Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.05.2005, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 22.05.2005, Qupperneq 70
38 22. maí 2005 SUNNUDAGUR Íslenski Eurovision-hópurinn ervæntanlegur heim frá Kænugarði í dag. Athygli vekur hversu stór og fjölmennur hópurinn er því auk keppenda, dansara og bakradda má finna þó nokkra fjöl- miðlamenn af RÚV, Stöð 2 og fleiri miðlum. Mesta athygli vekur þó hversu fjöl- mennur hópurinn frá RÚV er því auk fararstjórans Jónatans Garðars- sonar hafa þeir Gísli Marteinn Baldursson, Logi Bergmann Eiðs- son og Guðrún Gunnarsdóttir fylgt keppendum eftir eins og skugginn. Tríóið hefur skipt hlutverk- um bróðurlega á milli sín, það er Gísli Mart- einn séð um beinu út- sendinguna, Logi Berg- mann gert pistla fyrir sjónvarpið en Guð- rún fyrir útvarpið. Vilja sumir meina að þarna sé sam- an kominn ferða- hópur RÚV sem hittist einu sinni á ári í útlöndum – í boði stofn- unarinnar. Bíómiðar! vMedion tölva með flatskjá! Tölvuleikir! Haugur af græjum frá BT í vinning! Viltu 1/2 milljón? Sendu SMS skeytið JA BNF á númerið 1900! Við sendum þér 3 spurningar sem þú svarar með því að senda SMS skeytið JA A, B eða C á númerið 1900. • •Sá sem svarar hraðast 3 spurningum fær 500.000kr*! • • Allir sem svara 2 rétt gætu fengið aukavinning! • • 10. hver vinnur aukavinning! *Sá sem vinnur 500.000 kr fær einn dag til að kaupa sér vörur í verslunum BT og Iceland Express að andvirði 500.000 kr. Leik lýkur 3. júní 2005 24:00 Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. Ef það tekur þig lengur en 5 mín. að svara spurningu þarftu að byrja leikinn aftur. Fartölvur • Flugmiðar með Iceland Express • Heimabíó • Sjónvörp • PS2 tölvur • Samsung GSM símar • MPp3 spilarar • DVD spilarar • DVD myndir • Tölvuleikir • Kippur af Coca Cola og margt fleira. D3 Samsung Símar!Flugmiðar! Hafðu hraðann á! BTnet gefur 500.000 kr.*! rir flesta er ðvelt að reppa til nnlæknis ef nnpína gerir rt við sig. Má ækist hins veg kkuð þegar 0 kílógramm jörn á í hlut Coca Cola! Margir krakkar hafa heyrt rödd Ólafar Kristínar Þorsteinsdótt- ur án þess að þekkja andlit hennar. Þessi unga stúlka hefur ljáð allnokkrum teiknimyndum rödd sína og má meðal annars telja upp Lilo og Stitch og bíó- myndina Álfur. Núna vinnur hún hins vegar í góðra manna hópi að talsetningu þáttaraðarinnar um Latabæ og Ólöf talar að sjálfsögðu fyrir hina krúttlegu Sollu stirðu. „Þetta er öðruvísi verkefni en allt annað sem ég hef gert og meiri vinna. Þetta virðist vera svolítið vandaðra og vegna þess að það er alvöru stelpa sem leik- ur Sollu þá er erfiðara að láta raddirnar passa saman. Ég les af blaði og stundum þarf ég að æfa mig áður en ég byrja,“ segir Ólöf með svo glaðlegri röddu að það er vel skiljanlegt að hún sé fengin í talsetningu. Hún segist sjálf hafa gaman af Latabæ. „Ég sá leikritið þegar ég var yngri og hafði gaman af þessu, Siggi sæti er uppáhaldspersónan mín, hann er svo fyndinn. Aðspurð hvernig það vildi til að Ólöf færi í þennan bransa svo ung, en hún er tólf ára gömul, segir hún: „Frændi minn er að vinna eitthvað í sambandi við svona talsetningu og pabbi spurði hann hvort ég gæti ekki fengið að prófa. Svo fannst mér þetta bara gaman.“ Ólöf er þó alls ekki stirð eins og Solla því hún er ekta handboltastelpa sem æfir með Fylki. Auk þess æfir hún á klarínett af fullum krafti og var að ljúka við annað stig. Það er greinilega kraftur í þess- ari ungu stúlku. „Það getur verið svolítið erfitt að finna tíma fyrir annað en þetta er þó allt í lagi.