Tíminn - 23.08.1975, Page 16
Laugardagur 23. ágúst 1975
5ÍMI 12234
•HERRA
GARÐURINN
AlDALSTRfETI a
SÍSI'ÓIHJR
SUNDAHÖFN
1
fyrirgóóan ntai
$ KJÖTIÐNAOARSTOÐ SAMBANDSINS
Egypzkir og ísraelskir hershöfðingjar undirrita vopnahlésskilmáia árið 1973 — nýtt og friövænlegra
skeið I uppsiglingu?
r
Deilur Egypta og Israelsmanna:
Nýtt samkomulag
lítur brátt
dagsins Ijós
Reuter-Alexandriu/Jerúsalem.
Bjartsýni gætti i gærkvöldi um,
að nýtt bráðabirgðasamkomulag
milii Egypta og tsraelsmanna um
frið á Sinai-skaga liti brátt
dagsins ljós. Henry Kissinger, er
kom til Alexandriu i gær til
viðræðna við Anwar Sadat
Egyptalandsforseta, kvaðst vera
fremur bjartsýnn á að árangur
náist i samningaumieitununum.
í gærmorgun átti Kissinger
fimm klukkustunda langan fund
með israelskum ráðamönnum i
Jerúsalem. Að fundinum loknum
sagði Yigal Allon utanrikis-
ráðherra, að hann væri nú
vonbetri um árangur en nokkru
sinni fyrr.
Fréttaskýrendur telja, að nú
eigi aðeins eftir að ganga frá
nokkrum smáatriðum i uppkasti
að nýju samkomulagi. Uppkastið
gerir ráð fyrir viðtækum brott-
flutningi israelskra hersveita frá
mikilvægum stöðum á Sinai-
skaga. Á móti kemur svo, að
Egyptar heita þvi að ráðast ekki
gegn Israelsmönnum.
Yitzhak Rabin forsætis-
ráðherra upplýsti i gær, að i
uppkastinu væri gert ráð fyrir
gagnkvæmu viðvörunarkerfi —
þannig að hvorum aðila um sig
bæri að tilkynna hinum um alla
liðsflutninga á Sinai-skaga eða I
námunda við skagann.
Þá er ljóst, að Bandarikjastjórn
hefur beitið fsraelsstjórn bæði
ef nahags- og hernaðaraðstoð ef af
samkomulagi verður. Ennfrem-
ur herma áreiðanlegar heimildir,
að i bigerö sé að gera gagnkvæmt
samkomulag milli Banda-
rikjanna og Israels, þess efnis, að
Bandarikjamenn komi tsraels-
mönnum til hjálpar, ef á þá
verður ráðizt.
Fyrstu aðgerðir hinnar nýju stjórnar
í Bangladesh:
Argentískir skæruliðar
sprengja skip í loft upp
Þjóðarflokknum hefur ekki
vegnað vel að undanförnu. Þess
er skemmst að minnast, að i þing-
kosningunum 1973 beið flokkurinn
mikið afhroð og tapaði einum
þriðja af fyrra fylgi sinu. Og
nýjustu skoðanakannanir benda*
til, að flokkurinn sé enn á niöur-
leið.
Helén sagðist hreinskilnislega
ekki treysta sér til að leggja út' i
enn eina kosningabaráttuna, en
þingkosningar fara fram i Sviþjóð
haustið 1976. Hann tók þó fram,
að hann hefði tekið ákvörðun um
að draga sig i hlé á eigin spýtur,
en ekki gert það vegna þrýstings
frá öðrum flokksmönnum.
Reuter-Buenos Aires. Freygáta,,
sem verið var að smiða fyrir
Argentínuflota I grennd viö
borgina La Plata, varsprengd l
loft upp I gær. Að baki sprengju-
tilræðinu stóðu vinstrisinnaðir
skæruliðar og var tilefnið það, að
liöin eru þrjú ár frá fjölda-
morðum á félögum úr
argentinskum skæruliðasamtök-
um.
Fjöldamoröin eru kennd við
bæinn Trelew i Patagóniu, en
þann 22. ágúst 1972 skutu sjóliðar,
ergættusextán skæruliða, þá alla
til bana. Gerðist þetta i flotastöð I
grennd við Trelew.
Skæruliðar hafa heitið þvi að
minnast fjöldamorðanna með þvi
að vinna skemmdarverk á þess-
um tiltekna degi — 22. ágúst.
