Tíminn - 22.02.1976, Blaðsíða 15

Tíminn - 22.02.1976, Blaðsíða 15
Sunnudagur 22. febrúar 1976 TÍMINN 15 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri: Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrfmur Gislason. Rit- stjórnarskrifstofur i Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — af- greiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð i lausa- sölu kr. 40.00. Áskriftargjald kr. 800.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. Að loknum starfsaldri 1 fyrri daga, þegar samhjálp öll i mannfélaginu var á lægra stigi og ómannúðlegra en nú gerist, urðu .menn að öngla saman efnum, með góðu eða illu, ef þeir og þeirra fólk átti ekki að verða annarra hand- bendi, þegar starfsgeta dvinaði eða óhöpp steðjuðu að. í þokkabót fylgdi svo óvirðing og réttindamissir. Hreppsómagarnir, sveitarkindurnar, urðu hornrek- ur, börn hlutu iðulega hroðalegt uppeldi og þeir, sem til aldurs voru komnir, voru smánaðir fyrir armóð sinn og flest eftir þeim talið. Kennimerki þessarar „samhjálpar” voru uppboðin á sveitarómögunum, sem voru að þeim loknum skikkaðir til dvalar á þeim bæjum, er tóku þá gegn minnstu meðlagi. Ekki er lengra en svo siðan að fólk, er þegið hafði sveitastyrk, fékk kosningarétt, að það gerðist i minni manna sem enn eru uppi, og ennþá skemmra er siðan ellilifeyrir var tekinn upp og aðrar þær bætur, sem frá samfélaginu renna til þeirra, er höll- um fæti standa. Varla finnst neinn, sem hverfa vill aftur til hins fyrra fyrirkomulags með þeirri hörku, ranglæti og mannúðarleysi, sem það fæddi af sér. Aftur á móti er mjög um það deilt, hvort sá háttur, sem nú er á hafð- ur, fullnægir þörfum lifeyris- og bótaþega og al- mennri réttlætiskennd þjóðarinnar. En þar getur torveldi á að uppfylla peningaþörfina, verið góðum vilja til réttlátrar og sanngjarnrar úrlausnar þungur fjötur um fót, ekki sizt þegar á móti blæs i fjárhags- málum. í sambandi við verkfall það, sem stendur nú, hafa lifeyrismál verið mjög til umræðu, og má heita fyrir- sjáanlegt, að þar verði miklar breytingar á, hvort sem samkomulag að öðru leyti er langt eða skammt undan. óljóst er þó enn, hvernig þær breytingar verða framkvæmdar, og sennilegt, að næstu misser- in gildi fyrirkomulag, sem ekki er nema til bráða- birgða. En hvað á svo framtiðin að bera i skauti sinu, þeg- ar þessu bráðabirgðaástandi lýkur? Þar á reynslan og framvindan i þjóðfélaginu að vera til leiðsagnar, og skulu engir spádómar uppi hafðir. Spurningu má á hinn bóginn varpa fram til ihugun- ar: Okkur hrýs hugur við þvi, sem gerðist á fyrri timum, og megum þó minnast þess, að þá varðist þjóðin öll að kalla i þröngri vök og átti ekki margra kosta völ. Getur verið, að næstu kynslóðir muni einn- ig fordæma okkur, sem nú stöndum upprétt, fyrir þann hátt, sem við höfum á þessum málum haft? Við íslendingar erum sem næst tvö hundruð og tuttugu þúsund að tölu. Við erum kannski ekki forsjál þjóð og gætin. En þorri þeirra manna, sem á starfs- aldri eru, vinna þó að minnsta kosti ötullega, hver á sinu sviði, og það mun ekki á neins manns færi að leiða rök að þvi, að þeir, sem meira bera úr býtum fyrir dagleg