Tíminn - 22.02.1976, Síða 10

Tíminn - 22.02.1976, Síða 10
10 TÍMINN Sunnudagur 22. febrúar 1976 En nú ætla ég að hopa aftur i timann til ársins 1925, en þá kom ég i fyrsta sinn til Reykjavikur og settist i Kennaraskólann. Áður hafði ég lokið tveggja vetra námi við Alþýðuskólann á Eiðum, eins og þessi skóli hét þá. Eftir þessa skólavist hafði ég verið tvo vetur kennari á Austfjörðum. Þessi kennslustörf urðu mér lærdóms- rik — og undirstaða þess, er siðar varð. Börn hafa jafnan verið mér mikið yndi og eftirlæti og sifellt rannsóknarefni. Kennslustörf kaus ég mér fyrir ævistarf og iðrast þess aldrei. Fyrsti leikvöllur sem ég sá i Reykjavik var völlurinn við Grettisgötu 11, en annar var við Njálsgötuna, og man ég óglöggt eftir honum, eins og hann var á þessum ti'ma. En eftir þvi sem ég veit bezt eru þetta tveir fyrstu leikvellir Reykjavikurborgar. Á Grettisgötuvellinum sá ég nokkrar rólur, ramba eða vegasölt, klifurgrind, sandkassa og sivala jafnvægisslá. Ég man ekki eftir að fleira væri til að dreifa. A Grettisvellinum var gæzla og annaðist hana miðaldra eða öldr- uð kona, virðuleg og efalaust vönduð á alla lund. En mér virtist starf hennar að mestu leyti i þvi fólgið að prjóna. Jú, mikið vatn hefur runnið til sjávar siðan 1925. En framfarir Ieikvallamálum, hverjar hafa þær orðið? Þvi miður fremur litlar. Og þetta kemur greinilega fram i greininni i Þjóðviljanum 28. júni. Ums jónarmaður leikvalla i Reykjavik, Bjarnhéðinn Hallgrimsson, viðurkennir þetta lika drengilega. Bjarnhéðinn er gamall góðkunninjgi m inn og hann er sizt hér um að saka. En hver ræður allri þessari kyrrstöðu? Ég hygg að verkfræðingar bæði i Reykjavik, stærri kaupstöðum og kauptúnum landsins vinni á vissan hátt þarft og gott verk t.d. með því að að velja svæði undir leikvelli og sjá um að grunnur vallanna sé við hæfi. En það er lika það eina, sem þeir geta gert i þessu sambandi. Ég spyr: Eru nokkrir islenzkir sérfræðingar til i þessu um val leiktækja og skipulagningu þeirra á völlunum? Það væri fróðlegt að fá að vita þetta. Og einnig, ef þeir eru til, hvað hafa þeir látið eftir sig liggja? 1 þessu sambandi vil ég taka Börnin á Suðureyri nefndu þessa æfingu ,,aö hlaupa yfir fjallið”. Borð- in, sem hlaupiðer á, fjaðra eins og myndin sýnir. Fimm til sjö ára börn hafa litla ánægju af að stökkva hástökk á jafn- sléttu. En með þvi að stökkva af kistuloki, sem er 15-20 sm á hæð vex gleðin og áhuginn. Slik stökk styrkja fæturna. 1 fórum á ég til mikinn fjölda ljósmynda af mörgum leikvöll- um, leiktækjum, leikstörfum og leikfimi og margs konar iþrótt- um þar, sem ég hef skipulag allt eftir þvi, sem efni og ástæður stóðu til á hverjum stað. Frá Suðureyri ætla ég að segja þessalitlusöguumlitinnleikvöll i ljósmyndum þótt ekki séu þær allar jafngóðar. En „meningener god nok”, sagði Óli Maggadon á sinni tið. Og með skýringum eftir föngum mun þetta skiljast, þótt ekki skellisvo skarpt i tönnunum. Um iþróttafræðilegt gildi mynd- anna, þar sem það á við, hef ég leitazt við að gera sæmilega glögga grein. Má vera að þetta þætti einhverjum nokkur fróð- leikur. Kvikmynd er þvi miður engin til af leikvellinum á Suðureyri eins og hann var með öllum sin- um iþróttatækjum o.s.frv. Hitter annað mál og '*r ef til vill einstök eigingirni, að ég vil ógjarna að þetta hugarfóstur mitt um fjöl- breyttan leikvöll gleymist alveg i sinni upprunalegu mynd. Já, „minningar vist skulu vaka”. Tvær kvikmyndir hef ég látið gera af leikvöllum. Aðra frá Ytri-Njarðvik en hina frá Búðum i Fáskrúðsfirði. Þessar myndir hafa báðar verið sýndar viða um landsbyggðina og hvarvetna við góða dóma, hvað svo sem allri tæknilegri fullkomnun kemur við. Þetta eru litmyndir og segja hug minn annan og tjá hann til hlitar. Núna nýlega athugaði tækni- fræðingur sjónvarpsins báðar þessar myndir og taldi sjónvarpið sig ekki geta tekið þær til sýn- ingar vegna þess hve rispaðar þær voru. Rispurnar eru þó ekki meiri en það, að á 12—15 m. færi gæti þeirra litt og verður þessi útúrdúr eigi lengri. Húsið, sem rólurnar ber við, var Ibúð skólastjórans á Suðureyri. Þá voru ibúar i Súgandafirði rúmiega fjögur hundruð, nem- endur skólans á milli fimmtiu og sextiu. Myndin sýnir börn og ung- linga ganga syngjandi fylktu liði úr blaktandi fánum inn á leikvöll- inn. Þetta var vigsludaginn. m-------------------------► Aðalsteinn Hallsson, skólastjóri á Suðureyri á sinni tið og upphafs- maður leikvallarins þar og óþreytandi liðveizlu- maður ungu kynslóðar- innar. Hinn 28. júni sfðastliöinn birtist i Þjóðviljanum grein með fyrir- sögninni: „Hvers vegna eru leik- vellir ónotaðir?” Undirskrift greinarinnar S.dór Mér þótti grein þessi mjög góö og hún vakti óskipta athygli mina. Þarna voru sögð orð, sem sannarlega voru um efni, sem lengi hefur verið mér mjög hug- leikið. Greininni fylgdu margar og góðar ljósmyndir til skýringar, en einkum þó efninu til ennþá meiri sönnunar. Baklega á bekk við visi að klifurgrind. Drengurinn réttir sig upp og læt- ur sig stga til skiptis, gerir bolbeygjur o.s.frv. Æfingin styrkir kviö- vöðvana. Aðalsteinn Hallsson, fyrrverandi skólastjóri: LÍTIL SAGA UM LÍTINN LEIKVÖLL Aðalsteinn Hallsson Kaðlahlið, fimm metrar á hæð, og kistur beggja megin. Eðvarð Sturluson, þrettán ára, sveiflar sér sex metra á milli kistanna. Stigi bak við kistuna til þess að ganga upp. Við lestur greinarinnar kom mér i hug að rifja örlitið upp i nokkrum dráttum ýmsar athafnir minar við gerð leikvalla undan- farna þrjá áratugi. Og sérstak- lega hafði ég i huga barnaleik- völlinn á Suðureyri i Súganda- firði. En það, að ég geri þetta, er alls ekki sprottið af eintómu karla- grobbi aldraðs manns, heldur af fremur einlægum áhuga fyrir börnum allt frá fyrstu tið. Fyrst sem leikfélögum i æsku og siðar sem kennari þeirra i þúsundatali yfir fimmtiu ár.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.