Tíminn - 19.09.1975, Page 13
Föstudagur 19. september 1975.
TÍMINN
13
Ræktun.
Þaö er fagurt og máttugt orð.
Heimsbyggðin lifir fyrir hennar
náð. Þá er fréttist um uppskeru-
brest, fylgja þvi jafnan fréttir
um hungursneyð og vandræði.
A íslandi mun eitthvað hafa
verið stunduð akuryrkja i forn-
öld, að þvi talið er, samkvæmt
gömlum heimildum og ein-
hverjum minjum. En aldir liðu,
án þess nokkuð að ráði væri
ræktað hér á landi. Mesta rækt-
un á Islandi, bæði fyrr og siðar,
hefur verið grasrækt, til þess að
afla fóðurs handa búpeningi, og
svo er enn.
Á siðari árum hefur verið
stunduð skógrækt á nokkrum
stöðum á landinu. Geta má
þess, að nú eru ræktaðar mat-
jurtir að nokkrum mun, einkum
þar sem heitt vatn er i jörðu.
Minnast má þess, að fremur
gekk seint að fá menn til þess að
rækta kartöflur hér á landi.
Ræktun búpenings hefur verið
stunduð nokkuð lengi, og mun
það einkum hafa aukizt við
stofnun búnaðarskólanna. Nú er
jafnvel stunduð fiskirækt á Is-
landi, bæði silungur og lax alinn
upp i eldisstöðvum.og rætt mun
vera um að rækta fleiri fiskteg-
undir.
Ég hef lauslega drepið á ýmsa
ræktun, sem stunduð er hér á
landi.. Verið getur, að til séu
fleiri tegundir ræktúnar á land-
inu, en ég man ekki eftir þvi nú
að þessu sinni. Þá getur og
verið, að einhver nauðsynleg
ræktun sé ekki stunduð hér á
landi sem skyldi, hún sé van-
rækt. Góðfús lesandi vildi
kannski geta þess hér, það er að
segja, ef einhver les þetta
spjall.
Kalli.
Dagur dýranna
AMGLYSIÐ
I TIMANUM
HRÆRIVÉLIN KM 32
Léttir eldhússtörfin og
eykur heimilisánægjuna
Mcð 400 watta motor — 2 skál-
um —þeytara og hnoðara. Fjöl-
breytt úrval auka- og hjálpar-
tækja fáanlegt.
Verð um kr. 31.450.-.
Eigin ábyrgðar — viögerðar og
varahlutaþjónusta.
„Leiðin að hjarta mannsins
liggur um Braun hrærivélina”,
segja danskar húsmæður.
Braun umboðið: Simi sölum. 1-
87-85.
RAFTÆKJAVERZLUN ISLANDS HF.
Ægisgötu 7 — Sími 17975/76
Leiðrétting
1 blaðinu á þriöjudag var villa
varðandi hverjir hefðu réttindi til
að sjá um söltun slldar um borð I
veiðiskipum nú á vertlðinni við
Suðurland. Réttindi hafa síldar-
matsmenn og þeir, sem sóttu
námskeið I Hafnarfirði I siöustu
viku og hafa unnið a.m.k. tvær
vertiðir við sildarsöltun. Hlutað-
eigendur eru beðnir velvirðingar
á þessum mistökum.
A SUNNUDAGINN kemur, 21.
september, er dagur dýranna.
Hann hefur verið haldinn nú I
nokkur ár til fjáröflunar fyrir
dýravernd á Islandi.
Merki verða seld i Reykjavík og
viða úti á landi, og er það von
stjórnar Sambands dýravemd-
unarfélaga Islands, að sem flestir
sjái sér fært að styðja málefniö
með þvl að kaupa merki, en þaö
kostar ekki nema 50 krónur.
Þótt einn dagur sé valinn sem
baráttu- og fjáröflunardagur I
þessu skyni, þýðir það ekki,- að
alla aðra daga ársins megum við
gleyma dýrunum. Stjórn S.D.Í.
vill eindregið beina þvi til lands-
manna I sveit og borg, að þeir láti
hvergi viðgangast misrétti á dýr-
um, smáum eða stórum, tömdum
eða villtum, þarfadýrum eða
gæludýrum. Betur sjá augu en
auga, og þótt forðagæzlumenn
séu skipaðir I hverri sveit og
dýraverndunarfélög starfandi i
nokkrum kaupstöðum, eru það
ekki aðeins þeir aðilar, sem eiga
að gæta að velferð dýranna, held-
ur ALLIR. Það er sjálfsögð
skylda hvers einasta vitiborins
manns að vaka yfir velferð dýr-
anna og vernda þau fyrir harð-
Tímaritum lífsambönd við
aðrar stjörnur. Kemur út 5
sinnum á þessu ári.
Áskriftarverð kr. 500,00.
Gerist áskrifendur.
útgefandi Félag Nýals-
sinna, pósthólf 1159,
Reykjavík.
Einnig er tekið á móti
áskriftum í simum 4-10-06
og 40-765.
ýðgi þeirra manna, sem finnast I
hverju þjóðfélagi og nlðast á dýr-
um á einn eða annan hátt, ýmist
vegna fégræðgi, fákunnáttu,
kæruleysis eða mannvonzku, og
geta þvf ekki flokkazt undir viti-
borna menn,
ÐEEE VINRUDE
UTANBORÐS-
mótorar
13 STÆRÐIR
2-135 hestöfl
DÓRh
SÍMI Sn500-ÁFIlVlLlLAm
Hey til sölu
Upplýsingar fást hjá Tryggva Jónatans-
syni Litla-Hamri, Eyjafirði. (Simi um
Munkaþverá).
Tilboð óskast í
nokkrar fólksbifreiðar
er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðju-
daginn 23. september kl. 12-3. Tilboðin
verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 15.
Sala Varnarliðseigna.
Barnaflokkar - Ungllngaflokkar - Flokkar fyrlr fullorðna
einstaklinga - Flokkar fyrir hjón - Byrjendur og framhald
onnssHðu
Innritun daglega fró kl. 10-12 og 1-7
REYKJAVÍK:
Símar 2-03-45 og 2-49-59
BREIÐHOLT:
Kennt verður í nýju
húsnæði að
Drafnarfelli 4 -
Sími 7-44-44
KÓPAVOGUR:
Sími 8-48-29
HAFNARFJÖRÐUR:
Sími 8-48-29
SELTJARNARNES:
Sími 8-48-29
KEFLAVÍK:
Tjarnarlundur— Sími 1690
kl. 5-7
UNGLINGAR!
Allir nýjustu táningadansarnir— svo sem:
Hustler, Bump (Boom), Kung Fu, El Bimbo, Brazilian
Carneval, Harlem og margir fleiri
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS