Tíminn - 03.09.1975, Síða 13
Miðvikudagur 3. september 1975.
TÍMINN
13
Stella með iþróttatreflana (Tima-
mynd: Róbert).
Iþróttatreflar
einstæðu
foreldranna
seljast vel
FB-Reykjavik Þegar Islandsmót-
ið i knattspyrnu hófst á siðasta
vori var tekin upp sú nýbreytni að
selja sérstaka iþróttatrefla i lit-
um hinna einstöku liöa i hverjum
leik. Það var Félag einstæðra for-
eldra, sem stóð fyrir þessari sölu,
og hefur hún gengið miklu betur,
en flestir þorðu að vona. t súmar
hafa sennilega ekki selzt færri en
fjögur hundruö treflar, sagði
Stella Jóhannsdóttir formaður
fjáröflunarnefndar félagsins, og
nú fer handknattleiksvertiðin að
hefjast, og þá verður haldið á-
fram að selja grimmt.
Hugmyndin að þessari trefla-
sölu er fengin að láni frá Bret-
landi, en þar kaupa áhugamenn
um iþróttir ýmislegt, sem gefur
til kynna, hvaða liði þeir fylgja.
Er þetta siðan notað til þess að
hvetja liðin áfram i leikjum.
— Við byrjuðum á treflasölunni
með leik IA og KR 17. mai i vor,
og siðustu leikirnir voru nú um
helgina, sagði Stella. — Nú bætast
nokkuð lið viö, þegar handboltinn
hefst, og önnur falla út, svo salan
heldur áfram. Við fengum i upp-
hafi prufur að litum iþróttafélag-
anna hjá Halldóri Einarssyni,
sem sér um að sauma alla bún-
inga hér, og siðan var rétti garn-
liturinn fenginn. Nú gengur þetta
allt mjög fljótt og auðveldlega
fyrir sig, enda höfum við mjög
góða konu, sem sér um að prjóna
teflana.
Jóhanna Kristjónsdóttir for-
maður FEF sagði, að mest hefði
selzt af treflum fyrir Akranesliðið
og Viking, en einna dræmust hefði
salan verið á KR-teflunum. Þó
fór hún heldur að glæðast undir
lokin. — Fólk bar þvi lika við i
byrjun, sagði Jóhanna, — að það
þyrfti ekki á treflum að halda þvi
það væri ekki svo kalt, en nú er
greinilegt, að iþróttaáhugafólkið
er farið að gera sér grein fyrir, að
trefillinn er ekki einungis til þess
að skýla þvi sjálfu fyrir kulda,
heldur miklu fremur til þess að
hvetja liðið þess áfram i leiknum.
Nú eru menn tilbúnir með 1000
króna seðilinn, þegar þeir sjá
sölufólkið með treflapokana nálg-
ast.
Hver veit nema kuldinn i vetur
verði góður liðsmaður treflasal-
anna, þrátt fyrir allt, þvi þá geta
þeir sem þá kaupa líka notað þá
til þess að hlýja sér með þegar
þeir koma út i frost og storm eftir
ánægjulega handboltaleiki.
Sýning Sigfúsar í
Borgarnesi vel sótt
JE—Borgarnesi — Sigfús Hall-
dórsson tónskáld og listmálari
sýnir um þessar mundir 30 vatns-
litamyndir i Gangfræðaskólanum
I Borgarnesi. Sýningin var opnuð
laugardaginn 30. ágúst og ávarp-
aði þá Ásgeir Pétursson sýslu-
maður listamanninn. Sýningin
var opnuö laugardaginn 30. ágúst
og ávarpaði þá Asgeir Pétursson
sýslumaður listamanninn. Sýn-
ingin er opin til sunnudagsins 7.
september.
Sýningin hefur verið mjög vel
sótt. Myndirnar eru allar frá
Borgarnesi og af sömu stærö.
Gömul hús og grónir klettar hafa
vakiö mestan áhuga listamanns-
ins. Borgnesingar virðast hafa
Orgelskóli
ánægju af aö sjá umhverfi sitt
sett á papplr af hagleik og list-
fengi, þvl eins og fyrr segir hefur
sýningin verið vel sótt, og margar
myndanna selzt.
