Tíminn - 11.12.1975, Blaðsíða 1
f
Leiguflug—Neyðarflug
HVERTSEM ER
HVENÆR SEM ER
PRIMUS
HREYFILHITARAR
í VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR
f 1 1 ( \
\ fm « ’wcaff - «i
nothæf
i
t
ur fyrir Gæzluna
Gsal-Reykjavik — Skuttogarinn
Baldur, sem Landhelgisgæzlan
ætlaði að senda á miðin til gæzlu-
starfa i þessari viku, en ónot-
hæfur I þvi ástandi sem hann er
mi og þvi er ljóst, að hann mun
hvergi fara i bráð. Nokkrir veiga-
miklir gallar komu fram i skipinu
i gær, þegar starfsmenn Land-
helgisgæzlunnar voru að yfirfara
skipið. Af þeim sökum hefur sú á-
kvörðun verið tekin, að Árvakur
haldi aftur á miðin og mun varð-
skipið halda úr höfn á morgun.
Arvakur áttisem kunnugterað fá
hvild frá störfum a.m.k. fram yfir
áramót, enda þarf skipið ein-
hverra lagfæringa við.
Landhelgisgæzlan varðist i gær
allra frétta af göllunum i Baldri,
og kvað þá ekki fullkannaða enn-
þá. f gær unnu starfsmenn Gæzl-
unnar að skýrslugerð um máliö
og verður skýrslan send dóms-
málaráðuneyti.
Skuttogarinn Baldur er sem
kunnugt er, nýkominn úr viðgerð
i Póllandi og miðuðust ákvarðan-
ir Landhelgisgæzlu og dóms-
málaráðuneytis við það, að út-
búnaði skipsins væri i engu áfátt.
Annað kom þó á daginn þegar
starfsmenn Gæzlunnar yfirfóru
skipið, og töldu þeir nokkra galla
það veigamikla að ekki væri ráð-
- ■*' o w
I if "yM t
I h
legt að senda skipið á miðin.
Samkvæmt heimildum sem Tim-
inn hefur aflað sér, varða gall-
arnir einkum togvindu og öxul,
en einnig fannst galli i stýrisvél.
Viðgerðin i Póllandi fólst eink-
um I þvi, að styrkja togvindu
skipsins, en einnig var áður-
nefndur öxull eitthvað lagfærður.
Timinn hefur fregnað að starfs-
menn Landhelgisgæzlunnar telji
öxulinn og togvinduna ekki i
beinni linu og þvi varhugavert að
nota skipið. Að sögn Guðmundar
Guðmundssonar hjá Hafrann-
sóknarstofnuninni, en hann fylgd-
istmeð viðgerðinni á Baldri I Pól-
landi, fengu þeir sex mánaða á-
byrgðarskirteini fyrir viðgerðinni
á spilinu og þeim tækjum, sem
þvi eru tengd.
Þess skal getið að sams konar
gallar komu fram i öllum pólsku
togurunum, og var viðgerð á spil-
um þeirra i Póllandi eigendum
togaranna að kostnaðarlausu.
Fari svo að áðurnefndir gallar i
Baldri séu það miklir að viðgerð-
arkostnaður verði talinn veruleg-
ur er ekki óliklegt að skipið verði
sent aftur til Póllands og pólska
fyrirtækið látið greiða viðgerðar-
kostnað, samkvæmt ábyrgðar-
skirteininu.
ÁSGEIR
SKELLTI
DYNAMO
KIEV
m o
Lögbannsbeidni
við kryddpökkun
í Kópavoginum
OÓ-Rvik. fbúðareigandi i Kópa-
vogi hefur snúið sér til fógeta-
embættisins þar i bæ og lagt fram
beiðni um að lögbann verði sett á
kryddpökkun, sem fram fer i
hluta af húsi hans. Um er að
ræða tvilyft timburhús, og býr
gerðarbeiðandi á efri hæðinni, en
fyrir rúmu ári keypti fyrirtæki
neðri hæðina og hóf umrædda
starfsemi. Vélar eru notaðar við
pökkunina, og krydddaun og ryk
leggur um allt húsið. Þrátt fyrir
að bygginganefnd Kópavogs og
heilbrigðisnefnd hafi gert sam-
þykktir um að starfsemin á neðri
hæðinni sé ólögleg og beri að
hættahenni, hefur kryddpökkun-
in haldið áfram, eins og ekkert
hafi I skorizt, og yfirvöld ekki
skipt sér nánar að málinu. Nýver-
dagar til jóla
ið hafa lögregluskýrslur verið
teknar, og i fyrradag var lög-
bannsbeiðnin lögð fram. Fellur
úrskurður væntanlega I dag eða á
morgun.
í lögum um sambýli er skýrt
tekið fram, að ekki megi nota
ibúðarhúsnæði fyrir annað en það
er byggt fyrir.
Þrjú dufl á
Seyðisfirði
Gsal-Reykjavik — Bæjar-
stjórinn á Seyðisfirði hafði
samband við Langhelgis-
gæzlua i gær og óskaði cftir
þvi að starfsmenn hennar at-
huguðu þrjú dufl, sem sáust
á Seyðisfirði i gær, um 300
metra utan við svonefndan
Borgartanga, 30-40 metra frá
landi.
Bæjarstjórinn á Seyðisfirði
telur að duflin geti verið úr
kafbátagirðingu, og þá frá
striðsárunum.
I gærkvöld var varðskip
komið til Seyðisfjarðar til að
kanna málið.
MEÐAL EFNIS
Vangaveltur um
faðerni Snorra
Sturlusonar
Kominn af Grím!
lvamban
Vðfangadagsktöld
í Winntpeg
fsland og hin nýja
lieintsniynd
jarðfræðihnar
Þörl.dHut l*j#m*»'«.n ívKUp;
Jólasaga frá Garði
llfíúi Uaralu-on:
Litazl um við
áramót
{ 1 - . | j?
l|| ' |
Tímans
komið út
JÓLABLAÐTimanser komið út
og verður þvi dreift á næstunni,
þannig að dreifingu verður lokið
upp úr helgi.
Jólablaðið er 80 siður og með-
al efnis þess má nefna: Vanga-
veltur um faðerni Snorra
Sturlusonareftir Sigurð Ólason,
viðtal til Erlend Paturson, sem
ber fyrirsögnina: Kominn af
Grimi kamban, Aðfangadags-
kvöld i Winnipeg eftir Gest
Pálsson, island og hin nýja
heimsmynd jarðfræðinnar eftir
Sigurð Steinþórsson, Jólasaga
frá Garði eftir Þórhall Bjarnar-
son, biskup, og „Litazt um við
áramót” eftir Helga Haralds-
son.
Á Þorláksmessu mun svo
Jólablað Barna-Timans fylgja
Timanum, þar sem auk efnis
fyrir börn og unglinga verður
getraun með reiðhjól að verð-
launum.
Forsíða
Jólablaðs
Tímans
1975