störf sin, séu alltaf og endilega meiri landstólpar en hinir, sem aðeins hreppa skorinn skammt. Nothæf mælisnúra, sem ákvarðar laun að verðleikum hvers og eins, mun seint fást, svo að ó- yggjandi sé. Svo kemur að þeim tima, þegar starfsaldri lýkur. Væri þá ekki einfaldast, mannúðlegast og réttlátast, að allir, hvar i stétt og stöðu sem þeir hafa verið, karlar og konur, bæjarbúar og sveitamenn, fólk i hjúskap og einhleypingar, fengju sömu f járhæð? Er það sæmandi að draga fólk i dilka, meta einn þetta margra fiska og annan minna eða meira, alveg fram á grafarbakkann? Og þá helzt ætla þeim minnst i ell- inni, sem lagt hafa fram starfsorku sina ævilangt fyrir minnsta fémuni? Þetta er hugmynd til umhugsunar, nú og siðar. —JH ERLENT YFIRLIT ___________\_____ Perez hefur mörg járn í eldinum Andstæðingarnir segja hann tefla of djarft Carlos Andrés Pérez. KISSINGER utanrikisrdð- herra Bandarikjanna hefur veriö á feröalagi i rtímönsku Ameriku siöustu vikuna og rætt viö forustumenn rikjanna þar. Þetta er fyrsta ferð Kissingers til Suöur-Ameriku siöan hann varð utanrikisráö- herra og hefur hann þvi verið sakaður um tómlæti i málum rikjanna þar. Hann hefur meö þessari ferð sinni ætlað að hrinda umræddum ásökunum, en talsvert er dregið i efa að honum takist það. Fyrsta landið, sem Kissing- er heimstítti i ferðalagi sinu, var Venezuela. Það þarf ekki að þykja undarlegt, þvi að Venezuela er nú mikilvægasta viðskiptalandBandarikjanna i Suður-Ameriku, sökum þess að Bandarikin fá þaöan meiri- hluta þeirrar oliu, sem þeir flytja inn. Nýlega er lika lokið þjóðnýtingu allra erlendra oliufélaga I Venezuela og hafa Bandarikjamenn látið það kyrrt liggja, þótt flest þessara félaga eða fyrirtækja, séu amerisk. Einhvern tima hefði slíkt verið tekið óstinnt upp af Bandarikjamönnum. Þessi þjóðnýting er framkvæmd með nokkuð mildari hætti en oftast hefur verið beitt i slík- um tilfellum. ölloliufyrirtæki, sem hér um ræðir, starfa áfram með sama hætti og áður, a.m.k. fyrstum sinn, en sú breyting hefur hins vegar verið gerð, að oliufélag rikis- ins, Petroleos de Venezuela (Petroven), á oröið meirihlut- ann I þeim öllum. Það hefur þótt hyggilegra að yfirtaka félögin á þennan hátt, og láta þau starfa áfram en að reyna að sameina þau strax I eina heild. Að þvi verður þó vafa- laust stefnt i framtiðinni. ÞAÐ er Carlos Andrés Perez forseti, sem stjórnar þessum róttæku aðgerðum, en hann hefur jafnframt mörg fleiri járn I eldinum. Venezuela hefúr hlotnazt mikill oliugróði sökum oliuverðshækkunar á siðustu árum. Perez forseti hyggst ekki leggja þessa fjármuni i sjóði, sem kunna aö rýrna, heldur nota þá strax til aíhliða uppbyggingar á sviði atvinnuvega og félagsmála. Þannig hyggst hann leggja grundvöll að bættum og jafn- ari lifskjörum, en kjaramunur er óviða meiri en i Venezuela. Mikill meirihluti þjóðarinnar býr við sárustu fátækt, þrátt fyrir oliuauðinn. Perez forseti stefnir jafnframt að þvi, að Venezuela verði óháðari oliu- auðnum i framtiðinni og byggi afkomu sina á fleiri atvinnu- greinum en oliuvinnslu. Olian endist ekki nema i tak- markaðan tima og hefur stjórnin þegar gert ráðstafan- ir til að minnka framleiðsluna og koma þannig i veg fyrir að olian gangi of fljótt til þurrðar. Svo langt gengur Perez for- seti i framkvæmdum sinum, að andstæðingar hans ásaka hann helzt fyrir það, að hann ráðist i meira en geta þjóðar: búsins leyfir. Perez segir hins vegar, að timinn sé stuttur til stefnu, ef tryggja eigi lýð- ræðisstjóm til frambúðar, þvi að ella geti öfgaöfl notaö sér fátæktina til að koma á einræði, eins og saga Venezu- ela beri vitni um. Kjörtimabili hans lýkur lika 1979 og hann má ekki bjóða sig fram aftur. Það kann eitthvað að ráða gerðum hans. YFIRLEITT er talið, að Perez forseti sé nú athafna- mesti stjórnarleiðtogi i Suður-Ameriku. Hann er 55 ára að aldri. Þegar hann var að alast upp fór með völd i Venezuela einn iliræmdasti einræðisherra i allri sögu Suður-Ameriku, Juan Gomes, en hann sat að völdum óslitið frá 1909 til 1938. Fylgismenn hans tóku þá við stjórninni og fóm með hana til ársins 1945. Þá var gerð bylting, sem bæði hershöfðingjar og borgarar stóðu að, og var Romulo Betancourt skipaður forseti. Hann lét efna til frjálsra kosn- inga 1956 og bauð sig fram fyrir sósialdemókratlskan flokk, Accion Democratica. Hann náði kosningu, en tveimur árum siðar steyptu hershöfðingjarhonum úr stóli, og var Marcos Perez Jimenez einræðisherra landsins næstu 10 árin. Honum var vikið frá völdum 1958 og þá efnt til frjálsra kosninga. Betancourt var þá kosinn forseti að nýju og fór hann með völd allt kjörtimabilið, en þá var flokksbróðir hans Roul Leoni, kosinn forseti. I forseta- kosningunum 1969 náði frambjóðandi Kristilega flokksins, Rafael Caldera, kosningu, og sat hann út allt kjörtimabilið, eða til 1974. Caldera fékk þá 29% atkvæð- anna, en frambjóðandi sósíal- demókrata 28%. I forseta- kosningunum 1973 var Carlos Andreas Perez frambjóðandi sósialdemókrata og vann mik- inn sigur, hlaut 49% atkvæöa, en frambjóðandi kristilegra demókrata hlaut 37%. Frambjóðandi sósialista hlaut tæp 10%. Perez þótti sýna mikinn dugnað i kosninga- baráttunni. Hann hefur lika aldrei skort pólitiskan áhuga. Hann byrjaði að starfa i flokki Betancourt, þegar hann var 15 ára, og hefur helgað sig stjórnmálum stöðugt siðan. A valdaárum Perez Jimenes sat hann ýmist I fangelsi eða var i útlegð. Hann var um skeið einkaritari Betancourt á sið- ari forsetatið hans, en siðar varð hann innanrikisráðherra i stjórnartíð Leonis. Hann gekk þá röggsamlega fram i þviaðuppræta skæruliða, sem voru sendir frá Kúbu. Siðar varð Perez framkvæmdastjóri flokks demókrata, jafnhliða þvi.sem hann undirbjó fram- boð sitt 1973. Siðan Perez varð forseti, hefur hann ekki aðeins látið til sin taka i innanrikismálum, heldur engu siður á sviði utan- rikismála. Hann tók fljótlega upp stjórnmálasamband við Kúbu, og er sambúð hans og Castro nú betri en meðan Perez var að uppræta skæru- liðana. Það er lika úr sögunni, að Castro styðji skæruliða i Venezuela. Þá hefur Perez beitt sér fyrir þvi, að riki rómönsku Ameriku styrktu samstarf sitt á morgum sviö- um og gerðust jafnframt virk- ari i samtökum þróunarrikj- anna. Þ.Þ. Gamli og nýi timinn i Caracas.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.