Fréttablaðið - 13.06.2005, Side 6

Fréttablaðið - 13.06.2005, Side 6
6 13. júní 2005 MÁNUDAGUR Hluta refsingar frestað vegna dráttar á rannsókn: Afgrei›slustjóri spari- sjó›s dæmdur í fangelsi DÓMSMÁL 37 ára gömul kona var fyrir helgi dæmd í níu mánaða fangelsi og til greiðslu rúmlega átta milljóna króna skaðabóta til Sparisjóðs Hafnarfjarðar vegna umboðssvika í störfum sínum fyrir sjóðinn árin 2000 til 2003. Konan starfaði sem af- greiðslustjóri hjá sparisjóðnum og notaði aðstöðu sína til að heimila skuldfærslur á kredit- kort sín þrátt fyrir vanskil og til að taka út peninga. Þá stofnaði hún til fjölgreiðslusamninga eftir því sem skuldir hennar undu upp á sig. Hún stofnaði einnig greiðslukortareikning fyrir þáverandi sambýlismann sinn án þess að fyrir lægi um- sókn hans og notaði hún aðgangs- orð samstarfsmanns til að hækka yfirdráttarheimild á tékkareikn- ingi sambýlismannsins. Sex mánuðir refsingar kon- unnar eru skilorðsbundnir í tvö ár, en dómurinn segir það til komið af óútskýrðum drætti á rannsókn málsins. Kæra var lögð fram 21. júlí 2003 og skýrsla tek- in af konunni í ágústlok sama ár, þar sem hún játaði brot sitt. Skýrsla var svo ekki tekin aftur fyrr en 12. apríl á þessu ári og ákæra gefin út 20. apríl. Dómur- inn var kveðinn upp í Héraðs- dómi Reykjaness. - óká Fleiri hljómsveitir bætast við lista Live 8 tónleikanna: Pink Floyd saman á n‡ BRETLAND, AP Skipuleggjendur Live 8 tónleikanna í London sögðu í gær að breska rokksveitin Pink Floyd myndi koma aftur saman til að spila á tónleikunum sem fara fram í Hyde Park júlí. Hljómsveitina skipa gítarleik- arinn David Gilmour, trommu- leikarinn Nick Mason, bassaleik- arinn Roger Waters og hljóm- borðsleikarinn Richard Wright en þeir hafa ekki spilað saman á sviði síðan árið 1981 þegar Waters, þá- verandi leiðtogi hljómsveitarinn- ar, hætti. Hljómsveitin sló í gegn árið 1973 með plötunni Dark Side of the Moon, sem er fyrir löngu orð- in klassík í rokksögunni. Hljómgrunnur fyrir fljó›aratkvæ›agrei›slu Margvíslegustu hugmyndir um uppfærslu á stjórnarskrá l‡›veldisins komu fram á rá›stefnu sem stjórnarskrárnefnd efndi til um helgina. STJÓRNARSKRÁRMÁL Að forsetaemb- ættið verði lagt niður, bannað verði að stofna íslenskan her og að vatn verði lýst almannaeign voru meðal tillagna um breyting- ar á stjórnarskrá íslenska lýð- veldisins sem fram komu á ráð- stefnu sem stjórnarskrárnefnd hélt á Hótel Loftleiðum á laugar- dag. Á ráðstefnunni fengu fulltrúar félagasamtaka sem sent höfðu inn erindi til stjórnarskrárnefndar tækifæri til að færa rök fyrir til- lögum sínum og fá viðbrögð félaga í nefndinni. Þar sem ráð- stefnan var opin almenningi gafst jafnframt öllum þeim sem áhuga höfðu tækifæri til að leggja orð í belg í umræðunni um endurskoð- un stjórnarskrárinnar. Alls var það 21 félag sem sendi inn erindi til nefndarinnar áður en tilskilinn frestur rann út, en þau eru birt á heimasíðunni www.stjornarskra.is. Meðal þess- ara félaga eru Barnaheill, BSRB, Félag heyrnarlausra, Frjáls- hyggjufélagið, Heimssýn, Land- vernd, Mannréttindaskrifstofa Ís- lands, ReykjavíkurAkademían, Samtök um aðskilnað ríkis og kirkju, Samtök herstöðva- andstæðinga, Skýrslutæknifélag Íslands, Undirbúningshópur kvenna um stjórnarskrárbreyt- ingar og Þjóðarhreyfingin. Eins og þessi upptalning ber með sér voru tillögurnar af marg- víslegasta tagi og snerta nær alla þætti stjórnarskrárinnar. Þó er ljóst að sumar þeirra eiga meiri möguleika á að verða að veruleika en aðrar. Út úr viðbrögðum full- trúa stjórnarskrárnefndar mátti lesa að þótt ákveðið hefði verið að einskorða endurskoðunina nú ekki við fyrsta, annan og fimmta kafla stjórnarskrárinnar, eins og upprunalegt erindisbréf hennar hljóðaði upp á, væri sennilegra að samstaða næðist um breytingar ef þær yrðu ekki of víðtækar. Verk- efni stjórnarskrárnefndar, sem er skipuð fulltrúum stjórnmála- flokkanna, er að leggja fram frumvarp að breytingum á stjórn- arskránni fyrir árslok 2006. Við upphaf ráðstefnunnar benti Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðiprófessor á að það væru þessir þrír nefndu kafl- ar – í þeim er kveðið á um skipt- ingu ríkisvaldsins, vald forseta og ráðherra og dómsvaldið – væru „fornfálegustu“ hlutar stjórnar- skrárinnar, enda hefur þeim sama og ekkert verið breytt frá því lýð- veldisstjórnarskráin var sam- þykkt árið 1944 og að kjarna til eru ákvæðin sem þeir innihalda ættuð beint úr dönsku stjórnar- skránni frá miðri 19. öld. Ákvæð- in endurspegluðu annan stjórn- skipunarlegan raunveruleika en nú væri við lýði og þetta ósam- ræmi væri óæskilegt. Ágreining- ur um túlkun þeirra, eins og upp kom um 26. greinina í fyrrasumar, skapaði réttaróvissu sem æski- legt væri að eyða með skýrari uppfærðum ákvæðum. Geir H. Haarde, varaformað- ur stjórnarskrárnefndar, sleit ráðstefnunni en hann nefndi í lokaorðum sínum að sér heyrðist það eiga talsverðan hljómgrunn að tekið yrði upp í stjórnarskrá ákvæði um þjóðaratkvæða- greiðslur. Í umræðunni hefur sá möguleiki helst verið nefndur í þrenns konar samhengi; að til- tekinn fjöldi kjósenda geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekið mál og slíkt ákvæði kom- ið í staðinn fyrir svonefndan mál- skotsrétt forseta í 26. greininni; að efnt skuli til þjóðaratkvæða- greiðslu ef stjórnvöld gera samn- inga sem fela í sér umtalsvert framsal á ríkisvaldi til fjölþjóð- legra stofnana; og loks að sam- þykkt stjórnarskrárbreytinga verði aðskilin frá þingkosning- um. audunn@frettabladid.is Ólæti í Keflavík: Veifa›i kyn- færum sínum LÖGREGLA Nokkuð var um að vera hjá lögreglunni í Keflavík á aðfararnótt sunnudags. Stúlku var hrint fyrir utan skemmtistaðinn Traffic í Hafn- argötu í Keflavík rétt upp úr fjögur í gærnótt og var óskað eftir aðstoð lögreglu þar eð stúlkan hafði slasast lítillega. Ekki voru þetta síðustu afskipti lögreglunnar þetta kvöldið við skemmtistaðinn, því að tæpri klukkustund síðar var hún aftur kölluð út að skemmtistaðnum þar sem stúlka hafði sparkað í bifreið. Reyndist hún ósátt við að hafa verið vísað út af skemmti- staðnum. Örfáum mínútum síðar var lögreglan aftur kölluð út en þá á Aðalgötu, þar sem tilkynnt var um nakinn mann sem var að veifa kynfærum sínum. Lögreglan fann manninn ekki. Einnig bárust lög- reglunni fjögur hávaðaútköll þessa sömu nótt. - lkg Umferð í Keflavík: Of greitt eki› LÖGREGLA Mikil umferð var í um- dæmi lögreglunnar í Keflavík að- faranótt sunnudags og talsvert um umferðarlagabrot. Tveir ökumenn voru kærðir fyrir meinta ölvun við akstur og fjórir voru kærðir fyrir of hraðan akstur sömu nótt. Tveir voru teknir á Reykjanesbraut, sá sem hraðar ók mældist á 187 kílómetra hraða þar sem leyfður hámarkshraði er níutíu kílómetrar, og tveir á Njarðarbraut og mældist hraði þeirra 71 kíló- metri þar sem leyfður hámarks- hraði er fimmtíu kílómetrar á klukkustund. - lkg SPRENGT Í SKÓLA Átján ára jap- anskur skólapiltur olli mikilli skelf- ingu er hann varpaði heimagerðri sprengju inn í skólastofu í mennta- skóla í Suður-Japan í gær. 56 nem- endur særðust er púðurfyllt gler- krukkan sprakk nærri kennara- borðinu og þeytti glerbrotum í all- ar áttir. BEINT FLUG TIL ÍRLANDS Í tengslum við einstakt leiguflug til Dublinar getur Úrval Útsýn boðið flugsæti í eina viku til Dublin frá 17. - 24 júní. Flugtímar: Keflavík – Dublin 17. júní: 10:30 - 14:00 Dublin – Keflavík 24. júní: 15:00 - 16:30 Það er fágætt að Íslendingar eigi þess kost að fljúga beint til Írlands að sumri til og upplifa fegurð þessa nágrannalands okkar og vinalegt mannlíf. VERÐ: 22.900 M/SKÖTTUM BÁÐAR LEIÐIR 17.900 M/SkÖTTUM AÐRA LEIÐINA JAPAN Þarft þú að fá þér nýtt vegabréf í sumar? SPURNING DAGSINS Í DAG: Átt þú kött sem er ómerktur? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 71% 29% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR Kona sem starfaði sem afgreiðslustjóri hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar við Reykjavíkurveg var fyrir helgi dæmd til greiðslu átta milljóna króna skaðabóta og í níu mánaða fangelsi vegna brota sem framin voru í starfi árin 2000 til 2003. Myndin var tekin árið 2003 eftir bankarán. DAVID GILMOUR Hann mun þenja raddböndin ásamt hljómsveitarmeðlimum Pink Floyd í júlí. STJÓRNARSKRÁIN RÆDD Fulltrúar frjálsra félagasamtaka kynntu tillögur sínar fyrir stjórnar- skrárnefnd og öðrum ráðstefnugestum í þremur málstofum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.