Tíminn - 25.09.1975, Page 12
12
TÍMTNN
Fimmtudagur 25. september 1975
LÖGREGLUHA TARINN
24 Ed McBaÍn Þýðandi Haraldur Blöndal
^ ------ ---
nýlega leigt íbúðeða herbergi manni nokkrum, Ijóshærð-
um, hávöxnum og með heyrnartæki.
— Já, svaraði konan.
Þetta var góð byrjun. Haws var þrautreyndur leyni-
lögreglumaður. Honum skildist strax, að hið jákvæða
svar frúarinnar var gífurlega góð byrjun.
— Hverjum? Veiztu hvað hann heitir? spurði Haws að
bragði.
— Já.
— Hvað heitir hann?
— Orecchio. AAort Orecchio.
Haws tók f ram dulitla skrif kompu og fór að skrifa nið-
ur athugasemdir. — Orecchio, sagði hann. — AAort.
Veiztu hvort hann hét AAorton, AAortimer eða hvað?
— Bara AAort, savaraði konan. AAort Orecchio. Hann
var hálfítalskur.
— Hvernig veiztu það?
— Oll nöfn sem enda á Oeru hátfítölsk.
— Heldur þú það? Hvað með nafns eins og Shapiro?
spurði Haws.
— Ertu að reyna að gera þig merkiiegan, sagði konan.
— Hvað með þennan Orecchio, hvaða íbúð leigðir þú
honum?
— Ég leigði honum herbergi, ekki íbúð. Það er á þriðju
hæð, sagði konan.
— Snýr það að Philharmonic-byggingunni?
— Já.
— AAá ég líta á herbergið?
— Auðvitað. Því ekki það? Ég hef ekkert betra að gera
en að sýna lögreglumönnum herbergi.
Þau gengu upp stigann. Kalt var í ganginum og loftið
saggasamt. Gluggarnir voru frosnir. I stigaganginum
blandaðist saman fnykur af rusli og þvagi. Þetta var
sannarlega hreinlegur húseigandi. Konan kvartaði há-
stöfum undan gigtinni alla leið upp stigann. Hún sagði
Haws, að coryisone kæmi ekki að neinu gagni. Allir þessir
hábölvuðu skottulæknar gæfu sér loforð um bata, en
sársaukinn og kvalirnar væru við það sama. Hún nam
staðar utan við dyr, sem merktar voru með bronsstöf um
31. Konan veiddi lykil upp úr svuntuvasa sínum. Innar í
ganginum opnuðust dyr í ofurlitla rifu, og lokuðust svo
strax aftur.
— Hver var þetta? spurði Haws.
— Hver er hver? spurði konan.
— Þarna í dyrunum innar í ganginum. Þær opnuðust
sem snöggvast, en var lokað strax aftur.
— Það hlýtur að hafa verið Polly, sagði konan, og
opnaði um leið dyrnar að herbergi númer 31.
Herbergið var bæði lítið og heldur vesældarlegt. Við
vegginn andspænis dyrunum var svolítið rúm. Yfir það
var breitt lélegt rúmteppi. Innrömmuð eftirprentun
hékk yf ir rúminu. Á myndinni sást sögunarmylla, vatns-
mikil á og fjárhundur, sem góndi á eitthvað uppi í
skýjunum. Gólflampi á háum stöpli var hægra
megin við rúmið. Gluggatjöldin voru gul og blettótt.
Viskíblettur eða gubbublettur var í horninu á rúm-
ábreiðunni, þar sem hún var dregin yfir koddana. And-
spænis rúminu var kommóða og yfir henni spegill. 011
var kommóðan alsett brunablettum eftir sígarettur.
Spegillinn var kámugur og tekið að flagna af honum.
Vaskurinn við kommóðuna var tekinn að ryðga mjög
kringum niðurfallið.
— Hversu lengi bjó hann hér? spurði Hawa.
— Hann leigði herbergið fyrir þemur dögum.
— Borgaði hann með ávísun eða í reiðufé?
— Hann borgaði fyrirfram og í reiðufé. Borgaði heila
viku. Ég leigi ekki skemur en eina viku í senn. AAér er
illa við einnarnætur fólk.
— Auðvitað, sagði Haws.
