Fréttablaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 40
Sveigjanleiki og hreyfanleiki eru lykilorð í atvinnulífi dagsins í dag og margar tækninýjungar eru til þess ætlaðar að gera líf manns sveigjanlegra. Þessi þró- un hefur góðar hliðar og slæmar. Núna til dæmis er aldrei hægt að fara í frí. Með í för er ávallt farsíminn ómissandi sem er orð- inn miklu meira en sími þannig að maður á helst að geta séð póst- inn sinn og sinnt erindum hvar- vetna í heiminum. Það grátbros- lega við þetta allt saman er að fjarskiptafyrirtækin selja nýj- ungarnar einmitt þannig; með myndum af önnum köfnu jakka- fataklæddu nútímafólki sem sit- ur við lítinn læk í grasbrekku í svissnesku ölpunum og sinnir er- indum sínum brosandi í gegnum símann. Það sem gleymist er auð- vitað af hverju þetta sama fólk fór í svissnesku alpana ó væntan- lega til að hlusta á lækinn, draga andann og hugsa einmitt ekki um öll erindin. Í atvinnulífinu er manni hins vegar talin trú um það að maður sé ómissandi og maður lætur auðveldlega hrífast með; er nán- ast alltaf í vinnunni og þorir aldrei að slökkva á símanum þó að staðreyndin sé sú að meiri- hluti erinda getur beðið og lík- lega getur einhver annar sinnt hinum flestum. Þetta á við um velflesta vinnustaði þótt við vilj- um ekki trúa því. En hreyfanleiki og sveigjan- leiki eru líka af hinu góða. Nýtt atvinnuumhverfi auðveldar manni að sinna fjölbreyttari störfum og nýta hæfileika sína á fleiri en einn hátt. BARA EITT NORM LEYFILEGT? Hins vegar hefur atvinnuum- hverfi almennt ekki alfarið fylgt tækninýjungunum. Sveigjanleik- inn og hreyfanleikinn virðast í það minnsta flækjast mjög fyrir opinberum aðilum á borð við Fæðingarorlofssjóð. Þar á bæ virðist gert ráð fyrir klassísku fyrirkomulagi með einum at- vinnurekanda og einum launþega og flóknari reikningsdæmi með nokkrum vinnuveitendum, sjálf- stæðum atvinnurekstri og hlut- fallsstörfum hér og þar gera það að verkum að það tekur nokkra vinnudaga bara að sækja um úr sjóðnum þrátt fyrir góðan vilja starfsmanna sjóðsins til að að- stoða umsækjendur. Hingað til virðist aðaláhyggju- efni manna vegna Fæðingar- orlofssjóðs vera þakið sem sett var á fæðingarorlofsgreiðslur en sem stendur getur enginn fengið meira en 480 þúsund krónur úr fæðingarorlofssjóði. Þetta þykir þeim sem eru með milljón á mán- uði ansi súrt í broti. Það að ein- hver fái „bara“ hálfa milljón á mánuði af opinberu fé tel ég hins vegar ekki vera aðalgallann á kerfinu. GLOPPÓTT LÖG Í lögunum um fæðingarorlof eru hins vegar ýmsar gloppur sem gera mun fleirum erfitt um vik að taka orlof en forstjórum. Ung kona sem á von á barni hefur verið að vinna og í námi sex mánuði fyrir fæðingu barns- ins. Eini gallinn er að mánuður leið á þessum sex mánaða tíma þar sem hún var hvorki á launa- skrá né í námi - t.d. að leita sér að vinnu eftir námslok. Þá býður fæðingarorlofssjóður upp á heil- ar 40 þúsund krónur á mánuði. Þetta hefur líklega þær afleiðing- ar að viðkomandi tekur ekkert orlof en heldur áfram í skóla enda má hún ekki þiggja 40 þús- und krónurnar nema hún þiggi engin laun eða lán á meðan. Þessi staða er algengari en fólk hyggur og veldur því að hitt foreldrið þarf að taka á sig aukna ábyrgð. Þarna þjóna lögin því ekki til- gangi sínum. Önnur glufa í lögunum er til dæmis sú staðreynd að maður sem hefur lokið námi fyrir ári og síðan unnið eins og berserkur fyrir góðum launum fær þau alls ekki metin inn í fæðingarorlof. Greiðslur eru metnar út frá skattframtölum tveggja síðustu heilu almanaksára þannig að þeir sem hafa t.d. verið í námi árið 2003 og eignast barn 2005 (þótt þeir hafi unnið mikið að undan- förnu) detta niður í sömu laun