Fréttablaðið - 15.09.2005, Page 46
Með tilkomu bílalána og einkaleigu hefur fólki verið
gert auðveldara fyrir að eignast nýjan bíl, en sumir eru
í vafa um hvora leiðina eigi að velja, kaup eða leigu.
Margrét Sigurðardóttir hjá Glitni segir að hvort um sig
hafi sína kosti. „Kosturinn við að kaupa bílinn með
bílaláni er tvímælalaust sá að einstaklingurinn eignast
bílinn en þá er lögð fram viss upphæð í upphafi sem
miðast við kaupverð bílsins. En við einkaleigu er engin
upphæð greidd út í upphafi og fólk þarf ekki að hafa
áhyggjur af endursölu þar sem bílaumboðið kaupir bíl-
inn í lok samnings,“ segir Margrét. Í einkaleigunni
fylgir jafnvel þjónustusamningur þar sem innifalin eru
dekkjaskipti, smurning og annað viðhald á bifreiðnni
sem sumu fólki þykir mjög þægilegt. Einnig þar sem
þetta gefur fólki kost á að vera alltaf á nýjum bíl.
„Einkaleiga fer bara í gegnum bílaumboðin og því er
hún ekki kostur fyrir þá sem kaupa bíla annars staðar,“
segir Margrét.
10 ■■■ { BÍLAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Nýr Hilux er sjötta kynslóð pallbíla af
þeirri gerð frá Toyota og heldur
hann stöðu sinni sem annar sölu-
hæsti bíll framleiðanda á eftir
Corolla.
Innréttingar í nýjum Hilux hafa tekið
miklum breytingum og eru afar
vandaðar, sem eykur þægindi í akstri
til muna. Bíllinn er allur stærri og
meiri í ásýnd en fyrri árgerðir en
mestu munar um að hann er lengri
og breiðari, sem kemur best fram í
auknu plássi í farþega- og geymslu-
rými ásamt bættum aksturseigin-
leikum. Þannig er bíllinn 340 mm
lengri, 45 mm breiðari og 25 mm
hærri en fyrri ágerð sem hann leysir
nú af hólmi.
Nýr og endurbættur undirvagn er
sérstaklega styrktur og þolir mikið
álag. Nýr Hilux er mun stöðugri í
akstri en fyrri árgerðir auk þess sem
verulega hefur dregið úr veghljóði
inn í farþegarými. Nýr Toyota Hilux
verður fáanlegur hér á landi frá
miðjum október 2005.
Þrjú hjól undir bílnum...
Peugeot kynnti í vikunni þriggja hjóla hugmyndabílinn 20Cup. Sam-
kvæmt framleiðanda er honum ætlað að verða innblástur fyrir hönnun
nýs Le Mans kappakstursbíls en ef nánar er skoðað gæti búið meira að
baki en það.
Ljóst er að bíllinn fer ekki í framleiðslu á þremur hjólum og ef til vill var
honum aðeins ætlað að vekja athygli á bílasýningunni í Frankfurt. Lík-
legra er þó að hér sé kominn hlekkur í þróunarkeðju arftaka 206 bíls-
ins, sem mun að öllum líkindum heita 207.
Fyrir utan þá staðreynd að 20Cup nafnið bendir til 200-línunnar má
finna undir vélarhlífinni nýja 170 hestafla vél sem Peugeot hefur þróað
í samvinnu við BMW og verður líklega í nýjum Mini líka. Auk þess er í
20Cup 6 gíra flipastýrð skipting sem mun líklega rata alla leið í fram-
leiðslu. Nú er bara að vona að kappakstursframendinn geri það líka.
TOYOTA HILUX
Vélar: 2,5 (D)
Skipting: 5 g/bsk
Dyrafj.: 5
Sæti: 5
Stöðugleikabúnaður: Driflæsing
að aftan, sjálfvirk driflæsing
(auto disconnect differential),
LSD (Limited slip differential),
4x4, ABS hemlakerfi
Umboða: P. Samúelsson
Verð frá: 2.580.000 kr.
