Tíminn - 26.08.1975, Side 3

Tíminn - 26.08.1975, Side 3
Þriðjudagur 26. ágúst 1975 TIMINN 3 Enn seljast mest notuðu merkin upp FB-Reykjavik. 1 annað sinn á tiltölulega skömmum tima hafa selzt upp hjá Póstinum þau fri- merki, sem mest eru notuð á bréf. Að þessu sinni er það 23 kr. frimerki úr Evrópuseriunni, sem kom út um miðjan mai i vor. Á þessu frimerki er mynd af Kjarvalsmálverki. Verða menn nú að fara að nota fleira en eitt merki á bréf sín til þess að fá burðargjaldsupphæð þá, sem hér um ræðir. Á sömu leið fór i fyrrahaust, en þá kom út 17 kr. frimerki, sem seldist upp áöur en næst kom út frimerki með sama verðgildi, eða reyndar 18 krón- ur, þar sem burðargjöld höfðu hækkað á timabilinu. Sigurþór Ellertsson hjá Pósti og sima sagði, að Kjarvals- merkið hefði verið prentað i 1500 þúsunda upplagi, og væri það svipað og venjulega um merki sem þessi. Hefðu merkin selzt óvenju fljótt, og væru þau nú upp gengin i aðalbirgðastöð Póstsins, en gætu þó vel verið til einhvers staðar annars staðar. Magni Magnússon frimerkja- kaupmaður i Frimerkjamið- stöðinni sagði, að enn væri ekk- ert hægt að segja um það, hvort frimerki þetta hækkaði mikið i verði, þegar það fengist ekki lengur i frimerkjasölum Pósts- ins, en hins vegar væri slæmt, að merki með algengustu burðargjöldunum entust ekki milliútgáfudaga, og fólk yrði aö fara að hlaða merkjum á bréf sin. Sagði hann, að útgáfuyfir- völd frimerkja ættu að vita nokkurn veginn, hversu mikiö magn seldist almennt af fri- merkjum, og þvi ætti að vera hægt að gefa út nægilega mikið hverju sinni. Ný frimerki eru væntanleg 18. september næstkomandi. Merk- in eru i seriunni Merkir Is- lendingar, og á þeim verða myndir af Hallgrimi Péturssyni (18 kr), Arna Magnússyni (23 kr.), Jóni Eirikssyni (30 kr.) og Einari Jónssyni (50 kr.). Þannig lita frímerkin út, sem koma munu á markað- inn 18. september næst kom- andi. NÝ FRÍMERKI VÆNTAN- LEG 18. SEPTEMBER EINARJÖNSSCN 18^1954- Neyddi annan út af vegin- um Gsal-Reykjavik — Fólksbifreiö með fjórum farþegum valt laust eftir klukkan sautján s.l. sunnu- dag á þjóðveginum viðHliðartún i Biskupstungum. Tildrög óhapps- ins voru þau, að ameriskur „kaggi” var að troða sér fram úr fólksbifreiðinni og neyddi bein- linis bilstjórann til þess að aka út af veginum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi hefur ekki enn tekizt að hafa upp á þrjótnum, en farþegarnir i fólksbllnum lýstu „kagganum” þannig, að hann væri brúnn að neöanverðu og ljós að ofanverðu, — og að tveir menn hefðu verið i bilnum. Það eru eindregin tilmæli Selfosslögreglunnar til þeirra, sem kynnu að hafa orðið varir við þennanbilum kl. 17 á sunnudag i Biskupstungum eða nágrenni, að þeir hafi samband við hana sem fyrst. Ein kona i fólksbifreiðinni meiddist, þó ekki alvarlega. Ný læknamiðstöð í Hafnarfirði Hafnarframkvæmdir í Hafnarfirði ö.B. Reykjavik. — Nýlega var tekin I notkun ný læknamiöstöð að Strandgötu 81 Hafnarfirði. Er hér um að ræða aðstöðu fyrir lækna, þ.e. biðstofa, 5 læknastofur, al- menn afgreiðslustofa með sima- þjónustu, aðstaða fyrir læknarit- ara, meinatækni og kaffistofa starfsfólks. Fyrirhugað er siðar að fjölga herbergjum lækna i 6-7, og innrétta aðstöðu fyrir hjúkrunarkonu I rými þvi, sem nú HVER A