Fréttablaðið - 13.06.2005, Qupperneq 69
FÓTBOLTI Það var klassamunur í
Keflavík þar sem Valsmenn komu
í heimsókn í gær og réðu lögum
og lofum gegn slökum heima-
mönnum. Það var ekki veikan
blett að finna á Valsliðinu, sem
hafði leikinn í sínum höndum frá
upphafi til enda og heldur flugi
sínu áfram af fullum krafti. Spila-
mennska liðsins var hreint út sagt
frábær og ljóst að búast má við
svakalegri viðureign þegar það
mætir FH í næstu umferð.
Þegar upp var staðið í Keflavík
í gær höfðu Valsmenn náð að
koma knettinum fimm sinnum í
markið en heimamenn aðeins einu
sinni. Sóknaraðgerðir Valsmanna
voru mun hættulegri á meðan
ekki var heil brú í spilamennsku
Keflavíkur, langar sendingar
fram völlinn sem stórir og stæði-
legir miðverðir Vals áttu ekki í
nokkrum erfiðleikum með.
Strax eftir fimm mínútna leik
skoraði Matthías Guðmundsson
með því að setja boltann í boga
yfir Ómar í markinu og braut þar
með ísinn. Atli Sveinn Þórarins-
son bætti við marki með skalla
eftir horn og það var síðan lands-
liðsmaðurinn Bjarni Ólafur
Eiríksson sem átti stóran þátt í
þriðja markinu þegar hann vann
knöttinn af Guðmundi Steinars-
syni, skeiðaði fram og sendi á
Baldur Aðalsteinsson, sem gerði
allt rétt og skoraði. Baldur bætti
öðru marki við í seinni hálfleik en
eftir það slökuðu Valsmenn örlítið
á og Stefán Örn Arnarsson náði að
minnka muninn. Stefán fékk
félagaskipti úr Víking fyrr um
daginn, kom inn sem varamaður
og var einn af örfáum ljósum
punktum hjá heimamönnum.
Garðar Gunnlaugsson bætti
fimmta og síðasta marki Vals við
með skoti af stuttu færi. Á löngum
köflum var hrein unun að fylgjast
með léttleikandi Valsliðinu, sem
náð hefur rosalega vel saman í
upphafi móts og miðað við spila-
mennskuna er líklegt að það verði
einvígi um Íslandsmeistaratitilinn
milli Vals og FH. Keflvíkingar
þurfa hins vegar að hugsa sinn
gang verulega því lið þeirra í gær
sýndi ansi fátt sem jákvætt getur
talist, átti nokkur hættuleg lang-
skot í seinni hálfleik en varnar-
leikurinn var mjög brothættur.
„Liðsheildin er sterk hjá okkur
og það er helsti styrkleiki okkar.
Við spiluðum vel og munum halda
áfram að taka einn leik fyrir í
einu og reyna þannig að ná sem
bestu árangr,“ sagði Willum Þór
Þórsson, þjálfari Vals, eftir leik.
Peningarnir tala sínu máli
„Við gerðum ekki það sem
talað var um fyrir leikinn og því
fór sem fór. Valsliðið er mjög
sterkt og ég held að það sé alveg
ljóst að deildarkeppnin verður
einvígi milli FH og Vals.
Peningarnir tala sínu máli,“ sagði
Kristján Guðmundsson, þjálfari
Keflavíkur. -egm, mh
13. júní 2005 MÁNUDAGUR
> Við hrósum ...
... Valsmönnum, sem sýndu svo ekki
verður um villst að þarna er topplið á
ferðinni. Það fara ekki hverjir
sem er til Keflavíkur og
sýna heimamönnum
hvernig skuli spila knatt-
spyrnu með því að skora
fimm mörk gegn einu. Mikil
spenna ríkir fyrir leik
Vals og FH á miðviku-
dag enda mikilvægur
leikur mjög.
Heyrst hefur ...
... að örlög Magnúsar Gylfasonar ráðist á
næstu sjö dögum. Ef viðunandi úrslit nást
ekki gegn Grindavík í deildinni og Leikni í
bikarkeppninni munu dagar hans hjá
Vesturbæjarstórveldinu vera taldir. Það er
því mikið undir hjá Magnúsi en KR hefur
tapað síðustu þremur leikjum sínum.
sport@frettabladid.is
20
> Við furðum okkur á ...
.... að Grindvíkingar geti
ekki haldið sig á mott-
unni eitt tímabil. Aftur
er komið upp aga-
vandamál sem lýkur
sennilega með því að
fyrirliði liðsins, Óli
Stefán Flóventsson,
yfirgefur félagið.
