Tíminn - 04.11.1975, Page 6
ó
TÍMINN
Þriðjudagur 4. nóvember 1975
Gylfi Kristinsson, formaður hagsmunanefndar SHÍ:
Stefna vinstri manna í
stúdentaráði grundvallast
á hugsjóninni um efnahags-
legt jafnrétti til náms
Sjálfstæðismönnum brá heldur
en ekki i brún, þegar þeir fréttu af
afhroði hjáleigu flokksins i Há-
skólanum, Vöku, félagi
„lýðræðissinnaðra” stúdenta, i
kosningum um hátiðanefnd 1.
desember, sem fram fóru 22.
október s.l.
Hlaut Vaka aðeins tæp 36% at-
kvæða, en framboð Verðandi, fé-
lags róttækra stúdenta, 64%
greiddra atkvæða. Eins og les-
endum Timans er kunnugt, hefur
Verðandi haust hvert undanfarin
4 ár staðið að sjálfstæðu framboði
til hátiðanefndar 1. des., og
ætið sigrað. Verðandi hefur hins
vegar ekki staðið sjálfstætt að
framboðslista i stúdentaráðs-
kosningum, en stúdentaráð er
æðsti fulltrúi stúdenta H.i. út á
við.
Einstakir stúdentar i Verðandi,
og ekki siður aðrir vinstri sinnað-
ir stúdentar, svo sem þeir er ekki
hafa treyst sér til að skrifa undir
stefnuskrá Verðandi, hafa hins
vegarstaðið að samfylkingarlista
undir heitinu Listi vinstri manna i
stúdentaráðskosningum. Þessi
listi hefur boðið fram tvö undan-
farin ár og sigrað framboðslista
Vöku glæsilega i bæði skiptin.
Astæða þess, að á þetta er
minnzt er sú, að i Morgun-
blaðinu, þriðjudaginn 28. októ-
ber, eru tveir skjólstæðingar
blaðsins, formaður Vöku og odd-
viti félagsins i stúdentaráði,
krafðir skýringa á afhroði ihalds-
útibúsins i kosningunum. Greini-
legt er af uppsetningu viðtalanna
við þá félaga, að úrslitin eru
Morgunblaðinu mikil vonbrigði.
Skýring formanns Vöku á tap-
inu er einföld og vafalaust rétt.
Hann bendir á, að lánamála-
barátta stúdenta hafi blandazt
inn i kosningabaráttuna, en um-
ræöur um þau mál eru afar
óhagstæð Vöku, ýmissa hluta
vegna. Meðal annars vegna þess,
að stefna félagsins i lánamálum
hefur einkennzt af þvi að heimta
sem mest af þjóðfélaginu i hlut
stúdenta, án þess að þeir létu
nokkuð i staðinn. Sem sagt
heimtufrekjustefna, eins og hún
gerist verst. Það sem gerðist i
kosningunum, var það, aö stór
hluti stúdenta, sem fram að þessu
hefur kosið lista Vöku sneri baki
við félaginu. Þar hefur vafalaust
verið þyngst á metunum starfs-
leysi fulltrúa þess i stúdentaráöi
og blinda frekjustefnan i lána-
málunum. Þetta ábyrgðarleysi
Vöku, sem greinilega hefur ekki
farið framhjá stúdentum, kom
framboði Verðandi til góða. Sér-
Gylfi Kristinsson, formaður
hagsmunanefndar SHt.
staklega vegna þess, að vinstri
meirihlutinn i stúdentaráði mót-
aði fyrir tveimur árum nýja
stefnu i lánamálum námsmanna.
Þessi stefna felur i sér þá breyt-
ingu-að námslán verði visitölu-
bundin, en vaxtalaus. í öðru lagi
gera tiílögurnar ráð fyrir þvi, að
námslán nái að brúa að fullu svo-
nefnda umframfjárþörf náms-
manns. i þriðja lagi, að við
endurgreiðslu lánanna verði tekið
tillit til tekna og fjölskylduað-
stæðna lánþega. Þessar tillögur
kölluðu Vökumenn s.l. vor kjara-
skerðingarstefnu rikisstjórnar-
innar og vinstri meirihlutans i
S.H.Í. Sigur Verðandi var
traustsyfirlýsing á sanngjarna
stefnu vinstri meirihlutans i
S.H.l. i lánamálunum. Stefnu,
sem grundvallast á hugsjóninni
um efnahagslegt jafnrétti til
náms.
Skýringar oddvita Vöku i
stúdentaráði eru af öðrum toga
spunnar en skýringar formanns-
ins. Oddvitinn fléttar á lævislegan
hátt Gróusögum og dylgjum um
Verðandimenn og þá sem skipa
vinstri meirihlutann i S.H.l. inn i
skýringar sinar á tapi Vöku. Til
dæmis fullyrðir hann rakalaust,
að vinstri menn i S.H.Í. hafi mis-
notað ráðiö óspart. Fróðlegt væri
að vita, i hverju sú misnotkun
hafi falizt? Þá ber oddvitinn
saman þátttöku i kosningum um
hátiðanefnd 1. des. og stúdenta-
ráðskosningum, þó að hann viti,
að þær eru ósambærilega (kosn-
ing á fundi i fyrra tilvikinu, en
kjörfundur, sem stendur i heilan'
dag, i þvi siðara).
