Tíminn - 22.02.1976, Page 1
Leiguf lug—Neyðarf lua
HVERTSEM ER
HVENÆR SEM ER
FLUGSTOÐIN HF '
Simar 27122-11422
44. tölublað — Sunnudagur 22. febrúar!976—60. árgangur
ÆHGiR"
Áætlunarstaðír:
Blönduós — Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur — Rif Súgandafji
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
Biskupsstóll
endurreistur
að Hólum?
:?■, ,»'
Séö heim að Hólum.
MÓ—Reykjavik — Kirkjumála-
ráöherra Ólafur Jóhannesson
hefur látiö semja frumvarp um
aö endurreisa biskupsstól á Hól-
um. 1 viðtali viö Timann sagöi
raöherrann aö hann legöi frum-
varpið fyrir rikisstjórnina innan
skamms og kemur þvi væntan-
lega til kasta þess Alþingis sem
nú situr aö fjaila um það. Mikill
áhugi er fyrir þvi aö biskupsstóll
veröi endurreistur á Hólum og
m.a. hefur Hólafélagiö, sem
stofnaö var fyrir tiu árum sem
höfuömarkmiö á stefnuskrá sinni
aö endurreisa biskupsstól á Hól-
um.
Hólafélagið berst fyrir ýmsum
fleiri málum til að efla Hólastað,
og er sérstök áherzla lögð á, að á
Hólum risi menntastofnanir við
Gætum spamð tvo milljarða
króna í erlendum gjaldeyri
hlið bændaskólans, sem þar er nú,
sem hæfi hinu forna menningar-
setri. Er að þvi stefnt að Hólar
verði i framtiöinni andleg aflstöð
og kirkjuleg miðstöð i Hólastifti.
Hólafélagiö berst nú fyrir þvi,
að stofnaður^verði lýðháskóli á
Hólum og þ*egar hefur fengizt
nokkurt fé til þess skóla. M.a. gaf
Halldóra Bjarnadóttir á Blöndu-
ósi 100 þúsund krónurtil skólans á
siðustu Hólahátið.
Þá hefur Hólafélagiö samþykkt
að beita sér fyrir aö koma upp
bókasafni á Hólum, þar sem
höfuðáherzlan verði lögð á að fá
til Hóla sem flestar þær bækur,
sem þar voru prentaðar forðum.
Siðastliðin tvö sumur hefur
staðið yfir á vegum Hólafélagsins
endurhleðsla á garði kringum
kirkjugarðinn á Hólum. Er
garðurinn hlaðinn úr isl. grjóti
sem sótt er i Mallandsskriður á
Skaga. Einar Þorgeirsson garð-
yrkjumaður hefur yfirstjóm með
þvi verki en ætlunin er að ljúka
viö að hlaða garðinn i sumar.
Kostnaður við það verk er orðinn
um 3 millj. kr.
Formaður félagsins er sr. Arni
Sigurðsson Blönduósi.
— ef við framleiddum allt kjarnfóður sjólfir
— nýjar tilraunir sýna að unnt er að nýta til þess
afgangsraforku og dýrafeiti, sem nú er nær verðlaus
MÓ-Reykjavik — Ariega flytjum
viö islendingar inn um 60 þúsund
lestir af kjarnfóöri. Miöaö viö nú-
verandi verðlag er gjaldeyris-
eyðslan viö þennan innflutning
nálægt tvö þúsund milljaröar.
Samkvæmt nýjum tilraunum
viröast nú aliar likur benda tii
þess aö allan þennan innflutning
sé hægt að spara meö þvi að
framleiða allt okkar kjarnfóöur i
landinu og jafnvel má hugsa sér
útflutning á kjarnfóöri i stórum
stil.
Island er gott grasræktarland,
en vart er hægt að hugsa sér
komrækt hér á landi i stórum stil.
Þvi verður að framleiða kjarn-
fóðrið úr grasi. Einnig má bæta
grasmjölið með iblöndun á dýra-
feiti og lýsi.
Nýjar tilraunir hafa sannað, að
hægt er að blanda dýrafeiti i
grasköggla og gera þá með þvi að
mun betra kjarnfóðri. Hér á landi
falla árlega til um 700 til 1000 lest-
ir af dýrafeiti. Þessi feiti er flutt
úr landi fyrir litið verð og notuð
þar aö stórum hluta i dýrafóður.
; Virðist þvi kjörið að nýta þessa
feiti heldur til að bæta innlenda
kjarnfóðurframleiöslu.
Þá má einnig hugsa sér að bæta
graskögglana með lýsi og fiski-
mjöli.
Nú eru framleiddar hér um 5-6
þúsund lestir af graskögglum. Til
að 'losna við ailan innflutning
þyrfti þessi framleiðsla að verða
40-50 þúsund lestir, og bæta i þá
framleiðslu dýrafeiti og fiski-
mjöli, svo fóðurgildið verði nægi-
lega mikið.
