Tíminn - 04.11.1975, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Þriöjudagur 4. nóvember 1975
FH ÆTLAR AÐ
VERA MEÐ í
TOPPBARÁTTUNNI
Sigraði Val 21:16
FH-ingar sýndu loks sitt rétta
andlit á laugardaginn, þegar
liðiö vann veröskuldaöan sigur
yfir Valsinönnum i Laugardals-
höll. Meö sigri sinum eru FH-
ingarenn meö i toppbaráttunni,
en tap i þessum leik liefði þýtt
þaö, aö möguleikar liösins til aö
keppa um tslandsmeistaratitil-
inn væru harla litlir. Sigur FH-
inga var þó ekki auöveldur,
lengst al' var leikurinn hnifjafn
og þaö var ekki fyrr en á siöasta
stundarfjóröungi, að FH sigldi
frain úr og tryggði sér sigur,
21:16.
Það kom þegar i ljós á fyrstu
minútum leiksins, að hann var
þýðingarmikill fyrir bæði liöin,
þó sérstaklega fyrir FH.
Nokkurrar taugaspennu gætti
meðal leikmann og mistök voru
á báða bóga. Liðin skiptust á að
hafa forystuna i fyrri hálfleikn-
um og aldrei var munurinn
meira en eitt mark. Bæði liöin
lögðu sérstaka áherzlu á
varnarleikinn og bar leikurinn
einkenni þess. FH vörnin, sem
ekki hefur þótt burðug i vetur,
var nú ágæt og vel má vera að
þetta sé byrjun á nýrri
„mulningsvél” eins og sagt hef-
ur verið. Sóknarleikur beggja
liða var hins vegar langt frá þvi
að vera skemmtilegur og mega
bæði liðin muna sinn fifil fegri á
þvi sviði.
t hálfleik var staðan jöfn,
bæði lið höfðu skorað átta mörk.
FH-ingar skoruðu fyrstu tvö
mörkin i siðari hálfleik og þar
með tekið mestu forystu til
þessa i leiknum. Liðin skiptust
siðan á að skora um stund, en
mörk frá Geir og Guðmundi
Sveinssyni nokkru siöar komu
FH i þriggja marka forystu
13:10.
Þá gripu Valsmenn til þess
ráðs að setja menn til höfuðs
Viðariog Geiroggafsú ráðstöf-
un það góða raun, að um miðjan
hálfleikinn haföi Valsmönnum
tekizt að minnka muninn aftur
niður i eitt mark, 14:13. Hættu
þeirsiðan gæziunni, en það varð
þeim dýrkeypt, þvi að á næstu
minútum gerðu FH-ingar út um
leikinn með þremur mörkum i
röð, þar af tveimur frá Viðariog
Geir.og staðan var orðin 17:13,
og aðeins átta minútur til leiks-
loka. Jafn leikreynt lið og FH
ætti ekki að eiga i erfiðleikum
með að halda sliku forskoti,
enda reyndist þaö þeim auðvelt.
Þegar Valsmenn sáu að aftur
var komið i óefni, gripu þeir aft-
ur til þess ráðs að setja „yfir-
frakka” á Geirog Viðar.en nú
hafði það þveröfug áhrif miðað
við áður, þvi að FH-ingar héldu
forskoti sinu og þegar flauta
timavarðanna galla var munur-
inn orðinn fimm mörk, 21:16 og
var siðasta mark FH skorað á
siðustu sekúndu leiksins.
Valsliðið var mjög mistækt i
þessum leik og sóknarleikurinn
i molum. Guðjón Magnússon
hefur enn ekki náð sér á strik og
„primus motor” þeirra Vals-
manna, Jón Karlsson var ekki
nema svipur hjá sjón. Að visu
skoraði hann sjö mörk, en þar af
fimmúrvitum. Mesta athygli i
Valsliðinu vakti Jón Pétur.lóns-
son.bróðir ólafs, sem er mjög
vaxandi leikmaður og lofar
góðu. 011 mörk hans vora falleg
og hann virðist hafanæmtauga
fyrir samspili. Sieindór
Gunnarsson átti einnig ágætan
leik, og er hann orðinn ein
styrkasta stoð Valsliösins i
vörninni, ásamt Stefáni
Gun narssyni.