Annars ætla ég ekki að eltast
við að svara hugarórum oddvit-
ans um ástæður fyrir tapi
Vöku og þeim fógi, sem hann
fléttar inn i þær vangaveltur.
Aðrir verða vafalaust til þess.
Það eru þó einkum tvö atriði i
málflutningi Vökuoddvitans i
Morgunblaðinu, sem ég vil gera
athugasemdir við.
I fyrsta lagi segir oddvitinn, að
ákvarðanataka i lánamála-
baráttu stúdenta hafi verið flutt
úr hagsmunanefnd S.H.I. i hina
„einlitu” kjarabaráttunefnd,”
eins og hann orðar það. Þetta er
alrangt. Kjarabaráttunefnd er
aðeins vinnu- og samstarfsnefnd,
sem i eiga sæti fulltrúar þeirra
skóla, sem eiga aðild að Lána-
sjóði isl, námsmanna. Fulltrúar
S.H.Í. i kjarabaráttunefnd starfa
. þannig að lánamálunum innan
þess ramma, sem S.H.I. og hags-
munanefnd S.H.l. ákveður. Þann-
ig geta fulltrúar Vöku i stúdenta-,
ráði haft full áhrif á starf kjara-
baráttunefndar með virkari þátt-
töku i stúdentaráði og hagsmuna-
nefnd stúdentaráðs, ef vilji er
fyrir hendi.
I öðru lagi lætur oddviti Vöku
og þvi liggja, að Verðandi hafi
tekizt að fá til liðs við sig menn,
sem gegna trúnaðarstörfum fyrir
unga framsóknarmenn, og beitt
þeim fyrir sinn pólitiska vagn.
Þetta er einnig rangt. Ég get
fullyrt að enginn ungur fram-
sóknarmaður er félagsbundinn i
Verðandi. Annað mál er, að
ýmsum ungum framsóknar-
mönnum hefur fundizt fýsilegra
að styðja framboð Verðandi i
kosningum um hátiðanefnd 1.
des., þótt rautt sé, frekar en
styðja sótsvart ihaldsframboð
Vöku. Hvort framhald verður á
þeim stuðningi, er engu hægt að
spá um,
Um framboðslista vinstri-
manna til stúdentaráðs er það
að segja, að þeir framsóknar-
menn, sem tekið hafa þátt i þeirri
samfylkingu, eru ánægðir með,
hvernig til hefur tekizt með sam-
starf við aðra einstaklinga, sem i
henni hafa tekið þátt. Framhald
þeirrar samfylkingar, og yfir
hversu breiðan pólitiskan grund-
vö!l hún kemur til með að ná
næsta vor, ræðst af þeim málefn-
um, sem aðilar eru tilbúnir til að
fallast á og gera að sinum.
Reykjavik, 30. okt. 1975
Kiwinisklúbbur
Hafnarf jarðar:
Safnar til
líknar- og
velferðar-
mála
Kiwanisklúbburinn Eldborg
Hafnarfirði ráðgerir að halda
bingó I Skiphól i vetur til fjársöfn-
unar i styrktarsjóð. Agóða verður
varið til liknar og velferðarmála.
Eldborgarfélagar hafa á
undanförnum árum farið i
skemmtiferð með aldrað fólk úr
Hafnarfirðiéinnig stutt með gjöf-
um og fjárframlögum Styrktar-
félag aldraöra i Hafnarfirði, Sól-
vang og St. Jósefsspitala. Fyrsta
bingó vetrarins verður i kvöld,
þriöjudagskvöld.
1. vélstjóri
Fyrsta vélstjóra vantar til starfa við
væntanlegt Vestmannaeyjaskip. Viðkom-
andi þarf að hafa full vélstjóraréttindi
(stærð vélar 2300 hestöfl) og vera viðbúinn
að fara til Noregs til eftirlits fyrrihluta
næsta árs og dvelja þar meðan á smiði
skipsins stendur eða til 15. júni n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri
störf sendist stjórn Herjólfs h.f. pósthólf
129 Vestmannaeyjum, fyrir 1. des. n.k.
Frekari upplýsingar veitir formaður
stjórnarinnar Guðlaugur Gislason, simar
91-11560 eða 91-21723.
Stjórn Herjólfs h.f.
Vestmannaeyjum.
Upphafið að fundar- og bréfabók Seltjarnarnesshrepps 1875.
100 ár frá fyrsta
formlega fundi
hreppsnefndar á
Seltjarnarnesi
Þriðjudaginn 4. nóv. eru
liðin rétt 100 ár, siðan hrepps-
nefnd kom i fyrsta sinn saman
til fundar á Seltjarnarnesi.