HESTINN? Gsal-Reykjavik — A sunnudags- kvöld, laust fyrir klukkan hálf ellefu, var ekið á hest á Suður- landsvegi við Ingólfsfjall. Hestur- inn var aflifaður. Ekki hefur lögreglunni tekizt að hafa upp á eiganda hestsins, sem var brúnn að lit og ungur að ár- um, sennilega ekki meira en fjög- urra til fimm vetra gamall. Markið er ógreinilegt, en þó telur lögreglan liklegt, að það geti ver- ið fjöður framan hægra. Þeir sem telja sig eiga hest, sem þessi lýsing getur átt við, eru beðnir að snúa sér til lögreglunn- ar á Selfossi. FB-Reykjavik. 1 nýútkomnu riti Tryggingastofnunar rfkisins, Félagsmálum, er skýrt frá rekstri sjúkrasamlaga og kostn- aöi þeirra vegna samlagsmanna á árunum 1970 til 1972. Þar kemur fram, að fjöldi samlagsmanna 16 ára og eldri var 134.281 árið 1970, en var orðinn 140.257 árið 1972. Aukning frá árinu þar á undan var 2.4%. Kostnaður vegna sam- lagsmanna, þegar landið er tekið allt, voru kr. 9086 árið 1970, en var kominn upp i kr. 15.592 árið 1972. Þegar litið er á skiptingu út- gjalda sjúkrasamlaganna á gjaldaliði, kemur i ljós, að sjúkrahússkostnaður er mestur, eða 63,4%, árið 1970 og 67.2% árið 1972. Lyfjakostnaður er 13.1% ár- er nýtt fyrir heilbrigðisfulltrúa og skólatannlækni. Héraðslæknir i Hafnarfirði er Grimur Jónsson, og tjáði hann blaðinu, að öll að- staða væri hin ákjósanlegasta, og mætti þar nefna aðstoð meina- tæknis, móttöku, kallkerfi og læknaritara. ASK-Akureyri. Siðast liðinn sunnudag fór fram á Akureyri fyrsta torfærukeppnin, sem þar hefur verið haldin. Atta jeppar af ýmsum tegundum tóku þátt i keppninni, en einn þeirra heltist úr hestinni strax I upphafi. I gær gerðist það svo, að fjórir kepp- enda lýstu keppnina ólöglega, og skiluðu þrir þeirra aftur bikurum, sem jieir höföu fengið fyrir 2. 3. og 4. sætið. iö 1970 og er i öðru sæti, en er kominn niður i 10.2% árið 1972 og i þriðja sæti. Læknishjálp er þá I öðru sæti með 10.3%, en var I þriðja sæti árið 1970 með 12%. Skrifstofu- og stjórnarkostnaður hefur lækkað hlutfallslega á þess- um árum, úr 3% árið 1970 i 2.3% árið 1972. Einnig hefur liðurinn ýmis sjúkrakostnaður lækkað úr 4% i 3.8% á sama tíma, en sjúkra- dagpeningar aukast úr 4.5% i 6.2%. Sjúkrahússkostnaður á einstak- ling var 5760 kr. árið 1970, en var kominn I 10.484 kr. árið 1972 og hafði hækkað um 40.5% frá árinu á undan. Dagpeningar. höfðu hækkað mest milli ára úr 480 kr. I 966 kr. eöa 101.3% frá 1971 til 1972. Ö.B. Reykjavik. — Unnið hefur veriö að hafnarframkvæmdum I Hafnarfirði siöan i ársbyrjun þessa árs. Þarna er um að ræða fiskiskipabryggju i suðurhöfn- inni, en þar er áformað að aðal- fiskvinnslusvæðið I Hafnarfirði Það var Bilaklúbbur Akureyr- ar, sem stóð fyrir þessari nýjung, og sögðu forráðamenn hans, að úrslit hefðu aðallega ráðizt af hæfni ökumanns, en alls ekki hraða bifreiðarinnar I torfærun- um. Steindór Steindórsson varð I fyrsta sæti, en hann ók Jeepster, árgerö ’67, með sex strokka 162 hestafla vél. Steindór Steindórsson með sigurverölaunin. Nú hafa aðrir bikarhafar skilað sin- um bikurum aftur, og segja þeir að keppnin hafi verið ólögleg og dómar vilhallir. Tímamynd: ASK. verði I framtiðinni. Lengd viö- legukants bryggjunnar er sam- tals um 285 m. Nú fyrir skömmu var lokið við aö ramma niður