Tíminn - 22.02.1976, Blaðsíða 9

Tíminn - 22.02.1976, Blaðsíða 9
Sunnudagur 22. febrúar 1976 TÍMINN 9 Koss frá Carlosi og bréf til mömmu. Carlos I hvltum frakka heiisar þarna landa sinum Hernandez Acosta meö kossi og faömiögum um Ieiö og hann biöur hann fyrir bréf til móöur sinnar. Rivadh Ai-Azz- awi sendiráösritari i Iranska sendiráöinu horfir steinhissa á. Al-Azzawi sá gislunum fyrir mat og drykk meöan á fluginu stóö og flutti boö og fréttir milli skæruiiöanna og Bruno Kreiskys, kanslara Austurrlk- is. ur og gleði mikil. Meðal gesta var Carlos. Hann gaf sig strax fram. — Ekkert sjálfsagðara — sagöi hann, þegar hann var spurður hvort hann vildi ekki koma niður á lögreglustöð og svara nokkrum spurningum. Þá spurði hann hvort hann mætti ekki fara i jakk- ann sinn. Þegar foringjarnir höfðu ekkert við það að athuga, gekk hann að stól þar sem jakk- inn lá og þreif þaöan skamm- byssu og hleypti af. Þetta gerðist með svo miklum leifturhraða, að lögreglumennirnir fengu enga rönd við reist, — þeir höfðu ekki einu sinni haft tima til að gripa til vopna og fyrr en varði lágu þrir komumanna i valnum, einn þeirra var Mourkarbel. Carlos flýði út. Parisarlögregl- an hafði verið svo viss um að Carlos væri fastur þarna eins og fluga i neti, að ekki hafði verið hirt um að setja verði við dyrnar og á göturnar, og slapp Carlos þvi óhindraður I burtu. Lögreglan handtók Amparo og var hún i varðhaldi allt til loka ársins ’75. Þá handtók hún einnig Johannes Weinrich nokkurn, frá Mainz Hann hafði lagt til bilinn sem Carlos ók i til Orly flugvall- ar, er hann ætlaði að sprengja upp A1 E1 þotu á leið til Israel. Siðar voru félagarnir Böse og Schaz handteknir i ibúð Moukar- bels. Samkvæmt skjölunum, sem lögreglan komstyfir, hafði Carlos einhver sambönd i kúbanska sendiráðinu. Nánari athugun á þessum þætti leiddi til þess að þremur sendiráðsstarfsmönnum var visað úr landi. Skjölin færðu einnig sönnur á, að sprengjuárás- in á Orly hafði verið verk Carlos- ar og auk þess sprengjuárás á lyfjabúð i St. Germaine-des-Prés i Paris, en þar létu tveir menn lifið og þrjátiu særðust. 1 ibúð Carlosar og við handtöku Böse var mikið magn af vopnum gertupptækt. Flest þeirra voru af nýjustu gerð, þeirra á meöal handsprengjur af gerðinni US-M 26, sem stolið hafði verið i ágúst ’74 úr bandariskri vopnabirgða- stöð. Sprengjur af þessari gerð voru notaðar i árás japanskra skæru- liða á franska sendiráðið i Haag svo og á lyfjaverzlunina i Paris. Þá fannst einnig mikið af föls- uðum skilrikjum sem stolið hafði verið frá opinberum skrifstofum i borg i Þýzkalandi en stuldurinn á þeim hafði upphaflega verið skrifaður á reikning Baader Meinhof samtakanna. Eftir yfirheyrslur hjá frönsku lögreglunni voru þeir Böse og Schaz fluttir yfir þýzku landa- mærin. Þegar þangað kom, var þeim sleppt, þvi þeir höfðu ekki komizt I kast við lögin i heima- landi sinu. Skömmu siöar hurfu þeir. Þegar árásin á höfuðstöðvar OPEC i Vin var gerð, kom I þeirra stað annar félagi þeirra. Sá var Joachim Klein. Hann særðist alvarlega i átökunum og lézt fyrir stuttu af völdum skotsáranna. Klein, Böse og Weinrich höfðu ásamt tveimur kvenmönnum, þeim Mechthild Rogalli og Birgitte Kuhlmann stofnað með sér félag sem þau kölluðu R. K. (Revolonárer Kampf). Þegar Carlos kynntist þeim, vantaði þau leiðtoga. Þau tóku hann strax i hópinn og varð hann brátt leiðandi