og þeir náðu með herkjum að aura saman með náminu. Ef tilgangur laganna er að tryggja að fólk geti tekið orlof á 80% tekna sinna verður að gera kerfið sveigjanlegra gagnvart þeim sem eru að koma úr námi og út á hinn almenna vinnumark- að sem og þeim sem eru hreyfan- legir í starfi og sinna fleiri störf- um en einu. Það ætti að vera sam- eiginlegt markmið allra; hins op- inbera, atvinnurekenda, laun- þega og sjálfstætt starfandi ein- staklinga, að tryggja það að sjóð- urinn þjóni því hlutverki sínu að allir geti tekið fæðingarorlof. Þá snýst málið ekki um 480 þúsund krónur á mánuði heldur þá sem boðið er upp á 40 þúsund krónur á mánuði. Þeirra stöðu þarf að leiðrétta. MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN16 S K O Ð U N Þjóðin hefur mikla hagsmuni af framtíðarvali á gjaldmiðli. Umræða um evruna er tímabær Hafliði Helgason Eitt af því sem gera má ráð fyrir að alþjóðavæðing viðskiptalífsins hafi í för með sér er að gjaldmiðlum heimsins mun fækka. Hvatinn að þessari þróun er að með auknum millilandaviðskiptum verða hag- kerfin líkari hvert öðru. Sumir ganga svo langt að telja að í náinni framtíð verði þrír til fjórir gjaldmiðlar í heiminum. Íslendingar muni ekki fara varhluta af þessari þróun ef rétt reynist. Það er því mikilvægt fyrir okkur að ræða framtíðarsýn okkar viðskiptaumhverfis og skoða með opnum huga kosti og galla þess að burðast með eigin gjaldmiðil í jafn litlu hagkerfi og því íslenska. Formaður Samfylkingarinnar hefur nú stig- ið fram og kallað eftir slíkri umræðu. Umræða um hugsanlega upptöku evru er því fyllilega tímabær og um- ræða um hugsanlega aðild að ESB er það einnig. Mikilvægt er að öfgalaus rök- ræða fari fram í samfélaginu um hvert við stefnum í opnara samfélagi þjóða. Það er engin ástæða til að gefa sér fyrir fram hver niðurstaðan verður af slíkri rökræðu. Hitt er ljóst að þjóð sem er vel upplýst um kosti og galla þeirra mögu- leika sem hún á mun að öllum líkindum bregðast við þróun umhverfis síns af meiri skynsemi en sú sem lokar umræð- una bak við bannhelgi og kreddumúra. Úrlausnarefni hverfa ekki við það eitt að tilraun sé gerð til að þegja þau í hel. Í Markaðnum í dag er ítarleg grein þar sem skoðaðar eru helstu þættir varðandi hugsanlega upptöku evru og þau vandamál sem krónan veldur. Aug- ljóst er að slík umræða á frekar upp á pallborðið nú en oft áður. Ástæðan er sú að útflutnings- og samkeppnisgreinar eiga undir högg að sækja meðan krónan heldur núverandi styrk. Opnara sam- félag og frjálsari vinnumarkaður milli Íslands og landa Evrópusambandsins hefur dregið úr sveiflum í hagkerfinu. Það er vart hægt að hugsa þá hugsun til enda hverjar afleiðingar hefðu orðið ef núverandi þensla af völdum stóriðju og útlánavaxtar væri í því umhverfi þegar hindranir í innflutningi vinnuafls voru meiri en raunin er nú. Innganga í ESB og upptaka evru myndi hafa jákvæð áhrif á lífskjör hér á landi. Krónan er viðskipta- hindrun og því meiri sem þátttaka íslenskra fyrirtækja er í alþjóð- legum viðskiptum, því meiri er hindrunin. Hagsaukinn af upptöku evru verður einnig meiri eftir því sem fleiri lönd innan ESB taka upp evruna. Það er því full ástæða til að fylgjast gaumgæfilega með slíkri þróun. Við gætum fyrr en okkur grunar staðið frammi fyrir róttækum spurningum um hvert vægi lífsgæði vegna fullrar þátttöku í samfé- lagi Evrópu hefur gagnvart heilögum kúm eins og eigin gjaldmiðli og fullum yfirráðum yfir fiskimiðunum. Verði fórnarkostnaðurinn af því að standa utan við of mikill er líklegt að þjóðin leggi tilfinningar sínar til hliðar og greiði atkvæði með buddunni. Brother DCP-7010 Laserprentari Stafræn ljósritunarvél Litaskanni • Prentar allt að 20 bls. á mínútu • Upplausn 2400×600 dpi • 8 MB ram & USB 2.0 • 250 bls. pappírsskúffa • Windows og MacOS • Ljósritun (fl atbed) • Ljósritar allt að 20 bls. á mínútu • Stækkar/minnkar: 25-400% • Litaskanni: Allt að 9600 dpi • Aðeins 25,3 cm á hæð Verð kr. 26.900 Laserprentarar... ... og ljósritunarvélar! Brotherlasertæki eruöll með 3ja ára ábyrgð ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Hafliði Helgason RITSTJÓRN: Björgvin Guðmundsson, Eggert Þór Aðalsteinsson, Hjálmar Blöndal, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Jónína Pálsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@markadurinn.is og aug- lysingar@markadurinn.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeypis með Fréttablaðinu á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Markaðurinn áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Japan raknar úr rotinu Economist | Economist gerir japanskt efnahagslíf að umfjöllunarefni sínu. Loks virðist sjá fyrir endann á fimmtán ára samfelldri stöðnun í japönsku hagkerfi. Nú eru menn farnir að sjá fjölgun starfa og aukin kaupmátt og hagfræðingar eru meira að segja farnir að endurskoða spár sínar um hagvöxt á árinu. Erlendir fjárfestar fylkja liði til Japans og hlutabréfamarkaðurinn hefur rétt úr kútnum. Það að Koizumi hafi verið endurkjörinn sem forsætisráðherra er skýrt merki um það að al- menningur hafi gefið grænt ljós á þær efnahags- umbætur sem hann hefur unnið að. Hægfara breyt- ingar innan fjármála-, hag- og stjórnkerfis eru hægt og bítandi að skila sér og telur Economist að þær gefi væntingar um bjarta framtíð. Enn blasa þó við veikleikar í efnahagskerfinu: Verðhjöðnun, veikt bankakerfi, skuldsett fyrirtæki og mikill halli á fjárlögum. Og það sem meira er, Kína hefur tekið fram úr Japan sem efnahagsveldi Asíu. Ólígarki í bobba The Sunday Times | Oleg Deripaska, yngsti milljarða- mæringur Rússlands og sjötti ríkasti maður landsins, er á leið í breskan réttarsal eftir að annar ólígarki, Azav Nazorov, lagði fram ákæru á hendur Rusal, álfyrirtæki hans, fyrir fjársvik og blekkingar. Krefst Nazorov þess að fyrirtæki sitt – Ansol – fái yfir tuttugu milljarða í skaðabætur vegna samnings- brots Rusals. Fyrirtækin gerðu samning um að taka við stjórn á Tedaz, stærstu álbræðslu Tadsíkistans. Ansol sak- ar Deripaska og Rusal um að hafa svikið samning- inn með því að semja persónulega við forseta Tadsíkistans um að fyrirtækið sæti eitt að stjórnun álbræðslunnar. Það er stutt síðan Deripaska náði sátt við við- skiptafélaga sína Reuben-bræður áður en til mála- ferla kom. U M V Í Ð A V E R Ö L D Mikilvægt er að öfgalaus rökræða fari fram í samfélag- inu um hvert við stefnum í opnara samfélagi þjóða. Það er engin ástæða til að gefa sér fyrirfram hver niðurstaðan verður af slíkri rök- ræðu. Hitt er ljóst að þjóð sem er vel upp- lýst um kosti og galla þeirra möguleika sem hún á mun að öllum líkindum bregðast við þróun umhverfis síns af meiri skynsemi en sú sem lokar umræðuna bakvið bannhelgi og kreddumúra. bjorgvin@markadurinn.is l hjalmar@markadurinn.is l eggert@markadurinn.is haflidi@markadurinn.is l holmfridur@markaðurinn.is Katrín Jakobsdóttir Varaformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. O R Ð Í B E L G Sögurnar... tölurnar... fólkið... Sveigjanlegra fæðingarorlof fyrir alla Hingað til virðist aðaláhyggjuefni manna vegna Fæðingarorlofssjóðs vera þakið sem sett var á fæð- ingarorlofsgreiðslur en sem stendur getur enginn fengið meira en 480 þúsund krónur úr fæðingaror- lofssjóði. Þetta þykir þeim sem eru með milljón á mánuði ansi súrt í broti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.