Tíminn - 23.08.1975, Qupperneq 6

Tíminn - 23.08.1975, Qupperneq 6
Laugardagur 23. ágúst 1975 TÍMINN ...... .........—....—........ ÞAÐ VAKTI UNDRUN HVE MARGIR TÖLUÐU ÍSLENZKU UM ALLAR JARÐIR ALLT VESTUR TIL KYRRAHAFS — Vilhjdlmur Hjdlmarsson, menntamdlardðherra, segirfrd vesturferð V I ■ ■■ ■ ■/ — Móttökurnar i Winyard i svonefndum Vatnabyggöum i Saskatschewan eru gott dæmi um hve elskulega okkur var tekiö af Vestur-íslendingum. Þar gistu allir á einkaheimiium, en veriö var þar einn dag um kyrrt. Fyrri hluta dagsins skoöuöum viö bæ- inn, eöa þaö sem bændurnir voru aö gera hver hjá sér. Kl. 5 var svo slegið upp stórveizlu i félags- heimilinu, þar sem boröuöu allt aö 200 manns. Sýning Þjóöleik- hússins var á sama staö. Húsiö troöfylltist og sifellt var veriö aö bæta viö iausum stólum. Eftir sýningu var boriö fram kaffi og meöiæti fyrir alla, gesti sem heimamenn. Þannig mæltist Vilhjálmi Hjálmarssyni menntamálaráö- herra i gærdag, nýkomnum heim úr rúmlega þriggja vikna ferö um Kanada og til Bandarikjanna i til- efni 100 ára byggðarafmælis Vestur-lslendinga. Vilhjálmur og kona hans Margrét Þorkelsdóttir voru I fylgd meö 70 manna hóp frá Þjóöleikhúsinu, sem fór vestur, ásamt Sveini Einarssyni þjóö- leikhússtjóra. Gunnar Eyjólfsson var fararstjóri og kynnir á sýn- ingum hópsins og Klemenz Jóns- son var þeim Sveini til aöstoöar. Meö sömu flugvél og þessi hóp- ur fóru og Komu flokkar frá Þjóö- dansafélagi Reykjavikúr og Glimufélaginu, og Lúörasveit Reykjavikur var hópnum sam- tiöa I upphafi ferðar. — Ég held aö þessir hópar allir hafi staöiö sig með ágætum, en kann ekki frá þvi aö ségja i ein- stökum atriöum, sagöi mennta- málaráöherra. — A Islendinga- daginn I Gimli komu þeir allir fram og raunar oftar en einu sinni þá 2—3 daga sem hátiöin stóð yfir. Siöan var haldiö yfir slétturnar um Saskatschewan og Alberta yfir I British Columbia. Sýningar voru i Winyard, Red Deer, Vancouver og Seattle. Auk þess kom Þjóðleikhúskórinn og einstakir leikarar fram á minn- ingarhátiöinni viö hús Stephans G. Stephanssonar og á elliheimil- unum á Gimli, I Selkirk, Winyard, Foam Lake, Blaine og Van- couver. Blaine er á landamærum Kanada og Bandarikjanna og þar kom hópurinn fram I garöi, sem er báöum megin landamæranna, á Islendingamóti, sem haldiö er á ári hverju. I garöi þessum halda hinar Noröurlandaþjóðirnar einnig mót sin. Söngurinn skildist bezt — Þaö er skemmst frá þvi aö segja, sagöi Vilhjálmur Hjálm- arsson, að sýningum Þjóðleik- hússins var fjarskalerga vel tekiö alls staöar. A dagskránni voru kaflar úr fimm leikritum, Jóni Arasyni, tslandsklukkunni, Skugga-Sveini, Pilti og stúlku og Gullna hliöinu, ljóöalestur og mikill söngur. Allt efni var flutt á Islenzku, en kynnt allitarlega á ensku milli þátta. Venjulega lauk sýningum á þvi aö kórinn söng þjóösöngva Kanada og tslands og áhorfendur tóku undir. Söngurinn var ákaflega vinsæll, enda skyldu menn hann kannski allra bezt. En leikritin og