Fréttablaðið - 15.09.2005, Side 40
4 ■■■ { BÍLAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
M-línan hjá BMW stendur fyrir
þróttmikla sporteiginleika, það
þróttmikla að líkja má M-línunni að
mörgu leyti við kappakstursbíl. M-
tæknin sækir enda margt til F1 bíla
BMW og eru allar bifreiðarnar í M-
línunni búnar bestu fáanlegu tækni
hvað aksturseiginleika snertir.
M stendur fyrir sjálfstætt fyrirtæki í
eigu BMW sem þróar M-línuna og 5
vísar til þess að M5 er byggður á
grunni 5 línunnar. M3 er á grunni 3
línunnar, M6 á grunni 6 línunnar og
þannig koll af kolli. Kúplingarlaus
MSG gírkassinn (Manual Sequential
Gearshift) er lykillinn að þróttmikilli
frammistöðu bifreiðarinnar og þökk
sé fjölhæfum búnaðinum hefur
ökumaðurinn það alveg í hendi sér
hvers konar aksturseiginleikar eru
ráðandi og hversu sportlegir. Gír-
skiptingin ein og sér felur í sér 11
mismunandi möguleika, auk þess
sem hægt er að stilla hana á sjálf-
virka skiptingu. Auk sjálfskiptingar-
innar getur ökumaðurinn skipt
handvirkt með hefðbundinni gír-
stöng eða þartilgerðum hnöppum á
stýri bifreiðarinnar.
Framrúðuskjár varpar upplýsingum
frá mælaborði á framrúðuna, eins
og til dæmis hraða og snúnings-
hraða. Annað dæmi um tæknilega
fullkomnun M5 er að hliðarpúðar í
framsætum stingast fram við til-
tekinn halla á bifreiðinni.
Ford iosis mun ekki verða fjölda-
framleiddur. Vertu samt ekkert
hissa þótt þú sjáir James Bond
skutla þremur börnum í skólann á
honum – Ford hefur tekist að brúa
bilið á milli rúmgóðs fjölskyldubíls
og alvöru tryllitækis með stæl. Því
miður stóð samt aldrei til að hann
yrði meira en sýningargripur, til
dæmis eru hurðirnar einfaldlega of
dýrar fyrir fjöldaframleiðslu. Þær
eru úr koltrefjaefni og mótorar og
flókið lamakerfi opna þær út og
upp þannig að aðgengi í bílinn er
einstaklega gott. Innréttingin sam-
einar framúrstefnulegan efnivið og
tækni og þó að hún líti ekki þægi-
lega út við fyrstu sýn er rýmið nóg
og hnappar og rofar í hverju horni.
Ford iosis minnir svolítið á Mazda
RX-8, sérstaklega í kringum brett-
in, og ef þú pírir augun minnir
vangasvipurinn á Aston Martin V8
Vantage. Hversu margir fjölskyldu-
bílar geta státað af því?
Ford iosis lítur út fyrir að vera klár í framleiðslu en verður aldrei annað en sýningargripur.
Fjölskyldubíll fyrir
James Bond?
Sportlegur lúxusbíll
BMW M5
Vélar: 5,0 507 hö (B)
Skipting: MSG
Dyrafj.: 4
Sæti: 5
Stöðugleikabúnaður: DSC stöð-
ugleikastýring með DTC spól-
vörn, MDrive tækni, M sport-
fjöðrun, beygjuskriðvörn o.m.fl.
Umboð: B&L
Verð frá: 11.100.000
fyrsti bílinn }
Reyndist vel í tilhugalífinu
Jósef Kristjánsson er betur þekktur sem Jobbi og er kenndur við bón og
þvott. Bónstöð Jobba hefur verið starfandi allra bónstöðva lengst, í 16
ár. Fyrsti bíllinn hans Jobba reyndist honum vel í tilhugalífinu. „Fyrsti
bílinn minn var Fiat 1100, 1967 módel. Ég fékk hann næstum nýjan
þegar ég var 16 ára en þá var hann keyrður 7.000 kílómetra. Svo beið
bílinn eftir mér þangað til ég var orðinn nógu gamall til að keyra. Bíll-
inn reyndist mér vel og ég átti hann lengi.“ Er eitthvað sérstaklega
minnisstætt við fyrsta bílinn? „Já, ég fór með konuna mína á okkar
fyrsta stefnumót í þessum í bíl.“ Aðspurður hvort konan hafi fallið fyrir
honum eða bílnum sagðist Jobbi aldrei hafa lagt í að spyrja konuna sína
að því. „Þessi módel voru mun minni og þrengri en bílarnir í dag þannig
við vorum mjög klesst hvort upp við annað í bílnum, það hefur kannski
gert gæfumuninn. Við ferðuðumst næstum um allt á þessum bíl í okkar
tilhugalífi.“ En var Jobbi duglegur að bóna bílinn? „Já, ég var mjög
duglegur við það, jafnvel duglegri en ég er í dag.“
JÓSEF KRISTJÁNSSON
M5 er þróaður út frá 5 línunni og þykir hafa algjöra sérstöðu hvað aksturseiginleika varðar.
BÍLASÝNINGIN Í FRANKFURT