Tíminn - 22.02.1976, Síða 31
Sunnudagur 22. febrúar 1976
TÍMINN
31
A
íí&j
Kópavogur-
Félagsstarf
eldri bæjarbúa
Áður auglýst safnferð verður farin þriðju-
daginn 24. febrúar og er förinni heitið upp
á Akranes með Akraborginni ef veður
leyfir.
Lagt verður af stað frá Álfhólsvegi 32 kl.
11.30 og komið heim kl. 18. Þátttökugjald
kr. 1.000. Vinsamlegast hafið samband við
Félagsmálastofnunina varðandi þátttöku i
siðasta lagi á þriðjudagsmorguninn.
Tómstundaráð.
Nissin flössin lækka kostnaðinn
við myndatökuna — bæði fyrir
110 vasavél og 35 mm venjulega.
Heildsala — smásala
Benco h.f.
Bolholti 4, Rvlk s. 21945.
Siglufjörður
Staða yfirlæknis við Sjúkrahús Siglu-
fjarðar er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. sept. 1976. Þekking i
skurðlækningum nauðsynleg. Umsóknir
berist stjórn Sjúkrahúss Siglufjarðar fyrir
1. júli 1976 með upplýsingum um menntun
og fyrri störf.
Sjúkrahússtjórn.
Lóðarúthlutun í
Mosfellshreppi
Hér með er auglýst eftir umsóknum um
Ióðir undir einbýlishús, verzlunarhús og
iðnaðarhús. Eldri umsóknir þarf að
endurnýja.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á
skrifstofu Mosfellshrepps, Hlégarði.
Umsóknarfrestur er til 6. marz n.k.
Sveitarstjóri.
Aðalfundur
Félags matreiðslumanna, verður haldinn
þriðjudaginn 2. marz 1976 kl. 15 að Óðins-
götu 7.
FUNDAREFNI:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Stjórn Félags matreiðslumanna.
Sigluf jörður:
Eins og
dauður
bær
gébé-Rvik. — Þetta er eins og
dauður bær miðað við það sem
venjulegt er, sagði Jóhann Þor-
valdsson fréttaritari Timans á
Siglufirði, en þar eru verkalýðs-
félögin og sjómenn i verkfalli.
Verzlunarfólk hefur ekki boðað
verkfall enn, þannig að verzlanir
allar eru opnar og sagðist Jóhann
ekki búast við að verkfalla færi að
gæta fyrr en eftir helgi en Sigl-
firðingar fá mjólk frá Akureyri og
munu mjólkurbirgðir ekki vera til
nema fram að helgi.
— Undanþágur voru veittar til
ræstinga i skólum, sagði Jóhann,
þannig að þeir starfa hér allir.
Einnig var veitt undanþága I gær
til að bæjarstarfsmenn gætu borið
sand á götur bæjarins, þar sem
hláka hefur verið tvo undanfarna
daga og geysileg hálka hefur
myndazt á götunum.
ísaf jörður:
Undanþóga
veitt til
að veita
vatnselgnum
af götunum
gébé—Rvik. — Mikil hláka hefur
verið hér undanfarið og var
undanþága veitt til bæjarstarfs-
manna til að ræsa göturnar en
vatnavextir eru miklir, sagði
Guðmundur Sveinsson fréttarit-
ari Timans á Isafirði. Rækjuflot-
inner allur i höfn og vi.nna liggur
niðri i rækjuverksmiðjunum.
Stóru togararnir, Július Geir-
mundsson Guðbjörg, Guðbjartur
og Páll Pálsson eru allir nýfarnir
til veiða, þrátt fyrir óvissu um
hvað gera skal við aflann þegar
þeir koma aftur.
Verzlunarfólk hefur ekki boðað
verkfall og áhrifa verkfalls er lit-
ið sem ekkert farið að gæta.
