Tíminn - 05.11.1975, Síða 16
16
TÍMINN
IVIiðvikudagur 5. nóvember 1975
iA mætir bezta félagsliði Evrópu
★ Leikur Akurnesinga gegn Dinamo
Kiev hefst d Melavelii kl. 20 i kvöld
og er það síðari leikur liðanna
í Evrópukeppni meistaraliða
i KVÖLD kl. 20 hefst leikur
sovézka ineistaraliðsins Dinamo
Kiev og islandsmeistara ÍA á
Melavellinum i Reykjavik, og er
þetta siðari leikur liðanna i
Kvrópukcppni meistaraliða.
Þessi leikur er merkilegur
ýmissa hluta vegna, — knatt-
spyrnuleikir á isiandi á þessum
tima árs eru afar fátiðir, og
slórleikir hafa ekki fram til þessa
vcrið iiáðir I nóvembermánuði
hér á landi — liðið sem leikur
gegn islandsmeisturunum
Diiiamo Kiev, er almennt talið
lie/.ta félagslið Evrópu um þessar
mundir — og siðast enn ekki sizt,
að leikurinn fer fram á Melavell-
inum, ,,gamla góða Melavellin-
uin’’ og áttu sennilega fáir von á
þvi, að liann yrði aftur vettvangur
stórviðburða á knattspyrnusvið-
ÍIIU.
Svo sem kunnugt er, unnu
Sovétmennirnir ÍA i leiknum I
Sovétrikjunum ekki alls fyrir
löngu með þremur mörkum gegn
engu. Þótti árangur islenzka liðs-
ins mjög athyglisverður og hrif-
ust sovézkir áhorfendur mjög af
islenzku piltunum, sem börðust
sem hetjur leikinn á enda.
Þótt hér á landi sé allra veðra
von á þessum árstima, eru þó lik-
ur fyrir þvi, að veður til keppni
verði ágætt i kvöld. Fyrirfram
má búast við sigri sovézka liðs-
ins, en Akurnesingarnir hafa æft
vel að undanförnu á malavell-
inum sinum, og mun það eflaust
koma þeim til góða, þvi að Sovét-
mennirnir eru óvanir þvi að leika
á möl. En hvort það dugar Akur-
nesingum til sigurs — það er önn-
ur saga.
Timinn hafði i gærdag tal af
þremur leikmönnum Akraness-
liðsins:
— Sovézku leikmennirnir eru
hreinir snillingar og liðið er það
bezta sem ég hef séð, sagði Þröst-
ur Stefánsson, — og langbezta lið,
sem ég hef leikið á móti. Styrkur
þeirra felst i þvi, hversu leik-
mennirnir eru jafnir að getu,
hraðinn er mikill, leikskipulagið
mjög gott. Mér fannst t.d. lands-
liðið, sem kom hingað i sumar,
mun einhæfara en þetta lið, —
Kiev-liðið er fjölbreyttara og leik-
mennirnir skipta mikið um stöður
á vellinum. Ég vona að þetta
verði góður og skemmtilegur
leikur — og það verður gaman að
leika aftur gegn svona sterku liði.
Ég held að þeir verði fljótir að
venjast aðstæðum, og þær muni
ekki hafa nein úrslitaáhrif.
Dinamo Kiev verður örugglega i
úrslitum i þessari keppni — ef við
vinnum þá ekki , sagði Þröstur
og hló.
— Þetta eru yfirburðamenn,
sagði Björn Lárusson. Mölin
getur at visu haft neikvæð áhrif á
þá, en þetta eru bara svo miklir
yíirburðamenn að ég býst við að
þeir verði fljótir að venjast þvi.
Ég hef aldrei leikið á móti jafn-
góðum knattspyrnumönnum, —
þeir eru allir spretthlauparar og
allir mjög leiknir. En við munum
gera allt til að stöðva þá, sagði
Björn.
— Við munum örugglega gera
okkar bezta, sagði Haraldur Stur-
láugsson. Við höfum æft mjög vel
og það hafa verið 100% mætingar
á æfingar. Ég skal ekkert segja
um sigurmöguleika okkar, en það
getur hins vegar allt gerzt. Við
leikum jú á móti einu sterkasta
liði heims, og þar sem þeir eru al-
vanir kulda og jafnvel snjó kemur
það okkur ekki einu sinni til góða,
sagði Haraldur.
Vallargestum er bent á að
leggja bilum sinum vestan við
Melavöllinn, og sérstaklega skal
þeim sem fyrst koma bent á að
leggja bilum sinum sem næst
Hótel Sögu. Þegar „uppselt”
verður i þau bilastæði er fólki
bent á að leggja bilum sinum á
Háskólavöllinn.
SÍDASTA ROSIN í
HNAPPAGAT
MELAVALLAR
Leikur ÍA og Dinamo Kiev verður eflaust siðasti stórleikurinn,
sem háður verður á Melavelli, og þar með siðasta rósin i
linappagat vallarins. — Jú þetta verður vist siðasti stórleikurinn
liér, þvi er nú verr og miöur, sagöi Baldur Jónsson, valiarstjóri i
viötali við Timann i gær og bætti við. — Enda er þetta mjög
verðugt verkefni fyrir Melavöllinn, hann hefur hýst marga stór-
leiki og stór iþróttamót, svo þaö gat raunar ekki verið verðugra
verkefni, sem hann tæki að sér svona i lokin.
Baldur sagði, að ástand vallarins væri ágætt, og ef héldist
þurrt yröi völlurinn mjög góður i kvöld. Sovézku leikmennirnir
skoðuöu völlinn i gærmorgun, og að sögn Baldurs leizt þeim
ágætlega á allar aðstæður.