Gunnar Bjarnason fóður-
fræðingur sagi i viðtali við Tim-
ann, að samkvæmt þessum nýju
tilraunum væru graskögglar
bættir með dýrafeiti og fiskimjöli
með besta kjarnfóðri, sem hægt
væri að fá. Sagði Gunnar, að i til-
raununum.sem gerðar hefðu ver-
ið, reyndust kýrnar gefa mesta
mjólk eftir hverja fóðureiningu
með sliku fóðri.
— Ég er að visu bjartsýnismað-
ur sagði Gunnar, en ég sé fyrir
mér, að við Islendingar getum
ekki einungis hætt að flytja inn
kjarnfóður og sparað með þvi
gjaldeyri, heldur hafið útflutning
á kjarnfóðri i stórum stil þvi að
þessi framleiösla er fyllilega
samkeppnisfær á heimsmarkaði.
Ég vil minna á alla þá sanda, sem
við eigum og engum eru nú til
gagns. Ef við t.d. tækjum svæðið
frá Stemmu að Hornafjarðar-
fljóti, þá væri á þvi svæði hægt að
rækta 10 þúsund hektara án þess
að raska nokkru. Þarna væri
hægt að framleiða 40-50 þúsund
lestir af graskögglum og frá
Austfjörðum væri siöan hægt að
koma með fiskimjöl til að bæta
framleiðsluna. Ef við flyttum
þetta siðan út i stórum skipum
yrði þessi framleiðsla örugglega
mjög eftirsótt.
Bergsteinn Gizurarson verk-
fræðingur sagði i viðtali við Tim-
ann að þegar Sigölduvirkjun yrði
komin i gagnið yrði hér á landi
um 70 MW af ónotaðri raforku yf-
ir sumarmánuðina. Það byggist á
þvi, að mun meira er framleitt af
rafmagni á sumrin, þegar mikið
eri öllum vatnsföllum, jafnframt
þvi sem markaðurinn er þá minni
vegna þess, að litið rafmagn fer
þá tíl húsahitunar.
Virðist þvi kjörið að nýta þetta
rafmagn til þurrkunar á grasinu
enda er ekki sjáanlegur annar
heppilegri markaður til að nýta
þessa umframorku. Einnig má
búast við þvi að á næstu árum
aukist þetta umframrafmagn enn
með sifellt aukinni húshitun með
rafmagni.
Til að þurrka hey i verksmiðju
sem framleiðir um 20 þúsund
lestir af graskögglum þarf um
30 MW af raforku.
Bergsteinn sagði, að það hefði
verið athugað, hvort hagkvæmt
væri að nýta raforku til að þurrka
hey til graskögglaframleiðslu. Ef
raforkan fæst á sama verði og
fyrirhugað er að selja hana járn-
blendiverksmiðjunni;er það mjög
hagstætt og virðist framleiðslan
þannig verða um 20% ódýrari en
t.d. ef notuð væri olia til
þurrkunarinnar.
Með samtengingu allra orku-
veitusvæða landsins, eins og nú er
stefnt að virðast allar likur á að
verulegt umframrafmagn verði
til staðar hvert sumar, sem ekki
verði frekar nýtt nema til komi
einhver stík árstiðabundin fram-
leiðsla.
Bretarnir aftur
komnir
inn á friðaða
svæðið
SJ—Reykjavik. — Brezku
togararnir eru nú aftur komn-
ir inn á friðaða svæðið. 1 fyrri-
nótt voru togararnir að flytja
sig, en verndarsvæðið er nú
sunnar en áður, eða ut af
Hraunhafnartanga beint
norður af Raufarhöfn um 66
gr. norður breiddar. Mikill
hluti verndarsvæðisins ér nú
innan friðaða svæðisins. Vont
veður var á miðunum I fyrri-
nótt og ekki önnur tiðindi það-
an.
Búnaðarþing hefst
á mónudaginn
— rafmagnsmál og útríming grá-
gæsar meðal mála sem rædd verða
MÓ—Reykjavik — Biinaðarþing
verður sett i Bændahöllinni I
Reykjavlk á niánudag kl. 10.
Formaöur Búnaöarfélags ts-
lands setur þingið og land-
búnaöarráðherra flytur ræðu.
Alls eiga 25 fulltrúar rétt til setu
á Búnaðarþingi. Að vanda iná
búast viö að mörg mál verði
rædd á þinginu og mun það
standa I hálfan mánuð til þrjár
vikur.
Meðal þeirra mála, sem koma
til meðferðar eru rafmagnsmál
I sveitum, en þau eru viöa i
miklum ólestri eins og oft hefur
verið skýrt frá hér i blaðinu.
Erindi liggur fyrir, um aö leitt
verði þriggja fasa rafmagn um
sveitir landsinsog það raf-
magnsverð verði það sama um
land allt.
Þá veröur á búnaðarþingi
rætt um eigna og afnotaréttinn
af landinu og erindi liggur fyrir
um að skapa konum jafna að-
stöðu að félagsmálum bænda og
karlar hafa.
Einnig verður rætt um hin si-
gildu mál eins og ræktun lands
og búfjár og tillaga veröur lögö
fyrir búnaöarþing um aö útrýmt
verði allri grágæs hér á landi.
Grágæs er einn mesti skaðvald-
urinn I ræktarlöndum nú og
skemmir hún mikla fláka
gróöurlands á ári hverju.