Nýtt vinnu- og tómstundatæki
Nýr Hilux er ívið stærri en eldri gerðir og því stöðugri í akstri.
Bara búnir með framendann? Líklegt þykir að 20Cup sé hluti af þróunarferli
Peugeot 207.
BÍLASÝNINGIN Í FRANKFURT
Með Alfa Romeo Crosswagon
markar Alfa Romeo endurkomu
sína með fjórhjóladrifna bíla. Alfa
Romeo Crosswagon er sportlegur
langbakur sem er hár á vegi og
vænlegur kostur í samanburði við
sportlega lúxusjeppa. Crosswagon
er búinn Q4 fjórhjóladrifi sem fær-
ir sjálfvirkt afl til þeirra hjóla sem
hafa mest grip sem ásamt góðri
veghæð gerir þennan bíl færan í
flestan snjó. Útfærslan sem boðin
er hér á landi er mjög vel búin öll-
um lúxus. Meðal staðalbúnaðar eru
vönduð leðursæti, mjög vandað
Bose hljómkerfi sem sérhannað er
fyrir bílinn, áttaviti í spegli, bakk-
skynjari á afturstuðara, 17“ álfelgur
með belgmiklum hjólbörðum, varn-
arplötur fyrir að framan og aftan
ásamt mörgu öðru. Crosswagon er
búinn 1,9 lítra, 150 hestafla dísilvél
sem er í senn kröftug, togmikil,
sparneytin og endingargóð.
Einungis er einn bíll eftir af fyrstu
sendingunni sem kom til landsins í
ágúst mánuði og er farið að taka frá
bíla í næstu sendingu. Fyrsti bíllinn
á Íslandi fór til Vestjarða og hefur
hann vakið mikla athygli þar og er
nú einungis kvartað yfir því að
malarvegum fer fækkandi. Á mal-
biki er bíllinn þéttur og sportlegur
en á slæmum malarvegurm er
fjöðrunin mjúk og gleypir í sig allar
ójöfnur.
Með tilkomu bílalána og einkaleigu er mun aðveldara að eignast bíl.
Val um kaup eða leigu
Nokkrar leiðir standa fólki til boða við fjármögnun á nýrri eða notaðri bifreið.
EINKALEIGA
❑ Lánsveitandi skráður eigandi
❑ Bílaumboð kaupir bílinn í lok samnings
❑ Leigutaki afskrifar og eignafærir í
skattskýrslu
❑ Engin stór útborgun við upphaf
samnings
❑ Tryggingarfé greitt við upphaf samnings
❑ Þjónustupakki innifalinn í sumum tilfellum
❑ Tryggingar á ábyrgð leigjenda.
BÍLASAMNINGUR
❑ Allt að 80% lánshlutfall
❑ Lánsveitandi skráður eigandi
❑ Kaupandi skráður eigandi við
lok samnings
❑ Engin stimpil- og
þinglýsingargjöld
❑ Gerður jafngreiðslusamningur
❑ Tryggingar á ábyrgð
kaupanda
BÍLALÁN
❑ Allt að 75% lánshlutfall
❑ Kaupandi skráður eigandi
❑ Stimpil- og
þinglýsingargjöld
❑ Jafnar afborganir
❑ Lánsveitandi fær
1. veðrétt
❑ Tryggingar á ábyrgð
kaupanda
ALFA ROMEO CROSSWAGON
Vél: 1,9 150 hö (D)
Skipting: 6 g/bsk.
Dyrafj.: 5
Sæti: 5
Stöðugleikabúnaður: Fjórhjóla-
drif, ESP stöðuleikastýring, ASR
spólvörn o.fl.
Umboð: Ptt ehf.
Verð frá: 4.100.000 kr.
Nýr fjórhjóladrifsbíll á ítalska vísu
Sterkur ættarsvipur Alfa Romeo gerir að
Crosswagon er með rennilegri fjórhjóla-
drifsbílum á markaðnum í dag.