Tíminn - 21.08.1975, Síða 11
Fimmtudagur 21. ágúst 1975
TÍMINN
n
Umsjón: Sigmundur ó. Steinarssoni
«-☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆*☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆•☆-☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆■{{
«-
«-
XI-
«-
«-
«-
Xi-
«-
«-
«-
«-
fwwwwmwwwwwwwwww
ÁSGEIR TRYGGÐUR
FYRIR 40 MILLJÓNIR
O <-----------m
Aðvörun frá
Frakklandi!
Frakkar unnu góðan sigur (3:1)
yfir Real Madrid í París
— Ég er mjög ánægöur meö strákana, þeir sýndu stórgóöa knatt-
spyrnu, sagöi Stefán Kovacs, þjálfari franska landsliösins, sem vann
stórsigur (3:1) yfir spænska meistaraliöinu Real Madrid I París.
Frakkar eru nú byrjaöir aö undirbúa sig af fullum krafti fyrir
Evrópuleikinn gegn lslendingum sem fer fram f Nantes I Frakklandi
3. september. Leikurinn gegn Real Madrid var fyrsti æfingaleikurinn
hjá Frökkum fyrir landsleikinn gegn tslendingum.
Þaö er greinilegt aö Frakkar Rocheteau var maöur leiksins,
ætla sér aö hefna ófaranna I
Reykjavik og það illilega. Og
úrslit leiksins gegn Real Madrid
sýnir, að þeir verða erfiðir heim
að sækja. Frakkinn Dominque
hann skoraöi tvö mörk, en fyrir-
liöinn Henri Michel skoraði
þriðja mark Frakkanna.
Santillana skoraði mark Real
Madrid.
ISLENDINGAR
UNDIRBÚA SIG
í FRAKKLANDI
— daginn fyrir landsleikinn í Nantes
FRAKKAR eru nú byrjaöir aö
undirbúa sig af fullum krafti
fyrir landsieikinn gegn Islend-
ingum, sem fer fram í Nantes.
Viö höfðum samband viö Jens
Sumarliöason, formann lands-
iiösnefndar KSt, I gær, og
spuröum hann hvernig undir-
búningi landsliösins yröi háttaö
fyrir landsleikina gegn
Frökkum og Belgiumönnum,
sem fara fram ibyrjun septem-
ber I Nantes og Liege, og hann
sagöi: — Astandiö er mjög
alvarlegt hjá okkur, viö fáum
engan tima til aö undirbúa
okkur fyrr en út i Frakklandi,
daginn fyrir landsleikinn i
Nantes, og svo sama dag og
hann fer fram. Þaö er útséö um
aö þaö er ekki hægt aö kalla
leikmennina saman hér heima,
vegna leikja i deildar- og bikar-
keppninni, sem eru svo þétt
leiknir fram að landsleikjunum.
Viö munum þó kalla landsliös-
mennina saman fijótiega eftir
helgina og ræbum viö þá og
höfum töflufundi meö þeim. En
einu æfingarnar sem þeir fá,
veröa i Frakkiandi, sagöi Jens.
Á þessu sést, að ástandið er
mjög alvarlegt i sambandi við
undirbúning landsliðsins fyrir
hina erfiðu leiki i Frakklandi og
Belgiu. A meðan Frakkar og
Belgíumenn undirbúa sig af
fullum krafti, þá situr landsliðið
okkar auðum höndum og biður
eftir þvi að geta komizt til
Frakklands, þar sem það fær
tækifæri til að æfa. Er það ekki
þjóðráð að fresta leikjum i
deildarkeppninni um helgina 30.
og 31. september, og gefa lands-
liöinu eftir þá helgi til að undir-
búa sig? Þetta ætti stjórn KSl að
taka til gaumgæfilegrar athug-
unar, þvi að sjálfssögðu á lands-
liö Islands að vera númer eitt,
en ekki vera algjört aukaatriði.
Jóhannes ekkl
meðgegn Belgum
— Karl Þórðarson og Diðrik Ólafsson
komnir í landsliðshópinn
— Þaö er óliklegt aö
Jóhannes leiki meö okkur gegn
Belgiumönnum, sagöi Jens
Sumarliöason. — Viö höfum
fengið afsvar frá Celtic, sem vill
aöeins lána okkur Jóhannes i
landsleikinn gegn Frökkum, þar
sem hann ieikur meö Celtic
gegn Dundee sama dag og
landsleikurinn gegn Belgiu-
mönnum verður f Liege” sagöi
Jens. Landsliösnefndin hefur nú
tilkynnt 22 leikmenn til UEFA,
sem koma til meö aö leika gegn
Rússum i Moskvu — en þangað
fara 16 ieikmenn. Aftur á móti
bætast þeir Jóhannes Eövaids-
son, Asgeir Sigurvinsson og
Guðgeir Leifsson viö hópinn,
þegar leikiö veröur I Frakklandi
og Belgiu, svo hópurinn veröur
skipaöur 19 mönnum þar.
