Tíminn - 30.01.1976, Síða 21
Föstudagur 30. janúar 1976.
TÍMINN
21
9
,Þetta kom okkur
ekkert á óva rt'
— sagði Kristinn Jörundsson, fyrirliði IR-liðsins,
sem mætir bikarmeisturum Ármanns
í bikarkeppninni
— Þetta kom okkur ekki á óvart. Við erum orðnir vanir
því, að dragast gegn sterkum liðum í byrjun, sagði Krist-
inn Jörundsson, fyrirlipi islandsmeistara IR, sem dróg-
ust gegn bikarmeisturum Ármanns í fyrstu umferð
bikarkeppninnar í körfuknattleik.
IR-ingar hafa aldrei náð langt i
bikarkeppninni — siðast voru þeir
slegnir út af Ármenningum, sem
sigruðu þá með eins stigs mun. —
Við höfum aldrei náð að vinna
bikarkeppnina. Á þvi ætlum við
nú að gera breytingu — það er þvi
alveg sama fyrir okkur, hvort við
vinnum sigur yfir Ármanni strax,
eða siðar, sagði Kristinn.
Ármenningar hefja vörnina —
gegn ÍR, og er leikurinn eini stór-
leikurinn i fyrstu umferð bikar-
keppninnar, en þá mætast þessi
lið:
Breiðablik — Njarðvik
Grindavík — Valur
Haukar — KR (A-lið)
1S — Þór, Akureyri
Ármann — ÍR
Snæfell, Fram og KR (B-lið)
sitja yfir og komast þvi.beint í 8-
liða úrslitin. I gær var einnig
dregið i bikarkeppni kvenna. tS
og IR mætast i fyrstu umferðinni,
en þá sitja Grindavik, Fram og
KR, hjá.
Kevin Keegan, hinn snjalii leik-
maður Liverpool er i fullri alvöru
að hugsa um að reyna fyrir sér i
meginlandsknattspyrnunni þegar
þessu keppnistimabili lýkur i
Engiandi. En Liverpool vill ekki
fyrir nokkurn mun láta hann fara,
og hefur Bob Paisley, fram-
kvæmdarstjóri Livcrpool, marg-
sagt það við hann. Vitað er um
a.m.k. tvö stórfélög i Evrópu,
sem eru á höttunum eftir Keegan,
og er annað þeirra Barcelona,
sem er reiðubúið að greiða vel yf-
ir 500.000 pund fyrir hann.
Astæðan fyrir þvi að Keegan
vill fara er ekki sú, að honum liki
svo illa hjá Liverpool, heldur vilí
hann reyna eitthvað nýtt, eins og
hann segir sjálfur. Helzt vill hann
fara til Spánar, en V-Þýzkaland
og Holland eru einnig ofarlega á
óskalista hans.
Eins og er vill Bob Paisley ekki
hlustaáhann i þessu sambandien
ef Barcelona býður yfir 500.000
pund, gæti það verið mögulegt að
hann endurskoðaði afstöðu sína,
þegar keppnistimabilinu lýkur.
Ástæðan er sú, að bráðlega á að
fara að taka upp nýti kerfi i Eng-
landi, þar sem leikmennirnir
verða ekki eins bundnir félögum
sinum og nú. Þegar nýja kerfið
kemst á, geta leikmenn miklu
frekar samið sjálfir við önnur
félög vilji þeir skipta um félag, og
i þessu sambandi gæti Keegan
samið sjálfur við Barcelona, og
alltsem Liverpool myndi bera úr
býtum fyrir hann væri um 100.000
pund. A þessum erfiðu timum eru
500.000 pund mikill peningur,
jafnvel fyrir jafnrótgróið félag og
Liverpool.
JOHN DUNCAN... hefur skorað 18 mörk fyrir Tottenham á keppnis-
timabilinu. Hans æðsti draumur er að íeika með Tottenham á
Wembley.
,,Ég er
ráðinn til
að skora
•• | vr
mork
— segir hinn marksækni John Duncan,
sem hefur fetað í fótspor Skotans
fræga, Alan Gilzean
— Ég keypti John Duncan fyrst og fremst til að skora
mörk, og hann vinnur svo sannarlega fyrir kaupinu
sínu, sagði framkvæmdarstjóri Tottenham, Terry
Neill, ánægður þegar Duncan skoraði jöfnunarmark
Tottenham á móti Manchester United nýlega. Ef talað
er við Duncan er sama uppi á teningnum hjá honum. —
Ég veit, að mér er ætlað að fara inn i vítateig and-
stæðings og skapa mér færi þar. Það er sama fyrir-
skipunin hjá Terry Neill fyrir hvern leik. Ég á að vera
inni í vítateignum og nota þau færi sem gefast.
Terry Neill keypti Duncan
frá Dundee fyrir 140.000 pund.
Áður hafði Bill Nicholson
fylgzt mjög náið með Duncan,
en einhvern veginn var það
svo, að þegar Nicholson birtist
á vellinum hjá Dundee, brást
ekki, að Duncan átti slæman
dag. bess vegna dreymdi
Duncan aldrei um að hann ætti
eftir að feta i fótspor hins
nafntogaða Skota, Alan
Gilzean, og fara frá Dundee
til Tottenham. En svo lét
Nicholson af framkvæmda-
stjórastöðunni hjá Tottenham,
og eftirmaður hans, Neill, hélt
áfram að fylgjast með
Duncan. En þá var eins og
leikur Duncan breyttist til
batnaðar og ekki leið á löngu
þar til hann var kominn til
White Hart Lane. Hvorugur
þeirra hefur séð eftir kaupun-
um. Neill hefur fengið þann
markaskorara, sem hann
dreymdi um. og Duncan hefur
aldrei leikið betur.
Nú er Duncan 26 ára og
æðsti draumur hans er að
ieika með Tottenham á
Wembley. en hann verður vist
að biða a.m.k. i rúmlega eitt
ár með það, þar sem Totten-
ham er fallið úr bæði deildar-
bikar og bikar. En Duncan
segir sjálfur, að sér liggi ekk-
ert á, hann ætlar sér að skora
mörk fyrir Tottenham fjögur
til fimm ár enn.
Slags
mdla-
leikir
AXEL Axelsson og Gunnar
Einarsson voru i sviðsljósinu i V-
Þýzkaiandi á miðvikudagskvöld-
ið — báðir lentu þeir i mikluin
slagsmálaleikjum. Axel og félag-
ar hans unnu sigur (13:12) yfir
Derschlag — þeir skoruðu sigur-
markið nokkrum sekúndum fyrir
leikslok.
Mikil harka var i þessum leik —
og slógu leikmenn liðanna vel frá
sér. Axel skoraði 3 mörk i leikn-
um, en Ólafur Jónsson lék ekki
með — vegna meiðsla.
Gunnar og félagar hans i
Göppingen töpuðu (17:19) fyrir
Milbertshofen. Leikurinn var
ruddalega leikinn og sáust ýmis
ljót brögð, sem eiga frekar heima
i fjölbragðaglimu, heldur en i
handknattleik. Gunnar skoraði 5
(3 viti) mörk i leiknum.
KEVIN KEEGAN... verður hann
seidur til Barcelona á 500 þús.
pund?
Keegan vill
fara til Spánar
— hann vill reyna fyrir sér í
meginlandsknattspyrnunni