Fylkismenn unnu heldur ósanngjarnan sigur á Grindvíkingum í Árbænum í gær. Bjarni fiór›ur Halldórs-
son markvör›ur kom í veg fyrir a› gestirnir færu me› stigin flrjú heim en Árbæingar geta flakka› vara-
mönnum sínum fyrir mörkin tvö.
Bjarni sá um fyrsta heimasigurinn
Valsmenn héldu í við FH-inga með stórsigri á Keflvíkingum:
Valur me› kennslustund í Keflavík
KNATTSPYRNA Leikurinn byrjaði
dauflega og það var ekki fyrr en
þegar fyrri hálfleikur var hálfnað-
ur að Magnús Sverrir Þorsteins-
son fékk mjög gott færi en skot
hans af markteignum var varið
vel af Bjarna Þórði í marki Fylkis.
Grindavíkingar voru á þessum
tímapunkti sterkari aðilinn og það
var því ekki gegn gangi leiksins
þegar Sinisa Kekic skoraði mark
með skalla eftir hornspyrnu. Eftir
markið slökuðu gestirnir á og það
nýttu heimamenn sér þegar
Eyjólfur Héðinsson skoraði eftir
góðan undirbúning frá Finni Kol-
beinssyni. Það er ekki ósanngjarnt
að segja að Boban Savic eigi þetta
mark enda skaut Eyjólfur frá
endalínu en Savic tókst að missa
knöttinn milli fóta sér.
Seinni hálfleikur var
bragðdaufur þegar á
heildina er litið en það
voru Grindvíkingar sem
voru nærri því að skora
og þeir komust nálægt
því í nokkur skipti.
Næst því komust Ey-
steinn Húni Hauksson
og Mathias Jack en
heppnin var ekki með
þeim, í bæði skiptin fór
boltinn í tréverkið og
sluppu heimamenn
heldur betur með
skrekkinn. Magnús Þor-
steinsson fékk einnig
dauðafæri sem Bjarni
Þórður varði frábær-
lega. Eftir þetta virtist
leikurinn ætla að fjara
út en Hrafnkell Helga-
son var ekki á sama máli og skor-
aði sigurmark Fylkis tveimur
mínútum fyrir leikslok eftir dap-
urt úthlaup Boban Savic.
Það er ljóst á þessum leik að
Grindvíkingar ætla sér ekki að
vera í neinni fallbaráttu í sumar,
þeir léku góðan fótbolta og áttu
engan veginn skilið að tapa leikn-
um í gær. Bestir hjá gestunum
voru þeir Sinisa Kekic og Óskar
Örn Hauksson, sá fyrrnefndi var
gríðarlega öflugur í vörninni og
sá síðarnefndi sýndi virkilega
skemmtilega takta og vill undir-
ritaður sjá Óskar í hópnum hjá
Eyjólfi Sverrissyni í haust þegar
U-21 liðið verður valið.
Hjá Fylki var Bjarni Þórður
Halldórsson þeirra langbesti
maður og geta heimamenn þakk-
að honum fyrir stigin þrjú enda
varði hann frábærlega í leiknum.
Valur Fannar Gíslason var
traustur í vörninni og svo kom
Eyjólfur Héðinsson sterkur inn á,
annan leikinn í röð og spurning
hvort frammistaða hans í síðustu
tveimur leikjum skili honum ekki
sæti í byrjunarliðinu fyrir næsta
leik.
- gjj
LEIKIR GÆRDAGSINS
ÍBV–KR 2–1
KEFLAVÍK–VALUR 1–5
FYLKIR–GRINDAVÍK 2–1
STAÐAN:
FH 5 5 0 0 15–2 15
VALUR 5 5 0 0 15–3 15
FYLKIR 5 3 0 2 9–6 9
FRAM 5 2 1 2 6–4 7
ÍA 5 2 1 2 8–13 7
KR 5 2 0 3 5–6 6
GRINDAVÍK 5 1 0 4 7–14 3
ÍBV 5 1 0 4 5–12 3
ÞRÓTTUR 5 0 1 4 4–11 1
Knattspyrnumaðurinn Óli Stefán
Flóventsson hefur tekið þá
ákvörðun að hætta hjá
Grindavík í Landsbanka-
deildinni. Að hans sögn er
ástæðan einfaldlega sú að
hann náði ekki að vinna
með Milan Stefáni Jankovic,
þjálfara liðsins. „Það kom
upp ágreiningur og við rædd-
um málið en náðum ekki að
leysa það. Þetta er mjög leið-
inlegt þar sem hjarta mitt slær í
Grindavík og það er mitt lið.“
sagði Óli Stefán, sem var vara-
fyrirliði Grindvíkinga og einn
þeirra allra besti leikmað-
ur.