Skagamaöurinn Karl Þórðar-
son og Diðrik Ólafsson, mark-
vörður úr Viking, eru nú komnir
122manna landsliðshópinn, sem
er skipaöur þessum leik-
mönnum: — Markveröir: Arni
Stefánsson, Fram, Þorsteinn
ólafsson, Keflavik og Diðrik
Ólafsson, Viking. — Aðrir leik-
menn eru: GIsli Torfason,
Keflavik, Björn Lárusson,
Akranesi, Marteinn Geirsson,
Fram, Jón Pétursson, Fram,
Jón Gunnlaugsson, Akranesi,
Ólafur Sigurvinsson, Vest-
mannaeyjum, Janus Guðlaugs-
son, FH Ottó Guðmundsson,
KR, Jón Alfreðsson, Akranesi,
Arni Sveinsson, Akranesi,
Ólafur Júliusson, Keflavlk, Karl
Hermannsson, Keflavik, Grétar
Magnússon, Keflavlk, Hörður
Hilmarsson, Val, Elmar Geirs-
son, Eintrach Trier, Matthlas
Hallgrlmsson, Akranesi, Teitur
Þórðarson, Akranesi, Karl
Þórðarson, Akranesi, og örn
óskarsson, Vestmannaeyjum.
Slðan bætast þeir Asgeir,
Jóhannes og Guðgeir við þá 16
leikmenn, sem verða valdir úr
22 manna hópnum.
EINS OG ÞRUAAA
UR HEIÐSKIRU
LOFTI
Svo getur fariö, aö Islandsmeistararnir frá
Akranesi missi af tslandsmeistaratitlinum i ár
vegna kæruleysis, þar sem láöst hefur aö til-
kynna félagsskipti Haröar Helgasonar mark-
varöar liðsins i siöustu leikjum þeirra. Höröur
lék áöur fyrr meö Fram, en fluttist til Akraness
fyrir 3 árum og Iék meö liöi Skagamanna.
Missa Skagamenn af Islands-
meistaratitlinum í ór, og falla
þeir úr bikarkeppnmni
vegna kæruleysis?
Um ármót 1973-’74 fluttist
hann aftur til Reykjavlkur og
óskaði þá eftir félagsskiptum I
Fram.Var þetta tekið fyrir á
stjórnarfundi KSl og samþykkt.
Nokkrum mánuðum slðar flutt-
ist Hörður aftur til Akraness, en
þá var aðeins gengið óformlega
frá félagsskiptunum.
Reynist þetta rétt, þá þýðir
það, að Skagamenn eiga yfir
höfði sér að missa fjögur stig, —
þ.e. stigin gegn Fram og Vest-
mannaeyjum — auk þess, sem
bikarleikurinn gegn FH tapast
einnig.
Ekki mun þó útséö um það,
hvort Fram, Vestmannaeyjar
eða FH muni kæra. Iþróttasíðan
spurði formann Fram, Alferð
Þorsteinsson.um afstöðu Fram,
og sagði hann, að máliö væri I
athugun. Búið væri að kanna,
hvort félagsskiptin hefðu átt sér
stað eftir aö Hörður hætti meö
Fram 1974, en það kæmi ekki
fram I bókum KSl. Hins vegar
væru félagsskipti hans til Fram
bókuð hjá KSl. — Við erum
ekkert sérstaklega ákafir kæru-
menn, sagði Alfreð. — Hins
vegar töluðu margir um þaö I
fyrra, þegar Elmars-málið var I
sviðsljósinu, að allir yrðu að
fara að lögum. Við munum
kanna þetta betur, sagði Alfreö
að lokum.
Þetta kemur eins og þruma úr
heiðsklru lofti og getur þetta
breytt stöðunni — bæði á topp-
inum og botninum I 1. deildar-
keppninni. Skagamenn myndu
þá missa fjögur stig og væru
þeir þá með 13 stig. Framarar
með 17 stig og Vestmanna-
eyingar með 10 stig, eða þremur
stigum meira en KR-ingar, sem
hafa hlotið 7 stig.
