Tíminn - 02.12.1975, Qupperneq 11

Tíminn - 02.12.1975, Qupperneq 11
Þriðjudagur 2. desember 1975. TÍMJNN 11 l.ionslélagur inála togara Sauðárkrókur: LIONSFÉLAGAR SAFNA FÉ TIL SKÍÐATOGBRAUTAR Mó-Kcykjavik. Félagar i Lions- klúbbi Sauðárkróks tóku i haust að sér að mála togara Útgerðar- félags Skagfirðinga, þrjá að tölu. Fyrir þetta mikla verk fengu þeir eina milljón króna og hyggjast nota féð til að kaupa skiðatog- braut, sem koma á upp í nágrenni Sauðárkróks. Þetta verk unnu félagarnir aðallega á kvöldin og um helgar, og tók um fjóra daga að mála hvern togara. 1 klúbbnum eru 43 íélagar, og tóku flestir einhvern þátt i verkinu, en þvi stjórnuðu þeir Stefán Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Útgerðarfélagsins og fyrrverandi form. klúbbsins, Haukur Stefánsson málarameist- ari. Þetta er stærsta fjáröflunar- verkefni klúbbsins siðan hann var stofnaður fyrir ellefu árum. Fénu á að verja til kaupa á skiðatog- braut, og hefur verið ákveðið að færa UMF. Tindastól á Sauðár- króki togbrautina að gjöf. Áætlað er að hún kosti 1,6 millj. kr. Núverandi form. klúbbsins er Kári Valgarðsson Land og lýðveldi III. bindi eftir Bjarna heitinn Benediktsson l.and og lýðveldier þriðja bindi ritgerðarsafns Bjarna heitins Benediktssonar, forsætisráð- herra. Hörður Einarsson, sem séð hefur um útgáfu þessa bindis eins og hinna tveggja, segir i formáls- orðum. að ritið sé úrval úr ræðum og ritgerðum Bjarna Benedikts- sonar, ,,sem hann flutti og samdi eltir að fyrri tvö bindi Lands og lýðveldis kom út... Má þvi segja, að i ritinu gefi að lita nokkurt yfirlit um grundvallarskoöanir þess manns. sem ótvirætt hafði manna mest áhrif i islenzku þjóð- liíi á sjöunda áratug þessarar aldar og hal'ði raunar fyrr úrslita- áhrif á ákvarðanir i mörgum þýðingarmestu málum þjóðar- innar á þessari öld”. Með þessu þriðja bindi Lands og lýðveldis, er lokið merku rit- gerðarsafni, sem ugglaust verður mönnum þvi dýrmætara sem lengra liður. bæði sem einstakt heimildarrit og verðug minning um einn ágætasta son Islands á þessari öld. Alls eru i bindinu 17 ræður og ritgerðir, og fylgir nafnaskrá rit- gerðarsafninu. Bókin er 214 bls. að stærð og útgefandi er Almenna bókafélagið. Holdið er torvelt að temja — fjórða bók Snjólaugar Bragadóttur frd Skáldalæk FJÓRÐA bók Snjólaugar Braga- dóttur frá Skáldalæk er nú komin út hjá bókaútgáfunni Erni og Orlygi. Nefnist hún Holdið er tor- velt að temja. Fyrri bækur Snjó- laugar seldust allar upp, en hafa nú verið endurprentaðar sökum mikillar eftirspurnar. Snjólaug hefur með fyrri bókum sinum vakið mikla athygli, og sá hópur er stór, sem biður spenntur eftir hverri nýrri bók. Þessi fjórða bók höfundar gefur hinum fyrri ekk- ert eftir, enda mála sannast, að Holdið er torvelt að temja! Þetta er samtiðarsaga úr borgarlifinu, um listamenn og lifsglatt fólk, þar sem ástin á það til að hafa endaskipti á tilverunni og enginn veit hver annars konu hlýtur að lokum. Bókin er sett i prentstofu G. Benediktssonar, prentuð i Viðey Snjólaug Bragadóttir. og bundin i Arnarfelli. Kápu- teikningu gerði Hilmar Helgason. KERTIOG SÆLGÆTI A SERTILBOÐSVERÐI ★ttrf"k* ií* & Sértilboo í eina viku eóa meðan biroðir endast. SKEIFUNN115

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.