Tíminn - 02.12.1975, Side 11
Þriðjudagur 2. desember 1975.
TÍMJNN
11
l.ionslélagur inála togara
Sauðárkrókur:
LIONSFÉLAGAR SAFNA FÉ
TIL SKÍÐATOGBRAUTAR
Mó-Kcykjavik. Félagar i Lions-
klúbbi Sauðárkróks tóku i haust
að sér að mála togara Útgerðar-
félags Skagfirðinga, þrjá að tölu.
Fyrir þetta mikla verk fengu þeir
eina milljón króna og hyggjast
nota féð til að kaupa skiðatog-
braut, sem koma á upp í nágrenni
Sauðárkróks.
Þetta verk unnu félagarnir
aðallega á kvöldin og um helgar,
og tók um fjóra daga að mála
hvern togara. 1 klúbbnum eru 43
íélagar, og tóku flestir einhvern
þátt i verkinu, en þvi stjórnuðu
þeir Stefán Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélagsins
og fyrrverandi form. klúbbsins,
Haukur Stefánsson málarameist-
ari.
Þetta er stærsta fjáröflunar-
verkefni klúbbsins siðan hann var
stofnaður fyrir ellefu árum. Fénu
á að verja til kaupa á skiðatog-
braut, og hefur verið ákveðið að
færa UMF. Tindastól á Sauðár-
króki togbrautina að gjöf. Áætlað
er að hún kosti 1,6 millj. kr.
Núverandi form. klúbbsins er
Kári Valgarðsson
Land og lýðveldi
III. bindi eftir Bjarna heitinn Benediktsson
l.and og lýðveldier þriðja bindi
ritgerðarsafns Bjarna heitins
Benediktssonar, forsætisráð-
herra. Hörður Einarsson, sem séð
hefur um útgáfu þessa bindis eins
og hinna tveggja, segir i formáls-
orðum. að ritið sé úrval úr ræðum
og ritgerðum Bjarna Benedikts-
sonar, ,,sem hann flutti og samdi
eltir að fyrri tvö bindi Lands og
lýðveldis kom út... Má þvi segja,
að i ritinu gefi að lita nokkurt
yfirlit um grundvallarskoöanir
þess manns. sem ótvirætt hafði
manna mest áhrif i islenzku þjóð-
liíi á sjöunda áratug þessarar
aldar og hal'ði raunar fyrr úrslita-
áhrif á ákvarðanir i mörgum
þýðingarmestu málum þjóðar-
innar á þessari öld”.
Með þessu þriðja bindi Lands
og lýðveldis, er lokið merku rit-
gerðarsafni, sem ugglaust verður
mönnum þvi dýrmætara sem
lengra liður. bæði sem einstakt
heimildarrit og verðug minning
um einn ágætasta son Islands á
þessari öld.
Alls eru i bindinu 17 ræður og
ritgerðir, og fylgir nafnaskrá rit-
gerðarsafninu. Bókin er 214 bls.
að stærð og útgefandi er Almenna
bókafélagið.
Holdið er torvelt
að temja
— fjórða bók Snjólaugar Bragadóttur
frd Skáldalæk
FJÓRÐA bók Snjólaugar Braga-
dóttur frá Skáldalæk er nú komin
út hjá bókaútgáfunni Erni og
Orlygi. Nefnist hún Holdið er tor-
velt að temja. Fyrri bækur Snjó-
laugar seldust allar upp, en hafa
nú verið endurprentaðar sökum
mikillar eftirspurnar. Snjólaug
hefur með fyrri bókum sinum
vakið mikla athygli, og sá hópur
er stór, sem biður spenntur eftir
hverri nýrri bók. Þessi fjórða bók
höfundar gefur hinum fyrri ekk-
ert eftir, enda mála sannast, að
Holdið er torvelt að temja!
Þetta er samtiðarsaga úr
borgarlifinu, um listamenn og
lifsglatt fólk, þar sem ástin á það
til að hafa endaskipti á tilverunni
og enginn veit hver annars konu
hlýtur að lokum.
Bókin er sett i prentstofu G.
Benediktssonar, prentuð i Viðey
Snjólaug Bragadóttir.
og bundin i Arnarfelli. Kápu-
teikningu gerði Hilmar Helgason.
KERTIOG SÆLGÆTI
A SERTILBOÐSVERÐI
★ttrf"k* ií*
&
Sértilboo
í eina viku
eóa meðan biroðir
endast.
SKEIFUNN115