afl innan félagsins. Það var samstarf milli þeirra og paléstinuskæruliða. PFLP gaf út Kiædd siðum kjói, jakka með skinnkraga og andlitið hulið bak við grimu með fingurinn á gikkn- um skipar þessi lágvaxni kven- maður einum gislanna að ganga út úr byggingunni. Hún er þýzk með möndluiaga augu og áber- andi þunnar varir. Lögreglan leitar hennar nú ákaft auk Mecht- hild Rogalli og Wilfried Böse, fé- laga hennar úr R.K. þá yfirlýsingu sumariö 1975, að Carlos væri málaliðsmaður þeirra og siðastliðna 18 mánuði hefði hann stjómaö sex stærstu hermdarverkunum. Einnig réðst R.K. á höfuðstöövar OPEC undir nafni þeirra. Eftir atburðinn á Rue Trolluier var slóð Carlosar rakin til Madrid. Þar hjálpaði tengill hans honum að komast til Alslr. I sjö vikur dvaldi hann I höfuðborg Alsir, en þangaö flaug hann ein- mitt siðar um árið með gisla slna frá Vinarborg. I byrjun septem- ber fór Carlos frá Alslr yfir til Libýu og bjó þar I allmargar vik- ur rétt utan við Tripoli sem gestur libönsku öryggisþjónustunnar. Þremur vikum áður en árásin á OPEC var gerð, fór hann frá Libýu til Alsír og þaðan til Madrid. Frá Madrid fór hann siðan til Frankfurt þangað sem hann hafði boðað félaga sina á lokafundinn fyrir framkvæmd áætlunarinnar. Um haustiö hafði það borizt saudi-arabiskum öryggisyfir- völdum til eyrna, að Carlos dveldi óáreittur i Libýu. Þau voru afar áhyggjufull yfir þessum fréttum þvi þau vissu um áform Carlosar um að koma oliuráðherranum þeirra undir græna torfu. Þegar yfirmaður öryggisþjón- ustu þeirra, major M. Ali E-Shaly og major Fahad El-Ghannam fóru á fund Gadafis rikisleiðtoga Libýu, og fóru fram á að Carlos yröi framseldur, kvaðst Gadafi ekki hafa heyrt umrædds Venezúelabúa getið fyrr. Carlos var þakklátur fyrir þetta og laun- aði gestrisnina með þvi að afsaka það við libanska oliuráöherrann að Libaninn Yusef Al-Szmirli hefði beðið bana i látunum. Aftur á móti var hann ruddalegur við Yamani og æpti að honum ókvæðisorðum. Annars hagaði Carlos sér eins og rati á meðan á flugferðinni til Alsirborgar stóð. Hernandez Acosta oliuráöherra Venezúela kvað hann hafa talað stanzlaust. Hann montaði sig af afrekum sin- um og málakunnáttu, gaf gislun- um eiginhandaráritun eins og kvikmyndastjarna og skýrði frá þvi, að hugmyndin um ránið væri frá sér komin, hann hefði þróað hana áfram og væri hún liður i þvi að gera stofnun Palestinurikis að veruleika. A þessum sjálfslýsing- um Carlosar auk bréfs sem hann skrifaði móður sinni var hægt að búa til heildarmynd af Carlosi. Umrætt bréf komst aldrei til skila, þvi að Dona Elba' móðir hans var horfin og svo var með föður hans. Hann skýrði vinum sinum frá þvi stuttu áður en þau hjónin hurfu að hann teldi að næstelzta syni sinum hefði tekizt einum of illa upp, en hann myndi aldrei skammast sin fyrir elsku drenginn sinn. (Þýtt og endursagt JB) A fiugvellinum i Alslr sleppti hann glslunum og gekk meö þeim frá vél- inni kæruieysislega meö hendur i buxnavösunum. A leiðinni frá Vin masaði hann stööugt, hreykti sér af afrekum sínum og gaf eiginhand- aráritanir. Fáum mánuðum áður hafði hann lent á þessum saina flug- velli þá á flótta undan frönsku lögreglunni, sem var á hæluin hans vegna morðs á tveimur lögregluforingjum og eins af félögum sinum. Alsirsk yfirvöld veittu honum þá hæli sem pólitiskum flóttainanui.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.