— Ég veit hvað þú ert að hugsa. Þú ert að hugsa með þér,
að þetta sé ekki svo sérstakur staður, að ég hafi efni á
því að vera vandlát. Það getur svo sem vel verið, að hér
séekki neittsérstakt, en hér er þó HREINT.
— Jjá, ég sé það.
— Ég á við, að hér eru ENGAR PÖDDUR, karl minn.
Haws kinkaði kolli og gekk út að glugganum. Glugga-
tjöldin voru slitin og dráttarsnúruna vantaði. Haws lyfti i
því gluggatjöldunum og leit yfir götuna.
— Heyrðir þú nokkur skothljóð í gærkvöld?
— Nei.
Haws leit á gólfiið. Hvergi fann hann kassa undan
skothylkjum. — Hverjir búa hér fleiri á hæðinni?
— Polly býr innar á ganginum. Aðrir ekki.
— Hvaða Polly?
— AAalloy.
— Er þér sama þótt ég kíki aðeins í kommóðuna og
skápinn?
— Gerðu svo vel. Ég hef alla eilífðina framundan. Ég
FIMMTUDAGUR
25. september
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir ki. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Baldur Pálmason les
söguna „Siggi fer i sveit”
eftir Guðrúnu Sveinsdóttur
(4). Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög milli atriða. Við sjó-
inn kl. 10.25: Ingólfur
Stefánsson ræðir við Ingvar
Pálmason skipstjóra um
sjávarútveg fyrr og siðar,
siðari þáttur. Morguntón-
leikarkl. 11.00: AdrianRuiz
leikur á pianó Svitu i d-moll
op. 91 eftir Joachim
Raff/Félagar i Vinaroktett-
inum leika Kvintett i c-moll
fyrir pianó og strengja-
hljóðfæri eftir Alexander
Borodin.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 A frivaktinni Margrét
> Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan :
„Dagbók Þeódórakis”
Málfriður Einarsdóttir
þýddi. Nanna ólafsdóttir les
(17). Einnig les Ingibjörg
Stephensen ljóð eftir
Þeódórakis og flutt er tón-
list eftir hann.
15.00 M iðdc gis tónleikar.
Lamoureux hljómsveitin
leikur „Stúlkuna frá Arles”,
hljómsveitarsvitu nr. 1 eftir
Bizet, Antal Dorati stjórnar.
Beaux Arts trióið leikur
Pianótrió i e-moll op. 90
„Dumky ”-trióið eftir
Dvorák.Montserrat Caballé
syngur ariur Ur óperum eft-
ir Puccini. Sinfóniuhljóm-
sveit LundUna leikur með,
Charles Mckerras stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.40 Litli barnatfminn Soffia
Jakobsdóttir sér um tím-
ann.
17.00 Tónleikar.
17.30 Mannlif i mótun.
Sæmundur G. Jóhannesson
ritstjóri rekur endurminn-
ingar sinar frá uppvaxtar-
árum i Miðfirði (3).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 „tslendingar eru allir af
konungakyni” Inga Huld
Hákonardóttir ræðir við
Birgitte Ólafsson, danska
hUsmóður á Islandi.
20.05 Gestur í útvarpssal.
Michael Ponti leikur á píanó
verk eftir Franz Liszt.
20.30 Leikrit: „Ef ekki I vöku
þá I draumi” eftir Ásu Sól-
veigu. Leikstjóri: Brynja
Benediktsdóttir. Persónur
og leikendur: Ella: GuðrUn
Ásmundsdó.ttir, Asta:
Sigriður Þorvaldsdóttir, SU
nýflutta: Kristbjörg Kjeld,
Krakki: Þóra Eldon Jóns-
son.
21.20 Þættir úr ballettinum
„Spartacus” eftir Aram
Katsjatúrian Stanley Black
stjórnar hljómsveitinni,
sem leikur.
21.45 Ljóðalestur. Helgi J.
Halldórsson les nokkrar
þýðingar sinar á ljóðum eft-
ir Tove Ditlevsen.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Rúbrúk” eftir Paul
Vad Úlfur Hjörvar les þýð-
ingu sina (20).
22.35 Létt músik á siðkvöldi.
Edith Butler og Pat Hervey
syngja. Lou Hooper leikur á
pianó.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
AUGLÝSIÐ
í TÍAAANUAA