Sýningargestir heyrðust hafa
orð á þvl, að myndirnar kenndu
fólki enn betur aö meta umhverfi
sitt, og jafnframt væru þær
hvatning I þá átt aö með varúð
skyldi gengið til verka við mann-
virkjagerð, svo fagurt umhverfi
spillist ekki.
Vinir Sigfúsar Halldórssonar
hafa tekið á leigu húsnæði I Borg-
arnesi, I þeim tilgangi aö efna til
afmælistónleika til heiðurs Sig-
fúsi, sem einmitt á merkisafmæli
um þessar mundir. Nánar verður
skýrt frá tónleikunum slöar.
Yamaha
tekur til starfa
JAPONSKU hljóðfæraverksmiðj-
urnar, sem starfað hafa I meira
en eina öld, hafa undanfarin ár
látið fara fram mjög umfangs-
miklar rannsóknir til að byggja
upp kennslukerfi fyrir byr jendur i
alls konar hljóðfæraleik til að
auðvelda þeim námið.
Nú hafa íslendingar fengið
þjálfun I aö kenna samkvæmt
þessu kennslukerfi. t byrjun
næstu viku hefjast fyrstu þriggja
mánaða námskeiðin undir nafn-
inu ORGELSKÓLI YAMAHA.
Þessi námskeið eru fyrir byrj-
endur I orgelleik og eru þau fyrir
nemendur á öllum aldri.
Orgelskóli YAMAHA starfar I
sjö manna hópum, sem æfa sam-
an og læra saman og auðvelda
þar með námið. Hver nemandi
hefur sitt eigið rafmagnsorgel,
sem hann leikur á strax I fyrstu
kennslustundinni. Og eftir þrjá
mánuði er hann farinn að leika
sjálfstætt fyrir sjálfan sig, fyrir
fjölskyldu slna og vini. Og að fá-
um mánuðum liðnum getur hann
stofnað heimahljómsyeit með
fjölskyldunni eða vinum, sem
leika á eitthvert hljóöfæri, gltar,
flautu, klarinett o.s.frv.
Orgelskóli YAMAHA er að
hefja starfsemi slna þessa dag-
ana. Allar upplýsingar um skól-
ann fást I Hljóðfæraverzlun Poul
Bernburg aö Vitastig 10. Þar fer
innritun fram fyrir fyrstu þriggja
mánaöa námskeiðin, sem munu
standa fram að jólum.
Nokkrir nemendur við orgelnámib,
Útgerðarmenn —
síldarsöltun
Kaupum sild til söltunar i Þorlákshöfn.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Meitils-
ins, simi 99-3700.
Söltunarstöðin Borgir h/f og Meitillinn
h/f.
Jörð til sölu
Jörðin Melar i Svarfaðardal, er til sölu.
Tún 23 ha, heyfengur um 1200 hestburðir.
íbúðarhús og útihús i góðu ástandi.
A jörðinni er einkarafmagnsvatnsaflsstöð til hitunar og
súgþurrkunar og rafmagnsveiturafmagn til ljósa og suðu.
Ahöfn og vélakostur getur fylgt.
Nánari upplýsingar gefur Halldór Hallgrimsson, Melum,
simi um Dalvik, og Jónas Hallgrimsson Dalvik f sima
61122 eða 61116.
HAGLA-
BYSSUR
Rifflar
Riffilsjónaukar
Skot og
hlífðarföt
NY VERZLUN
1/tRóm
HÚSGÖGN
glœsilega verzlun að Grensásvegi 7
hefur opnað
Skrifborð, ný hönnun.
Skrifborðsstólar, landsins bezta úrval og þjónusta.
Hvíldarstólar, nýjar gerðir.
Eldhússtólar, margir litir og gerðir
Eldhúsborð, margir litir og gerðir.
Stólar í veitingahús, margir litir og gerðir.
Barnastólar
Vinnustólar og fl.
Framleiðandi Stáliðjan h.f.
Simi 86511.