Fréttablaðið - 13.06.2005, Blaðsíða 18
ehf.
Garðyrkjufræðingur,
trjáplöntusala og vélavinna
El
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Þóra Kristjánsdóttir listfræð-
ingur býr í fallegu húsi við
Tjarnargötuna sem fagnar
brátt 100 ára afmæli.
„Það eru svo mörg falleg hús í
Reykjavík en ætli uppáhaldshúsið
mitt sé ekki húsið sem ég bý í
sjálf. Það var byggt árið 1907 af
Jóni biskupi Helgasyni og er því
komið til ára sinna,“ segir Þóra.
Þóra er hrifin af húsunum við
Tjarnargötuna og henni þykir
saga þeirra skemmtileg. „Þessi
hús eru flest byggð á heimastjórn-
artímanum og eru minnisvarðar
um þá borgarastétt sem varð til á
þeim tíma. Páll Briem átti alla
tjarnarbrekkuna en hann seldi
lóðir til ýmissa embættismanna
sem byggðu þessi fallegu hús sem
standa hér enn. Húsin eru því
áþreifanlegar minjar um þetta
tímabil í sögu þjóðarinnar og sýna
hvernig borgarlífið blómstraði á
þessum tíma. Með heimastjórn-
inni komu embættismennirnir
heim, fóru að vinna í Reykjavík og
urðu vísir að einhvers konar borg-
arastétt. Mér þykir gaman að
skoða allt þetta, sjá söguna svona
í samhengi og skynja hvað það er
í raun stutt síðan þetta var.“
Þóra keypti húsið árið 1972 og
segir að með því hafi hún lagt sitt
af mörkum til þess að styðja mið-
bæinn. „Á þessum tíma var lítill
áhugi fyrir þessum gömlu húsum
og fáir höfðu áhuga á að halda
þeim við. Mér þykir hins vegar
vænt um alla þessa húsaröð og
finnst það vera skylda okkar að
halda henni við þótt það kosti
vissulega peninga. Ég er ekki
nógu ánægð með hvernig staðið er
að vexti og þróun miðbæjarins og
þykir til dæmis leiðinlegt að sjá
hvað verið er að gera í Vatnsmýr-
inni.“
Þegar Þóra flutti inn í húsið
var henni sagt að það fylgdi
draugur húsinu. „Við fluttum í
fyrstu bara inn á efri hæðina og
vorum enn að vinna á þeirri neðri.
Eina nóttina vöknuðum við hjónin
við umgang niðri og vorum viss
um að draugurinn væri kominn á
kreik. Þegar betur var að gáð kom
í ljós að þetta var veggfóðrarinn
okkar sem hafði gleymt stiga í
húsinu sem hann þurfti að sækja
fyrir næsta verkefni,“ segir Þóra
og hlær.
]
Heimilisdraugurinn hefur
oftast nær hægt um sig
Fíflar
Besta leiðin til að losna við fífla er að stinga þá upp með rótum. Best er að gera það á
vorin og áður en þeir verða að biðukollum.[
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
,,Við ætlum fjórar vinkonur
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
S á k ið f i k di bö
Hvað segja börnin
um námskeið í
Keramik fyrir alla?
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
Sumarnámskeið fyrir skapandi börn,
eldri og yngri, keramik, teikning,
málun - allt innifalið - litlir hópar.
Aðeins 8500 kr. vikan!
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Su arnámskeið
Keramik fyrir alla
Ennþá laust á vinsælu
barna ámskeiðin.
Ein vika, allt innifalið kr. 8900.-
Bókið núna.
Þóra segir að sér þyki vænt um alla húsa-
röðina við Tjörnina og vill leggja sitt af
mörkum til að halda henni við.
Garðeigendur
athugið!
Látið ekki aðra úða garðinn gegn
skordýrum en þá sem hafa réttindi
og geta framvísað leyfisskírteini
frá Umhverfisstofnun.
Nánari upplýsingar er að
finna á heimasíðu
Umhverfisstofnunar
www. ust.is.