Fréttablaðið - 15.09.2005, Side 31
3
Tískublöðin segja vetrartísk-
una vera fágaða og uppá-
klædda á komandi vetri. En
þegar ég fer í leikfimi á
Rennes-götu sem er mikil
verslunargata í efri hluta St.
Germain-hverfis Parísar
finnst mér ekki vera sama
tískan í búðargluggum og í
blöðunum. Eins finnst mér
eins og allt sé sama búðin svo
lítil eru tilbrigðin. Hvort sem
um er að ræða Etam, H og M,
eða NafNaf eða aðrar, það er
bara eins og vetrartískan sé
framhald af sumartískunni.
Ekki það heppilegasta í ís-
lenskum byl en í lagi á falleg-
um vetrardögum með ullar-
sokkabuxum! Víðu hálfsíðu
hippalegu pilsin, líkt og
saumuð úr nokkrum lögum af
lérefti með blúndum, eru orð-
in skósíð, dökkbrún, dökk-
græn eða fjólublá, einstak-
lega þægileg fyrir konur með
nokkur aukakíló. Þessi pils
eru kölluð jupon sem áður
var undirpils og þýðir því í
raun pilsungur, undirpils sem
hefur skipt um hlutverk. Auð-
vitað eru hippamussur það
sem best fer við og breið leð-
urbelti með málskreytingum
sem hægt er að finna á ýmsu
verði, allt frá 5 evrum hér á
frægasta flóamarkaði París-
ar „Les puces de St. Ouen“
við Porte de Clignancourt.
Svipuð belti má svo finna hjá
tískuhúsunum á nokkur
hundruð evrur. Það er helst í
þema Jean Paul Gaultier á há-
tískusýningu hans fyrir vet-
urinn í anda rússneskra babú-
ska sem finna má samsvörun
við þetta pilsungaæði og
hippatískuna.
Nú rekur hver kaupstefn-
an aðra eins og venja er í upp-
hafi hverrar árstíðar í tísk-
unni. Undirföt voru sýnd í
Lyon um helgina og fataefni í
Lille í vikunni þar sem efna-
framleiðendur ákveða hvaða
litir verða í tísku næsta sum-
ar. Um helgina var kaup-
stefna á fatnaði tilbúnum til
notkunar í sýningarsölum við
Porte de Versaille. (Komið
frá Bandaríkjunum, ready to
wear, andstæða hátísku,
saumaðri eftir máli). Þessi
kaupstefna sem fer fram
tvisvar á ári, í september og
febrúar, hefur verið haldin
frá júní 1956 og var þetta því
í hundraðasta skiptið sem
hún er haldin. Fram að því
höfðu venjulegar franskar
konur saumað sjálfar á sig
fötin eða þær sem höfðu
meiri fjárráð látið sauma á
sig og þær efnuðustu gengu í
hátísku. Það var ekki fyrr en
eftir 1960 að fjöldaframleidd-
ur fatnaður varð fáanlegur
fyrir almenning á viðráðan-
legu verði, (minnir á Hag-
kaupsbyltinguna á Íslandi á
sínum tíma.) Á kaupstefnunni
mátti finna allt frá H og M til
Dior, frá Tati til Energie, frá
ódýrustu fjöldaframleiðslu
til lúxusmerkja. Á þessum
fimmtíu árum hefur hátísku-
húsum hins vegar fækkað úr
hundrað í tíu tískuhús sem
sýna reglulega.
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Blóm og fri›ur í byl
FIMMTUDAGUR 15. september 2005
N‡jar verslanir
í Kringlunni
Nokkrar tískuvöruverslanir
hreiðra um sig þar sem áður
var Hard Rock Café.
Á næstu dögum verða þrjár nýjar
alþjóðlegar tískuverslanir opnað-
ar í Kringlunni. Þetta eru
Whistles, All Saints og Warehouse
auk þess sem Shoe Studio verður
opnuð á ný eftir breytingar. Versl-
anirnar fjórar verða til húsa þar
sem Hard Rock Café var áður og
þessa dagana er verið að leggja
lokahönd á innréttingarnar. Stefnt
er að því að fyrsta verslunin verði
opnuð innan skamms og svo munu
þær opna hver á fætur annarri
með stuttu millibili fram í miðjan
október.
Búðirnar tengjast allar sam-
nefndum tískukeðjum en eru gjör-
ólíkar innbyrðis og höfða til ólíkra
hópa. Warehouse leggur áherslu á
fjölbreytni á hagkvæmu verði.
Whistles er hátískuhús fyrir kon-
ur sem vilja sígilda hönnun og All
Saints vakti athygli í Bretlandi
fyrir framsækna og villta tísku.
Verslunin í Kringlunni verður
eina All Saints-verslunin utan
Bretlandseyja.
Frá sýningu á haustlínu Whistles.
Hlíðarsmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460 • www.belladonna.is
Opið mán-fös 11-18
laugardaga 11-15
Vertu þú sjálf
– vertu Bella donna
Mikið úrval
af úlpum,
jökkum og
kápum
CHANGE TILBOÐ
Frá fimmtudegi til sunnudags
allt að 50% afsl af
völdum vörum
Nýtt kortatímabil
HAUST 2005
Laugavegur 58 • 101 Reykjavík • S: 551-4884
Stella sökuð um
klíkuskap
STELLA MCCARTNEY Á AÐ HAFA NOT-
AÐ FRÆGA VINI SÍNA TIL AÐ KOMA
SÉR Á FRAMFÆRI.
Frænka hins heimsfræga fatahönnuðar,
Donatellu Versace, hefur nú sakað
Stellu McCartney um að nota klíkuskap
til að koma sér á framfæri þegar hún
var að læra fatahönnun. Stella sem er
dóttir bítilsins Pauls McCartney hefur
verið áberandi í tískuheiminum undan-
farin ár og velgengnin byrjaði um leið
og hún lauk námi frá Central St Mart-
ins hönnunarskólanum í London.
Þegar Stella sýndi verk sín á útskriftar-
sýningunni á sínum tíma notaði hún
sambönd sín og fékk heimsfrægar fyrir-
sætur til að sýna fötin. Þar að auki voru
góðar vinkonur hennar eins og
Madonna og Kate Moss duglegar við
að dásama hönnun hennar.
Þetta þótti frænku Versace afar óviðeig-
andi og þótt langt sé um liðið síðan
Stella lauk námi sá frænkan ástæðu til
að nöldra yfir þessu við blaðamenn ný-
lega. Sjálf segist hún aldrei nota sam-
bönd sín til að koma sér á framfæri.