FH liðið hefur nú lagfært sinn
veikasta hlekk — vörnina — og
það gaf þeim bæði stigin út úr
þessum leik, svo og góð mark-
varzla Birgis Finnbogasonar i
siðari hálfleik. Mjög erfitt er að
henda reiður á getu FH liðsins,
þar sem frammistaða þess er
mjög misjöfn. Engu að siður er
ljóst að FH liðið getur hvenær
sem er orðið okkar bezta lið.
Þeir hafa úrval ágætra leik-
manna, en þvi miður, eru þeir
flestir mun lakari nú en á
undanförnum árum. Geirer t.d.
ekki nema skugginn af sjálfum
sér, Viðarhefur oft verið miklu
betri og i heild vantar liðið þann
kraft og þá snerpu sem oft hefur
einkennt það. Guðmundur
Sveinsson verður eflaust mikil-
vægur fyrir FH liðið þegar hann
verður kominn i næga æfingu,
en um aðra unga leikmenn FH
liðsins er erfitt aö spá um. Sæ-
mundur er hins vegar mjög
vaxandi leikmaður, og er hans
Fáir handknatt-
leiksmenn hafa
valdið jafnmiklum
vonbrigðum I vetur
og Geir Hallsteins-
son í FH. Þessi frá-
bæri leikmaður,
sem var stjarna I
islenzkum hand-
knattleik um ára-
raðir, er nú aðeins
eins og skugginn af
sjálfum sér.
hlutverk stórt i vörninni.
Varnarkóngurinn Gils Stefáns-
son minnir hins vegar litið á
handknattleiksmann.
Mörk FH: Geir 5, (1 viti)
Viðar 4, Guðmundur Sveinsson
4, Sæmundur 3, Þórarinn 2, örn,
Guðmundur og Gils 1 hver.
Mörk Vals: Jón Karlsson 7, (5
viti) Jón Pétur Jónsson, 4, Guð-
jón 2, Gunnsteinn, Stefán og
Steindór 1 hver.
Dómarar voru Björn
Kristjánsson og Óli Ólsen og
orkuðu margir dómar þeirra
tvimælis.
— Gsal —
Haukarnir sfanda
eftir góðan sigur yfir Fram (20:18)
ELIAS JÓNSSON.... þjálfari og
leikmaður Haukaliðsins hefur
náð undraverðum árangri meö
liðiö, jafnframt sem hann er að
verða einn af okkar aibeztu
handknattleiksmönnum.
HAUKA-LIÐIÐ stendur enn bezt
að vigi f 1. deildar keppninni i
handknattieik, eftir góðan sigur
yfir Fram i iþr.húsinu i Hafnar-
firði um hclgina, 20:18. Sigur
Haukaliðsins er sizt of stór miðað
við gang leiksins, og var sigur
þeirra nánast aldrei i hættu. Yfir-
leitt höfðu Haukarnir 3-4 mörk
yfir og aðeins einu sinni — í byrj-
un leiksins —hafði Fram forystu,
2:1.
Haukaliðið er orðið eitt albezta
og jafnframt eitt skemmtilegasta
liðið i 1. deildar keppninni. Liðið
er mjög jafnt og augljóst er, að
liösandinn er frábær. Vörnin er
mjög góð, svo og markvarzla
Gunnars Einarssonar, — og
sóknarleikurinn er skemmtilega
útfærður. T.d. mátti sjá margar
laglegar sóknarfléttur af hálfu
Haukanna i þessum leik. Linu-
mennirnir eru óspart notaðir, —
þeir skoruðu 6 mörk i þessum
leik, og „fiskuðu” þar að auki
nokkur viti, sem öll gáfu mörk.
Elias Jónsson, þjálfari þeirra og
leikmaður, hefur náð undraverð-
um árangri með Hauka-liðið, auk
þess sem hann sjálfur er nú i
mjög góðri æfingu. Það verður
áreiðanlega erfitt að ganga fram
hja Eliasivið val á landsliði næst,
þvi bæði er hann klettur i vörninni
og stórhættulegur i sókninni.