Forsaga þess var i stuttu
máli sú, að konungleg tilskipun
var gefin út 4. mai árið 1872 um
skipun sveitarstjórnarmála,
þar sem ákveðið var ger-
breyting i þessum efnum um
land allt. Sagöi i tilskipuninni,
að héraðsstjórn ætti að vera i
höndum hreppsnefnda, sýslu-
nefnda og amtsráða, sem ættu
aftur að lúta yfirstjórn lands-
stjórnarinnar og vera háð eftir-
liti hennar við störf sin. Með
þessu var atkvæðisbærum ibú-
um einstakra hreppa fengiö i
vald I eigin málum, og áttu
hreppsnefndir að vera skipaðar
eigi færri fulltrúum en þrem, og
ekki fleiri en sjö, sem kjörnir
væru til sex ára I senn.
Hreppsnefnd Seltjarnarness-
hrepps var svo samkvæmt
þessu skipuð fimm mönnum og
var svo alla tið eða þangað til
hreppurinn fékk kaupstaðar-
réttindi á siðast liðnu ári. Þessir
menn sátu i fyrstu hrepps-
nefndinni: Kristinn Magnússon
i Engey, Ólafur Guðmundsson á
Mýrarhúsum, Ingjaldur Sig-
urðsson á Lambastöðum, Er-
lendur Guðmundsson á
Skildinganesi og Ólafur ólafs-
son á Vatnsenda. Eru gerða-
bækur hreppsnefndarinnar til
frá upphafi og segir svo i fyrstu
fundargerðinni, að séra Hall-
grimur Sveinsson — siöar
biskup — hafi stýrt þessum
fyrsta fundi hennar.
Eins og kunnugir munu átta
sig á af heimilisföngum
nefndarmanna, var Seltjarnar-
neshreppur mun viðáttumeiri
fyrir réttri öld en siðar varð, þvi
að lengi vel náði hann — þótt
með frávikum væri — alla leið
að Lækjarbotnum —sem margir
munu átta sig á, ef Lögberg er
nefnt) Verulegur hluti þess
landrýmis, sem höfuöborgin
hefur siðan þanist yfir, tilheyrði
þá Seltjarnarneshreppi og land
hans hafði raunar verið skert
tvivegis I þágu Reykjavikur,
þegar hér var komið sögu. Má
segja með nokkrum sanni, að
stækkun Reykjavikur og
skerðing á landrými hreppsins
hafi haldist i hendur á liðnum
áratugum — en þaö er önnur
saga,semhér verðurekki sögð.
Hér eru að sjálfsögðu ekki
heldur tök á eða ástæða til að
rekja allar þær fjölþættu
breytingar, sem orðið hafa á
högum og háttum I Seltjarnar-
neshreppi á þeirri öld, sem liðin
er frá upphafi þeirrar skipunar
mála, sem getið er hér að
framan, en ein merkasta
breytingin varð 9. april 1974,
þegar Seltjarnarnes varð
kaupstaður. Ætlar bæjar-
stjórnin nú að minnast þessa
merka aldarafmælis með ýms-
um hætti.
Er þar fyrst að geta, að efnt
verður til sérstaks hátiðar-
fundar i félagsheimili bæjarins
kl. 17.15 þriðjudaginn
— 4. nóvember — þar sem litið
verður yfir farinn veg af þessu
tilefni og reynt að skyggnast
eitthvað fram I timann.
Annars hyggst bæjarstjórnin
einkum minnast afmælisins
með þrenns konar móti, sem
hér skal getið:
1. Samin verði 100 ára saga
hreppsins og Mýrarhusaskóla,
sem fyllti öldina i sl. mánuði.
2. Skólanum skal fært að gjöf
listaverk eftir Asmund Sveins-
son myndhöggvara.
3. Aðalskipulag bæjarins verði
tekið til endurskoðunar og efnt
til hugmyndaamkeppni i sam-
bandi við það.
Hvað snertir siðastnefnda at-
riðið má jafnframt geta þess, að
heitið verður verðlaunum, sem
nema i heild rúmlega milljón
króna, og á samkeppninni að
vera lokið 15. júni aö ári. Sjö
manna dómnefnd mun fjalla um
tillögur, sem berast, og eru þeir
þessir. Fyrir bæjarstjórnina
Steindór Haarde verkfræðingur,
Karl B. Guðmundsson, forseti
bæjarstjórnar, Njáll Þorsteins-
son bæjarfulltrúi og Sigurgeir
Sigurðsson bæjarstjóri, og fyrir
Arkitektafélag Islands Guðrún
Jónsdóttir, Pálmar ólason og
Stefán Benediktsson arkitektar.
Bæjarstjórn Seltjarnarness
skipa eftirtaldir menn: Karl B.
Guðmundsson, Snæbjörgn As-
geirsson, Sigurgeir Sigurðsson,
Magnús Erlendsson, Viglundur
Þorsteinsson, Njáll Ingjaldsson
og Njáll Þorsteinsson.