Fréttablaðið - 15.09.2005, Page 48

Fréttablaðið - 15.09.2005, Page 48
Golf R32 knúinn 177 kW (241 hest- afla) vél var fyrst kynntur í ágúst 2002. Bíllinn seldist eins og heitar lummur; þrefalt betur en ráð hafði verið fyrir gert í upphafi. Að þessu sinni býr Golf R32 yfir 184 kW (250 hestöflum) undir vélarhlífinni og 4MOTION sídrif á öllum hjólum tryggir að veggripið er einstaklega gott. Hámarkshraði Golf R32 er 250 km á klst. og hægt er að fá hann með annað hvort 6 gíra beinskiptingu eða valkvæðri DGS-sjálfskiptingu. R32 nær sér best á strik með DGS-sjálfskiptingu og er 6,2 sekúndur að ná 100 km hraða miðað við 6,5 sekúndur með beinskiptingu. Dekkin eru af 225/40 stærð og með Y-mynstri sem ætlað er fyrir allt að 300 km hraða. Stór vindskeið að aftan tryggir að afturhjólin haldast tryggilega á veginum. Dekk og hjól falla vel að, bæði vegna þess að um 18“ dekk er að ræða en líka vegna þess að hjólabúnaðurinn er sérstak- lega sportlegur og hefur verið lækk- aður um 20 mm. Mælar og tæki, sportsæti, álfótstig og ýmis sérbúnaður eru stór þáttur í sportlegu útliti bílsins. Stýrið er líka sportlegt með götuðu leðuráklæði þar sem haldið er í það og R32 gír- hnúðurinn liggur vel í hendi. í ár bætast við tvær nýjar áhuga- verðar vélar í Golf-línuna svo það verður áfram áhugavert að fylgjast með Volkswagen Golf. VOLKSWAGEN GOLF R32 Vélar: 250 hö (B) Dyrafj.: 3 Sæti: 5 Umboð: Hekla Verð: Auglýst síðar 12 ■■■ { BÍLAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Arftaki 156 á göturnar fyrir áramót Nýr frá grunni Suzukibílar kynntu í sumar nýjan Swift sem er stærri, tæknilega full- komnari og aflmeiri en fyrirrennari hans. Suzuki Swift er algerlega nýr bíll frá grunni hannaður í Evrópu fyrir Evrópumarkað. Hvað stærð varðar er hann heldur stærri en Yaris en minni en Golf. Swift kemur með 15 tommu felgum, sex örygg- isloftpúðum, innbyggðum hljóm- tækjum með sex hátölurum og stillingum í stýri, ABS hemlum, raf- hitun í sætum og útispeglum auk margs annars. GLX gerðin er auk þess búin loftkælingu, álfelgum, þokuljósum og lykillausu aðgengi og ræsingu. Mikil áhersla er lögð á öryggi. Í EuroNcap öryggisprófinu fékk Swiftinn samtals 10 stjörnur; 4 fyrir öryggi ökumanns og fram- sætisfarþega, 3 stjörnur fyrir öryggi barnastóla og 3 stjörnur fyrir öryggi gangandi vegfaranda. Síðast en ekki síst er eldsneytiseyðslan eins og best gerist. Bensínbíllinn eyðir aðeins 6,5 l á hundraðið og dísilbíllinn aðeins 4,6 l á hundrað- ið í blönduðum akstri. fyrsti bílinn } Gekk á viljanum einum saman Helga Vala Helgadóttir, leikkona og lögfræðinemi, minnist fyrsta bílsins síns með mikilli hlýju. „Fyrsti bíllinn minn var forláta beislitaður Dai- hatsu Charade, fimm dyra en ekki með kýrauga eins og þessir bílar voru gjarna. Með honum tók ég fyrsta víxilinn minn í Íslandsbanka í Lækjar- götu eða hvað sem bankinn hét þá. Þessi bíll lagði metnað sinn í að ganga undir öllum kringumstæðum. Ég fór stundum með klink út á bensínstöð og keypti bensín fyrir skiptimynt. Eina vandamálið var að rúðuþurrkumótorinn var stöðugt til vandræða. Oft og iðulega þurfti að handstýra rúðuþurrkunum og kom sér þá vel að hafa farþega í bílum sem gat tekið það verkefni að sér með spotta. Ef mað- ur átti engan vin eða félaga sér við hægri hlið þurfti ökumaðurinn að gera allt í senn, skipta um gír, stýra og stjórna rúðuþurrkunum, sem gat verið mjög erfitt, sérstaklega í ferðum út á land. Ég er þó enn til frá- sagnar. Bílnum var skipt út fyrir aðeins nýrra eintak af sömu tegund sem stóðst þessum engan veginn snúning því á þann bíl þurfti að setja bensín. Þessi bíll gekk á viljanum einum saman og gekk vel.“ HELGA VALA HELGADÓTTIR 250 hestöfl knýja þennan sérsmíðaða sportbíl með fjórhjóladrifi í allt að 250 km hraða á klst. Ný útgáfa af kraftmesta Golf-bíl sögunnar ALFA ROMEO 159 Vélar: 1,9 120/150 hö (D), 2,4 240 hö (D), 1,9 160 hö (B), 2,2 185 hö (B) og 3,2 200 hö (B) Skipting: 6 g/bsk. Frá vori 2006 6 g/Formula 1 skipt. og 6 g/ssk. Dyrafj.: 4 Sæti: 5 Stöðugleikabúnaður: ESP stöð- ugleikastýring, ASR spólvörn o.fl. Umboð: Ptt ehf. Verð frá: ca. 3.000.000 kr. Formúlukappinn Michael Schumacher er ánægður með nýja Alfa Romeo 159 bílinn sinn. Fyrir áramót er von á nýjum Alfa Romeo 159. Hann er arftaki Alfa Romeo 156, sem var kjörinn bíll ársins í Evrópu árið 1998 og er nýi bíllinn talinn einna sigurstrangleg- astur í vali á bíli ársins 2005 í Evrópu. Miklar væntingar eru til Alfa Romeo 159 og hafa fyrstu við- brögð pressunnar verið hlaðin lofi. Útlit bílsins er eins og aðeins Ítalir kunna að hanna, listilega fallegur, elegant og kröftugur. Michael Schumacher, sjöfaldur heimsmeist- ari í Formula 1 kappakstri, tók ný- lega við sínu eintaki af Alfa Romeo 159 en Alfa Romeo tilheyrir sömu fjölskyldu og Ferrari. Ýmsar nýjungar er að finna í Alfa Romeo 159, sem er teflt fram til höfuðs bílum eins og BMW 3 og Audi A4. Hann býðst með sex vél- um, þrem dísilvélum frá 120 til 240 hestöflum og þrem bensínvélum frá 160 hestöflum til 200 hestafla ofur- bíls með fjórhjóladrifi. Bensínvél- arnar eru allar með tímakeðju í stað tímareimar, sem gerir vélarnar ein- staklega viðhaldslitlar og endingar- góðar. Byrjað er að taka við pönt- unum í þennan glæsilega bíl og mega þeir sem panta bíla fljótlega eiga von á að fá sérsmíðaða bíla afthenta fyrir jól. SUZUKI SWIFT Vélar: 1,5 101 ha(B), 1,3 70 hö(D) Skipting: 5 g/bsk, 4 g/ssk Dyrafj.: 5 Sæti: 5 Umboð: Suzuki bílar Verð frá: 1.479.000 Suzuki Swift hefur verið endurhann- aður frá grunni en er sem fyrr sparneytinn og léttur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.