Yfirlýsing
fró Græn-
metisverzlun
landbún-
aðarins
VEGNÁfrétta sem birtzt hafa i
dagblöðunum i dag og i gær um
meint verkfallsbrot hjá Græn-
metisverzlun landbúnaðarins, vill
stjórn fyrirtækisins taka eftirfar-
andi fram:
,,Þeir starfsmenn, sem unnið
hafa hjá fyrirtækinu eftir að
verkfail hófst, eru allir félags-
bundnir i starfsmannafélagi rik-
isstofnana. Frá þvi Grænmetis-
verzlun landbúnaðarins tók til
starfa, hefur alltaf verið afgreitt
grænmeti og kartöflur beint til
neytenda. Þessi afgreiðsla hélt
áfram eftir að verkfall hófst á
sama hátt og áöur. Kartöflur
hafa verið skammtaðar frá þvi i
janúar, 25 kg á mann. Auk þess
hefur verið afgreitt 'til þeirra
stofnana, sem höfðu undanþágu
frá verkfallsstjórn Dagsbrúnar.
Þar sem verkfallsvarzla Dags-
brúnar hefur krafizt þess, að af-
greiðslusé hætt, mun hvorki kar-
töflur né grænmeti verða afgreitt
frá Grænmetisverzlun land-
búnaðarins meðan þetta ástand
varir".
IMiWMI
Árnessýsla
Framsóknarfélag Arnessýslu og Framsóknarfélag Hvera-
gerðis gangast fyrir almennum fundi um landbúnaðarmál að
Aratungu sunnudaginn 22. febrúar kl. 13.30.
Frummælendur: Agnar Guðnason, ráðunautur, Björn
Matthiasson, hagfræðingur, Jónas Jónsson, ritstjóri og Jónas
Kristjánsson, ritstjóri.
Fundarstjórar verða Agúst Þorvaldsson, bóndi á Brúnastöð-
um og Sigurður Þorsteinsson, bóndi Heiði.
Stjórnir félaganna.
Akranes
Frarnsóknarfélag Akraness heldur Frarnsóknarvist i félags-
heirnili sinu að Sunnubraut 21 sunnudaginn 22. febrúar kl. 16 00.
Þetta er önnur vistin i fjögurra spila keppni sern lýkur sunnu-
daginn 21. rnarz.
Kvöldverðlaun og heildarverðlaun. öllurn heirnill aðgangur
rneðan húsrúrn leyfir.
Rangæingar — Framsóknarvist
Fyrsta spilakvöld Frarnsóknarfélags Rangárvallasýslu verð-
ur I félagsheirnilinu Hvoli á Hvolsvelli sunnudaginn 22. febrúar
kl. 9. Sérstök kvöldverðlaun veitt. Aðalverðlaun sólarlandaferö
fyrir 2.
Fjölrnennið Stjórnin
Framsóknarvist
Ákveðið hefur verið, ef verkfallið leysist næstu daga, að Fram-
sóknarvist verði haldin að Hótel Sögu fimmtudaginn 26. febrúar
kl. 20,30. Hér er um að ræða þriggja kvölda keppni.
Heildarverðlaun: Farseðlartil utanlandsferðar fyrir 2,enn frem-
ur eins og venja e'’ til, eru sérstök verðlaun fyrir hvert kvöld.
Verið með frá byrjun. Athugið að verði verkfall á þessum tima
verður þessu fyrsta spilakvöldi frestað um sinn.
Framsóknarfélag Reykjavikur.
Forstöðustarf
við Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins
er laust til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa fóstru-
menntun.
Laun sarnkværnt kjarasarnningurn við Starfsrnanna-
félag Reykjavikurborgar.
Urnsóknir rneð upplýsingurn urn inenntun og fyrri störf
þurfa að berast stofnuninni fyrir 9. rnarz n.k
—:--------------------_______________J
Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Vonarstræti 4 sími 25500
J
Skrifstofustjóri
Staða skrifstofustjóra Félagsmálastofnunar Reykja-
vikurborgar er laus til umsóknar.
Urnsækjendur skulu hafa lokið prófi i lögfræði eða við-
skiptafræði. Laun skv. kjarasarnningurn við Starfs-
rnannafélag Reykjavikurborgar.
Uppl. veitir skrifstofustjóri kl. 10.30—12 f.h. tnerna
þriðjud.). Urnsóknir rneð upplýsingurn urn aldur,
rnenntun og fvrri störf þurfa að berast fyrir 9. rnarz
n.k.
wjw-g reiagsmaiastornun Heykjavikurborgar
\ tt f Vonarstræti 4 sími 25500