Tíminn - 21.08.1975, Blaðsíða 6

Tíminn - 21.08.1975, Blaðsíða 6
6 HMI>ÍN Fimmtudagur 21. ágiist 1975 TÍMINN leitaöi nýlega til Ólafs Jóhannessonar viðskiptaráðherra til að afla upplýsinga um gjaldeyrismálin og þró- un þeirra undanfarna mánuði. Viðskiptaráðherra sagði, að i gjaldeyris- málunum væri um si- felldan barning að ræða. Hins vegar væri um augljós batamerki að ræða, ef litið væri á þró- unina það sem af væri þessu ári. Hún væri að sinu áliti hagstæðari en á sama tima i fyrra. 1 þvi sambandi ságðist viðskiptaráðherra vilja benda á, að á timabilinu april-júni i ár hefðu gjaldeyriskaupin verið 7,3% meiri en gjald- eyrissalan. Og ef litið væri á sex fyrstu mánuði þessa árs, kæmi i ljós, að gjaldeyriskaupin væru 4% meiri i krónum en á sömu mánuðum 1974. Gjaldeyrissalan var á sama tima 8,9% minni en sömu mánuði 1974. Ef janúar er und- anskilinn, er gjaldeyris- salan 15% minni. — Er von til þess, að þessi já- kvæða þróun haldi áfram? — Um þaðer erfitt að spá. Það fer eftir ýmsu. Hins vegar benda siðustu tölur til þess, að batinn haldi áfram. Þannig hafa gjald- eyriskaup umfram gjaldeyrissölu verið umtalsverð á fyrra helm- ingi þessa mánaðar, og voru t.d. 182,6 millj. kr. 15. ágúst sl. Útflutningur og inn- flutningur fyrstu sex mánuðina — Nú hefur Hagstofan nýlega birt samanburðartölur um út- flutning og innflutning mánuðina janúar-júni árin 1974 og 1975, þar sem fram kemur, að viðskipta- jöfnuður fyrstu 6 mánuði þessa árs er óhagstæður um þrettán og hálfan milljarð, en var ekki óhag- stæður um nema sjö og hálfan milljarð á sama tíma I fyrra. Hvað er um þetta að segja, viö- skiptaráðherra? — Við samanburð á'T.ölum um útflutning og innflutning er nauð- synlegt að hafa I huga þær breyt- ingar, sem orðið hafa á gengi is- lenzkukrónunnar. Ef tölur um út- flutning og innflutning jan. -júní 1974 eru færðar til núver- andi gengis, verður vöruskipta- jöfnuöurinn það timabil óhag- stæður um 11.183.2 millj. kr., sem er lttið eitt betri útkoma en I janú- ar—júni 1975. Ef útflutningur á áli og innflutningur til álfélagsins er dreginn frá heildartölum, var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæð- ur um 12.827.1 millj. kr. janú- ar—júni 1974, reiknað á núver- andi gengi, en var óhagstæður um 11.406.2 millj. kr. janúar—júni 1975. Þegar Utflutningur á áli og inn- flutningur til álfélagsins er und- anskilinn, var vöruskiptajöfnuð- urinn janúar—júni 1975 þvi heldur hagstæðari en hann var janú- ar—júni 1974, reiknað á núver- andi gengi, enda var útflutningur á áli minni það sem af er þessu ári heldur en sama timabil árið áður, og innflutningur til álfé- lagsins var meiri i ár en hann var I fyrra. Erlendur greiðslu- frestur — Liggur fyrir yfirlit um greiðslufrest á innfluttum vörum fyrstu sex mánuði þessa árs? — A yfirliti um erlendan greiðslufrest á innfluttum vörum kemur fram, að 1. júli var hann tæpir 6,3'milljarðir kr. á móti liö- lega 5 milljörðum á sama tima I fyrra á þáverandi gengi. Miðað við núverandi gengi væri sú tala 7,6 milljarðir, og er þvi um iækk- un að ræða, sem nemur rúmlega 1300 milljónum króna. Mjög miklar rækjubirgðir eru óseidar. - Tekizt hefur að selja loðnubirgðirnar til Sovétrikjanna. Ólafur Jóbannesson viðskiptaráðherra. Útflutnings- vörubirgðir • — Mörgum þætti vafalaust fróðlegt að fá yfirlit um útflutn- ingsbirgðir nú og samanburðar- tölur við siðasta ár? • — Verðmæti þeirra var 7.843.1 millj. kr. I lok júni 1975, en var 8.391.7 millj. kr. á sama tima i fyrra, reiknað á núver. gengi. gbirgðir af freðfiski fyrir Banda- rikjamarkað voru 14.641 tonn, að verðmæti 3.294.2 millj. kr. á móti 16.768 tonnum að verðmæti 3.266.3 millj. kr. á sama tima I fyrra. Freðfiskbirgðir fyrir aðra mark- aði voru 5.687 tonn að verðmæti 643.1 millj. kr. nú, en voru 3.732 tonn að verðmæti 394.6 millj. kr. i fyrra. Birgðir af saltfiski voru 9.900 tonn að verðmæti 1.944.0 millj. kr. Ilok júni 1975, en voru 14.750 tonn að verðmæti 2.721.8 millj. kr. á sama tima i fyrra. Birgðir af skreið voru 900 tonn að verðmæti 324.0 millj. kr. nú á móti 1.250 tonnum að verðmæti 377.5 millj. kr. I fyrra. Þá voru birgðir af loðnumjöli 14.000 tonn og verðmæti þeirra um 477 millj. kr. á móti 23.000 tonnum að verðmæti um 880 millj. kr. I fyrra. Allt það loðnumjöl, sem núer til i birgðum, er selt, og má geta þess', að 4.000 tonn voru send til Rússlands I júli og 6.500 tonn I ágúst og september. Þá voru um 3.000 tonn send á aðra markaði i júlí. Birgðir af þorsk- mjöli voru i lok júni 1975 um 12.000 tonn að verðmæti um 358 millj. kr., á móti 10.000 tonnum að verðmæti um 370 millj. kr. i fyrra. NUverandi þorskmjölsbirgðir eru að mestu seldar, og um 2.500 tonn voru send til Rússlands i júli og um 6.000 tonn fara i ágúst og sept- ember. Birgðir hvalafurða voru að verömæti um 84 millj. kr. i lok júni 1975, á móti 139 millj. kr. i fyrra. Birgðir af rækju voru 520 tonn i lok júní 1975 að verðmæti um 286 millj. kr., á móti 37 tonnum að verðmæti um 45 millj. kr. i fyrra. Gjaldeyris f orðinn — Að lokum, viöskiptaráð- herra, hversu mikill var gjald- eyrisforðinn, þ.e. sá erl. gjald- eyrir, sem til ráðstöfunar er, um mitt þetta ár? — Gjaldeyrisforðinn var i lok júni 6581 millj. króna, en var 5745 milljónir króna i árslok 1974 á þá- verandi gengi, eða um 7381 millj. króna á núverandi gengi. Gjald- eyrisforðinn segir i raun til um sjóöastöðu þjóðarbúsins, sagði Ólafur Jóhannesson viðskipta- ráðherra að lokum. —a.þ. Rætt við Ólaf Jóhannesson viðskiptaráðherra: Þróun gjaldeyrismála hagstæðari nú en á sama tíma í fyrra

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.