Sovétmennirnir æföu sig á vellinum i þrjá stundarfjórðunga i
gærmorgun, og i gærkvöldi var önnur æfing hjá þeim á Mela-
velli, og þá tók Róbert þessa mynd hér fyrir neöan.
— Gsal.
Dinamo Kiev:
NÝBAKAÐIR
ÍSLANDSMÓTIÐ, 1. DEILD:
Óli Ben. í banastuði
— varði m. a. öll vítaköst Ármanns fjögur að tölu.
Valur sigraði auðveldlega 21:13 '
LANDSLIÐSMARK-
VÖRÐURINN Ólafur
Benediktsson i Val var
maðurinn á bak við stór-
sigur Valsliðsins gegn
Ármanni i gærkvöldi i
Laugardalshöll. Óli Ben.
varði öll vitaköst Ár-
menninga, fjögur að
tölu, auk fjölda annarra
skota. Sérstaklega kvað
mikið að Óla Ben. i sið-
ari hálfleiknum en þá
fengu Ármenningar
dæmd vitaköstin öll, og
áttu auk þess allmörg
hraðaupphlaup, sem Óli
Ben. varði. Það er góðs
viti að Óli skuli nú aftur
vera kominn i slikan
ham, enda margir stór-
leikir framundan hjá
landsliðinu.
Valsmenn tóku strax leikinn i
gærkvöldi i slnar hendur og fyrr
en varði var staðan orðin 4-1. Ár-
menningar skoruðu næstu tvö
mörk og minnkuðu muninn niöur I
eitt mark. Vörn Armenninga var
nú allt önnur og betri en I leiknum
á móti Gróttu og áttu Valsmenn
oft erfitt með að finna leið i gegn-
um varnarmúrinn. Engu að siður
var ljóst, að Armenningar áttu
við ofurefli að etja, þarsemVals-
liðið var, og smátt og smátt varð
sýnt að hverju stefndi. Um miðj-
an fyrri hálfleik var staðan orðin
7-4 og nokkru siðar bætti Jón Ingi
áttunda markinu við. Þennan
mun náði Armannsliðið aldrei að
jafna.
Staðan ihálfleik var 11-6. Strax
á fyrstu minútunni fengu Ár-
menningar dæmt vitakast, en Óli
Ben. gerði sér litið fyrir og varði
skotið frá Herði Kristinssyni.
Stefán bætti siðan tólfta markinu
við, Pétur Ingólfsson skoraði
sjöunda mark Armanns — og
siðan komu tvö mörk frá Val og
staðan orðin 14-7 fyrir Val. Eftir
þetta kom bezti kafli leiksins og
mörkin hrönnuðust upp, en þá
voru Ármenningar einnig
fádæma óheppnir og áttu hvert
stangarskotið á fætur öðru, auk
vitanna sem fóru forgörðum.
Þegar tólf minútur voru tii leiks-
loka var staðan orðin 19-9.
Siðustu minútur leiksins réttu
Armenningar aðeins úr kútnum
og lokatölurnar urðu 21-13.
Valsliðinu fer stöðugt fram og
má sjá framfarir hjá liðinu með
hverjum leik. Vörnin er hreyfan-
leg með Stefán Gunnarsson sem
bezta mann, og þegar Óli Ben.
hefur góða vörn fyrir framan sig
er ekki að sökum að spyrja.
Sóknarleikur Valsliðsins er
einnig á mikilli uppleið, þótt ekki
sé hægt að segja að hann sé góð-
ur. En Valsliðið er orðið samstillt
og liðið hefur á að skipa mörgum
ungum og efnilegum leikmönn-
um, sem lofa góðu.
Lið Ármanns sýndi litt merki-
legan leik, utan kvað vörnin var
nú með skásta móti. Sóknarleik-
urinn er enn i algjörum molum,
ogmarkvarzlan var á núlli I þess-
um leik. Hornamaðurinn snjalli,
Jens Jensson var meiddur og gat
þvi ekki leikið með og munar um
minna hjá Ármanni.
Mörk Vals: Jón Pétur Jónsson
4, Þorbjörn 4, Bjarni 4, Stefán 2,
Steindór 2, Jón Karlsson 2, Jón
Ingi 2, Guðjón 1.
Mörk Ármanns: Jón Viðar 4,
Pétur Ingólfsson 3, Jón Astvalds-
son, Hörður Kristinsson, Gunnar
Traustason, Olfert Nobye og
Stefán Hafstein 1 hver.
ÓVÆNT ÚRSLIT í GÆRKVÖLDI:
Fram vann Víking 20:19
SOVÉTMEISTARAR
DINAMO KIEV eru
nýbakaöir Sovét-
meistarar í knattspyrnu,
og er þetta annað árið í
röð, sem liðið vinnur þann
eftirsótta titil, Dinamo
Kiev urðu Sovétmeistar-
hafði möguleika á að ná
Kiev-liðinu að stigum.
Á laugardaginn féku sovézku
meistararnir við Zenit i
Leningrad og lauk þeim leik
með jafntefli (1:1). Aðeins ein
ar á sunnudaginn, þegar
Dinamo Moskva gerði
jafntefli við Dinamo
Tbilisi (1:1) en Moskva-
liðið var eina liðið, sem
umferð er nú eftir i deildar-
keppninni sovézku, og leikur þá
Dinamo Kiev við Torpedo
Moskvu, en úrslit þess leiks
munu ekki hafa nein áhrif á
stöðu efstu liðanna i deildinni.
Leikmenn Dinamo Kiev hampa nú annað árið i röð bikarnum, sem
gefur til kynna aö þeir eru sovézkir meistarar i knattspyrnu. Myndin
er frá þvi i fyrra, þegar þeir tóku viðþessum sama bikar.