Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 78

Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 78
46 Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir er ungur fatahönnuður sem finnst ekkert skemmtilegra en að búa til fal- leg föt og borða góðan mat. Hún hannar sem stendur fyrir fatabúðina Pura í Ingólfsstrætinu en þar má finna föt eftir hana og þrjá aðra hönnuði. Á döfinni hjá Kolbrúnu Ýr er að halda áfram að búa til falleg og góð föt enda virðist það ganga hreint út sagt mjög vel. Þegar kemur að mat er Kolbrún Ýr langmest fyrir mexíkóskan mat af öllu tagi en kjúklingur er einnig mjög vinsæll á hennar heimili. Hún segist vera dugleg að borða allskonar grænmeti og hef- ur hollustuna oftast í fyrirrúmi þegar að elda- mennsku kemur.Hún segist þó ekki vera neitt sér- staklega dugleg að elda þó svo að henni finnist gott að borða. Kolbrún segir að til þess að hægt sé að búa til góðan mat sé nauðsynlegt að eiga nóg af grænmeti, krydd, svartan pipar og auðvitað kjúkling. Hún hefur ákveðið að gefa okkur góm- sæta uppskrift af Taco-salati sem er í miklu uppá- haldi hjá henni. Verði ykkur að góðu. drifa@frettabladid.is Taco-salat, hrikalega gott KOLBRÚN ÝR Er dugleg að borða grænmeti. Ofninn hitaður í 200°C. Gulræturnar skafnar eða flysjaðar og toppurinn skorinn af. Rauðlaukurinn flysjaður og skorinn í geira. Olíu, sírópi, engifer, pipar og salti blandað saman í eldföstu móti og gulrótunum og lauknum velt upp úr leginum. Sett í ofninn, appelsíninu hellt í mótið og bakað í 30-40 mínútur, eða þar til gulræturnar eru meyrar (best að stinga í þær með hnífsoddi). Bætið við meira appelsíni eða vatni eftir þörfum, svo að gulræturnar brenni ekki. Þær eru mjög góðar með alls konar steiktu og grilluðu kjöti. 500 g gulrætur 1-2 rauðlaukar 2 msk. olía 2 tsk. hlynsíróp eða sykur 1 tsk. engifer, fínsaxaður eða rifinn, nýmalaður pipar salt 200 ml appelsínulímonaði nokkrar greinar af fersku timjani (má sleppa) Fleiri ljúffengar uppskriftir og fróðleikur á www.islenskt.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S G RA 2 85 65 06 /2 00 5 gljáðar gulrætur með rauðlauk og engifer Líbanskur matur í uppáhaldi Nýlega kom nýr þýskur bjór í Vín- búðirnar sem hefur komið mörg- um skemmtilega á óvart. Hann heitir Brauperle sem mætti út- leggja sem bjórperlan á okkar ást- kæra ylhýra og er í 0,5 ltr dósum. Bjórinn sem er 4,8% í alkó- hólmagni er einstaklega mjúkur og þægilegur í bragði. Það besta við bjórinn er þó sú staðreynd að miðað við gæði er hann á einkar lágu verði, kostar aðeins 155 kr. dósin. Bjórinn er bruggaður af Karls- berg brugghúsinu sem byggir á mjög gamalli hefð sem teygir sig aftur til ársins 1777 en þá hófst bjórgerð í hinum fallega Karls- berg kastala. Bjórinn sem þeir framleiða hefur löngum verið þekktur fyrir gæði enda byggður á aldagamalli þýskri bjórhefð og vatnið sem þeir nota í hann þykir tært. Sem sagt einstaklega mjúk- ur og þægilegur bjór byggður á aldagömlum hefðum frá Bæjara- landi, hjarta bjórhefðar í Þýska- landi. Verð í Vínbúðum 155 kr. í 50 cl dósum. ...........