Tíminn - 21.10.1975, Side 15
Þriðjudagur 21. október 1975
TtMINN
15
HAUKAR SKUTU ISLANDS-
MEISTARANA í BÓLAKAF
Frábær vörn og góð markvarzla Gunnars færðu Haukum sigur. Haukar voru allán
tímann sterkari aðilinn og sigruðu Víking með 8 marka mun, 22:14
islandsmeistarar Vlkings voru
skotnir á bólakaf af Haukum, sem
næstum ótrufiaðir gátu leikið all-
ar sinar listir — gegn ráðvilltum
islandsmeisturum, sem gátu
aidrei slegið frá sér. Haukar iéku
mjög vel — hafa sjaldan leikið
betur. — Þeir léku sér að Vfking-
um eins og köttur að mús — og
uppskáru eftir þvi stórsigur 22:14.
Varnarleikur Haukanna var einn-
ig mjög vel skipulagður. Leik-
skipulag Vikingsliðsins brást
algjörlega vegna geysisterks
varnarleiks Hauka.
Gunnar Einarsson átti snilldar-
leik I marki Haukanna, hann var I
essinu sínu fyrir aftan hinn sterka
varnarvegg Hauka. Haukar léku
af öryggi og skynsemi og gáfu
aldrei eftir. Hörður Sigmarsson
og Elias Jónasson voru aðal-
mennirnir i leikskipulagi Hafnar-
fjarðarliðsins. Vikingar reyndu
að taka þá báða úr umferð um
tlma. — Það heppnaðist ekki, þvi
að Haukar áttu sterkt tromp i
bakhöndinni — linuspilið.
Haukarnir komu skemmtilega á
óvart gegn íslandsmeisturunum.
I leik þeirra sameinaðist hraði,
ákveðni, góð langskot, linuspil,
úthald, góð vörn og markvarzla —
sem sé allt sem prýtt getur gott
handknattleikslið. Það verður
gaman að fylgjast með „spútnik-
liði” Hauka i vetur — liðinu sem
hefur engan þjálfara!
Hörður Sigmarsson lék vel —
skoraði 6 mörk, en annars skipt-
ust mörk Haukanna þannig:
Elias 5, Jón 3, Ólafur 2, Guð-
mundur 2, Svavar, Sigurgeir,
Arnór og Ingimar eitt hver.
Þeir voru sem niðurbrotnir
menn, Islandsmeistararnir, þeg-
ar þeir yfirgáfu völlinn — enda
örugglega erfitt að kyngja þessu
stóra tapi. Mörk liðsins skoruðu
Páll 4 (1 viti), Viggó 3, Skarphéð-
inn 3, Magnús, Þorbergur, Stefán
og Erlendur eitt hver.
,Éq vissi qð Hörður
myndi ekkl breqðast'
— sagði Ragnar Gunnarsson, eftir að
Hörður hafði skorað jöfnunarmark
(12:12) Armanns gegn Fram úr vítakasti
á síðustu stundu
— Það er alltaf gott að hafa gamlar og reyndar kempur I sinum herbúð-
um, sem hægt er að treysta á. — Ég vissi, að Hörður myndi ekki bregð-
ast á örlagastundu, sagði Ragnar Gunnarsson, hinn snjalli markvörður
Ármanns, eftir að Hörður Kristinsson, sem lék að nýju með Ármanns-
liðinu, hafði jafnað (12:12) fyrir Ármann gegn Fram úr vitakasti, rétt
áður en leiktimanum lauk. — Ég er óánægður með úrslitin. Eftir að
hafa komizt 6 mörk yfir (8:2) i siðari hálfleik áttum við að hafa sigur-
inn i hendi okkar. Jafntefli var ósigur fyrir okkur, sagði Ingólfur
Óskarsson, þjálfari Fram, eftir leikinn.
Armenningar máttu kallást heppnir að tryggja sér jafntefli — ótima-
bært skot eins Fram-arans rétt fyrir leikslok, kostaði Fram sigur. Ar-
menningar náðu hraðaupphlaupi og Stefán Hafstein fiskaði vitakast,
sem Hörður skoraði örugglega úr og jafnaði 12:12.
Fram-liðið var ekki nógu sannfærandi I leiknum. — Leikmenn liðsins
gerðu sig seka um ljót mistök og þeir létu siðan skapið hlaupa með sig i
gönur. Mörk liðsins skoruðu þeir: Pétur 3, Hannes 3, Arnar 2, Gústaf 2,
Pálmi og Sigurbergur, eitt hvor.
Ragnar Gunnarsson, markvörður, var beztur hjá Ármannsliðinu,
sem lék án þeirra Vilbergs Sigtryggssonar og Björns Jóhannssonar —
meiddir. Þá var Pétur Ingólfsson liflegur og sömuleiðis Jens Jensson.
