Fréttablaðið - 22.05.2005, Page 61
SUNNUDAGUR 22. maí 2005 29
Sex leikmenn frá meisturum Chelsea
Petr Cech, Chelsea: Hefur borið af öllum
markvörðum í deildinni í ár.
Ashley Cole, Arsenal: Fljótur og öflugur varn-
armaður sem getur nýst vel í sókninni líka.
Gerir sjaldan mistök.
John Terry, Chelsea: Leikmaður ársins. Skipu-
leggur vörnina vel og er mjög hættulegur í
föstum leikatriðum í sókninni.
William Gallas, Chelsea: Betri sem miðvörð-
ur en bakvörður. Fljótur og passar vel við Terry.
Gary Neville, Man.Utd: Traustur leikmaður er
að bæta sig sóknarlega. Gefur stöðugleika.“
Claude Makelele, Chelsea: Fyrsta nafnið á
blaðið í þessu liði, ásamt Cech. Alveg eins
maður ársins og Terry að mínu mati. Bindur
saman vörn og miðju hjá liðinu.
Steven Gerrard, Liverpool: Hefur borið lið
Liverpool á herðum sér. Vel spilandi og þyrfti
að fá að leika framar en hann gerir.
Frank Lampard, Chelsea: Duglegur og fram-
sækinn miðjumaður sem skorar eins og bestu
framherjar. Alhliðaleikmaður.
Damien Duff, Chelsea: Þekki af eigin reynslu
hraða hans og leikni.
Thierry Henry, Arsenal: Eini maðurinn sem
kemur til greina á toppinn. Ber af sem fram-
herji og gerir allt vel.
Cristiano Ronaldo, Man.Utd: Hefur þroskast
mikið. Getur skapað mikinn usla með hraða
sínum og leikni.
„Ef engar vanefndir yrðu á
greiðslum myndi ég treysta mér til
að vinna titilinn með þetta lið.“
Cech
S. Gerrard
4-3-3
LIÐIÐ MITT > GUÐNI BERGSSON SETUR SAMAN LIÐ ÁRSINS Í ENSKU ÚRVALSDEILDINNI
G. Neville Terry Gallas Cole
Makelele
Lampard
C. Ronaldo D. Duff
Henry
LEIKIR GÆRDAGSINS
Enska bikarkeppnin
ARSENAL–MANCHESTER UTD. 0–0
Arsenal hafði betur í vítaspyrnukeppni,
5–4.
Þýska úrvalsdeildin
BIELEFELD–WOLFSBURG 1–2
1–0 Fatmir Vata (35.), 1–1 Martin Petrov,
víti (41.), 1–2 Thomas Brdaric (56.).
LEVERKUSEN–M´GLADBACH 5–1
0–1 Oliver Neuville (2.), 1–1 Dimitar
Berbatov (41.), 1–1 Dimitar Berbatov
(41.), 2–1 Dimitar Berbatov (58.),
3–1 Andrej Voronin (59.), 4–1 Dimitar
Berbatov (61.), 5–1 Franca (69.).
DORTMUND–H. ROSTOCK 2–1
0–1 Marco Vorbeck (14.), 1–1 Marc
Kruska (52.), 2–1 Jan Koller (67.).
NÜRNBERG–MAINZ 1–2
0–1 Niclas Weiland (14.), 1–1 Marek
Mintal (18.), 1–2 Michael Thurk (89.).
FREIBURG–SCHALKE 2–3
0–1 Ebbe Sand (6.), 1–1 Alexander
Iashvili (11.), 1–2 Marcelo Bordon (56.),
2–2 Roda Antar (78.), 2–3 Marcelo
Bordon (89.).
HAMBURG–BOCHUM 0–1
0–1 Mamadou-Lamine Diabang (3.).
H. BERLIN–HANNOVER 0–0
KAISERSLAUTERN–W. BREMEN 1–2
0–1 Tim Borowski (12.), 0–2 Nelson
Valdez (41.), 1–2 Halil Altintop (44.).