@frettabladid.is MATGÆÐINGURINN ANNA MARGRÉT BJÖRNSSON RITSTJÓRI SIRKUSS Hvaða matar gætir þú síst verið án? Tómata og hvítlauks. Þetta er uppistaðan í mjög miklu sem ég elda. Fyrsta minningin um mat? Ég hugsa að það sé að fara í matarboð hjá ömmu og fá reyktan lax og kók á meðan full- orðna fólkið fékk kampavín. Ég man ekkert hvað ég var gömul. Besta máltíð sem þú hefur fengið? Bestu máltíðarnar sem ég fæ eru á líbönskum veitingastöðum í París, þar eyðir maður þrem- ur tímum við matarborðið. Er einhver matur sem þér finnst vondur? Já, ég hef aldrei getað borðað rósakál og svo er ég voðalega lítið hrifin af íslenskum mat eins og þorramat og bjúgum. Ég bara get ekki látið þetta ofan í mig. Leyndarmál úr eldhússkápnum? Ég er algjörlega „húkt“ á öllu sem er sterkt, ég nota tabasco-sósu til dæmis rosalega mik- ið. Svo kaupi ég alltaf þegar ég fer til Frakk- lands krydd frá Province sem heitir Herbes de Province og er rosalega gott í ýmsum rétt- um. Hvað borðar þú þegar þú þarft að láta þér líða betur? Það er náttúrlega alltaf súkkulaði, en besta „comfort food“ er sennilega raclette sem er franskur réttur, maður bræðir ost og dýfir nýj- um kartöflum, spægipylsum og hráskinku í ostinn. Meiriháttar gott. Hvað áttu alltaf í ísskápnum? Ég er alltaf með hrísgrjón, ég er algjör fugl og er alltaf að borða grjón. Svo á ég alltaf AB mjólk og grænmeti. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borðað? Í norðurhluta Ástralíu fékk ég safa úr krömdum grænum maurum. Þetta var nú reynd- ar ekki vont og maður sá ekki maurana heldur bara grænan safa. Svo hef ég borðað krókódíl sem var ekki góður og á Grænlandi borðaði ég selkjöt sem var ógeðslegt. 15. september 2005 FIMMTUDAGUR UPPSKRIFTIN HENNAR KOLBRÚNAR 2 kjúklingabringur 2 msk ólífuolía taco mix seasoning í bréfum steikja kjúklingabringur í litlum bitum upp úr ólífuolíu og krydda eftir smekk láta kólna í smá stund 1/2 gúrka 2 tómatar 1/2 kálhaus, iceberg 1 rauð paprika skera niður og setja í skál setja kjúkling út í salatið rífa niður um 150 gr af osti og strá yfir 1 poki nachos – mylja niður og setja saman við 1/2 dós af taco sósu (Mariachi hot) 1/2 dós af sýrðum rjóma Hræra öllu saman Rosalega ljúffengt en verður að borða innan klukku- tíma því annars verða nachos flögurnar mjúkar. Shiraz-þrúgan er oft nefnd trompþrúga Ástrala. Vín úr henni eru oft blönduð með cabernet sauvignon eins og í Angove’s Sto- negate Cabernet/Shiraz. Létt rauðvín með fal- legum blæ, ríkum ávaxtakeim, fyllt en jafnframt mjúkt. Á vel við pasta, kjöt- og grill- rétti. Vínfyrirtækið An- gove’s rekur sögu sína til 1886 þegar dr. Willi- am Thomas Angove kom til Ástralíu til að stunda lækningar. Hann hafði áhuga á vínrækt og plantaði vínviði á landareign sinni til að geta gert vín fyrir sig og fjölskyldu sína. Þetta tóm- stundagaman varð upphafið að stærsta vínfyrirtæki Ástr- alíu í einkaeigu. Þess má geta að þetta ágæta vín er ódýrasta ástralska vinið sem er á boðstólum í vínbúð- unum hérlendis. Verð í vínbúðum: 890 kr. BRAUPERLE: fi‡ska perlan STONEGATE: Ód‡rt tromp frá Ástralíu! > Lítið og þægilegt Ef eitthvað er nauðsynlegt í eldhúsið þá er það svona lítið og handhægt rifjárn. Best fyrir stóra parmesan-ostinn eða bara hvað sem er. Svona rifjárn fæst í Kokku og kostar 2.990 krónur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.