Fréttablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 44
Þessi vinsæli smábíll er í stöðugri þróun. Nýjasta útgáfan verður í boði hér á landi snemma á næsta ári. Renault frumsýnir Clio III á bílasýn- ingunni í Frankfurt þessa dagana. Þriðja kynslóðin af þessum geðþekka smábíl kemur í töluvert breyttri mynd, bæði hvað útlit og eiginleika varðar. Sem dæmi má nefna að fjöðrunarkerfið í honum hefur verið umbylt með enn betri aksturseigin- leika fyrir augum. Þá á eldsneytis- notkunin að vera með því hagstæð- asta sem gerist í þessum flokki, þökk sé nýrri og straumlínulagaðri hönn- un sem dregur úr loftmótstöðu. Auk 1200, 1400 og 1600 véla, kynn- ir Renault 1500 dCi dísilvél með Clio III, sem verður fáanleg í þremur mis- munandi útgáfum eða með 70 hö, 85 hö og 105 hö. Nokkrar gerðir, þ.e. 1200 og 1500 dCi 80 ha, verða jafn- framt með nýja gerð af AMT bein- skiptingu, þar sem gírskiptingin er staðsett fyrir aftan stýrið. Ekki er á þessari stundu endanlega ljóst hvenær Clio III verður frumsýnd- ur hér á landi, en gera má ráð fyrir að það verði snemma á næsta ári. Volvo C70 er í raun tveir bílar í ein- um, bæði Coupé og blæjubíll. Blæj- an er í raun þak úr stáli sem leggst þrískipt saman í skottið. Þessi bíll er hannaður af hinum fræga ítalska hönnuði Pininfarina, sem hefur mikla reynslu af hönnun og smíði blæjubíla. Volvo C70 er fyrsti opni bíllinn í lúxusflokki sem bæði býður upp á stálþak og sæti fyrir fjóra fullvaxna. Með þessum bíl telur Volvo að ákveðinni markaðs- þörf verði fullnægt þar sem slíkur bíll hefur ekki verið í boði áður í þessum flokki. Öryggi í C70 verður engu minna en í öðrum Volvo-bílum. Ein nýjung sem Volvo kynnir er loftpúðatjöld í hliðum sem vernda höfuð í hliðará- rekstri. Venjulega koma þessir púð- ar innan úr toppnum á venjulegum bílum, sem auðvitað er ekki hægt í opnum bílum. Í Volvo C70 koma þessir púðar upp úr hurðinni í hlið- arárekstri og vernda þannig efri hluta líkamans. Í Audi Q7 sameinast sportleg ein- kenni og fjölhæfni, háþróaður tæknibúnaður og önnur þau gæði sem einkenna bíla í lúxusflokki. Á vegum úti sýnir hann allar bestu hliðar sportbíls, bæði hvað varðar afköst og aksturseiginleika. Í utan- vegaakstri setur hann ný viðmið í sínum flokki. Dæmigert Audi-útlitið endurspegl- ast í sveigðu þaki og áberandi yfir- byggingu efri hluta bílsins við gluggasvæðið. Sjö farþegar njóta mikils innra rýmis og boðið er upp á fleiri uppsetningarmöguleika en hingað til hefur þekkst. Alls er hægt að raða sætum og hleðslu- rými upp á 28 mismunandi vegu. Hægt er að leggja báðar aftari sætaraðirnar flatar niður og þannig fá 2.035 lítra farangursrými án þess að fjarlægja sætin. Bíllinn er búinn sex gíra tiptronic- sjálfskiptingu og sama staðalbún- aði og quattro með sídrifi og aldrifi. Audi Q7 er líkt og Audi RS 4 búinn nýjustu kynslóð af Torsen-mis- munadrifi sem togar með staðal- skiptingunni 40/60 (framan/aftan). Átakið á öxlana er því sem næst al- gjörlega í jafnvægi og bílstjórinn nýtur þess í auðveldri og nákvæmri stýringu þar sem nær ekkert stýris- tog á sér stað. Bíllinn er einnig afhentur með val- kvæðri sjálfstilltri loftfjöðrun. Hæð frá jörðu er breytileg og getur verið allt frá 180 til 240 millimetra í efstu stillingu, þannig að bíllinn kemst yfir mjög háar ójöfnur. Í ESP-jafnvægiskerfinu er að finna nýjar aðgerðir á borð við stuðning við akstur niður brekku. Sérstök ut- anvegastilling hámarkar hemlunar- getu og veggrip á lausu yfirborði. Stöðugleikakerfi fyrir dráttarvagn dregur úr hættu á láréttum sveiflum eða „sporðaköstum“ vagnsins með markvissum hemlunarstuðningi. 