STUTTGART–B. MÜNCHEN xx–xx
0–1 Michael Ballack (27.), 0–2 Hasan
Salihamidzic (30.), 0–3 Roy Makaay
(74.), 1–3 Imre Szabics (90.).
LOKASTAÐAN:
BAYERN M. 34 24 5 5 75–33 77
SCHALKE 34 20 5 11 56–46 63
W.BREMEN 34 18 5 11 68–37 59
H. BERLIN 34 15 13 6 59–31 58
-------------------------------------------------------
GLADBACH 34 8 12 14 35–51 36
BOCHUM 34 9 8 17 47–68 35
H.ROSTOCK 34 7 9 18 31–65 30
FREIBURG 34 3 9 22 30–75 18
Lehmann reyndist hetja Arsenal
FÓTBOLTI Liðsmenn Manchester
United geta nagað sig í handar-
bökin fyrir að hafa ekki náð að
gera út um leikinn gegn Arsenal í
venjulegum leiktíma í gær. Liðið
var mun sterkara stærstan hluta
leiksins og þrátt fyrir fjöldamarg-
ar sóknir og mörg úrvals mark-
tækifæri tókst á einhvern ótrúleg-
an hátt ekki að setja knöttinn í
mark andstæðingana.
Ásamt Cristiano Ronaldo var
Wayne Rooney hættulegasti mað-
ur liðsins en hann átti meðal
annars skot í stöng í seinni hálf-
leik. Bestu færi leiksins fékk þó
Ruud van Nistelrooy, það allra
besta fjórum mínútum fyrir lok
venjulegs leiktíma þegar hann
átti skalla af markteig sem
Freddie Ljungberg bjargaði á
línu.
Eftir framlengingu var ekkert
mark komið og því réðust úrslitin
í vítaspyrnukeppni þar sem
Arsenal hafði betur eins og áður
segir.
Yfirburðir Manchester United
sjást vel á því að liðið átti níu skot
á markið þessar 120 mínútur en
Arsenal aðeins eitt. Þýski mark-
vörðurinn Jens Lehmann var
besti leikmaður Arsenal í leiknum
og varði oft á tíðum frábærlega.
Hann kórónaði síðan leik sinn með
því að verja frá Paul Scholes í
vítaspyrnukeppninni, en leik-
menn náðu að skora úr öllum hin-
um spyrnunum. Fyrirliðinn Pat-
rick Vieira tók lokaspyrnuna og
tryggði Arsenal enska bikar-
meistaratitilinn 2005.
„Við vorum búnir að æfa víta-
spyrnur sérstaklega fyrir þennan
leik en það sem mestu skiptir er
að halda ró sinni í svona aðstæð-
um og það gerðu leikmenn mínir
svo sannarlega.“ sagði Arsene
Wenger, framkvæmdastjóri
Arsenal, fljótlega eftir leik. Komu
þessi ummæli ekki á óvart því
vítaspyrnur Arsenal voru
gríðarlega öruggar og var það
aðeins í síðustu spyrunni gegn
Viera sem Roy Carroll í marki
Man. Utd. var nálægt boltanum.
„,Manchester United lék mjög
vel í þessum leik og við áttum í
miklum erfiðleikum. Við þurftum
að vera aftarlega og náðum ekki
að skapa okkur mikið af færum.
Þegar við lékum gegn þeim á
Highbury náðum við ekki að loka
nægilega vel á þá og því lagði ég
áherslu á að bæta úr því,“ bætti
glaðbeittur Wenger við eftir
leikinn. elvar@frettabladid.is
Arsenal var› í gær enskur bikarmeistari me› flví a› leggja Manchester United a› velli í vítaspyrnukeppni.
Li› Manchester United var miklu sterkari a›ilinn í leiknum og fóru fjölmörg dau›afæri í súginn.