Staðan væri þá þannig eftir 12
umferðir:
Fram 17 stig
Akranes 13 stig
Vlkingur 13 stig
Keflavlk 12 stig
FH 12 stig
Valur 12 stig
Vestm.ey lOstig
KR 7 stig
Eins og menn vita, þá eru
aðeins eftir tvær umf. I deildar-
keppninni. S.O.S.
JVOFALDUR SKOTI'
— í langhlaupunum var of stérkur fyrir íslendinga. Þd unnu
Skotar sigur í öllum tvísýnu greinunum og tryggðu sér sigur
yfir Islendingum
Spjótkastarinn snjalli ÓSKAR
JAKOBSSON var eini Islend-
ingurinn sem tryggöi sér gull-
verðlaun i landskeppni Skota og
Islendinga á Laugardalsvellin-
um i gærkvöldi, sem lauk meö
sigri Skota 118:94. Óskar sigraði
glæsilega i spjótkastinu — kast-
aði 75.68 m, sem er aðeins 12
sentimetrum frá islandsmeti
hans. Tvöfaldur sigur Skota i
langhlaupunum og tvisýnu
greinunum — 200 m hlaupi, 400
m grindarhlaupi, stangarstökki
og sleggjukasti — var nokkuð,
sem islendingar réöu ekki viö.
Stefán Hallgrimsson.sem um
ENGLAND
NOKKRIR leikir voru leiknir I
ensku knattspyrnunni i gær-
kvöldi, og uröu úrslit þeirra sém
hér segir:
Man .City—Leicester......1:1
Newcastle—Middlesb.......1:1
Norwich—Leeds............1:1
Stoke—Wolves.............2:2
Tottenham—Ipswich........1:1
2. deild:
Fulham—Carlisle..........3:0
Oxford—Bolton............2:0
W.B.A.—Chelsea ..........0:0
Þá má geta þess aö Celtic
vann góðan sigur (3:1) yfir
Hearts I skozku deildarbikar-
keppninni.
FRANCIS
FYRIRLIÐI
ENGLANDS
QUEENS PARK Rangers-leik-
maöurinn snjalli Gerry Francis
hefur tekiö viö fyririiöastööunni
i enska landsliöinu af Alan Ball.
Francis mun stýra enska libinu
á leikvelli, gegn Svisslendingum
I september, en þá leikur Sviss
og England vináttulandsleik.
ÓSKAR — 12 sm frá tslandsmeti
sinu I spjótkasti.
tima virtist liklegur sigurvegari
i 400 m grindarhlaupi, var
óheppinn á lokasprettinum. Þá
stifnaði hann upp, eftir að hafa
haft örugga forystu og McCall-
umsigldi fram hjá honum á slð-
ustu metrunum og stal sigrinum
frá Stefáni. Agúst Asgeirsson
sýndi mikið keppnisskap i 3000
m hindrunarhlaupi og tryggði
sér annað sætið með mjög
skemmtilegum lokaspretti. Þá
var Bjarni Stefánsson I sviðs-
ljósinu i200 m hlaupi, þar sem
hann hafði forystu þar til á siö-
ustu metrunum, að Skotinn Mc-
Master fór fram úr honum og
sigraði.
Annars urðu úrslit þessi I ein-
stökum greinum i gærkvöldi:
400 m grindahlaup: sek.
S. McCallum, Skotland 52.3
Stefán Hallgrímss. Isl. 52.6
A. Tarquini, Skotland 56.2
Jón S. Þórðarson, ísl. 56.3
200 m hlaup: sek.
A. McMaster, Skotland 21.4
Bjarni Stefánsson, Isl. 21.5
A. Harley, Skotland 21.7
Vilm. Vilhjálmsson. Isl. 22.2
800 :n hlaup: min.
R. Baillie,Skotland 1:52.9
N.Scott, Skotland 1:54.6
Framhald á bls. 13.
MELNIK
RAUF 70 M
MÚRINN
FAINA MELNIK frá Rússlandi
setti nýtt glæsilegt heimsmet I
kringlukasti kvenna I gærkvöldi
á frjálsiþróttamóti I Zurich i
Sviss. Melnik rauf 70 metra
múrinn, en hún kastaöi kringl-
unni 70,20 m. Hún átti eldra
metiö — 69,90 m.
JOHANNES
MÁ LEIKA
GEGN VAL
JÓHANNES Eövaldsson mun
leika meö Celtic gegn Vals-
mönnum á Laugardalsvellinum
i Evrópukeppninni 16. septem-
ber. Valsmenn fengu skeyti frá
Celtic í gær, þar sem þeim var
tilkynnt, aö Jóhannes væri lög-
legur meö Celtic I Evrópu-
keppninni, og aö hann myndi
koma meö liöinu og leikahér-