Fram-liðinu fer litið fram.
Leikur þess er tilviljanakenndur,
og þeirra beztu menn eru nú mun
lakari en i fyrra. Það er t.d. erfitt
að þekkja Hannes Leifsson fyrir
sama mann, og sömu sögu má
raunar segja um Pálma og
Arnar. Eini Fram-leikmaðurinn,
sem eitthvað kvað að i þessum
leik, var Kjartan Gislason, sem
skoraði lagleg mörk.
Haukarnir náðu strax i upphafi
Ármannsliðið
rr íiðk ing s s kól
og Grótta sigraði með tólf marka mun (25:13)
- •••
LEIKMENN Gróttu áttu ekki i
neinum erfiðieikum með að sigra
Armenninga i tþróttahúsinu I
Hafnarfiröi um helgina, enda var
ekki heil brú i leik Armannsliðs-
ins og er vafamál hvort nokkurt
liöhefur leikiö jafn herfilega illa I
1. deild i handknattleik. Ar-
mannsliðiö var eins og miðlungs-
gott skólaliöog Gróttumenn hirtu
sin fyrstu stig I mótinu, sigruðu
með yfirburðum, 25:13.
Það er raunar sérstakt rann-
sóknarefni út af fyrir sig, að at-
huga hvað olli þvi, að Armenning-
ar voru jafn lélegir og raun bar
vitni. Liðið hefur leikið þokkalega
þaö sem af er íslandsmótinu, en i
þessum leik brást allt, vörnin,
sóknin og markvarzlan.
Leikmenn Gróttu komu hins
vegar á óvart og áttu margir
hverjir skinandi leik, sérstaklega
Magnús Sigurðsson, Björn Pét-
ursson og ivar Gissurarson i
markinu. Vörnin var samstillt og
hreyfanleg, — og Ármenningar
sem ekki eiga eina einustu lang-
skyttu tókst aldrei að finna sér
leið gegnum varnarmúr Gróttu.
Sóknarleikur Gróttu var einnig
allt annar og betri nú en i fyrri
leikjunum, og það hafði mjög tak-
mörkuð áhrif að taka Björn og
Magnúsúr umferð, þvi aðrir leik-
menn Gróttu fylltu þá upp i þeirra
skörð.
Grótta tók þegar forystu i leikn-
um og um miðjan fyrri hálfleik
var staðan orðin 6:1, og þegar 9
min. voru til leikhlés var staðan
oröin 9:2. Siðustu minútur leiks-
ins héldu Armenningar i við
Gróttu og staðan i hálfleik var
12:5.
Leikmenn Gróttu byrjuðu sið-
ari hálfleikinn af miklum krafti
og mörkin komu eins og af færi-
bandi. Þegar 13 min. voru liðnar
af siðari hálfleik var staðan orðin
20:7 og nokkru siðar mátti sjá á
markatöflunni 22:8, eða fjórtán
marka mun. Grótta hafði þvi
skorað 9 mörk á móti 3 i siðari
hálfleik, og öll mörk (þessi þrjú)
Ármanns hafði Hörður Kristins-
son skorað úr vitum.
Siðari hluta seinni hálfleiks
jafnaðist leikurinn og i leikslok
skildu tólf mörk milli liðanna,
25:13. í var Gissurarson kórónaði
sigur Gróttu með þvi að verja
glæsilega skot úr hraðaupphlauði
frá Ármanni, þegar 4 sek. voru til
leiksloka.
Mörk Gróttu: Björn Pétursson
9, (4 viti), Magnús Sigurðsson 6,
Axel Friðriksson 5, Halldór
Kristjánsson 3, Atli Þór Héðins-
son 1 og Hörður Már 1.
