Tíminn - 22.02.1976, Síða 6

Tíminn - 22.02.1976, Síða 6
6 TÍMINN Sunnudagur 22. febrúar 1976 Gamla framhúsiö frá Hæringsstöðum 14/9. 1975. - Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið í gamla daga "-- J „Bæjarfjöl” frá Hæringsstööum I Svarfaöardal. Litum norður i Svarfaðardal. Þar er gamla stórbýlið Atla- staðir fremsti bær norðan (vest- an) ár. Bærinn stendur hátt og erútsýn hin fegursta. Atlastaðir lágu fyrrum allmjög i þjóð- braut, ásamt Koti handan ár, meðan ferðast var á hestum og tveimur jafnfljótum! Frá bæn- um liggur leið um Heljardals- heiði yfir i Kolbeinsdal i Skaga- firði, og einnig leiðir i utanverð- an Skagafjörð. Var oft gest- kvæmtá Atlastöðum. Þaðan var lagt upp á vesturleið og komið þangað að vestan. Gamli bærinn var stór og myndarlegur, fremst framhús með timburþili, en gaflar Ur torfi og grjóti norð- antil og þak úr torfi. Fyrir ofan dyr var fjöl og á hana skorið bæjarnafnið og ártalið 1878 B.S. Þessifjöl er nú i forstofu ibúðar- hússins, steinhús sem reist var 1955. Úr framhúsi lágu löng | göng með búr og eldhús, sitt I hvoru megin, en innst var bað- í stofa i þremur hólfum, allt úr torfi, en þiljað innan að mestu, eða nokkru. Var búið i gamla bænum til 1956, eða þar um bil. Nú mun verið að rifa bæinn sbr. mynd er undirritaður tók af honum 14. sept. 1975. Til vinstri sést verkfærageymsla, er jafn- framt mun vera viðgerðarverk- stæði. (Nýja húsið er lengra uppi i brekkunni). A Hæringsstöðum, austan ár nokkru utar, reisti Bergur Bergsson bóndi sérkennilegt framhús úr timbri árið 1896. Yfir dyr setti hann skrautlega útskoma fjöl, sem hér er sýnd mynd af. Skar Jón Bergsson fjölina út. Litir eru bláir og brúnir. Karl Karlsson bóndi i Kleifabrekknakoti lét taka myndina af fjölinni og Utvegaði myndirnar tvær af Atlastöðum 1944. Fjölin er geymd á Hær- ingsstöðum, en framhúsið var flutt fyrir alllöngu að Klaufa- brekknakoti og stendur þar nú sem geymsluhús, spöl frá ibúð- arhúsinu. Myndin tekin 14. sept. 1975sýnir gamla framhúsið. Sjá timburlistana, litlu 6 rúðu. gluggana og dyrnar. Húsið vottar gamla og góða timbur- smið, og fjölin listfengi. 1 fyrra var birt 'mynd af gamla bænum á Hreiðarsstöð- um i Svarfaðardal. Munu þessir bæir á Atlastöðum og Hreiðars- stöðum brátt jafnaðir við jörðu og með þeim hverfa gömlu torf- bæirnir i Svarfaðardal. Framhúsiö á Atiastööum i Svarfaöardai 1944. Atlastaöir f Svarfaöardal 1944. Gamii bærinn á Atlastööum i Svarfaöardal 14/9. 1975.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.