Mörk Ármanns skoruðu: Jens 4, Hörður K. 3 (2 viti), Gunnar 2, Pétur 2
og Stefán, eitt.
Gróttumenn
voru auðveld-
ir viðfangs
— fyrir bikarmeistara FH, sem
sigruðu léttilega 25:18
VIÐAR SÍMONARSON, einvald-
ur og landsliðsþjálfari I hand-
knattleik, lék aðalhlutverkið hjá
FH-liðinu, sem átti ekki I erfið-
leikum með Gróttu-liðið. Viðar
skoraði 8 mörk og hann var pott-
urinn og pannan I leik Hafnar-
fjarðarliðsins. Þá átti Geir Hall-
steinsson góða spretti — ógnaði
stöðugt.
Annars var leikurinn mjög
daufur og litið spennandi fyrir
áhorfendur. Gróttumenn stóðu i
FH-ingum til að byrja með, en
siðan náðu FH-ingar tökum á
leiknum og sigruðu örugglega
25:18. Eins og fyrr segir, þá var
Viðar drýgstur við að skora fyrir
FH-liðið, eða 8 (4 viti) mörk,
Þórarinn 6 (1 viti), Geir 5 (1 viti),
Kristján og Guðmundur Árni tvö
hvor.
Atli Þór Héðinsson, knatt-
spyrnukappi úr KR, skoraði flest
mörk Gróttu, eða 5. Hin mörkin
skoruðu þeir Björn 4 (3 viti),
Arni 2, Axel 2, Magnús 2, Halldór,.
Hörður Már og Kristmundur, eitt
hvor.
STAÐAN
Órslit leikja i 1. deildarkcppn-
inni um helgina:
Haukar — Vikingur......22:14
FH —Grótta.............25:18
Valur — Þróttur........20:10
Ármann—Fram............12:12
Staðan er nú þessi I 1. deildar-
keppninni:
Valur............2 2 0 0 44:26 4
Haukar.......... 1 1 0 0 22:14 2
FH.............. 1 1 0 0 25:18 2
Vlkingur.........2 1 0 1 39:36 2
Fram.............1 0 1 0 12:12 1
Ármann...........2 0 1 1 26:37 1
Þróttur......... 1 0 0 1 10:20 0
Grótta...........2 0 0 2 34:49 0
BJARNI JÓNSSON....sést hér skora eitt af mörkunum sinum 5 gegn sinum gömlu félogum.
(Timamynd Róbert).
Harður vetur fram
undan hjá Þrótti
Valsmenn áttu ekki í erfiðleikum með þá
og unnu með 10 marka mun, 20:10
Það er harður og erfiður vetur
framundan hjá Bjarna Jónssyni
og lærisveinum hans i Þrótti —
það sáu hinir örfáu áhorfendur
(aðeins 520), sem lögðu leið sina i
Laugardalshöllina á sunnudags-
kvöldið. Handknattleikurinn sem
Þróttarar léku, er ekkert til að
hrópa húrra fyrir — hann var bit-
laus og einhæfur. Frammistaða
leikmanna Valsliðsins var litið
skárri — þeir léku langt undir
beztu getu sinni.
Leikurinn var alls ekki spenn-
andi fyrir áhorfendur, sem fengu
aðeins að sjá fjögur mörk (2:2)
fyrstu tuttugu minúturnar. En þá
skiptust þeir Marteinn Arnason,
markvörður Þróttar og Ólafur
Benediktsson i Valsmarkinu á að
verja — oft glæsilega. Þeir þurftu
þó ekki að taka á honum stóra
sinum, þvi að sóknarleikur lið-
anna og skot voru mjög bitlaus.
Þegar hér var komið við sögu
vöknuðu Valsmenn upp við vond-
an draum — og þeir fóru að leika
skynsamlega. Arangurinn lét
ekki á sér standa. Þeir höfðu yfir
7:2 i hálfleik, og i siðari hálfleik
breikkaði bilið á milli liðanna —
og öruggur sigur (20:10) Vals
var I höfn.
Ólafur Benediktsson átti góðan
leik i marki Valsliðsins, sem var
með daufara móti. Mörk liðsins
skiptust þannig: Stefán 5 (1 viti),
Jón Pétur 3 (1 viti), Gunnar 3 (1
viti), Jón Karlsson 2, Þorbjörn 2,
Jóhannes, Steindór og Jóhann
Ingi eitt hvor.
Bjarni Jónsson og Marteinn
Arnason báru af i Þróttar-liðinu.
Þá átti Friðrik Friðriksson góða
spretti — hann var þó ekki nógu
jákvæður i sóknarleiknum, of ein-
hæfur. Mörk Þróttar skoruðu
Bjarni 5 (1 viti), Friðrik 3, Halld-
ór og Gunnar, eitt hvor.