Fréttablaðið - 13.06.2005, Síða 4
4 13. júní 2005 MÁNUDAGUR
Góðgerðartónleikar gegn eyðni í Tromsø:
Rokka› me› Mandela gegn ey›ni
NOREGUR, AP Nelson Mandela og
alþjóðleg breiðfylking tónlistar-
stjarna þrýstu á ríkar þjóðir
heims að leggja meira af mörk-
um til baráttunnar gegn eyðni-
sjúkdómnum og fátækt á góð-
gerðartónleikum í Tromsø í
Norður-Noregi á laugardags-
kvöld.
„Látum hvert barn vera heil-
brigt barn,“ sagði Mandela í
ávarpi til hinna um það bil átján
þúsund áheyrenda sem mættir
voru á tónleikana. „Við vitum
hvað þarf að gera og hve mikið
það kostar. Við þurfum núna for-
ystu, sýn og pólitískt hugrekki,“
sagði hann.
Tónleikarnir, sem báru yfir-
skriftina 46664 Arctic Concert,
voru nefndir eftir fanganúmerinu
sem Mandela bar þau 27 ár sem
hann var pólitískur fangi í stjórn-
artíð hvíta minnihlutans í Suður-
Afríku. Tónleikarnir í Tromsø
voru liður í röð slíkra góðgerðar-
tónleika. Meðal tónlistarmanna
sem fram komu voru Peter
Gabriel, Annie Lennox, Robert
Plant og Razorlight, að ógleymdri
hljómsveit Gunnlaugs Briem,
Earth Affair. ■
Wolfowitz lofar
skuldani›urfellingu
Bankastjóri Alfljó›abankans fagnar samkomulaginu sem ná›st hefur um
ni›urfellingu skulda fátækra ríkja og bo›ar a› brátt ver›i sami› um a› létta
skuldabyr›i Nígeríu og fleiri landa.
NÍGERÍA, AP Paul Wolfowitz, for-
stjóri Alþjóðabankans, bar í gær
lof á sögulegt samkomulag sem
náðst hefur um niðurfellingu
skulda nokkurra fátækustu ríkja
heims. Hann sagðist jafnframt
vongóður um að samkomulag
myndi takast bráðlega um að létta
skuldabyrði Nígeríu, skuldugasta
lands Afríku.
Wolfowitz lét þessi orð falla í
Abuja, höfuðborg Nígeríu, en það
var fyrsti viðkomustaðurinn í
Afríkuheimsókn hans, þeirri
fyrstu sem hann fer í eftir að
hann tók við stjórn Alþjóðabank-
ans, sem hefur það hlutverk að
styðja við framfarir í þróunar-
löndum.
Fjármálaráðherrar átta helstu
iðnríkja heims, G8-hópsins svo-
nefnda, sömdu um það á laugar-
daginn að 40 milljarða dollara
skuldir átján fátækra ríkja skyldu
felldar niður. Flest eru þessi ríki í
Afríku. Stór hluti skuldanna var
við alþjóðlegar lánastofnanir, ekki
síst Alþjóðabankann. Alls nema
erlendar skuldir Afríkuríkja um
þessar mundir um 300 milljörðum
dollara, andvirði yfir 19.000 millj-
arða króna.
Wolfowitz fullyrti að skulda-
niðurfellingin „myndi ekki koma
niður á nýjum framlögum til þró-
unaraðstoðar“. Ríku löndin hefðu
nú um helgina heitið einum millj-
arði dollara, 64 milljörðum króna,
í viðbótarframlög til fátækustu
ríkjanna. G8-ráðherrarnir hétu
því að leggja fram aukafé til að
bæta Alþjóðabankanum og
Afríska þróunarbankanum upp
tapið sem skuldaniðurfellingin
hefur í för með sér.
Nígería er fjölmennasta og
jafnframt skuldugasta land
Afríku. En þar sem það er einn
stærsti olíuútflytjandi heims upp-
fyllir það ekki skilgreiningu Al-
þjóðabankans um lágtekjuland.
Og spillt stjórnsýsla hefur ekki
hjálpað til heldur. Samningar um
eftirgjöf skulda Nígeríu eru því
flóknari en allra fátækustu ríkj-
anna.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sem verður gestgjafi á
leiðtogafundi G8-ríkjanna í
Skotlandi í júlí, mun í dag hitta
Vladimír Pútín Rússlandsforseta í
Moskvu og Gerhard Schröder
Þýskalandskanslara í Berlín á
ferð sinni milli höfuðborga ríkj-
anna átta þar sem hann reynir að
afla stuðnings við metnaðarfulla
áætlun sína um stóraukna þróun-
araðstoð og heimsátak gegn loft-
mengun. - aa
Ungverskir sósíalsistar:
Stórt tap
BÚDAPEST, AP Ferenc Gyurcsany,
forsætisráðherra Ungverja-
lands, viðurkenndi á laugardag
að Sósíalistaflokkurinn hefði
beðið stóran ósigur í forseta-
kosningunum fyrr í þessari
viku. „Flokkurinn beið sárs-
aukafullan ósigur í þessum
kosningum. Það versta er að
hann tapaði ekki fyrir keppi-
nautnum heldur tapaði hann í
raun og veru fyrir sjálfum sér,“
sagði Gyurcsany.
Þingið kaus fyrrum dómara í
stjórnarskrárrétti, Laszlo Solyo,
til að taka við af núverandi
forseta, Ferenc Madl, en fimm
ára kjörtímabili hans lýkur í
ágúst. ■
ÁSAMT GRÉTARI G OG DANNA
NICK
WARREN
FORSALA Í ÞRUMUNNI // MIÐAVERÐ EINGÖNGU 1500 KR. Í FORSÖLU
HÚSIÐ OPNAR 23.00 // NÁNARI UPPLÝSINGAR Á FLEX.IS
SMIRNOFF TWISTED KYNNING
Á MEÐAN BYRGÐIR ENDAST
FLEX MUSIC OG
SMIRNOFF KYNNA
RISA KLÚBBAKVÖLD
Á NASA 16.06.05 VEÐRIÐ Í DAG
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
64,22 64,52
117,21 117,77
78,55 78,99
10,55 10,61
10,01 10,07
8,52 8,57
0,60 0,60
94,55 95,11
GENGI GJALDMIÐLA 10.06.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
110,41 +0,17% GEGN EYÐNI OG FÁTÆKT Nelson Mandela,fyrrverandi forseti Suður-Afríku, ávarpaði
tónleikagesti í Tromsø.
Útafakstur á Eskifirði:
Beltin bjarga
ÚTAFAKSTUR Ökumaður missti
stjórn á bíl sínum og keyrði út af
á Norðfjarðarvegi um miðnætti
aðfaranótt sunnudags.
Samkvæmt lögreglunni á
Eskifirði slapp ökumaður
ómeiddur en hann getur þakkað
öryggisbeltunum fyrir það. Bíll-
inn er einnig lítið skemmdur og
vel ökufær.
Ekki er ljóst sem stendur af
hverju ökumaður missti stjórn á
bílnum. - lkg
LÖGREGLUFRÉTTIR
OF HRAÐUR AKSTUR Lögreglan í
Stykkishólmi stóð fyrir öflugu
umferðareftirliti á Snæfells-
veginum á laugardag. Lögreglan
var með tvo bíla á vakt seinni
part dags og voru fimmtán öku-
menn teknir fyrir of hraðan akst-
ur, sá hraðasti á 125 kílómetra
hraða á klukkustund.
ÖLVUNARAKSTUR Tveir ökumenn
voru teknir grunaðir um ölvun-
arakstur í umdæmi lögreglunnar
á Akureyri aðfaranótt sunnudags.
Enn fremur voru tíu ökumenn
kærðir fyrir of hraðan akstur í
umdæminu.
ELDUR Eldur kviknaði í þrem
ruslagámum í Árnessýslu aðfara-
nótt sunnudags. Kviknaði í gám-
um á Eyrarbakka, á Selfossi og í
Grímsnesi en lögreglan á Selfossi
telur að þeir sömu hafi verið að
verki í öllum tilvikum.
GUÐJÓN ARNGRÍMSSON „Við höfum reynt
að sinna ferðalöngunum eftir bestu getu
og útvegað þeim hótelgistingu, mat og
þess háttar,“ segir Guðjón.
Bilun í vél Icelandair:
36 tíma töf
FLUG Töf varð á vél Icelandair til
San Francisco frá Keflavík síð-
degis á laugardag vegna bilunar.
Vélin lagði ekki af stað á áfanga-
stað fyrr en um miðnætti í gær.
Þar af leiðandi varð einnig töf á
flugi Icelandair frá San Francisco
til Keflavíkur. Töfin nam einum
og hálfum sólarhring og hugðust
einhverjir ferðalanganna ætla að
sækja bætur til Icelandair.
„Við höfum reynt að sinna
ferðalöngunum eftir bestu getu
og útvegað þeim hótelgistingu,
mat og þess háttar. Í framhaldinu
verður tekið á því hvort ferða-
langarnir fái bætur en þetta er
fólk af ýmsum þjóðernum, bæði
Evrópubúar og Bandaríkjamenn,“
segir Guðjón Arngrímsson, upp-
lýsingafulltrúi Icelandair. - lkg
Á VETTVANGI Paul Wolfowitz, forstjóri Alþjóðabankans, í vettvangsheimsókn í Abuja í Nígeríu í gær.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
P