Argentiska lögreglan var þvi
viöbúin, að til tiðinda drægi, eins
og reyndar kom á daginn.
Sænsk stjórnmól í deiglunni:
Leiðtogaskipti í
Þjóðarflokknum
Gunnar Helén dregur sig í hlé
NTB-Stokkhólmi. Leiðtogaskipti
eru i vændum i Þjóðarflokknum
sænska. Gunnar Helén, er verið
hefur formaður flokksins um ára-
bil, skýrði frá þvi á fundi með
fréttamönnum fyrr í vikunni, að
hann hygöist draga sig i hlé i
haust.
Helén kvaðst ekki vilja tilnefna
neinn sem eftirmann sinn, þvi að i
þvi efni yrðu flokksmenn að hafa
frjálsar hendur Margt bendir þó
til, að Helén hafi augastað á ein-
hverjum úr hópi yngri leiðtoga
flokksins.
Helén —eflaust orðinn þreyttur
á mótbyr þeim, er flokkurinn
hefur hreppt að undanförnu.
Tveir lög-
reglumenn
féllu á
Korsíku
í bardaga við
aðskilnaðarsinna,
er héldu sex
gíslum föngnum
Reuter-Bastia, Korsiku. A að
gizka fimmtiu aðskilnaðarsinnar
á Korsiku — vel vopnum búnir —
héldu i gær sex gislum föngnum i
vörugeymsluhúsi I bænum Bastia
á Korsiku. Til bardaga kom, er
lögreglumenn, er umkringt höfðu
húsið, lögðu til atlögu. Tveir lög-
reglumcnn féllu og þrir til viðbót-
ar særðust.
Viðureign hermdarverka-
mannanna og lögreglumannanna
stóð nokkurn tima, unz þeir fyrr-
nefndu gáfust upp. Gislarnir voru
allir heilir á húfi, en einn
aðskilnaðarsinna var sagður lifs-
hættulega særður.
SPENNA
I
PORTÚGAL
Reuter-Lissabon. Francisco
Costa Gomes Portúgaisforseti
tók i gær i sinar hendur stjórn
portúgölsku Iögreglunnar.
Valdatakan fór fram, um leið
og andstæðingar Vasco
Goncalvesar forsætisráðherra
úr hópi hermanna og stjórn-
málamanna hittust, til að
leggja á ráðin um myndun
nýrrar stjórnar i Portúgal.
Talsmaður forsetans, sagði,
að hann hefði séð sig knúinn til
að taka þetta skref vegna þess
.ótrygga stjórnmálaástands,
sem nú rikti i Portúgal.
Ræðst gegn spill
ingu og óhófi
Reuter-Dacca. Hin nýja stjórn i
Bangladesh hefur gripið til rót-
tækra ráðstafana I þvi skyni að
koma á meiri strangtrúnaði I
landinu. Þetta fylgir i kjölfar
þeirrar yfirlýsingar, að Bangla-
desh muni i framtiöinni taka upp
nána samvinnu viö Arabarfki og
önnur riki múhameðstrúar-
manna.
Stjórnin hefur aflýst öllum
opinberum móttökum, og bannað
allt prjál, þ.á.m. marglit ljós og
blómaskraut.
I upphafi viröist stjórnin hafa
einbeitt sér að þvi að uppræta
spillingu i landinu meðal
embættismanna og skera niður
rikisútgjöld. Þetta hefur leitt til
þessað verölag á helztu matvæla-
tegundum hefur lækkað — og
áreiðanlegar fréttir herma, að fá-
tæklingar geti fengið ókeypis að
borða.
Annars er ástandið. i Bangla-
desh aö mestu óbreytt. Frétta-
maður Reuter-fréttastofunnar
segir t.d., að hræðileg sjón blasi
við, þegar gengið sé um götur fá-
tækrahverfanna i Dacca. Hvar-
vetna hópist ung börn — sem ekk-
ert séu nema skinn og bein — að
vegfarendum og rétti fram hend-
ur i von um ölmusu. En aðrir
ibúar þessara hverfa séu svo
máttfarnir, að þeir liggi fyrir og
biöi einskis nema dauðans.
Hin nýja stjórn hefur sett sér
það mark að ráða bót á þessu
ömurlega ástandi undir kjörorð-
unum: Þjóðfrelsi, lýðræði,
jöfnuöur og frjálsræði.
Fátækrphverfi I Dacca — ófagrar lýsingar