Tíminn - 04.11.1975, Qupperneq 19
Þriðjudagur 4. nóvember 1975
TÍMINN
19
o Ræða Jóns
armikið atriði, að stofnun sem
Framkvæmdastofnunin njóti
trausts landsmanna. Ekki sizt er
það nauðsynlegt, að hún njóti
trausts svokallaðra aðila vinnu-
markaðarins, ef vel á að fara.
Það þarf að koma þar á góðu
samstarfi. Ég dreg það mjög i
efa, að Framkvæmdastofnunin
hafi gott samst. við aðila vinnu-
markaðarins. Ég dreg það mjög i
efa, að þeir sjái i henni þá stofn-
un, sem þeir telja að sinni sinu
verkefni eins og þyrfti að gera, og
þvi sé nokkur brotalöm i þessu
lifsnauðsynlega samstarfi við
aðila vinnumarkaðarins. Þetta er
stærra atriði en menn kunna að
halda, þegar þeir lita á þetta
lauslega.
Óvirk hag-
stjórnartæki
Við íslendingar, eins og ég
sagði áðan, stöndum nú i einna
mestri kreppu, sem yfir okkur
hefur gengið um marga áratugi.
'Við höfum verið einstaklega
fundvisir á það, að minu viti, að
stjórna efnahagsmálum okkar
eftir leiðum, sem — ef ég mætti
segja það — þekkjast tæpast ann-
ars staðar i löndum fyrir vestan
okkur og austan, sem stjórna á
menningarlegan hátt. Það er tal-
að um, að hægt sé að stýra efna-
hagsmálum þjóða eftir tveimur
meginleiðum. Það er svokölluð
frjálshyggjuleið, þar sem fjár-
festingin stjórnast af þvi, að
menn vita að gildi peninganna er
stöðugt. Menn hugsa sig tvisvar
um, áður en þeir ráðstafa fé sinu i
einhverja fjárfestingu, af þvi þeir
vita að þeir þurfa að borga lánað-
ar krónur með jafnverðmiklum
krónum, þegar að skuldadögum
kemur. Hér á íslandi hefur þessi
leið verið nálega óvirk um mörg
ár vegna verðbólgu. Hér hefur
aðalatriöi i efnahagsstarfsemi of
mikils hluta þjóðarinnar verið i
þvi fólgiö að reyna að kófesta eins
stór lán og til eins langs tima og
mögulegt er, til þess að fjárfesta i
næstum hverju sem er. Hin leiðin
er leið skipulagshyggjunnar, sem
menn hafa svo kallað og margir
hafa skrifaö um fallegar greinar
og sagt um mörg fögur orð. Hún
er á Islandi nánast eyðilögð eins
og hin, meö þvi sem ég hef hér
verið að reyna að lýsa, með svo-
kölluðu „kommissarakerfi”, sem
hefur stjórnazt meira af hreppa-
pólitik og flokkahagsmunum
þeirra sem ráða i rikisstjórn á
hverjum tima, heldur en almenn-
um hagsmunum islenzku þjóðar-
innar. Það er hart að þurfa að
segja þetta, en þetta er allt of
satt. Ef sá tími, sem við lifum nú,
sú efnahagskreppa, sem við erum
að sigla inn í og erum ekki komin
út úr enn, ef hann kemur engum
manni til þess að igrunda, hvort
við höfum gengið til góðs götuna
fram eftir veg i stjórnun efna-
hagsmála, ja, þá blasir ekki
nema eitt við hér, og það er
þjóðargjaldþrot, sem ekki verður
aftur tekið, þegar slysið er stað-
reynd.
Ég viðurkenni, að það er afar-
erfitt að ráða við hlutina i þjóð-
félagi okkar eins og nú er komið.
Það er ekki auðvelt að draga úr
skriði dýrtiðarskútunnar, eftir að
hún er einu sinni komin á þann
skrið, sem hún er nú á, og það
verður ekki hægt, ef við hér á
hæstvirtu Alþingi, og mikill hluti
landsmanna, ætlum að leyfa sér
þann munað að feta troðnar slóðir
við stjórn efnahagsmálanna. Þá
lendum við á skeri. En meðal
annarra orða: Hvað skyldu
vinnubrögð þau,erégvar að lýsa
eiga mikla sök á þvi að Island er
orðið láglaunaland?
Q Stórtjón
bergi, komst mikill sjór i kjall-
ara og skemmdi tvær þvottavél-
ar, lágu þær á hliðinni þegar
heimilisfólk reis úr rekkju kl.
9.30og uggði sér einskis, en einn
ig voru þarna tvær 500 litra
frystikistur. Tvær fjölskyldur i
húsinu áttu heimilistæki þessi.
Voru þau komin i viðgerð og bú-
iðað flytja matinn úr kistunum i
geymslu i frystihúsinu, þegar
Timamenn komu þarna
siðdegis. Miðstöð i húsinu
skemmdist einnig. Hjá fólkinu á
Sólbergi hafa sennilega orðið
einna mestar skemmdir á
heimilistækjum á einum stað,
en viða urðu hliðstæðar
skemmdir vegna flóðanna.
f næsta húsi skemmdist einnig
þvottavél, miðstöð og nokkurt
magn af kartöflum fór á fiot.