dag- skráin i heild vöktu mikla hrifn- ingu hjá löndunum vestra og reyndar hjá enskumælandi fólki lika. Móttökurnar voru alveg frá- bærar. Enginn einn Vestur-ls- lendingur var með okkur allt I gegn, en á hverjum staö tóku menn á móti okkur. A nokkrum stööum gisti allur hópurinn á einkaheimilum, og ekki virtust vera nein vandkvæöi á aö fólk hýsti þó nokkra einstaklinga. Það vakti undrun hve margir töluöu islenzku um allar jaröir allt vestur til Kyrrahafsins. í Gimli söng fjölmennur barnakór mörg lög á Islenzku meö ágætum framburöi okkur til undrunar og ánægju. Þeim, sem aldrei haföi áöur komið til Kanada, varö eftir- minnilegt aö sjá landið, þessi miklu og feikilega frjósömu lönd, brot af vinnubrögöum fólksins i sveitunum og uppbygginguna I borgunum. Borgirnar eru mjög Dagskrá Þjóðleikhússins vakti mikla hrifningu hjá löndunum vestra Vilhjálmur Hjálmarsson ásamt systkinunum Sesselju og Björgvin Sigurfinsbörnum, sem fædd eru á Brekku i Mjóafiröi — á heimili afa Vilhjálms — þar sem foreldrar þeirra voru i vinnumennsku. Þau syst- kinin hittu Vilhjálm á islendingadaginn IGilmi. (Timamynd: GE). vistlegar, dreiföar um stór svæöi og áberandi mikiö af litlum hús- um. Kanadamenn rólegir Viö, sem ekki höföum komiö til Kanada áöur vorum öll sammála um það, aö okkur virtist fólkiö vera rólegt. Kom þaö okkúr nokk- uö á óvart. Þaö virtist ekkert strekkt og trekkt og var ekki stundvisara en viö hér heima. ^ Viö tókum okkur hvfld i 2—3 daga og feröuðumst yfir Kletta- fjöllin og skoöuöum okkur um. Viö gistum tvær nætur I þorpi þar, Salmon Arm, og vorum um kyrrt daginn á milli. Mikla athygli mina vöktu vegirnir þarna, sem voru mjög góöir. En feröin var ekki farin til aö skoöa mannvirki heldur til aö hitta fólk. Það sjálft og fram- koma þess og sérlega elskulegu móttökur verður sennilega það sem lengst geymist i minni. Komur okkar á elliheimilin voru lika eftirminnilegar. Þau eru mjög vistleg og vel búin og viröist vel aö öllum málum þar staöiö. I Blaine er ekki aöeins elli- heimili heldur félagshéimili aldr- aðra, þar sem gamla fólkiö kem- ur saman. Franskur og tók undir á islenzku Alls staöar rifjuðu menn upp hvaöan af tslandi hinn og þessi var ættaður. A einum staö hitti ég hjón sem bæöi voru 95 ára, vel hress og töluðu Islenzku. A elli- heimili vestur viö Kyrrahaf hitt- um viö franskan mann, sem kvæntur var Islenzkri konu og tal- aöi Islenzku og tók vel undir viö kórinn I söngnum. Var okkur sagt aö það væri ekki nóg meö aö hann kynni Islenzku heldur heföu syst- kini hans lært hana lika. 101 árs gömul kona, Jóhanna Sölvason kom og færöi mér bók og plagg, sem hún vildi aö yröi varö veitt hér á tslandi, þar sem hún geröi ekki ráð fyrir aö afkomend- ur sinir heföu áhuga á þeim miklu lengur. Var þaö félagsskirteini fööur hennar I Hinu islenzka bók- menntafélagi undirritaö af Jóni forseta 1872 og fimmtiu ára af- mælisrit Bókmenntafélagsins. Jóhanna hefur keypt og lesiö Timann fram undir þetta og