Mörk Armanns: Hörður
Kristinsson 5 (5 vití), Jens Jens-
Víkingur átti í basli með
Reynsluleysið varð Þrótti að falli og Víkingar
fóru með sigur af hólmi (24:20)
Staðan var 18:15 og siðari hálf-
leikurinn var hálfnaður. Þá
höfðu Þróttarar skorað 18 mörk,
Vikingar 15! Hver skyldi hafa
búizt við þvi að Þróttarar
myndu veita islandsmeisturun-
um svo harða keppni? Fáir, —
og miöaö við ieiki þessara liða
að undanförnu mátti ætla að
Vikingssigur yrði auöveldur. —
Vikingar sigruðu aö visu i þess-
um leik, en það var ekki leikni
leikmanna Vikings ein sem þar
réði úrslitum, — reynsluleysi
Þróttara kom þar lika til. Hefðu
Þróttarar haldið betur á spilun-
um, þegar þeir höfðu ná þriggja
marka forskoti um miðjan siö-
ari hálfleik, væru bæði stigin að
öllum likindum Þróttar. En
leikmenn Þróttar þoldu ekki á-
lagið, þegar staðan var 18:15
þeim i vil, og það notfærðu Vik-
ingar sér út i ystu æsar, — og
skoruðu næstu 6 mörk!! 18.
mark Þróttar haföi komið á 15.
min. 19. markið skoruðu þeir
þegar rúmlega tvær minútur
voru til leiksloka, og höfðu þá
ekki skorað mark i tæplega 13
minútur!
Ja, Þróttararnir voru sann-
kallaðir klaufar að halda ekki
forskotinu út leikinn. Þeir höfðu
leikiðskynsamlega allan leikinn
og haft i fullu tré við tslands-
meistarana. Svo virðist sem
Þróttarliðið fari batnandi með
hverjum leik, og vist er það, að
ekkert lið getur eftir þennan
leik, gengiö að visum sigri á
móti Þrótti.
Vikingar hafa eflaust van-
metið andstæðingana, enda
mátti sjá, að bæði sóknarleikur-
inn og varnarleikurinn var mun
verri en i leiknum við FH á dög-
unum Vikingar höfðu alltaf
yfirhöndina i fyrri hálfleik, utan
hvað Þróttur komst i 2:1 i byrj-
un. Yfirleitt hafði Vikingur eitt
eða tvö mörk yfir, annars var
staðan jöfn, 4:4, 7:7, 8:8. Nokk-
ur mörk Þróttara i seinni hluta
fyrri hálfleiksins voru algjör
heppnismörk, tvö mörk Hall-
dórs Atlasonarvöktu hlátur hjá
áhorfendum, enda tilviljun ein
serp þar réði, og jöfnunarmark
Bjarna Jónssonar, 8:8 var af
sama toga spunnið.
Siðustu þrjár minútur fyrri
hálfleiks áttu Vikingar algjör-
lega. Þá skoruðu þeir fjögur
mörk og breyttu stöðunni i 12:8
og þarnig var staðan i hálfleik.
Þróttarar komu tviefldir til
leiks I siðari hálfleik, og að sjö
minútum liðnum hafði þeim aft-
ur tekizt að jafna, 13:13, en Páll
hafði skorað eina mark Vikings
úr viti. Vikingar höfðu sett
„yfirfrakka” á skæðustu sókn-
armenn Þróttara og það gaf
ekki góða raun. A töflunni mátti
sjá 14:14, 15:15 og nokkru siðar
18:15 fyrir Þrótt, og hafði Jó-
hann Frímannsson skorað fjög-
ur af fimm siðustu mörkum
Þróttar úr vinstra hominu.
Næstu 6 mörk voru frá Viking-
um og úrslitin ráðin, og i lokin
bættu þeir þremur við á móti
einu marki Þróttara. Úrslitin
urðu þvi 24:20.
Leikurinn var skemmtilegur
á að horfa, þótt ekki færi ávallt
mikið fyrir góöum handknatt-
leik. Á stundum fór leikurinn út
i hreina vitleysu, enda réðu
dómararnir, Hannes Sigurðsson
og Kristján örn Ingibergsson
ekki við hlutverk sitt og hagnað-
ist Þróttur nokkrum sinnum
berlega á dómum þeirra. Vik-
ingar léku ekki sannfærandi i
þessum leik, og voru þeim sér-
staklega mislagðar hendur i
sókninni, t.d. skoraði landsliðs-