Þar vaknaði rúmlega fimmtug-
ur maður, Reynir Böðvarsson,
upp við að sjórinn gjálfraði við
rúmstokk hans, en hann hefur
herbergi i kjallara. Reynir á
gott bókasafn og skemmdust
bækur i neðstu hillum hjá hon-
um.
Sjór fór einnig inn i vélsmiðju
i þorpinu og plastiöjuna, en á
siðaristaðnum a.m.k. urðu eng-
ar skemmdir.
Erfiðlega gekk að fá tæki til
Eyrarbakka, en engin dráttar-
bifreið var i þorpinu i gær-
morgun. Um hádegi komst
vatnsleiðslan aftur i samband
eftir að ljóst var hvað gerzt
hafði við höfnina, en sem af-
leiðing af þvi hafði miðlunar-
tankur tæmzt.
Rafmagnsbilanir voru fram
eftir degi á Eyrarbakka og um
allan Flóa og olli það erfiðleik-
um.
—i Við erum ákaflega uggandi
um hvað hefur gerzt vestur við
ölfusárósa, en þar er mikil
landbrotshætta, sagði Þór
Hagalin ennfremur. Á mýrun-
um og engjunum þar yrði
brúarstæði ef úr verður að brúa
ölfusá, en það er von Eyrbekk-
inga.
Þeireru einnig langeygir eftir
úrbótum i hafnarmálum, en sið-
ast sökk bátur i höfninni á
gamlárskvöld.
f frystihúsinu er einnig nýorð-
ið tjón þegar veiðarfæra-
geymsla brann þar um miðjan
október.
Ljóst er að óbætanlegt tjón
hefur orðið á Eyrarbakka, en
nýju lögin um viðlagatrygging-
ar gera ráð fyrir 100.000 kr.
sjálfsábyrgð hvers tjónþola.
Styðja
útfærsluna
A fundi bæjarstjórnar Kefla-
vikur nýlega var eftirfarandi
samþykkt gerð með 9 samhljóða
atkvæðum:
„Bæjarstjórn Keflavikur fagn-
ar útfærslu islenzku fiskveiðilög-
sögunnr i 200 sjómilur. Meðal
annars vegna ógnvekjandi upp-
lýsinga Hafrannsóknastofnunar-
innar um ástand fiskstofnanna
við landið, varar bæjarstjórnin
við samningum um veiðiheimild-
ir innan 50 milna markanna.”
Junior Chamber i Hafnarfirði
hefur haldið sérstakan gestafund
undanfarin ár. Þetta eru óform-
legir fundir, sem hafa það að
markmiði sinu að gefa félögum
kost á að bjóða með sér gestum á
J.C. fund, þar sem félagar og
gestir þeirra eiga þess kost að
ræða málefni, sem efst eru á
baugi hverju sinni, við sérstakan
gest félagsins.
Hinn árlegi gestafundur J.C.
Hafnarfjörður verður að þessu
sinni haldinn fimmtudaginn 6.
nóv. n.k., i sal iðnaðarmanna við
Linnetsstig. Fundurinn hefst
stundvislega kl. 20.30. Gestur
fundarins að þessu sinni verður
Einar Agústsson utanrikisráð-
herra, sem mun ræða um ýmis
málefni og svara fyrirspyrnum.
Utanrikisráðherra er gamall J.C.
félagi — einn af stofnendum J.C.
ísland á sfnum tima.
' Auglýsíd
i Tímanum
Akurevri
onnssHðu
Innritun nemenda í alla aldursflokka (yngst 4ra
ára) fer fram i Alþýðuhúsinu í dag og á morgun
frá kl, 1-7 báða dagana
ATHUGIÐ! INNRITUN AÐEINS ÞESSA TVO DAGA!
Q mm 8B...
Aðalfundur
FUF
í Árnessýslu
Aðalfundur Félags ungra Framsóknarmanna i Arnessýslu verð-
ur haldinn að Flúðum þriðjudaginn 4. nóv. kl. 21,30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
Halldór Ásgrimsson alþingism. ræðir stjórnmálaviðhorfið
Magnús Ólafsson form. SUF. greinir frá starfi sambandsins
Önnur mál.
Ungt fólk er hvatt til að fjölmenna.
Ungar konur! Fjölmennið á fundinn og hefjið virkari þátttöku i
þjóðfélagsmálum i framhaldi af velheppnuðum aðgerðum i
kvennafrii. Stjórnin.
Kjördæmisþing
Norðurlands eystra
Þingiðhefstlaugarsaginn 8. nóv kl. 13. Þátttakendum stendur til
boða gisting á Hótel KEA á hagstæðu verði.
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Fundur um skattamál verður haldinn nk. fimmtudag 6. nóv. að
Rauðarárstig 18 kl. 20.30.
Frummælandi verður Halldór Asgrimsson alþm.
Fjölmennið. Stjórnin.
Eitt þekktasta merki á
O^Norðurlöndum^Q
RAF-
\SUNNaK
BATTERER
sun/n/aK
BATTERER
GEYMAR
Fjölbreytt úrval af Sönnak rafgeymum
I— 6 og 12 volta — jafnan fyrirliggjandi
7TT
ARMULA 7 - SIMI 84450
Eggjaframleiðendur
athugið:
2ja mánaða gamlir hænuungar til sölu.
Alifuglabúiö Teigur, Mosfellssveit.
Simi 66-1-30 og 66-4-95, á kvöldin.
Tiimnn er penlngar