8 ■■■ { BÍLAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ AUDI Q7 Vélar: 3,0 233 hö (D) og 4,2 350 hö (B) Skipting: 6 g/ssk. Dyrafj.: 5 Sæti: 7 Stöðugleikabúnaður: Aldrif, ESP jafnvægiskerfi, utanvegastilling o.fl. Umboð: Hekla Verð frá: Auglýst síðar Audi Q7 mun vekja athygli hvar sem hann fer. Enginn venjulegur jeppi VOLVO C70 Vélar: 2,4 140 hö (B), 2,4 170 hö (B) og 2,5 220 hö (B) Skipting: ssk, bsk Dyrafj.: 2 Sæti: 4 Stöðugleikabúnaður: DSTC spólvörn og stöðugleikastýr- ing, RSC veltivörn Umboð: Brimborg Verð frá: Auglýst síðar Blæja og sæti fyrir fjóra fullorðna Volvo C70 er fyrsti lúxusbíllinn sem er framleiddur með stál- blæju og sætum fyrir fjóra fullorðna. fyrsti bílinn } Gulur með rauð bretti Pétur Einarsson leikari fer bara að hlæja þegar hann er spurður um fyrsta bílinn sem hann eignaðist. „Hann var pínulítið kvikindi, Fiat Station, skærgulur á litinn og rauður á brettunum,“ segir Pétur. Bílinn fékk hann gefins og var í hans eigu í eitt eða tvö ár og reyndist hann Pétri ágætlega. „Ég var nú mjög duglegur að gera við hann sjálfur, en hann bilaði náttúrulega alltaf eitthvað,“ segir Pétur. Eitt sinn skall hurð nærri hælum og Pétur ásamt öðr- um var í bráðri lífshættu. „Einhvern tímann var ég að fíflast og þykjast keyra á mann. Ég ætlaði ég að bremsa, en þá fóru pedalarnir beint niður í gólf, og bremsukerfið sprakk. Sem betur fer rétt náði ég að sveigja framhjá manninum, og ég slapp hjá þeirri hremmingu,“ segir Pétur og er ekki hlátur í hug. „Það var skelfilegt,“ segir hann. „Eftir það lærði ég það að vera ekki að fíflast á svona tækjum.“ PÉTUR EINARSSON Jákvæður og bjartsýnn bíll Mazda kynnir nýjan hugmyndabíl sinn undir nafninu Sassou, sem á japönsku þýðir að vera jákvæður og horfa bjartsýnn til framtíðar. Víst má segja að út- lit bílsins gefi tilefni til að brosa og ekki skemmir fyrir að hann er búinn sér- lega umhverfisvænni og eyðslugrannri 3 strokka vél sem þó er nógu spræk til að gera þennan litla bíl að skemmtilegu farartæki. Aðrir þættir bílsins hljóma eins og úr framtíðarmynd, eins og USB-lykill sem ræsir bílinn og geymir stillingar á sætum og þess háttar fyrir hvern ökumann. Auk þess verður hægt að geyma tónlist og önnur gögn sem síðan eru flutt á harðan disk sem er í bílnum. Ef þetta er forsmekkurinn að framtíð Mazda er ekki annað hægt en að brosa framan í hana. BÍLASÝNINGIN Í FRANKFURT Þó að margt við Sassou hljómi framandi er ekki útilokað að hann fari í framleiðslu á næstunni. Enn sparneytnari og betri í akstri RENAULT CLIO III Vélar: 1,2 (B), 1,4 (B), 1,6 (B), 1,5 (70, 85 og 105 hö) (D) Umboð: B&L Nánari upplýsing- ar síðar FR ÉT TA B LA Ð IÐ /Þ Ö K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.