einn er sá maöur hér, sem hún hefur sérstakt dálæti á, en þaö er Ey- steinn Jónsson. Siöasta sýning leikhússins var i Framhald á bls. 13. MEÐ SNAKA í VÖSUNUM JG-Rvkt dag, laugardag, opnar Alfreð Flóki myndlistarsýningu i Bogasal Þjóðminjasafnsins og er það áttunda einkasýning hans i Reykjavik* en hann hefur ávallt sýnt i Bogasalnum. Alfreð Flóki er fæddur i Reykjavik árið 1938 og gekk i Handiða- og myndlistarskólann og siðar stundaöi hann nám i Listaakademiunni i Kaup- mannahöfn (1958-1962) og hefur siöar starfað sem myndiistar- maður hér i Reykjavik og erlendis. Hann hefur dvaljö langdvöl- um i Danmörku og hefur haldið þar margar sjálfstæðar sýning- Alfreð Flóki sýnir að venju teikningar, ennfremur rauö- kritarmyndir og pastel, en hann er einkum kunnur fyrir hinar fyrstnefndu. Aðspurður um sýninguna sagði listamaðurinn m.a. þetta. — Þetta eru mystiskar mynd- ir og sumar, a.m.k. þrjár hafa kostaö mannslif (?) Þær eru flestar nýjar af nálinni, hafa verið gerðar á þessu ári. Ég hefi ávallt verið áhugasamur um hiö dularfulla. Svaf við ljós þar til ég var 17 ára, en þá fór ég til Danmerkur og bjó hjá konu, sem sparaði rafmagn. Hún tók bara öryggin úr á kvöldin og lét þau liggja á náttborðinu sinu á nóttunni, svo ég gæti ekki haft ljós. Siðan hefi ég sofið I myrkri. Það er reyndar skemmtilegra, þvi þá holdgast ýmsar verur og svo getur maöur bara kveikt, ef allt fer úr böndunum. — Hvaöum málverk. Málaröu aldrei máiverk? — Jú. Ég sýni teikningar. Alltaf teikningar, en samt mál- ar enginn maður liklega meira en ég meö oliulitum. — Ég mála stundum 3 tima á dag meö oliulitum, alltaf sömu myndirnar. Þær eru fimm. Allt- af þær sömu og ég held ég klári þær aldrei, en þær eru afskap- lega vandaðar orönar. Mjög vönduð sýningarskrá hefur veriö gefin út i tilefni sýn- ingar Alfreös Flóka. Þar ritar Ólafur Haukur Simonarson um upphaf kynna sinna af Flóka og segir m.a. á þessa leið: „Þáö var i Kaupmannahöfn fyrir um það bil 9 árum.' Ég var úngllngsgrey á flótta undan is- lenzka skólaKerfinu og pyndíngameisturum þess. Al- freð Flóki var lika ósköp sléttur i framan, þótt hann væri þá þeg- ar orðinn kunnur af dráttlist sinni. Ég horföi meö lotningu uppá þetta lánga ofraunsæa skikkelsi, bjóst hálfpartinn við aö snákar skriðu uppúr vösum hans eöa hali dytti skyndilega niður úr buxnaskálminni. En ekkert slikt gerðist og ég fór satt bezt aö segja aö efast stórlega um sambönd þessa lángintesa Alfreð Flóki sýnir í Bogasalnum við önnur sveiflusvæði.” Og aö lokum segir ólafur Haukur á þessa leiö: Siöan þetta bar til tiðinda hef- ur Flóka aukizt kraftur og hnit- miðun, ef hann i dag settist viö hvitan flygil mundi ég spá fyrir um alla kynlega tónleika. Sýning Alfreðs Flóka stendur frá 23. — 31. ágúst aö báðum dögum meðtöldum og verður hún opin frá kl. 14 — 22. Verð myndanna er frá 60.000 kr — 150.000 kr. en ein mynd- anna á sýningunni kostar 200.000 kr.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.