fram myndi
maður ætla að FH færi létt með
þennan leik en það er ekkert sjálf-
gefið. Ég á von á því að þetta verði
hörkuleikur og hann endi með
jafntefli 1-1, ég tala nú ekki um ef
það verður smá vindur í Grinda-
vík þá gæti hann hjálpað. FH vann
Keflavík í fyrstu umferðinn, þeir
gerðu það sem til þurfti en hafa
oft spilað betur, það var enginn
glansbragur á liðinu. Það vita þó
allir að þetta er rosalega vel
mannað lið og að öllu jöfnu ættu
þeir að hafa þetta mót.“
Þróttur og
Fylkir mætast í
Laugardalnum
og telur Jörund-
ur að þar verði
athyglisverður
leikur.
,,Þetta eru
bæði lið sem
eru vel spilandi
og hafa spilað
sóknarbolta og
ég býst við mjög skemmtilegri
viðureign. Ég gæti trúað því að
þetta verði markaleikur og hann
endi 4-3, þá hallast ég frekar að
sigri Þróttar, það er mikil stemn-
ing í Þrótti. Fylkismenn spiluðu
mjög vel á móti KR en því miður
fyrir þá fengu þeir ekkert út úr
leiknum. Þeir hafa á að skipa
mjög góðu liði og allt getur gerst.“
Í Vestmannaeyjum munu ÍBV
og Keflavík kljást og kallar Jör-
undur þennan leik hálfgerðan
fallslag þó erfitt sé að fara að tala
um fallbaráttuna ennþá. ,,Ég held
að í þessum leik muni heimavöll-
urinn ráða baggamuninn. Það tek-
ur tíma fyrir þjálfara þeirra að
púsla liði sínu saman þar sem þeir
fengu menn inn á síðustu stundu
en ég reikna með að liðið fari vax-
andi þegar líða tekur á.“
Reykjavíkurstórveldin KR og
Fram leika um kvöldið í Vestur-
bænum og segist Jörundur vonast
eftir sigri Fram. ,,Þetta verður
hörkuleikur og nær ómögulegt að
spá. Fram byrjaði mótið vel,
reyndar eins og í fyrra, en ég hef
trú á því að þeir spili vel í leiknum
en nái samt bara stigi. Framliðið
hefur frábæran þjálfara sem
hefur breytt hugarfarinu í liðinu.“
Jörundur segir mótið fara
óskóp venjulega af stað og sér
ekki fram á neitt stórkostlegt
knattspyrnusumar. ,,Maður hefði
viljað sjá fleira fólk mæta á völl-
inn í fyrstu umferð en það von-
andi kemur þegar það fer að hlýna
meira og boltinn fer að vera
meira.“ -egm
JÖRUNDUR ÁKI
SVEINSSON
Markaleikur í Laugardalnum
Önnur umfer› Landsbankadeildar karla fer af sta› í dag me› fjórum leikjum. Fréttabla›i› fékk Jörund
Áka Sveinsson, landsli›sfljálfara kvenna og fljálfara karlali›s Stjörnunnar, til a› spá í leiki dagsins.
GÓÐ FYRIRHEIT Fylkir og Þróttur áttust
við í miklum markaleik í Landsbanka-
deildinni fyrir tveimur árum en þá
unnu Þróttarar óvænt 1-5 í Árbænum.
Hér sjást Eysteinn Lárusson hjá Þrótti
og Hrafnkell Helgason hjá Fylki kljást í
þeim leik en þær verða líklega báðir í
eldlínunni í dag.
Baldvin Þorsteinsson:
Ætlar a› vera
áfram hjá Val
HANDBOLTI Handknattleiksmaður-
inn Baldvin Þorsteinsson hefur
ákveðið að vera áfram í herbúðum
Vals á næsta ári. Baldur var í við-
ræðum við Hafnarfjarðarliðin FH
og Hauka en hann hefur nú tekið
þá ákvörðun að halda áfram með
Völsurum.
,,Ég er búinn að fara á nokkra
fundi með stjórn Vals og mér líst
mjög vel á þeirra áform. Það eru
komnir nýir menn með ferskar
hugmyndir sem ætla að styrkja
liðið með minnst tveimur mjög
sterkum leikmönnum. Ég var ekki
alveg sáttur með stjórnina á síð-
asta tímabili en þetta lítur vel út
núna. Mér hefur alltaf liðið vel hjá
Val og verð því örugglega áfram.“
sagði Baldur í samtalið við
Fréttablaðið í gær. -egm
BALDVIN ÞORSTEINSSON Valsmenn eru
líklega mjög ánægðir með að hafa náð að
sannfæra Baldvin um að vera áfram enda
einn af betri leikmönnum deildarinnar.
Svíinn Zlatan Ibrahimovic er eftirsóttur leikmaður:
Real Madrid me› risabo›
FÓTBOLTI Real Madrid hafa boðið
70 milljónir evra í sænska
sóknarmanninn Zlatan Ibra-
himovic hjá Juventus en það
jafngildir tæpum sex millj-
örðum króna. Frá þessu
greindi umboðsmaður
Zlatans, Mino Raiola, við
sænska fjölmiðla í gær.
Hann sagði einnig frá því
að forráðamenn Juventus
hefðu umsvifalaust hafnað
tilboðinu, sem hefði sett
Zlatan í hóp með þremur
dýrustu knattspyrnu-
mönnum sögunnar.
„Þeir vilja ekki selja
hann fyrir neinn pen-
ing,“ segir Raiola og bæt-
ir við að ástæðan fyrir
áhuga Real sé augljós.
„Zlatan er einn sá besti í
heiminum í dag. Þess
vegna vill Real Madrid fá hann
til sín,“ segir Raiola en tilboðið
í leikmanninn barst fyrir
nokkrum dögum.
Ekki er hægt að segja að ein-
hver skortur sé á framúrskar-
andi framlínumönnum í liði Real
og því er óhætt að segja að
þessi áhugi á sænska lands-
liðsmanninum komi nokkuð
á óvart. Einnig er hann til
að ýta enn frekar undir
þær vangaveltur um að
Michael Owen sé á leið aft-
ur til Liverpool í sumar.
Ibrahimovic var
keyptur til Juventus
frá Ajax fyrir tíma-
bilið í ár og hefur
staðið sig framar
vonum með 16
mörk í deildinni
það sem af er. ■