“ Öll dagskrá Ólafar er þó ekki alveg upptalin því hún hefur einnig tekið að sér hlutverk í söngleiknum Annie. „Ég leik munaðarleysingja og við byrj- um að æfa á fullu í næstu viku. Mér finnst rosalega gaman að leika og syngja,“ segir Ólöf og viðurkennir að hana langi nú ör- lítið að verða leikkona þegar hún verður stór. hilda@frettabladid.is FRÉTTIR AF FÓLKI ...fær gleðivaldurinn og popp- stjarnan Páll Óskar Hjálmtýsson fyrir að missa ekki dampinn þótt Íslendingar dyttu úr undan- keppni og halda sínu striki í ár- legu Júróvisjónpartíi sínu með ís- lenskum Júróvisjónstjörnum á Nasa. Einnig fyrir að vera af er- lendum fagaðilum talinn með eitt besta Júróvisjónlag allra tíma: Minn hinsta dans frá 1997. HRÓSIÐ KRAFTDREKAR Þessi nýja íþrótt verður kynnt í Laugardalnum á sunnudaginn klukkan eitt. Kraftdrekarnir eru frekar litlir og nettir og kostnaðurinn er minniháttar. Fleiri upplýsingar um íþróttina er að finna á heimasíðunni www.vindsport.is. ÓLÖF KRISTÍN ÞORSTEINS- DÓTTIR Þessi unga stúlka ljáir Latabæjarbúanum Sollu stirðu rödd sína í þáttaröðinni sem er væntanleg í íslenskt sjónvarp. ÓLÖF KRISTÍN ÞORSTEINSDÓTTIR: TALAR FYRIR SOLLU STIRÐU Hörkudugleg og ekkert stirð HIN HLIÐIN HIN HLIÐIN Á BRYNJU ÞORGEIRSDÓTTUR, DAGSKRÁRGERÐARMANNI Á STÖÐ 2. Hvernig ertu núna? Syfjuð. Augnlitur: Blár. Starf: Dagskrárgerðarmaður. Stjörnumerki: Sporðdreki. Hjúskaparstaða: Einstök. Hvaðan ertu? Ég ólst upp á Álftanesi og bý þar núna. Helsta afrek: Sonur minn. Helstu veikleikar: Óþolinmæði. Helstu kostir: Jákvæðni. Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Ég missi aldrei af The Practice. Uppáhaldsútvarpsþáttur: Óskalagaþáttur Gerðar G. Bjarklind. Uppáhaldsmatur: Ég elska sushi. Uppáhaldsveitingastaður: Apótekið klikkar aldrei. Uppáhaldsborg: Lissabon. Mestu vonbrigði lífsins: Að geta ekki orðið ballerína. Ég er nefnilega svo rosalega stirð og gjörsneydd öllum danshæfileikum. Áhugamál: Hestamennska númer eitt, tvö og þrjú. Viltu vinna milljón? Já, heldur betur. Jeppi eða sportbíll? Jeppi, það er ekki hægt að draga hesta- kerru á sportbíl. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Bóndi. Hver er fyndnastur/fyndnust? Bryndís Ásmundsdóttir. Hver er kynþokkafyllst(ur)? Ég er voða hrifin af Bruce Willis. Trúir þú á drauga? Já, nei, já. Ég veit það ekki. Hvaða dýr vildirðu helst vera? Það væri örugglega mjög gaman að vera hraðsyndur fiskur. Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Það væri mjög leiðinlegt að vera ánamaðkur. Áttu gæludýr? Nei, ekki nema hesta bara. Þeir eru kannski ekki gæludýr. Besta kvikmynd í heimi: Ég er ennþá að hugsa um Underground sem ég sá fyrir nokkrum árum. Besta bók í heimi: Meistarinn og margaríta. Næst á dagskrá: Að horfa á frumsýninguna á Kóngi um stund. 14.11.1974 Ekki hægt a› draga hestakerru á sportbíl Áhugamenn um kraftdreka halda kynningu á þessu nýjasta sporti í Laugardalnum á sunnudaginn klukkan eitt. Þetta tæki hefur ver- ið að gera það gott meðal jaðar- íþróttagreina og segir Friðrik Kingo, einn aðstandenda kynning- arinnar, þetta vera vinsæla sumar- og vetraríþrótt. „Á sumrin geta menn verið með þetta úti á túni, á línuskautum á stórum sléttum tún- um og sérstökum þríhjólum á söndum, „ segir hann og bætir við að á veturna geti menn notað þetta á brettunum og skíðunum. „Þeir sjást þá gjarnan uppi á Rauða- vatni, Bláfjöllum og víðar.“ Kraftdrekarnir eru frekar litl- ir og nettir auk þess sem kostnað- ur við að koma sér upp góðum búnaði er ekki mikill. „Það er hægt að fá þetta í mismunandi stærðum og gerðum. Drekinn sem ég er með er frekar lítill, fjórir og hálfur fermetri sem rúmast í litl- um bakpoka. Það er hins vegar alveg hægt að fá dreka sem eru tólf fermetrar,“ segir Friðrik. Hann segir þetta vera mjög góða hreyfingu, menn séu að berj- ast við vindinn og kraftana í nátt- úrunni. „Þetta getur tekið þig á loft og látið þig svífa nokkra metra,“ segir hann og bætir við að hægt sé að nota þetta bæði á landi sem og á sjó. freyrgigja@frettabladid.is Í lausu lofti me› kraftdreka
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.