VÍTASPYRNUKEPPNIN
Ruud van Nistelroy (skorar) 1–0
Lauren (skorar) 1–1
Paul Scholes (Lehmann ver) 1–1
Freddie Ljungberg (skorar) 1–2
Cristiano Ronaldo (skorar) 2–2
Robin van Persie (skorar) 2–3
Wayne Rooney (skorar) 3–3
Ashley Cole (skorar) 3–4
Roy Keane (skorar) 4–4
Patrick Viera (skorar) 4–5
FÓTBOLTI Hetjan Jens Lehmann
var alveg í skýjunum með
bikarsigurinn. ,,Ég kom hingað
til þess að vinna til verðlauna og
nú er kominn einn bikar.“
Patrick Vieira, fyrirliði
Arsenal, hrósaði mótherjunum
sérstaklega. ,,Þeir voru ansi
duglegir að skapa sér færi og
margir vilja kannski meina að
við höfum ekki átt skilið að
sigra. Ég er á öðru máli, það var
frábær andi innan liðsins og við
náðum að halda þetta út þrátt
fyrir að það hafi verið ansi
erfitt.“
Rio Ferdinand, varnarmaður
United, var skiljanlega ansi
svekktur eftir leikinn. ,,Það er
leiðinlegt að horfa á eftir bik-
arnum þar sem við unnum hann
í fyrra. Það var ótrúlegt að við
skyldum ekki ná að skora en það
er ekki neinum öðrum að kenna
en okkur sjálfum, ég heyrði
áðan að þetta hefði verið í fyrsta
sinn síðan 1985 sem úrslitaleik-
ur keppninnar endar með
markalausu jafntefli. Það þýðir
ekkert að væla, tímabilið hefur
verið vonbrigði fyrir okkur og
við erum ákveðnir í því að gera
mun betur á því næsta,“ sagði
Ferdinand.
Gleði og sorg hjá leikmönnum eftir leikinn:
Ótrúlegt a› ná ekki a› skora
HETJAN LYFTIR BIKARNUM
Lehmann hefur átt undir
högg að sækja hjá Arsenal
stærstan hluta þessa
tímabils en í leiknum í gær
reyndist hann bjargvættur
liðsins.
Kvennalandsliðið í handbolta áttiekki í erfiðleikum með að leggja
Færeyjar að velli í gær og vann 31-
14. Arna Gunnarsdóttir var marka-
hæst í íslenska liðinu með fimm
mörk en þá átti Íris Björk Símonar-
dóttir góðan dag í markinu og varði
yfir 20 skot. Leikurinn var í Færeyj-
um en liðin mætast aftur í dag.
Hollenski leikmaður Dennis Berg-kamp mun skrifa undir nýjan
samning við Arsenal bráðlega en
þetta var opinberað eftir sigur liðs-
ins á Manchester United í bikarn-
um. Bergkamp, sem er orðinn 36
ára en spilar líkt og hann sé tíu
árum yngri, mun framlengja samn-
ing sinn um eitt ár en hann var
keyptur frá Inter Milan árið 1995.
Arsene Wenger hefur þó sagt Berg-
kamp að hann muni ekki eiga fast
sæti í liðinu.
Enski landsliðsmaðurinn OwenHargreaves hefur opinberað
áhuga sinn á að ganga í raðir Liver-
pool. Leeikmaðurinn hefur verið
orðaður við liðið en hann er nú í
herbúðum þýska liðsins Bayern
Munchen. ,,Liverpool er spennandi
kostur, liðið er gott og framtíðin
virðist vera björt undir stjórn Rafael
Benitez. Meira vil ég þó ekki segja
fyrr en eftir bikarúrslitaleikinn gegn
Schalke,“ sagði Hargreaves sem
einnig hefur verið orðaður við
Tottenham og Blackburn en er
sagður hafa takmarkaðan áhuga á
að fara til þeirra.
ÚR SPORTINU