Fréttablaðið - 13.06.2005, Qupperneq 10
1Með hvaða gráðu útskrifaðist Vil-hjálmur prins á dögunum?
2Hve margar konur tóku þátt íKvennahlaupinu á laugardaginn?
3Hvaða heimsþekkta fyrirsæta heim-sótti Ísland vegna tískusýningarinnar
sem haldin var í Skautahöllinni á
föstudag?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
10 13. júní 2005 MÁNUDAGUR
Ísland nýtur góðs af styrkúthlutunum NORA:
Erum me› í 14 af 20 verkefnum
ALÞJÓÐASTARF Ísland er þátttakandi
í 14 af 20 verkefnum sem NORA,
Norður- Atlantsnefndin, hefur
ákveðið að styrkja með fjárveit-
ingu upp á 39,4 milljónir króna.
Fjallað var um 40 styrkumsóknir
á ársfundi nefndarinnar dagana 4.
og 5. júní í Nuuk á Grænlandi. Um
er að ræða margvísleg samstarfs-
verkefni á milli Færeyja, Græn-
lands, Íslands og Noregs.
Þórarinn V. Sólmundarson,
tengiliður NORA á Íslandi, segir
að nú séu í gangi um 40 verkefni
sem NORA hefur styrkt. „Áhersla
á sjávarnytjar hefur verið mikil,
en svo hefur ferðaþjónusta verið
rík þarna líka,“ segir hann.
Ákvarðanir um styrki NORA eru
teknar einu sinni til tvisvar á ári.
„Núna er eitthvað af peningum
eftir þannig að ég geri ráð fyrir að
við auglýsum aftur eftir umsókn-
um í haust.“
Hægt er að sækja um styrk til
NORA hvenær sem er ársins, en
skilyrði er að verkefni feli í sér
samstarf að minnsta kosti tveggja
landa eða hafi ótvírætt gildi fyrir
tvö, eða fleiri lönd. NORA heyrir
undir Norrænu ráðherranefndina,
en frekari upplýsingar um
Norður-Atlantsnefndina er að
finna á vef Byggðastofnunar,
byggdastofnun.is.
-óká
Breytingar hjá Bandaríkjaher:
Birg›astö›vum loka› í Noregi
NOREGUR, AP Varnarmálaráðherrar
Bandaríkjanna og Noregs hafa
ritað undir samkomulag þess efn-
is að herflugvöllum sem geyma
birgðir fyrir Bandaríkjaher verði
fækkað úr fimm í tvo. Þá gerir
samkomulagið ráð fyrir því að
breytingar megi gera á tegund
vopnanna og birgðanna sem
geymdar eru í landinu fyrir flota-
deild Bandaríkjahers. Fyrri
samningur landanna um varnar-
samstarf var frá árinu 1981.
Kristen Krohn Devold, varn-
armálaráðherra Noregs, segir
tilhögunina leiða til þess að
Bandaríkin geti aðstoðað við
varnir Noregs ef þess gerist
þörf, auk þess sem hún gerir
sameiginlegar æfingar herja
landanna mögulegar.
Bandaríkjaher hóf að geyma
birgðir í Noregi í kalda stríðinu og
miðaðist þá allur viðbúnaður við
hvernig bregðast ætti við innrás
Sovétríkjanna.
Að loknum blaðamannafundi
vegna samkomulagsins flugu
Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, og
Devold saman til Brussel þar sem
þeir sitja fund varnarmála-
ráðherra aðildarríkja Norður-
Atlantshafsbandalagsins. ■
SKÓLAMÁL Um sjötíu prósent fleiri
óska þess að hefja nám við Há-
skólann í Reykjavík nú en
óskuðu eftir skólavist í fyrra í
skólana tvo, sem hafa sameinast
í Háskólanum í Reykjavík, það er
HR og Tækniháskóla Íslands.
Alls hafa 1.700 sótt um nú og
munu 950 þeirra komast að.
„Í fyrsta lagi kallar atvinnu-
lífið eftir fleira háskólamennt-
uðu fólki, bæði í hefðbundnum
greinum og á nýjum sviðum. Það
er fjöldi tækifæra fyrir fólk með
háskólamenntun. Í öðru lagi
eykst eftirspurn með auknu
framboði á háskólanámi, nýjum
háskólum, nýjum námsbrautum,
meiri fjölbreytni í meistaranámi
og nýjum tækifærum til að
stunda háskólanám með vinnu,“
segir Guðfinna S. Bjarnadóttir,
rektor Háskólans í Reykjavík,
um ástæður þess hversu margir
sækja um nú.
Boðið verður upp á tíu nýjar
námsbrautir á næsta skólaári og
er aðsóknin í þær mikil. Sem
dæmi um það hafa 750 sótt um í
nýja tækni- og verkfræðideild
skólans.
„Í grófum dráttum hefur
fjöldi umsókna tvöfaldast á milli
ára. Um fjögur hundruð sóttu um
í Bifröst og munum við taka inn
um 135 nemendur,“ segir Runólf-
ur Ágústsson, rektor Viðskipta-
háskólans á Bifröst.
Runólfur segir að Viðskipta-
háskólinn auki námsframboð og
eins sé mikil sókn í meistaran-
ámið í skólanum. -ifv
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið
God og War
Kippur af Coca Cola
DVD myndir
Aðra tölvuleiki
Og margt fleira.
BTL GAME
á númerið 1900
og þú gætir unnið.
D3
Þú gætir unnið:
Sendu SMS skeytið
12. hver vinnur.
4. flokki 1992 – 46. útdráttur
4. flokki 1994 – 39. útdráttur
2. flokki 1995 – 37. útdráttur
1. og 2. flokki 1998 – 28. útdráttur
Frá og með 15. júní 2005 hefst innlausn á útdregnum
húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
mánudaginn 13. júní.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
Innlausn
húsbréfa
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800
FLEIRI Í HÁSKÓLANÁM Aðsókn að Háskólanum í Reykjavík og Viðskiptaháskólanum á Bifröst fer ört vaxandi. Rektor HR segir atvinnulífið
kalla eftir fleira háskólamenntuðu fólki.
Færri komast í nám
í háskóla en vilja
Mun færri komast í nám í Háskólanum í Reykjavík og í Bifröst en óska.
Yfir eitt flúsund fá ekki skólavist. Rektorinn í Bifröst segir gó›a fljónustu vi›
nemendur skila árangri.
RUMSFELD Í TAÍLANDI Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, var í Taílandi
áður en hann hélt til Noregs til fundar við Kristen Krohn Devold, varnarmálaráðherra Nor-
egs. Saman héldu þeir svo til Brussel á fund ráðherra Natóríkja.
VEISTU SVARIÐ?
VIÐ STÖRF Í REYKJAVÍKURHÖFN Sjávarnytjar hafa gjarnan verið í forgrunni við styrkúthlut-
anir Norður- Atlantsnefndarinnar, en einnig ferðatengdur iðnaður af ýmsum toga, sem og
skóla- og menntamál.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M