stálþilið, ganga frá stálþilsfestingum og fylla upp i innan þils. Framkvæmdir hafa FB-Reykjavik. Siðdegis i dag, þriðjudag, fara 34 garöyrkju- menn i hópferð til Noregs og Dan- merkur til þess að kynnast þar ræktunarmenningu og nýjungum á sviði garðyrkjunnar. Þátt- takendur i þessari ferö eru jöfn- um höndum gróðurhúsabændur, grænmetis- og blómaræktendur, að sögn Þórðar Snæbjörnssonar, fréttaritara Timans I Hveragerði, sem veröur með i förinni. Þórður sagði, að garöyrkjumennirnir væru úr Hrunamannahreppi, Biskupstungum, Hveragerði, Mosfellssveit og Borgarfirði, en fararstjórar eru Grétar Unn- steinsson, skólastjóri Garðyrkju- skóla rikisins og óli Valur Hans- son garðyrkjuráðunautur. Oft hefur verið rætt um það meðal garðyrkjumanna, að gagn- legt og skemmtilegt gæti verið að efna til hópferðar til einhverra ná grannalandanna til þess að kynnast þeirra ræktunar- menningu og nýjungum á garöyrkjusviðinu. Einstaka garðyrkjumenn munu hafa farið slikar feröir, og einhverjar feröir munu hafa verið farnar hér áður fyrr, en þá var aðeins um fá- menna hópa að ræða. Fyrir nokkru var ákveðið að kanna, hvort garðyrkjumenn hefðu áhuga á að fara slika ferð nú um mánaðamótin ágúst/ september, og urðu undirtektir strax hinar beztu. Fyrirspurnir voru að berast fram á siðustu stundu, og komust ekki allir með sem vildu, en þátttakendur eru 34, eins og fyrr segir. Er greini- legt af þessu, að garðyrkjumenn hafa mikinn áhuga á að kynnast þvi, sem er að gerast á sviði verið stöðvaöar I bili, vegna niöurskurðar á fjárlögum, en gert erráð fyrir að hægt verði að hefja framkvæmdir að nýju snemma á næsta ári og ljúka þeim þá. Kostnaður við framkvæmdir þessar eru áætlaðar um 115 millj. kr. Þá er i byggingu hafnarvogar- hús, sem lokið mun verða við i næstu viku, en kostnaður viö vog- ina og húsið er um 8 millj. króna. garðyrkjunnar i nágrannalönd- unum. Reikna þvi garöyrkju- menn með þvi, aö grundvöllur sé fyrirferö semþessari á hverju ári á vegum félagasamtaka garðyrkjumanna og/eða Garðyrkjuskólans i Hverageröi. Fyrsta undirbúning að ferðinni önnuðust þeir Grétar Unnsteins- son og Öli Valur Hansson, sem einnig eru fararstjórar, auk for- manna nokkurra garðyrkju- bændafélaga, en siðan sá Valgarð Runólfsson, umboðsmaöur Flug- leiða I Hveragerði, um alla nánari framkvæmd og fyrirgreiðslu. 1 Noregi veröa heimsóttar nokkrar garöyrkjustöðvar, og einnig komið i Landbúnaðarhá- skólann i Asi. Þá verður farið á mikla garðyrkjusýningu, sem haldin er um þessar mundir á Friðriksbergi. t Danmörku verður skoðuð rannsóknastöö á Virum og ýmsar einkagarðyrkjustöðvar, auk þess sem farið verður I þriggja daga ferð til Odense. Þar verður Gas Odense stöðin skoðuð, en það er stærsta sölumiöstöð garðyrkjuaf- urða i Danmörku. Heim koma garðyrkjubændurnir aftur laugardaginn 6. september. Langur sáttafundur SJ-ReykjavIk. Sáttafundur i far- mannadeilunni, sem hófst kl. hálf tvö i gær stóð enn kl. 23 i gær- kvöldi, þegar blaðið fór i prentun. Fundarmenn vildu þá engar upp- lýsingar gefa um þróun mála. Sjúkrahijsskostnaður tæp 70% af útgjöldum sjúkrasamlaganna Skiluðu bikurun- um aftur og lýsa keppni ólöglega 34 garðyrkjubændur í kynnisför til Nor- egs og Danmerkur

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.