Dropinn sem fyllti
mælinn var þegar Óli
fór út á lífið með
Ólafi Erni Bjarna-
syni á laugar-
dagskvöldið eftir
landsleikinn
gegn Ungverja-
landi. Þetta var
átta dögum fyrir
leikinn gegn
Fylki. „Morguninn
eftir var æfing kl.
11. Ég mætti á
hana en þjálfar-
inn var ekki
sáttur og refs-
aði mér.
Þetta at-
vik var
dropinn sem fyllti mælinn, ég var
ekki einu sinni spurður nánar út í
þetta mál og hvort bjór hafi verið við
hönd eða neitt. Ég var ósáttur við að
fá bara refsingu strax án þess að
vera spurður út í þetta,“ sagði Óli
Stefán.
Í dag verður fundur með stjórn
Grindavíkur en Óli segist vera búinn
að taka lokaákvörðun í málinu. Hann
ætlar nú að fara í það að kanna
stöðu mála, hann stefnir á að halda
áfram í boltanum og leika í Lands-
bankadeildinni. Meðal liða sem til
greina koma er Fram en hann var
nálægt því að semja við
Safamýrarfélagið fyrir sumarið.
ÓLI STEFÁN FLÓVENTSSON: ER HÆTTUR HJÁ GRINDAVÍK
Gat ekki unni› me› fljálfaranum
1–5
Keflavíkur., áhorf: 1054 Jóhannes Valgeirss. (5)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 18–14 (5–7)
Varin skot Ómar 1 – Kjartan 4
Horn 6–5
Aukaspyrnur fengnar 9–10
Rangstöður 0–7
0–1 Matthías Guðmundsson (5.)
0–2 Atli Sveinn Þórarinsson (17.)
0–3 Baldur Aðalsteinsson (35.)
0–4 Baldur Aðalsteinsson (57.)
1–4 Stefán Örn Arnarson (68.)
1–5 Garðar Gunnlaugsson (80.)
Keflavík
*MAÐUR LEIKSINS
KEFLAVÍK 4–4–2
Ómar 6
Guðjón 4
Kadir 3
(63. Ásgrímur 5)
(87. Bjarni –)
Johansson 4
Milicevic 3
(59. Stefán Örn 6)
Gestur 3
Hólmar 4
Baldur 4
Jónas 5
Guðmundur 6
Hörður 3
VALUR 4–3–3
Kjartan 7
Bjarni Ólafur 8
*Atli Sveinn 8
Grétar Sigfinnur 8
Steinþór 8
Sigurbjörn Örn 7
(83. Stefán Helgi –)
Kristinn Ingi 8
Sigþór 7
Baldur 8
(82. Sigurður –)
Matthías 8
(63. Garðar 6)
Guðmundur 8
Valur
2–1
Fylkisvöllur, áhorf: 836 Kristinn Jakobsson (8)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–11 (6–8)
Varin skot Bjarni 6 – Savic 4
Horn 3–7
Aukaspyrnur fengnar 13–12
Rangstöður 2–0
0–1 Sinisa Kekic (34.)
1–1 Eyjólfur Héðinsson (40.)
2–1 Hrafnkell Helgi Helgason (88.)
Fylkir
*MAÐUR LEIKSINS
FYLKIR 4–4–2
*Bjarni Þórður 9
Kristján 4
(81. Hrafnkell –)
Valur Fannar 7
Ragnar 6
Gunnar Þór 6
Helgi Valur 6
Guðni Rúnar 6
Finnur 6
Viktor Bjarki 5
(20. Eyjólfur 7)
Christiansen 3
(54. Björn Viðar 5)
Björgólfur 6
GRINDAVÍK 4-4-2
Savic 4
Óðinn 6
Kekic 8
Jack 6
Eyþór Atli 7
McShane 4
Nistroj 5
Eysteinn Húni 6
Óskar Örn 8
Magnús 7
Ahandour 5
(60. Zeyer 5)
Grindavík
LA
N
DS
BA
N
K
AD
EI
LD
IN
FYLKISMENN FAGNA Finnur Kolbeinsson (8) fagnar hér markaskoraranum Eyjólfi Héðinssyni.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI