Tíminn - 22.02.1976, Síða 20

Tíminn - 22.02.1976, Síða 20
20 TÍMINN Sunnudagur 22. febrúar 1976 AAilli himins og jarðar Síðbúin umsögn um gott barnaleikrit ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Milli himins og jaröar eftir Ionesco og Staffan Westerberg. Leikmynd: Guðrún Svava Svavarsdóttir. Tónlist: Lasse Dahlberg og Viihjálmur Guðjónsson. Leikstjóri: Briet Héðinsdóttir. Aðstoð við táknmál: Vilhjálmur Vilhjálmsson, Stefania Jónsdóttir og Sigurður Skúlason. Það mun vera venjan að gagn- rýnendur sjái fyrstu sýningu þeirra verka er þeir rita um, frumsýninguna sjálfa, sem vanalega er hlaðin einhverju samblandi af eftivæntingu og notalegheitum sem erfitt er að skýra nánar. Fastagestirnir eru i sinu finasta pússi, húsið troðfullt og konunar eru sumar meira málaöar en leikararnir uppi á sviði. Það er upphafning i sálinni, þrátt fyrir þrengslin og i hléinu berst þú i skvaldrandi flaumi gestanna eins og mölkúla i þröngum fataskáp. Sumir gagnrýnendur reyna þó að sjá aðalæfinguna, general- prufuna, eins og hún er gjarnan nefnd: hafa meiri trú á að sjá verk tvisvar, eða þrisvar, til þess að geta lagt á það listrænt mat, gefið þvi lif — eöa öfugt, stigið með járnuðum skó yfir hina veiku glóð. En hvað um það, þessar hug- leiðingar eru sprottnar af þvi að það urðu dálitil endaskipti á þessu hjá mér þegar Þjóðleik- húsiö frumsýndi barnaleikrit sitt „Milli himins og jarðar.” Ég komst hreinlega ekki á frumsýningu og svo varð ekkert af þvi að ég heimsækti sýning- una, fyrr en hún var sýnd i seinasta sinn, — þá drifum við okkur með börnin. A seinustu sýningu. Seinasta sýningin á Milli himins og jarðar var á sunnu- degi á svipuðum tima og mest er að gera á Tjarnarbakkanum á morgnana. Tjörnin er hrein- lega að verða að brauðsúpu og viðbrögð andanna eru eftir þvi, — þær horfa á þig með augljósri skelfingu þegar þú birtist með brauðafgangana heiman að frá þér og svo snúa þær sér og synda eitthvað annað. Þegar ég var barn þá voru endurnar á tjörninni svangar og tóku á móti þér með fagnaðarlátum og vængjaslætti. Það er nú liðin tið, en þrátt fyrir aukna samkeppni og geð- vondar andir, þá er nú samt ávallt nokkuð um að vera við Tjömina, og satt að segja þá varð nú unga fólkið fyrir hálf- gerðum vonbrigðum með það að þurfa að fara i leikhús i stað þess að fara hina vikulega eða hálfsmánaðarlegu sunnudags- ferð niður að Tjörn. Milli himins og jarðar Milli himins og jarðar er smælki eftir Ionesco, tilreitt af Staffan Westerberg og i þýð- ingu Karls Guðmundssonar, en persónur eru mamma, pabbi, litil stúlka og vinnukona. Pabbi og mamma eru timbruð og stúlkan vekur þau, siðan fær hún sögu hjá pabba sinum. Þau lenda i ýmsum erfiðleikum, og á tunglinusvo eitthvað sé nefnt. Inn i þetta var blandaö smá- munum, áróðri og kennslu. Lögð var áherzla á beint sam- band við áhorfendur og börnin fengin til þess að taka nokkurn þátti leiknum. Börnog fullorðn- ir lærðu um heyrnarleysingja, að þeir geta tjáð sig á einföldu, handhægu máli. Þetta atriði var gott, a.m.k. fyrir fullorðna og hefi ég ekki þrátt fyrir áratugi þá sem ég ber á herðum og i augnaráði ekki séð þetta tákn- mál útskýrt fyrr, naumast vitað að það væri til, nema þá fingra- mál. Sýningin er fyrir börn á for- skólaaldri. Ekki veit ég þó alveg hvað forskólaaldur er, mér leið vel og svipuð liðan var hjá þeim yngstu og þeim elztu. Kannske erum við öll á forskólaaldrinum enn. Kannske liður manni svona vel milli himins og jarðar af þvi að enginn vandræðagangur er á börnunum, sem hafa ekki við aö trúa og eiga svo auðvelt með það að setja sig inn i nýja hluti. Enn, mánuði siðar eru setning- ar lifandi á minu heimili. Sýningunni lauk um klukkan tólf, en leikið var á messutima. Sýningar hafa nú verið af- lagðar á Milli himins og jarðar og endurnar á tjörninni hafa til fulls tekið við sunnudeginum aftur og þær svamla i brauð- súpu hægri stjórnar ihalds og framsóknar. Vonandi verða endurnar aldrei aftur eins svangar og þær voru þegar ég var barn, en hugleiða má það, hvort ekki mætti einmitt hafa barnaefci á boðstólnum við Þjóðleikhúsið, eða annars stað- ar á andati'manum, þar eð það virðistekki hrjá andastofninn til muna. Leikendur Leikendur i Milli himins og jarðar voru þau Sigmundur örn Arngrimsson, Briet Héðinsdótt- ir og Þórunn Magnea Magnús- dóttir. Leikhljóð og fl. annaðist Vilhjálmur Guðjónsson. Þau voru ágæt og i góðu sam- bandi við krakkana, sem voru einsog heima hjá sér á leiksýn-. ingunni. Það er hlutskipti ýmissa leik- rita, að deyja einhverjum óskiljanlegum dauðdaga i hinu daglega lifi. Þau virðast týnast og þau komast aldrei i svokall- aða umræðu, sem er blóðvökvi lista og menningar. Þessi ein- falda notalega sýning, hefði átt að ganga lengur, a.m.k. til vors ogvonandi er það ekki gagnrýn- endum að kenna heldur ein- hverju öðru. Jónas Guðmundsson Hvernig "NTLeiðinlegt, ég / Já, skyldurækni atmæiisveizla )fór bara vegna/öKyiaiiræKn1. / fyrir dagbókina Geirþrúðar? skyldurækni u SUNNUDAGUR 22. febrúar 8.00 Morgunandakt. Séra Pétur Sigurgeirsson vigslu- biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög. 9.00Fréttir. Útdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir). a. Frá flæmsku tónlistarhátiðinni i september s.l. Félagar i Einleikarasveitinni i Ant- werpen leika. Armand Van de Velde leikur á fiðlu, og stjórnar. Flutt verða verk eftir Pergolesi, Bach, Loca- telliog Telemann. b. Frá út- varpinu i Berlin: Tvö verk eftir Bach. Rose Kirn leikur Prelúdiu og fúgu i e-moll og HansHeinze leikur Prelúdiu og fúgu i Es-dúr. 11.00 Guðsþjónusta í Hallgrimskirkju á vegum Hins isl. bibliufélags. Prest- ur: Séra Karl Sigurbjörns- son. Organleikari: Páll Halldórsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.15 Erindaflokkur um upp- eldis- og sálarfræði. Guðný Guðbjörnsdóttir lektor flyt- ur fjórða erindið: Sjálfstæð og skapandi hugsun, er hún hornreka i skólakerfinu? 15.00 Þorskur á þurru landi. Drög að.skýrslu um sölu á hraðfrystum fiski i Bandarikjum Norður-Ameriku. 2. þáttur: Camp Hill og New York. Umsjón: Páll Heiðar Jóns- son. Tæknivinna: Þórir Steingrimsson. 15.00 Miðdegistónleikar: Frá vorhátiðinni i Prag i fyrra. Sinfóniuhljómsveit tékk- neska útvarpsins leikur. Einleikari: John Lill. Stjórnandi: Milos Kova- linka. a. Sinfónia nr. 2 eftir Oldrich Flosman (frumflutningur). b. Pianó- konsert nr. 1 i H-dúr op. 83 eftir Johannes Brahms. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 Framhaldsleikrit barna ogunglinga: „Arni i Hraun- koti” eftir Ármann Kr. Einarsson. VIII. og siðasti þáttur : „Leyndarmálið i litlu öskjunni”. Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Persónur og leikendur: Arni: Hjalti Rögnvaldsson, Rúna: Anna Kristin Arngrimsdóttir, Helga: Valgerður Dan, Magnús: Arni Tryggvason, Jóhanna: Bryndis Péturs- dóttir, Gussi: Jón Júliusson, Olli: Þórhallur Sigurðsson, Sigurður skógfræðingur: Sigurður Karlsson, Mar- grét: Guðbjörg Þorbjarnar- dóttir, Sögumaður: Gisli Alfreðsson. 17.10 Létt-klassisk tónlist. 17.40 Útvarpssaga barnanna: „Njósnir að næturþeli” eftir Guðjón Sveinsson. Höfundur les (8). 18.00 Stundarkorn með hol- lensku söngkonunni EHy Ameling, sem syngur lög eftir Schubert. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 „Hjónakornin Steini og Stina”, gamanleikþáttur eftir Svavar Gests. Annar þáttur. Persónur og leikendur i þessum þætti: Steini: Bessi Bjarnason, Stina: Þóra Friðriksdóttir, Jón Metúsalem: Ómar Ragnarsson. Umsjón: Svavar Gests. 19.45 Sinfónia nr. 2 eftir Arman K ats jat ú r ja n. Filharmoniusveit Slóvakiu leikur, höfundur stjómar. (Hljóðritun frá útvarpinu i Vinarborg). 20.30 iþróttir og fjölmiðiar. Hljóðritun frá ráðstefnu Samtaka iþróttafrétta- manna um iþróttir og fjöl- miðla. Kaflar úr framsögu- erindum og umræður. Jón Asgeirsson stjórnar þættin- um.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.