Tíminn - 23.08.1975, Side 4

Tíminn - 23.08.1975, Side 4
4 Tí-MINN Laugardagur 23. ágúst 1975 Áhorfendur vinna með leikurunum Fáið áhorfendurna til sam- vinnu' Þessi nýja tegund af skemmtun er nefnd „algjört leikhús”. Hópur ungs fólks hef- ur komið þessari nýju hugmynd á framfæri i Tara Hotel i London. Leikararnir sýna þar leikritið „Onnur brúður, annar brúðgumi”, sem er skop um brúðkaup og brúðkaupsveizlur. Sýningin fer fram i veizlusal hótelsins, og áhorfendum er boðið að taka þátt i brúðkaups- veizlunni i mat og drykk. Þeir skála, syngja og enda með þvi að dansa við leikarana. Einn leikaranna, Seretta Wilson, sem leikur brúðina, skemmtir gest- um með nektarsýningu. Stjórnandinn, Eleanor Fazan, segir: — Við gerðum tilraun með leiksýningaveizluhöld i Melbourne i Ástraliu, og þóttu þau svallsöm, dónaleg og indæl. f London þótti okkur tilraunin einnig heppnast vel. Nú langar okkur til að gera tilraun i Bandarikjunum. Hér sjáið þið „brúðina” að verki. Eina með öllu, takk Danir fóru ekki varhluta af hita- bylgjunni, sem gekk yfir Evrópu á dögunum. Sumir tóku það til bragðs að belgja sig út á köldum bjór, þegar hvað heitast var, aðrir völdu heitar pylsur, os.s. frv. Ekki voru skoðanirnar siður skiptar, þegar kom að klæðavali, eins og meðfylgjandi mynd sýnir glögglega. Maður- inn lengst til vinstri á myndinni hefur greinilega verið sannfærður um að skynsamleg- ast væri að klæöa af sér hitann með ullarjakka og dökkum bux- um, annar hefur sleppt jakkan- um og brett upp skyrtu- ermarnar, og kvenfólkið á myndinni er fremur léttklætt. En það hefur vitaskuld verið náunginn á miðri myndinni, sem dregið hefur að sér athygli ljósmyndarans. Hitt fólkið á myndinni hefur þó greinilega miklu meiri áhuga á pylsunum sinum heldur en stripalingnum, en þeir eru nú lika orðnir ýmsu vanir i kóngsins Kaupinhafn! iGerviefni notað i seglin Kannski hafið þið einhvern tima haft i höndunum tiu marka þýzkan seðil. Á honum er mynd af skipi undir fullum seglum. Þið hafið ef til vill haldið, að þarna væri um eitthvert forn- skip að ræða, sem löngu væri horfið af sjónarsviðinu, en svo er ekki. Skipið heitir Gorch Fock og er ekki eldra en það, að það var tekið i notkun árið 1958, og er nú notað sem æfingaskip fyrir menn i þýzka sjóhernum. Umborði þessu 1760 tonna bark- skipi verða sjóliðarnir aö vinna öll þau sömu störf og gerðist hér fyrr á árum, þegar menn sigídu um heimshöfin á seglskipum. En það er samt sem áður ekki eins erfitt að starfa um borð i Gorch Fock og var á gömlu seglskipunum m.a. vegna þess að seglin eru nú úr gerviefnum en ekki segldúk, sem var mörg- um sinnum þyngri og erfiðari i meðförum. Gorch Fock er fyrsta seglskipið i Evrópu, sem búið er seglum úr polyester, en seglin vega ekki nema 600 grömm, hver fermetri, og er þaö þriðjungi minna en væru seglin úr segldúk.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.